Fréttablaðið - 22.05.2018, Side 38

Fréttablaðið - 22.05.2018, Side 38
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda i ll i undirbúnings og framkvæmd útfar r ásamt vinnu við dánarbús- skiptin. Við þjónum með virðingu o umhyggju að leiðarljósi og f fa legum metnaði. Ellert Ingason, umsjón sálmaskrár Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær eiginkona mín, systir okkar, mágkona og frænka, Hildur Eðvarðsdóttir frá Brautartungu, Skagabraut 48, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi, 13. maí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 29. maí kl. 13. Eiríkur Sveinsson Margrét Kristjánsdóttir Helgi Hannesson Sveinn Gunnar Eðvarðsson Anna E. Rafnsdóttir Guðni Eðvarðsson Halldóra Ingimundardóttir og systkinabörn. Hjartans þakkir fyrir samhug og hlýju við andlát og útför Jóhönnu Karlsdóttur Víðihlíð 15, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahúsanna á Sauðárkróki og Akureyri. Karl Bjarnason Grétar, Annika, Hanna Maja Reynhildur og aðrir aðstandendur. Okkar ástkæri Reynir Jónasson fv. aðstoðarbankastjóri, Birkihæð 12, Garðabæ, er látinn. Jarðarför verður í Kópavogskirkju, fimmtudaginn 24. maí nk. kl. 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Elín Þórhallsdóttir Gunnar Ólafur Bjarnason Sigrún Sigfúsdóttir Jónas Reynisson Hanna Lára Helgadóttir Þórhallur Haukur Reynisson Kristín Jónasdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Guðlaug Hróbjartsdóttir Reykjamörk 3, Hveragerði, lést fimmtudaginn 17. maí. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 24. maí kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á starfsfólk hjúkrunarheimilisins Áss. Upplýsingar á skrifstofu Áss. Erlendur Guðmundsson Ívar Erlendsson Banu Naimy Victor W. Ívarsson Guðlaug Ívarsdóttir Alexander Már Snæbjörnsson Ég hef unnið við slysavarnir barna frá árinu 1991 og vann í mörg ár í verkefni sem heyrði undir ríkið,“ segir Herdís Storgaard, verkefna-stjóri Miðstöðvar slysavarna barna. „Fyrir um fjórum árum ákváðu stjórnvöld að hætta að setja fé í verkefni um slysavarnir barna. Þrátt fyrir að mik- ill árangur hefði náðst í málaflokknum. Mér fannst það ekki vera hægt að gefast upp,“ segir Herdís sem hafði áhyggjur af því að foreldrar gætu hvergi leitað að upplýsingum um öryggi barna. „Ég stofnaði frjáls félagasamtök og hélt áfram starfi mínu í sjálfboðavinnu. Ég var með ákveðnar hugmyndir, vildi geta sýnt foreldrum hvernig öruggt heimili lítur út og hafði samband við Þórarin Ævarsson, framkvæmdastjóra IKEA. Hann tók vel í hugmyndir mínar og gaf mér húsgögn. Ég útbjó sýniað- stöðu fyrir foreldra og býð þeim upp á ókeypis námskeið,“ segir Herdís frá. „Einasta ástæðan fyrir því að ég get haldið úti rekstri er stuðningur tveggja fyrirtækja við mig, Sjóvár og IKEA á Íslandi,“ útskýrir hún. Starfsfólk höfuðstöðva IKEA í Svíþjóð heyrði af uppátækinu á Íslandi. „Þeir komu til Íslands og vildu kynnast starfi mínu betur, urðu hrifin af hugmynd- unum og aðferðafræðinni sem ég nota í kennslunni. Þeir buðu mér starf og nú hef ég unnið fyrir IKEA í rúm tvö ár. Það kom upp sú hugmynd að gera app fyrir foreldra sem byggir á nám- skeiðunum mínum. Nú er það tilbúið. Það kallast: Öruggara heimili. Í því má kanna mismunandi herbergi heimilisins og fá ráð um hvar er hægt að auka örygg- ið,“ segir Herdís frá. „Við munum prófa þetta fyrst á Íslandi en síðan verður appinu dreift út um allan heim ef vel gengur,“ segir Herdís frá og er ánægð með afraksturinn. „Ekki síst vegna þess hversu erfið staðan var þegar ríkið skar þjónustuna niður. Ég hefði ekki staðið í þessu nema fyrir þá staðreynd hversu glaðir og þakk- látir foreldrar eru. Svo hefur þetta undið upp á sig. Höfuðstöðvarnar eru í Suður- Svíþjóð. Ég bý hins vegar enn á Íslandi og get unnið heima. Ég fer svo reglulega út. Þetta hefur verið algjört ævintýri sem hefur falið í sér samstarf við sérfræðinga um allan heim,“ segir Herdís frá. kristjanabjörg@frettabladid.is Þróaði app úr ævistarfinu Herdís Storgaard hefur í áratugi háð baráttu á sviði slysavarna barna. Fyrir nokkru skar ríkið niður þá þjónustu sem Herdís veitti. Hún gafst þó ekki upp og hefur í samstarfi við IKEA hannað app sem aðstoðar foreldra við að útbúa öruggara heimili fyrir börnin sín. Herdís hefur helgað líf sitt því að fræða foreldra um hvernig megi gera heimili sem öruggust fyrir börn. Í appinu er farið ítarlega yfir öryggis­ atriði sem foreldrar þurfa að gæta að. Ég hefði ekki staðið í þessu nema fyrir þá staðreynd hversu glaðir og þakklátir foreldrar eru. Svo hefur þetta undið upp á sig. Johnny Carson var banda- rískur þáttastjórnandi og naut mikilla vinsælda. Hann stjórnaði hinum geysivinsæla þætti The Tonight Show í 30 ár eða á árunum 1962- 1992. Milljónir sátu sem límdar við skjáinn á hverju kvöldi þar sem Carson tók á móti góðum gestum. Ásamt viðtölum voru í þáttunum tónlistaratriði og fastir liðir þar sem slegið var á létta strengi. Eftirmaður Johnnys Carson var Jay Leno, sem stjórnaði þætt- inum til ársins 2014. Þá tók Jimmy Fallon við stjórnartaum- unum og hefur stýrt þáttunum allar götur síðan. Þ EttA g E r ð I St 2 2 . M A Í 1 9 9 2 Johnny Carson lét af störfum 2 2 . m a í 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D a G U R14 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a Ð I Ð tímamót 2 2 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F D A -A 2 1 C 1 F D A -A 0 E 0 1 F D A -9 F A 4 1 F D A -9 E 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.