Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.05.2018, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 03.05.2018, Qupperneq 4
4 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 3. maí 2018 // 18. tbl. // 39. árg. Vortilboð á grillum og grill aukahlutum 15 % a fs lá tt ur a f g as i m eð k ey pt u gr ill i Fitjabakka 2-4, Reykjanesbæ, sími 420 1000 Olíuverzlun Íslands hf Útibú Njarðvík 25% afsláttur af grillum og grill aukahlutum Mikið úrval af aukahlutum Ásta N. Þórarinsdóttir fótaaðgerðafræðingur á stofu sinni í Snyrti Gallerý. 3 milljónasti Kia bíllinn af- hentur í Reykjanesbæ fyrir Evrópumarkað Kia hefur framleitt þrjár milljónir bíla í Evrópu og svo skemmtilega vill til að Kia bíll númer 3.000.000 var afhentur hér á landi í síðustu viku, nánar tiltekið hjá K. Steinarsson í Reykjanesbæ. Um er að ræða hvítan, 5 dyra Kia ceed í GT Line útfærslu. Stoltur eigandi þessa tímamótabíls frá Kia heitir Elvar Unndór Sveins- son. Hann fékk bílinn afhentan með viðhöfn í gær og fékk m.a. gjafa- bréf á Library, HM Monopoly spil, 2 landsliðstreyjur og Kia HM bolta að gjöf frá Bílaumboðinu Öskju. ,,Þetta er sérlega ánægjulegt að bíll númer 3.000.000 sem framleiddur er í Evrópu skuli vera afhentur hér á landi. Við erum afar stolt af því og því góða gengi sem Kia hefur náð hér á landi. Merkið hefur var það næst sölu- hæsta á Íslandi á síðasta ári og hefur verið í þremur efstu sætunum yfir söluhæstu merkin á síðustu árum," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju. Kia framleiðir bíla fyrir Evrópu- markað í hátæknivæddri verksmiðju fyrirtækisins í Zilina í Slóvakíu. Þar hafa allar þrjár milljónir bílanna fyrir Evrópumarkað verið framleiddar frá árinu 2006. Á síðasta ári framleiddi Kia alls 335.600 bíla í verksmiðjunni sem er hæsta framleiðsla sem bíla- framleiðandinn hefur náð á einu ári í verskmiðjunni. Þar framleiðir Kia bíla sem uppfylla hæstu gæðaviðmið í álfunni. Verk- smiðjan setur ekki einungis ný viðmið í skilvirkni og framleiðni heldur upp- fyllir hún um leið ströngustu reglu- gerðir á sviði umhverfismála sem í gildi eru innan Evrópusambandsins. Gæði er forgangsatriði í allri starf- semi Kia. Af þeim sökum er einn af hverjum fimmtán starfsmönnum í verksmiðjunni í Zilina ábyrgur fyrir gæðaeftirliti. Kia hefur mikla trú á gæðum bíla sinna og býður sjö ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum sem er lengsta ábyrgð sem bílaframleiðandi býður upp á í heiminum. Í verksmiðjunni starfa tæplega 4.000 starfsmenn. Unnið er á vöktum allan sólarhring- inn í verksmiðjunni þannig að fram- leiðslan stoppar aldrei. „FÆTURNIR HALDA OKKUR GANGANDI“ – segir Ásta N. Þórarinsdóttir, fótaaðgerðarfræðingur hjá Snyrti Gallerý „Að koma í fótaaðgerð er mjög gott og mikilvægt fyrir alla og sérstaklega fyrir þá sem eru í einhverskonar áhættuhóp eins og fólk með sykursýki og gigt, svo eitthvað sé nefnt. Fólk með sykursýki þarf sérstaklega að hugsa vel um fæturna þar sem skynjunin fer minnkandi með árunum og ef slæmt ef sár kemur vegna núnings og að fá sykursýkissár getur verið alvarlegt og getur þýtt að til aflimunar þurfi að koma,“ segir Ásta N. Þórarinsdóttir, fótaaðgerðarfræðingur hjá Snyrti Gallerý að Hafnargötu 27a í Reykjanesbæ. Niðurgrónar neglur eru eitt af við- fangsefnum Ástu, en vandamálin geta verið þrenns konar niðurgrónar eða inngrónar og upprúllaðar neglur. Hún segir þessi vandamál hægt að leysa með svokallaðri spangartækni. Inn- eða niðurgrónar táneglur geta valdið ólýsanlegum sársauka og segir Ásta að margir sem til hennar leita af þeim sökum séu svo illa haldnir að vart megi snerta á þeim fæturna. Fari margir til læknis og láti fjarlægja nöglina, sem eigi einungis að vera þrautalending en ekki almenn regla „Fótaaðgerðafræðingar laga inn- grónar táneglur með tiltölulega lítilli fyrirhöfn, sé borið saman við skurðaðgerð, en helsta ráðið er að spengja viðkomandi nögl með sér- sniðnum stálvír og lyfta henni þar með örlítið upp úr naglbeðnum. Notuð eru mismunandi efni til þess að festa vírinn, eftir hverju tilviki fyrir sig,“ segir Ásta. Hún mælir eindregið með skoðun fótanna hjá fótaaðgerðafræðingi á 8-12 vikna fresti. „Það er ekki tómur lúxus að fara í fótaaðgerð. Hennar getur verið veruleg þörf. Fæturnir halda okkur svo sannarlega gangandi í margvíslegum skilningi, segir Ásta að endingu. Þeir sem vilja setja sig í samband við Ástu er bent á aug- lýsingu frá henni í blaðinu í dag. Þorgeir Pálsson og Kjartan Steinarsson afhentu Elvari Unndóri Sveinssyni nýjan Kia Ceed GT Line sem er sannkallaður tímamótabíll enda bíll númer 3 milljón sem Kia framleiðir fyrir Evrópumarkað.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.