Feykir


Feykir - 19.12.2013, Side 22

Feykir - 19.12.2013, Side 22
22 Feykir 48/2013 Ásdís Ýr Arnardóttir, Vindhæli í Húnavatnshreppi, skrifar Hvar er Blönduós? Sveitabær? Hvernig dettur þér þessi vitleysa í hug? Þú sem ert með fjögur háskólapróf! Fyrir ekki svo löngu síðan starfaði ég í Háskóla Íslands, bjó á Hagamel og átti barn í Melaskóla. Ég kíkti endrum og eins í Melabúðina, lapti latte á kaffihúsum borgarinnar og fylgdist með gengi KR (sér í lagi í yngri flokkunum). Ég var týpískur Vesturbæingur, vann langan vinnudag og með fínar tekjur. En það var alltaf eitthvað sem vantaði, eitthvað sem landsbyggðarstelpan fann ekki í Reykjavík. Ég ákvað að flytja út á land, kollvarpa lífinu í Vesturbænum. Viðbrögð fólks létu ekki á sér standa, flestum fannst þetta argasta vitleysa og jafnvel frekar hlægilegt að ung kona með góða menntun ætlaði sér að setjast að á sveitabæ við Blönduós. Ég var spurð að því hvernig ég ætlaði að nota háskólanámið mitt við eldavélina í sveitinni og fleira í þeim dúr. Fordómar fólks gagnvart landsbyggðinni virtust gígantískir og yfirleitt var horft til menntunar minnar þegar mér var bent á fáránleika þess að flytja, í raun eins og háskólamenntað fólk gæti bara búið í Vesturbænum. Sem betur fer er það ekki raunin. En ég fór og er afskaplega ánægð með þá ákvörðun mína. Í dag bendi ég fólki gjarnan á að Blönduós sé í 243 km fjarlægð frá Reykjavík, jú ég elda talsvert mikið í sveitinni en nýt þess að eiga góðar samverustundir með fjölskyldu minni. Það var eitthvað sem oft var af skornum skammti í Vesturbænum, eingöngu vegna tímaleysis. Þrátt fyrir að vera nokkuð nösk við eldavélina þá veit ég að allir þurfa að hafa krefjandi verkefni, og ef maður hefur menntað sig til ákveðinna starfa þá er það mikill akkur að fá að starfa á þeim vettvangi. En jú, ég er með fjögur háskólapróf og hef fengið tækifæri til að nýta þau í eflingu menntunar á NV-landi, mín menntun og reynsla kemur íbúum til góða. Það er samt ýmislegt sem við á þessu svæði megum læra af Vesturbæingum og við sem íbúar NV-lands þurfum að gera meiri kröfur til þeirra sem ráða. Það er t.d.ekki ásættanlegt að heilbrigðisþjónusta sé takmörkuð líkt og hún er í A-Hún. Það er ekki sjálfsagt að leggja sjúkrabílnum á Skagaströnd í sparnarskyni og síður en svo ásættanlegt að þungaðar konur þurfi að ferðast hundruði km með léttasótt, í hvaða veðrum sem er. Síðast en ekki síst þá er með öllu óásættanlegt að hafa ekki lækna með fasta viðveru á svæðinu. Fjarskiptamál svæðisins eru í raun hlægileg, gagnaflutingur með 4G kynntur í öllum fjölmiðlum á sama tíma og símasamband næst ekki alls staðar í byggð hér á svæðinu og ákveðinn hluti íbúa þarf að búa við lélegt internetsamband. 4G er því langt frá því að vera raunveruleikinn hér. Launaumhverfi svæðisins er svo annar farsi, langt frá því að vera samkeppnishæft við t.d. suðvesturhornið. En þrátt fyrir þessa „annmarka“ er lífið á landsbyggðinni dásamlegt, tempóið er hægara og umhverfið fjölskylduvænna. Við verðum að halda vel á spöðunum, því þættir eins og þessir hafa talsvert um að segja um hvar fólk ákveður að setjast að. Okkur vantar fólk heim í hérað. Við þurfum að skapa fleiri tækifæri og ákjósanlegar aðstæður fyrir fólk sem vill setjast að í héraðinu, án þess að samverkamenn þeirra á suðvesturhorninu reki upp stór augu og fari að leita að Blönduósi á landakorti. - - - - Ég skora á Elínu Ósk Gísladóttur, fótaaðgerða- fræðing á Blönduósi, til að taka við pennanum. ÁSKORENDAPENNINN UMSJ kristin@feykir.is Aflahornið 8.-14. desember 2013 Íþróttir 1. deild karla : Tindastóll – Þór 92-73 Málmey léttir á sér Körfuboltadeild Tindastóls, FyrirmyndarfélagHörkurimma og sætur sigur Landað var um tæpum níu tonnum á Hofsósi og rúmum 385 tonnum á Sauðárkróki. Málmey SK-1 kom inn og létti á sér, þar sem lest var orðin full, en túrinn rétt rúmlega hálfnaður. Á Skagaströnd var landað rúmum 640 tonnum og rúmum 12 tonnum á Hvammstanga. Alls gera þetta rúmlega 1046 tonn á Norðurlandi vestra. /KSE Fyrir leik Tindastóls og Þórs í fyrstu deild sl. föstudagskvöld var körfuboltadeild Tindastóls afhent viðurkenning sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Það var Viðar Sigurjónsson starfsmaður Fræðslusviðs ÍSÍ sem heiðraði deildina með undirrituðu skjali sem staðfesti að öllum formum væri uppfyllt til að öðlast þennan heiður. Unglingadeildin hafði áður fengið þessa viðurkenningu en nú er það öll deildin sem hana hlýtur. Það voru þau Stefán Jónsson formaður, Hafdís Einarsdóttir og Eiríkur Loftsson sem tóku við viðurkenningunni ásamt fríðum hópi barna sem eflaust eiga eftir að gera garðinn frægan á körfuboltavöllum landsins. /PF Það var loksins að stuðnings- menn Tindastóls fengu hasar og spennu í Síkinu þegar lið Þórs frá Akureyri kom í heimsókn sl. föstudagskvöld. Lokatölur voru 92-73 og Stólarnir komnir með fjögurra stiga forskot í 1. deildinni. Þórsarar komu einbeittir og baráttuglaðir til leiks og náðu forystu í byrjun leiks. Þeir höfðu greinilega reiknað með pressu hjá Stólunum, sem gekk eftir, en gestunum gekk ágætlega að spila sig í gegnum pressuna. Þórsarar komust í 5-11 en heimamenn jöfnuðu og höfðu síðan forystuna út fyrsta leikhluta. Staðan 22-20. Eins og stundum áður í vetur þá varð pressuvörnin til þess að Tindastólsmenn söfnuðu villum af miklum móð og Proctor, sem annars var að spila vel, fékk sína þriðju villu snemma í öðrum leikhluta. Helgi Rafn náði 11 stiga forystu, 38-27, um miðjan annan leikhluta. Þegar rúmar tvær mínútur voru til leikhlés kom Helgi sínum mönnum í 48-33 og í hálfleik var staðan 48-35. Áður en Stólarnir náðu að gera fyrstu stig sín í seinni hálfleik höfðu Þórsarar minnkað muninn í 48-44. Þórsarar fylltust sjálfstrausti og börðust eins og ljón. Tindastóll komst þó í 54-46 en þegar tvær og hálf mínúta var eftir af fjórðungnum komust Þórsarar yfir, 56-57. Þá sagði Helgi Margeirs hingað og ekki lengra og setti niður tvær flauels 3ja stiga körfur og Stólarnir náðu takti fyrir fjórða leikhluta. Staðan 67-59. Í fjórða leikhluta fór harður varnarleikur Þórsara að segja til sín því þeir fóru að týnast út af einn af öðrum með fimm villur. Þeir brutu endalaust á Proctor, Helga Margeirs og Helga Rafni og þeir tveir fyrrnefndu settu öll sín víti niður en fyrirliðinn fann ekki vítafjölina í kvöld. Þetta kom þó ekki að sök því Stólarnir spiluðu ágæta vörn og héldu 10-15 stiga forskoti síðustu mínúturnar og það var að sjálfsögðu Helgi Margeirs sem kórónaði frábæran síðari hálfleik sinn með 3ja stiga körfu hálfri mínútu fyrir leikslok. Stig Tindastóls: Proctor 22, Helgi Rafn 22, Flake 21, Helgi Margeirs 21, Pétur 7 og Ingvi Rafn 2. /ÓAB SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Harpa HU-4 4.581 Steini HU-45 7.889 Alls á Hvammstanga 12.470 Addi afi GK-97 Landb. lína 20.303 Alda HU-112 Landb.lína 14.063 Ágúst GK-195 Lína 76.318 Bergur Vigfús GK-43 8.439 Flugalda ST-54 Landb.lína 5.381 Guðmundur á Hópi Handfæri 23.245 Hamar SH-224 Landb.lína 46.551 Kristinn SH-812 Landb.lína 54.626 Muggur KE-57 Landb.lína 21.204 Stella GK-23 Landb.lína 12.077 Sturla GK-12 Lína 92.434 Sæfari HU-200 Landb. lína 2.113 Tjaldur SH-270 Lína 46.919 Tómas Þorv. GK-10 Lína 65.553 Valdimar GK-195 Lína 92.535 Von GK-113 Lína 20.193 Örvar SH-77 Lína 38.935 Alls á Skagaströnd: 640.889 Klakkur SK-5 Botnvarpa 127.763 Málmey SK-1 Botnvarpa 257.449 Alls á Sauðárkróki 385.212 Ásmundur SK-123 Landb.lína 6.618 Geisli SK-66 Handfæri 2.130 Alls á Hofsósi 8.748

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.