Fréttablaðið - 22.05.2018, Qupperneq 12
Chelsea bjargaði
sér fyrir horn með
bikarmeistaratitli
Eden Hazard tryggði Chelsea áttunda bikarmeistaratitilinn í sögu félagsins og sá
til þess um leið að Manchester United fer titlalaust í gegnum keppnistímabilið.
fótbolti Chelsea varð á laugardag-
inn enskur bikarmeistari í knatt-
spyru karla í áttunda skipti í sögu
félagsins. Chelsea bar sigurorð af
Manchester United með einu marki
gegn engu í úrslitaleiknum sem
fram fór á Wembley.
Eden Harzard skoraði sigurmark
Chelsea með marki úr vítaspyrnu
um miðbik fyrri hálfleiks. Chelsea
tókst þar með að vinna einn titil á
nýlokinni leiktíð, en Manchester
United fór aftur á móti í gegnum
tímabilið án þess að vinna titil.
Það er huggun harmi gegn fyrir
stuðningsmenn Manchester United
að liðið er á leiðinni í Meistaradeild
Evrópu, en Chelsea mun hins vegar
leika í Evrópudeildinni á næstu
leiktíð.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um framtíð Antonio Conte hjá
Chelsea, en titilvörn liðsins gekk
ekki vel á leiktíðinni sem var að
ljúka og liðið hafnaði í fimmta sæti
deildarinnar.
Nú er spurning hvort Roman
Abrahamovic, eigandi Chelsea, sem
gat ekki verið viðstaddur á bikarúr-
slitaleiknum þar sem hann er ekki
með landvistarleyfi á Englandi eins
og sakir standa, álítur fyrrgreindan
árangur liðsins í deildinni og bikar-
meistaratitil ásættanlegan og held-
ur Conte í brúnni á næstu leiktíð.
Conte sagði í samtali við enska
fjölmiðla eftir leikinn að það þyrfti
að gera miklar breytingar hjá félag-
inu ætlaði liðið sér að berjast um
Englandsmeistaratitilinn. Sú breyt-
ing felst að öllum líkindum annað-
hvort í því að Conte hverfi af braut
eða hann fái rými til þess að hrista
upp í leikmannahópi liðsins. Sé
litið til sögunnar hvað veltu á knatt-
spyrnustjórum í tíð Abrahamovic
hjá Chelsea varðar er ekkert víst að
titill í lok leiktíðar verði til þess að
Conte haldi starfi sínu.
José Mourinho, knattspyrnustjóri
Manchester United, hefur verið
gagnrýndur í allan vetur fyrir að
liðið spili varnarsinnaða og leiðin-
lega knattspyrnu og gagnrýnendur
portúgalska knattspyrnustjórans
fengu byr í seglin fyrir næstu gagn-
rýnisöldu þegar liðinu mistókst að
skora í þessum leik.
Mögnuð tölfræði Mourinho
þegar kemur að sigrum í úrslita-
leikjum þar sem hann er við stjórn-
völinn sem knattspyrnustjóri
versnaði með þessu tapi, en hann
hefur nú haft betur í 12 af þeim 15
úrslitaleikjum sem hann hefur stýrt.
hjorvaro@frettabladid.is
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, var vitanlega glaður í leikslok þegar hann lyfti bikarnum. NordiCphotos/Getty
Klettháls 13 · hnb.is · 590 5040
Audi Q5
Quattro 2.0 TDI
2016 6.490.000
18” álfelgur, dráttarbeisli, fjarlægðarskynjarar, loftkæling, lyklalaust
aðgengi/ræsing, rafmagnsopnun/lokun á afturhlera, sportsæti,
ISOFIX festingar í aftursætum, kastarar, LED dagljós, LED framljós
o.fl. Verksmiðjuábyrgð í gildi til júlí 2021 eða 150.000 km. aksturs,
hvort sem fyrr kemur. Forsendur fyrir því að ábyrgðarframlengingin
gildi er að bifreiðin sé þjónustuð af viðurkenndum þjónustuaðila.
30.000Ekinn
30
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
Fleiri bílar og
myndir á netinu: hnb.is
Nokkrir góðir
inn í sumarið
VW Golf Variant
Comfortline R-Line 1.4 TSI
4.190.0002017
6
BMW 218D
F46 Grand Tourer
2015
40
3.390.000
Mercedes-Benz A220
CDI
2014
61
3.990.000
Toyota RAV4
GX Plus
2014
72
3.140.000
Mitsubishi Pajero
Instyle 3.2 DID
6.390.0002016
67
Skoda Superb Combi
Style 2.0 TDI
5.290.0002017
37
4.990.000TILBOÐ
3.490.000TILBOÐ 2.850.000TILBOÐ
2 2 . m a í 2 0 1 8 Þ R i Ð J U D a G U R12 S p o R t ∙ f R É t t a b l a Ð i Ð
2
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
A
-9
D
2
C
1
F
D
A
-9
B
F
0
1
F
D
A
-9
A
B
4
1
F
D
A
-9
9
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K