Þórr - 01.12.1910, Blaðsíða 8

Þórr - 01.12.1910, Blaðsíða 8
8 ingu sem eg, unnið einungis til þess, að fá nokkra skildinga til að drekka fyrir. í gær kom hann upp á byggingarpallana, þar sem eg stóð. Hann var föl- ur og leit illa og aumingjalega út. Þrátt fyrir það, þó eg talaði aldrei við hann, gat eg nú eigi stilt mig um að segja: »Eg hefi heyrt, að sonur þinn hafi dregið óheppilega tölu — hann á að fara til nýlend- anna. Aumingja drengurinn«. »Aumingja drengurinn. — Nú, þú aumkvar hann líka. Af hverju ætti hann ekki að þjóna föðurlandi sínu sem aðrir. Þú og Anetta mundu horfa á með rósemi þó eg væri lagstur í gröf mína, því þá yrði hann frjáls«. Hann brosti — en það var viðurstyggi- legt bros. Við hvern stein, sem eg lagði í hleðsluna, eftir að hann skildi við mig, gægðust fram gamlar endur- minningar, hver eftir aðra, um líf Anettu með þessu úrþvætti. Þegar kl. sló 12, gekk erfiðisfólkið ofan, til þess að fá sér brauðbita. Eg og Filip vorum þeir síðustu. Rétt í því að hann setti fót sinn i stigann, og sneri bakinu út að götunni, sá hann framan í mig, og þar á meðal þann viðbjóð er eg hafði á honum, og augljóslega skein á andliti minu. Hann gekk einni tröppu neðar í stigann og sagði: »Anetta er ekki enn þá orðin ekkja«. Svo skjótt sem elding fór sú hugsun gegnum höfuð mér, að þetta væri einungis það sem hana vantaði; og í sama augnabliki spyrnti eg stiganum frá pöllunum, svo að á næsta augnabliki lá Fiiip dauður á steinstéttinni fvrir neðan. »Þetta heíir viljað til af óhöppum«, sögðu menn. En nú er Anetta ekkja. Þetta er mín yfirsjón, faðir. Það er mjög leitt

x

Þórr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þórr
https://timarit.is/publication/1280

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.