Víkurfréttir - 03.05.2018, Side 12
12 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 3. maí 2018 // 18. tbl. // 39. árg.
Jafnvægi í verði en áfram mikil eftirspurn
– segir Guðlaugur H. Guðlaugsson, fasteignasali hjá Stuðlabergi
„Það er komið komið meira jafnvægi á fasteignamarkaðinn eftir frekar
óeðlilegt ástand undanfarin 2–3 ár þegar slegist var um hverja eign sem
flestar seldust yfirverði. Það er samt alveg ljóst að það er mikil hreyfing
á markaðnum og verður áfram því svæðið er í mikilli sókn sem sér ekki
fyrir endann á,“ segir Guðlaugur H. Guðlaugsson, fasteignasali og eigandi
fasteignasölunnar Stuðlabergs sem hefur verið starfrækt í rúman aldar-
fjórðung í Reykjanesbæ. Guðlaugur og starfsfólk fögnuðu stækkun skrif-
stofunnar við Hafnargötu 20 nýlega en á henni starfa fimm manns, þar af
fjórir löggiltir fasteignasalar.
Sérstakt ástand eftir hrun
Guðlaugur segir að mikil hækkun
hafi orðið á fasteignamarkaðinum
á Suðurnesjum en sérstakt ástand
varð eftir bankahrun og mikið fram-
boð varð til eftir byggingahrinu árin
fyrir hrunið. Á undanförnum 3–4
árum hafi leiðin hins vegar legið upp á
við. Íbúðalánasjóður átti mikið magn
eigna í Reykjanesbæ og nágrenni og
bauð fjölda íbúða í pökkum sem að-
ilar keyptu og nýttu sér að nú var
kominn kaupendamarkaður. Guð-
laugur segir að einnig hafi margir ein-
staklingar nýtt sér kaupendamarkað
og gert góð kaup. Nú sé staðan hins
vegar orðin önnur og jafnvægi hefur
verið að myndast á undanförnum
mánuðum. Þá séu byggingaverktakar
loksins komnir í framkvæmdagír í
kjölfar þess að verðið hækkaði og
eftirspurnin jókst. Nú er hún mikil,
sérstaklega eftir minni íbúðum og
þá sé einnig mikil ásókn eftir leigu-
íbúðum. „Það þarf að vera jafnvægi
og framboð á báðum stöðum, fyrir þá
sem vilja kaupa og þá sem vilja leigja.
Byggingaverktakar hafa tekið við sér
og núna eru mörg hundruð íbúðir í
byggingu og verða næstu árin. Mér
líst vel á það sem er farið af stað og
er að fara af stað. Þetta eru spenn-
andi eignir við ströndina í Keflavík
og einnig í Hlíðahverfi í Reykjanesbæ.
Svo eru í pípunum framkvæmdir við
fjölda nýrra minni íbúða við Nesvelli í
Reykjanesbæ. Innri-Njarðvík fer ekki
miklu nær höfuðborginni á næstunni
heldur mun svæðið þéttast,“ segir
Guðlaugur en lang flestar nýjar íbúðir
eru í því hverfi.
Aðspurður um verðið á eignunum
á Suðurnesjum segir Guðlaugur að
það sé komið aftur nær verði fast-
eigna á höfuðborgarsvæðinu og er
t.d. um 80–90% af verði eigna að
Ásvöllum í Hafnarfirði. „En Suður-
nesjamarkaðurinn á líklega eitthvað
inni og hver veit nema að munurinn
haldi áfram að minnka.“
Skólahverfin vinsæl
Vinsælustu hverfin á Suðurnesjum
eru skólahverfin í Reykjanesbæ. Guð-
laugur segir að það hafi verið góð
sala í öllum byggðarlögum á Suður-
nesjum, ekki bara í Reykjanesbæ
heldur líka í Grindavík, Sandgerði,
Garði og Vogum en þar var nýlega
greint frá byggingaframkvæmdum
sem munu þrefalda íbúatölu sveitar-
félagsins á næsta áratug. „Það er ljóst
að mikið framboð af atvinnu hefur
sogað fólk til Suðurnesja. Allt þetta
fjör í ferðaþjónustunni og gríðarleg
uppbygging á Keflavíkurflugvelli og
hún verður mjög mikil næstu árin,
fyrir milljarða tugi.“
Með nýjum íbúðum inn á markað-
inn mun fólk á miðjum aldri kaupa
minni eignir og nýrri og við það losna
margar eldri eignir, m.a. stærri eignir.
Guðlaugur er ekki hræddur við að
það verði ekki eftirspurn eftir þeim,
stærri eldri eignir séu iðulega vin-
sælar hjá yngri fjölskyldum. Eignir
á verðbilinu 40 til 60 milljónir seljist
vel en verð á dýrustu eignunum á
enn langt í land hvað verðlagningu
varðar sé tekið mið af Reykjavík og
nágrenni. Enn séu dýrustu eignir á
Suðurnesjum ekki komnar yfir 100
milljónir kr. en það muni þó gerast
á einhverjum tímapunkti. Guðlaugur
segir að fólk á öllum aldri hafi verið
að flytja suður með sjó, bæði ungt
fólk og eldra. „Ég var á dögunum að
ganga frá kaupsamningi við fólk á
besta aldri frá Djúpavogi sem er að
flytja hingað. “
Leiguíbúðir fyrir aldraða
Guðlaugur segir að innkoma stóru
leigufélaganna hafi verið jákvæð og þá
er hann sáttur með þróunina á Ásbrú
þar sem í boði hafa verið leiguíbúðir
og einnig íbúðir til kaups á hagstæðu
verði. Hann segir þó nauðsynlegt að
fá líka leiguíbúðir í Reykjanesbæ og
nágrenni fyrir eldri borgara sem séu
ekki allir að kaupa.
En er hann bjartsýnn á fasteigna-
markaðinn í náinni framtíð á Suður-
nesjum?
„Já, ég á von á því að verðin hækki
áfram en þó bara eitthvað sem við
getum kallað eðlilegt, 6–8%,“ sagði
Guðlaugur Helgi.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
ÞÓRHALLUR GÍSLASON
f.v. skipstjóri og hafnarvörður
frá Setbergi, Sandgerði,
lést á Hrafnistu Hlévangi, miðvikudaginn 25. apríl.
Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði,
föstudaginn 11. maí kl. 13.
Þóra Þórhallsdóttir Sigurbjörn Björnsson
Benóný Þórhallsson Svava Jónsdóttir
Sigurður Sveinsson
Jónas Karl Þórhallsson Dröfn Vilmundardóttir
Gísli Þór Þórhallsson Helga Bylgja Gísladóttir
og fjölskyldur
SUNNUDAGURINN 6. MAÍ KL. 11
Grill og gleði, gleði, gleði er Dýrin í Hálsaskógi,
frá Leikfélagi Keflavíkur, koma í heimsókn
í Keflavíkurkirkju. Hvert sinn sem komið er
saman í Keflavíkurkirkju er sungið og ekki
bregðum við út af vana þennan sunnudag.
Samverustund fyrir börn sem fullorðna þar
sem endað verður á gæða grillpylsum.
Verið öll velkomin. Sr. Fritz Már leiðir stundina
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 12
Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar. Hugleiðing,
bæn ásamt söng og orgelspili. Gæðakonur bera
fram matarmikla súpu og brauð.
Velkomin öll til okkar
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ KL. 13
Uppstigningardagur er kirkjudagur aldraðara á
Íslandi. Víða er því öldruðum sérstaklega boðað
til helgihalds á þessum degi. Í Keflavíkurkirkju
verður guðsþjónusta kl. 13. Eldey, kór eldri
borgara á Suðurnesjum, syngur undir stjórn
Arnórs Vilbergssonar organista. Prestur er
sr. Erla Guðmundsdóttir. Boðið verður upp á
kaffi og meðlæti í Kirkjulundi að lokinni guðs-
þjónustu. Þennan sama dag kl. 17 heldur Eldey
árlega vortónleika í Kirkjulundi.
Verið öll velkomin
Helgihald í
Njarðvíkurprestakalli
3. maí til 9. maí 2018
Ytri-Njarðvíkurkirkja
Helgistund 6. maí kl. 20.00
í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Við bjóðum sérstaklega velkomin
fermingarbörn 2019 og foreldra
þeirra.
Kóræfing í Ytri-Njarðvíkurkirkju
1. maí kl.19:30. Nýtt söngfólk boðið
velkomið.
Vinavoðir miðvikudaginn
2. maí kl.10:30-13:30.
Njarðvíkurkirkja (Innri)
Foreldramorgun í Safnaðarheimili
Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn
1. maí kl.10.30. Umsjón hefur
Emilía B. Óskarsdóttir.
Æskulýðsstarfssemi KFUM/K
í Njarðvíkurkirkju (Innri)
26. apríl kl. 19:30-20:30.
Umsjón hefur Heiðar Örn Hönnuson.