Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 38
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
i ll i undirbúnings og
framkvæmd útfar r ásamt vinnu við dánarbús-
skiptin. Við þjónum með virðingu o umhyggju
að leiðarljósi og f fa legum metnaði.
Ellert Ingason,
umsjón sálmaskrár
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær eiginkona mín,
systir okkar, mágkona og frænka,
Hildur Eðvarðsdóttir
frá Brautartungu,
Skagabraut 48, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, 13. maí. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju þriðjudaginn 29. maí kl. 13.
Eiríkur Sveinsson
Margrét Kristjánsdóttir Helgi Hannesson
Sveinn Gunnar Eðvarðsson Anna E. Rafnsdóttir
Guðni Eðvarðsson Halldóra Ingimundardóttir
og systkinabörn.
Hjartans þakkir fyrir samhug og hlýju
við andlát og útför
Jóhönnu Karlsdóttur
Víðihlíð 15, Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
sjúkrahúsanna á Sauðárkróki
og Akureyri.
Karl Bjarnason
Grétar, Annika, Hanna Maja
Reynhildur
og aðrir aðstandendur.
Okkar ástkæri
Reynir Jónasson
fv. aðstoðarbankastjóri,
Birkihæð 12, Garðabæ,
er látinn.
Jarðarför verður í Kópavogskirkju,
fimmtudaginn 24. maí nk. kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Elín Þórhallsdóttir
Gunnar Ólafur Bjarnason Sigrún Sigfúsdóttir
Jónas Reynisson Hanna Lára Helgadóttir
Þórhallur Haukur Reynisson Kristín Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir mín,
tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðlaug Hróbjartsdóttir
Reykjamörk 3, Hveragerði,
lést fimmtudaginn 17. maí. Útförin fer
fram frá Hveragerðiskirkju fimmtudaginn
24. maí kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á starfsfólk hjúkrunarheimilisins Áss.
Upplýsingar á skrifstofu Áss.
Erlendur Guðmundsson
Ívar Erlendsson Banu Naimy
Victor W. Ívarsson
Guðlaug Ívarsdóttir
Alexander Már Snæbjörnsson
Ég hef unnið við slysavarnir barna frá árinu 1991 og vann í mörg ár í verkefni sem heyrði undir ríkið,“ segir Herdís Storgaard, verkefna-stjóri Miðstöðvar slysavarna
barna. „Fyrir um fjórum árum ákváðu
stjórnvöld að hætta að setja fé í verkefni
um slysavarnir barna. Þrátt fyrir að mik-
ill árangur hefði náðst í málaflokknum.
Mér fannst það ekki vera hægt að gefast
upp,“ segir Herdís sem hafði áhyggjur
af því að foreldrar gætu hvergi leitað að
upplýsingum um öryggi barna.
„Ég stofnaði frjáls félagasamtök og
hélt áfram starfi mínu í sjálfboðavinnu.
Ég var með ákveðnar hugmyndir, vildi
geta sýnt foreldrum hvernig öruggt
heimili lítur út og hafði samband við
Þórarin Ævarsson, framkvæmdastjóra
IKEA. Hann tók vel í hugmyndir mínar
og gaf mér húsgögn. Ég útbjó sýniað-
stöðu fyrir foreldra og býð þeim upp
á ókeypis námskeið,“ segir Herdís frá.
„Einasta ástæðan fyrir því að ég get
haldið úti rekstri er stuðningur tveggja
fyrirtækja við mig, Sjóvár og IKEA á
Íslandi,“ útskýrir hún.
Starfsfólk höfuðstöðva IKEA í Svíþjóð
heyrði af uppátækinu á Íslandi. „Þeir
komu til Íslands og vildu kynnast starfi
mínu betur, urðu hrifin af hugmynd-
unum og aðferðafræðinni sem ég nota
í kennslunni. Þeir buðu mér starf og nú
hef ég unnið fyrir IKEA í rúm tvö ár.
Það kom upp sú hugmynd að gera
app fyrir foreldra sem byggir á nám-
skeiðunum mínum. Nú er það tilbúið.
Það kallast: Öruggara heimili. Í því má
kanna mismunandi herbergi heimilisins
og fá ráð um hvar er hægt að auka örygg-
ið,“ segir Herdís frá. „Við munum prófa
þetta fyrst á Íslandi en síðan verður
appinu dreift út um allan heim ef vel
gengur,“ segir Herdís frá og er ánægð
með afraksturinn.
„Ekki síst vegna þess hversu erfið
staðan var þegar ríkið skar þjónustuna
niður. Ég hefði ekki staðið í þessu nema
fyrir þá staðreynd hversu glaðir og þakk-
látir foreldrar eru. Svo hefur þetta undið
upp á sig. Höfuðstöðvarnar eru í Suður-
Svíþjóð. Ég bý hins vegar enn á Íslandi
og get unnið heima. Ég fer svo reglulega
út. Þetta hefur verið algjört ævintýri sem
hefur falið í sér samstarf við sérfræðinga
um allan heim,“ segir Herdís frá.
kristjanabjörg@frettabladid.is
Þróaði app úr ævistarfinu
Herdís Storgaard hefur í áratugi háð baráttu á sviði slysavarna barna. Fyrir nokkru skar
ríkið niður þá þjónustu sem Herdís veitti. Hún gafst þó ekki upp og hefur í samstarfi við
IKEA hannað app sem aðstoðar foreldra við að útbúa öruggara heimili fyrir börnin sín.
Herdís hefur helgað líf sitt því að fræða foreldra um hvernig megi gera heimili sem öruggust fyrir börn.
Í appinu er farið ítarlega yfir öryggis
atriði sem foreldrar þurfa að gæta að.
Ég hefði ekki staðið í
þessu nema fyrir þá
staðreynd hversu glaðir og
þakklátir foreldrar eru. Svo
hefur þetta undið upp á sig.
Johnny Carson var banda-
rískur þáttastjórnandi og
naut mikilla vinsælda.
Hann stjórnaði
hinum geysivinsæla
þætti The Tonight
Show í 30 ár eða á
árunum 1962-
1992. Milljónir
sátu sem límdar
við skjáinn á hverju
kvöldi þar sem
Carson tók á móti
góðum gestum. Ásamt
viðtölum voru í þáttunum
tónlistaratriði og fastir liðir
þar sem slegið var á létta strengi.
Eftirmaður Johnnys Carson var Jay Leno, sem stjórnaði þætt-
inum til ársins 2014. Þá tók Jimmy Fallon við stjórnartaum-
unum og hefur stýrt þáttunum allar götur síðan.
Þ EttA g E r ð I St 2 2 . M A Í 1 9 9 2
Johnny Carson lét af störfum
2 2 . m a í 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D a G U R14 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a Ð I Ð
tímamót
2
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
A
-A
2
1
C
1
F
D
A
-A
0
E
0
1
F
D
A
-9
F
A
4
1
F
D
A
-9
E
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K