Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 12
Chelsea bjargaði sér fyrir horn með bikarmeistaratitli Eden Hazard tryggði Chelsea áttunda bikarmeistaratitilinn í sögu félagsins og sá til þess um leið að Manchester United fer titlalaust í gegnum keppnistímabilið. fótbolti Chelsea varð á laugardag- inn enskur bikarmeistari í knatt- spyru karla í áttunda skipti í sögu félagsins. Chelsea bar sigurorð af Manchester United með einu marki gegn engu í úrslitaleiknum sem fram fór á Wembley. Eden Harzard skoraði sigurmark Chelsea með marki úr vítaspyrnu um miðbik fyrri hálfleiks. Chelsea tókst þar með að vinna einn titil á nýlokinni leiktíð, en Manchester United fór aftur á móti í gegnum tímabilið án þess að vinna titil. Það er huggun harmi gegn fyrir stuðningsmenn Manchester United að liðið er á leiðinni í Meistaradeild Evrópu, en Chelsea mun hins vegar leika í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Antonio Conte hjá Chelsea, en titilvörn liðsins gekk ekki vel á leiktíðinni sem var að ljúka og liðið hafnaði í fimmta sæti deildarinnar. Nú er spurning hvort Roman Abrahamovic, eigandi Chelsea, sem gat ekki verið viðstaddur á bikarúr- slitaleiknum þar sem hann er ekki með landvistarleyfi á Englandi eins og sakir standa, álítur fyrrgreindan árangur liðsins í deildinni og bikar- meistaratitil ásættanlegan og held- ur Conte í brúnni á næstu leiktíð. Conte sagði í samtali við enska fjölmiðla eftir leikinn að það þyrfti að gera miklar breytingar hjá félag- inu ætlaði liðið sér að berjast um Englandsmeistaratitilinn. Sú breyt- ing felst að öllum líkindum annað- hvort í því að Conte hverfi af braut eða hann fái rými til þess að hrista upp í leikmannahópi liðsins. Sé litið til sögunnar hvað veltu á knatt- spyrnustjórum í tíð Abrahamovic hjá Chelsea varðar er ekkert víst að titill í lok leiktíðar verði til þess að Conte haldi starfi sínu. José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur verið gagnrýndur í allan vetur fyrir að liðið spili varnarsinnaða og leiðin- lega knattspyrnu og gagnrýnendur portúgalska knattspyrnustjórans fengu byr í seglin fyrir næstu gagn- rýnisöldu þegar liðinu mistókst að skora í þessum leik. Mögnuð tölfræði Mourinho þegar kemur að sigrum í úrslita- leikjum þar sem hann er við stjórn- völinn sem knattspyrnustjóri versnaði með þessu tapi, en hann hefur nú haft betur í 12 af þeim 15 úrslitaleikjum sem hann hefur stýrt. hjorvaro@frettabladid.is Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, var vitanlega glaður í leikslok þegar hann lyfti bikarnum. NordiCphotos/Getty Klettháls 13 · hnb.is · 590 5040 Audi Q5 Quattro 2.0 TDI 2016 6.490.000 18” álfelgur, dráttarbeisli, fjarlægðarskynjarar, loftkæling, lyklalaust aðgengi/ræsing, rafmagnsopnun/lokun á afturhlera, sportsæti, ISOFIX festingar í aftursætum, kastarar, LED dagljós, LED framljós o.fl. Verksmiðjuábyrgð í gildi til júlí 2021 eða 150.000 km. aksturs, hvort sem fyrr kemur. Forsendur fyrir því að ábyrgðarframlengingin gildi er að bifreiðin sé þjónustuð af viðurkenndum þjónustuaðila. 30.000Ekinn 30 Raf / Bensín Ekinn þús. km. Myndir á vef Dísil Fjórhjóladrif Metan & bensín Sjálfskiptur Beinskiptur Rafmagnsbíll Fleiri bílar og myndir á netinu: hnb.is Nokkrir góðir inn í sumarið VW Golf Variant Comfortline R-Line 1.4 TSI 4.190.0002017 6 BMW 218D F46 Grand Tourer 2015 40 3.390.000 Mercedes-Benz A220 CDI 2014 61 3.990.000 Toyota RAV4 GX Plus 2014 72 3.140.000 Mitsubishi Pajero Instyle 3.2 DID 6.390.0002016 67 Skoda Superb Combi Style 2.0 TDI 5.290.0002017 37 4.990.000TILBOÐ 3.490.000TILBOÐ 2.850.000TILBOÐ 2 2 . m a í 2 0 1 8 Þ R i Ð J U D a G U R12 S p o R t ∙ f R É t t a b l a Ð i Ð 2 2 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D A -9 D 2 C 1 F D A -9 B F 0 1 F D A -9 A B 4 1 F D A -9 9 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.