Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.05.2018, Page 12

Víkurfréttir - 03.05.2018, Page 12
12 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 3. maí 2018 // 18. tbl. // 39. árg. Jafnvægi í verði en áfram mikil eftirspurn – segir Guðlaugur H. Guðlaugsson, fasteignasali hjá Stuðlabergi „Það er komið komið meira jafnvægi á fasteignamarkaðinn eftir frekar óeðlilegt ástand undanfarin 2–3 ár þegar slegist var um hverja eign sem flestar seldust yfirverði. Það er samt alveg ljóst að það er mikil hreyfing á markaðnum og verður áfram því svæðið er í mikilli sókn sem sér ekki fyrir endann á,“ segir Guðlaugur H. Guðlaugsson, fasteignasali og eigandi fasteignasölunnar Stuðlabergs sem hefur verið starfrækt í rúman aldar- fjórðung í Reykjanesbæ. Guðlaugur og starfsfólk fögnuðu stækkun skrif- stofunnar við Hafnargötu 20 nýlega en á henni starfa fimm manns, þar af fjórir löggiltir fasteignasalar. Sérstakt ástand eftir hrun Guðlaugur segir að mikil hækkun hafi orðið á fasteignamarkaðinum á Suðurnesjum en sérstakt ástand varð eftir bankahrun og mikið fram- boð varð til eftir byggingahrinu árin fyrir hrunið. Á undanförnum 3–4 árum hafi leiðin hins vegar legið upp á við. Íbúðalánasjóður átti mikið magn eigna í Reykjanesbæ og nágrenni og bauð fjölda íbúða í pökkum sem að- ilar keyptu og nýttu sér að nú var kominn kaupendamarkaður. Guð- laugur segir að einnig hafi margir ein- staklingar nýtt sér kaupendamarkað og gert góð kaup. Nú sé staðan hins vegar orðin önnur og jafnvægi hefur verið að myndast á undanförnum mánuðum. Þá séu byggingaverktakar loksins komnir í framkvæmdagír í kjölfar þess að verðið hækkaði og eftirspurnin jókst. Nú er hún mikil, sérstaklega eftir minni íbúðum og þá sé einnig mikil ásókn eftir leigu- íbúðum. „Það þarf að vera jafnvægi og framboð á báðum stöðum, fyrir þá sem vilja kaupa og þá sem vilja leigja. Byggingaverktakar hafa tekið við sér og núna eru mörg hundruð íbúðir í byggingu og verða næstu árin. Mér líst vel á það sem er farið af stað og er að fara af stað. Þetta eru spenn- andi eignir við ströndina í Keflavík og einnig í Hlíðahverfi í Reykjanesbæ. Svo eru í pípunum framkvæmdir við fjölda nýrra minni íbúða við Nesvelli í Reykjanesbæ. Innri-Njarðvík fer ekki miklu nær höfuðborginni á næstunni heldur mun svæðið þéttast,“ segir Guðlaugur en lang flestar nýjar íbúðir eru í því hverfi. Aðspurður um verðið á eignunum á Suðurnesjum segir Guðlaugur að það sé komið aftur nær verði fast- eigna á höfuðborgarsvæðinu og er t.d. um 80–90% af verði eigna að Ásvöllum í Hafnarfirði. „En Suður- nesjamarkaðurinn á líklega eitthvað inni og hver veit nema að munurinn haldi áfram að minnka.“ Skólahverfin vinsæl Vinsælustu hverfin á Suðurnesjum eru skólahverfin í Reykjanesbæ. Guð- laugur segir að það hafi verið góð sala í öllum byggðarlögum á Suður- nesjum, ekki bara í Reykjanesbæ heldur líka í Grindavík, Sandgerði, Garði og Vogum en þar var nýlega greint frá byggingaframkvæmdum sem munu þrefalda íbúatölu sveitar- félagsins á næsta áratug. „Það er ljóst að mikið framboð af atvinnu hefur sogað fólk til Suðurnesja. Allt þetta fjör í ferðaþjónustunni og gríðarleg uppbygging á Keflavíkurflugvelli og hún verður mjög mikil næstu árin, fyrir milljarða tugi.“ Með nýjum íbúðum inn á markað- inn mun fólk á miðjum aldri kaupa minni eignir og nýrri og við það losna margar eldri eignir, m.a. stærri eignir. Guðlaugur er ekki hræddur við að það verði ekki eftirspurn eftir þeim, stærri eldri eignir séu iðulega vin- sælar hjá yngri fjölskyldum. Eignir á verðbilinu 40 til 60 milljónir seljist vel en verð á dýrustu eignunum á enn langt í land hvað verðlagningu varðar sé tekið mið af Reykjavík og nágrenni. Enn séu dýrustu eignir á Suðurnesjum ekki komnar yfir 100 milljónir kr. en það muni þó gerast á einhverjum tímapunkti. Guðlaugur segir að fólk á öllum aldri hafi verið að flytja suður með sjó, bæði ungt fólk og eldra. „Ég var á dögunum að ganga frá kaupsamningi við fólk á besta aldri frá Djúpavogi sem er að flytja hingað. “ Leiguíbúðir fyrir aldraða Guðlaugur segir að innkoma stóru leigufélaganna hafi verið jákvæð og þá er hann sáttur með þróunina á Ásbrú þar sem í boði hafa verið leiguíbúðir og einnig íbúðir til kaups á hagstæðu verði. Hann segir þó nauðsynlegt að fá líka leiguíbúðir í Reykjanesbæ og nágrenni fyrir eldri borgara sem séu ekki allir að kaupa. En er hann bjartsýnn á fasteigna- markaðinn í náinni framtíð á Suður- nesjum? „Já, ég á von á því að verðin hækki áfram en þó bara eitthvað sem við getum kallað eðlilegt, 6–8%,“ sagði Guðlaugur Helgi.   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84 Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÞÓRHALLUR GÍSLASON f.v. skipstjóri og hafnarvörður frá Setbergi, Sandgerði, lést á Hrafnistu Hlévangi, miðvikudaginn 25. apríl. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði, föstudaginn 11. maí kl. 13. Þóra Þórhallsdóttir Sigurbjörn Björnsson Benóný Þórhallsson Svava Jónsdóttir Sigurður Sveinsson Jónas Karl Þórhallsson Dröfn Vilmundardóttir Gísli Þór Þórhallsson Helga Bylgja Gísladóttir og fjölskyldur SUNNUDAGURINN 6. MAÍ KL. 11 Grill og gleði, gleði, gleði er Dýrin í Hálsaskógi, frá Leikfélagi Keflavíkur, koma í heimsókn í Keflavíkurkirkju. Hvert sinn sem komið er saman í Keflavíkurkirkju er sungið og ekki bregðum við út af vana þennan sunnudag. Samverustund fyrir börn sem fullorðna þar sem endað verður á gæða grillpylsum. Verið öll velkomin. Sr. Fritz Már leiðir stundina MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 12 Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar. Hugleiðing, bæn ásamt söng og orgelspili. Gæðakonur bera fram matarmikla súpu og brauð. Velkomin öll til okkar FIMMTUDAGUR 10. MAÍ KL. 13 Uppstigningardagur er kirkjudagur aldraðara á Íslandi. Víða er því öldruðum sérstaklega boðað til helgihalds á þessum degi. Í Keflavíkurkirkju verður guðsþjónusta kl. 13. Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum, syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Prestur er sr. Erla Guðmundsdóttir. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti í Kirkjulundi að lokinni guðs- þjónustu. Þennan sama dag kl. 17 heldur Eldey árlega vortónleika í Kirkjulundi. Verið öll velkomin Helgihald í Njarðvíkurprestakalli 3. maí til 9. maí 2018 Ytri-Njarðvíkurkirkja Helgistund 6. maí kl. 20.00 í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Við bjóðum sérstaklega velkomin fermingarbörn 2019 og foreldra þeirra. Kóræfing í Ytri-Njarðvíkurkirkju 1. maí kl.19:30. Nýtt söngfólk boðið velkomið. Vinavoðir miðvikudaginn 2. maí kl.10:30-13:30. Njarðvíkurkirkja (Innri) Foreldramorgun í Safnaðarheimili Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 1. maí kl.10.30. Umsjón hefur Emilía B. Óskarsdóttir. Æskulýðsstarfssemi KFUM/K í Njarðvíkurkirkju (Innri) 26. apríl kl. 19:30-20:30. Umsjón hefur Heiðar Örn Hönnuson.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.