Víkurfréttir - 03.05.2018, Qupperneq 17
17ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 3. maí 2018 // 18. tbl. // 39. árg.
Skipulagsbreytingar
í Reykjanesbæ
Tillaga að minniháttar breytingu á aðalskipulagi Pósthússtræti
5,7 og 9
Reykjanesbær 3. maí 2018.
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með
auglýstar eftirfarandi skipulagstillögur:
Tillagan felur í sér að fjöldi íbúða á reit ÍB34 fer úr 80 í 102.
Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnar-
götu 12 frá og með 3. maí til 21. júní 2018. Tillögur er einnig aðgengi-
legar á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur
á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athuga-
semdum er til 21. júní 2018. Skila skal inn skriflegum athugasemdum
á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ eða á net-
fang skipulagsfulltrúa, gunnar.k.ottosson@reykjanesbaer.is, þar sem
nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.
Skipulagsfulltrúi
Tillaga að minniháttar breytingu á aðalskipulagi Stapabraut 1
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Stapabraut 1
Tilagan felur í sér að reitur S34 er stækkaður og grænt svæði
minnkar á móti.
Tillagan felur í sér að lóðin Stapabraut 1 stækkar úr 6.558m2 í
10.735m2.
VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ
KRAFTMIKLU FÓLKI TIL STARFA
Bréfberi óskast í Keflavík
Pósturinn leitar að kraftmiklum, ábyrgðarfullum og jákvæðum einstaklingi í útburð.
Dreifing fer fram frá dreifingarstöð okkar í Keflavík.
Hressandi útivera og við leitum eftir einstaklingi í fullt starf. Vinnutíminn er frá 07:00 til
15:15, alla virka daga.
Umsóknarfrestur er opinn þar sem mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst. Tekið er á móti umsóknum á umsóknarvef okkar, www.postur.is.
Pósturinn er með Gullmerki jafnlaunaúttektar PwC og hvetur jafnt konur sem karla til
að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir: Anna María Guðmundsdóttir í
síma 421 4300 eða í netfangi annam@postur.is.
Umsóknarfrestur:
Opinn
Umsóknir:
www.postur.is
Víði spáð níunda sæti
Knattspyrnuliðinu Víðir Garði er spáð níunda sæti af Fótbolta.net í annari
deildinni í knattspyrnu. Litlu munaði að Víðir kæmist upp í Inkasso-deildina
í fyrra en töp í þremur af fjórum síðustu leikjum þeirra varð til þess að þeir
héldu áfram í annari deildinni. Guðjón Árni Antoníusson hefur þjálfað liðið
frá því á miðju tímabili í fyrra en Guðjón er fæddur og uppalinn í Garðinum
og er hann talinn hafa góð áhrif á liðið ásamt því að vera efnilegur þjálfari.
Styrkleikar liðsins eru taldir vera þeir
að liðið hefur bætt við sig nokkrum
góðum leikmönnum en ásamt því
hafa komið lánsmenn frá Njarðvík og
Keflavík, varnarmaðurinn Tonci Rado-
nikovic er einnig kominn til liðsins
en hann lék 42 leiki í Pepsi- deildinni
2015 og 2016.
Veikleiki liðsins er talinn vera varnar-
leikurinn og einnig það að mikil leik-
mannavelta sé búin að vera hjá liðinu,
lykilmenn liðsins eru sagðir vera Tonci
Radonikovic, Patrik Snær Atlason og
Róbert Örn Ólafsson.
Guðjón segir í samtali við Fótbolti.
net að þessi spá komi sér bæði og á
óvart og að deildin virðist vera jöfn í
ár. „Markmiðin eru að sjálfsögðu bæta
og þroska unga óreynda leikmenn
okkar með því að ná í úrslit sem gefa
okkur færi á að berjast við bestu liðin."
Komnir:
Ari Steinn Guðmundsson frá Keflavík
(á láni)
Ási Þórhallsson frá Keflavík
Andri Gíslason frá ÍH
Brynjar Atli Bragason frá Njarðvík
(á láni)
Brynjar Bergmann Björnsson frá
Keflavík
Dejan Stamenkovic frá Serbíu
Eiður Snær Unnarsson frá Keflavík
Einar Þór Kjartansson frá Reyni S.
Emil Gluhalic frá Reyni S.
Erik Oliversson frá Keflavík
Fannar Orri Sævarsson frá Keflavík
(á láni)
Nathan Ward frá GG
Sigurður Þór Hallgrímsson frá GG
Tonci Radonikovic frá Króatíu
Farnir:
Aleksandar Stojkovic í Fjarðabyggð
Breki Einarsson í Þrótt R. (var á láni)
Daníel Bergmann Róbertsson í Reyni
S.
Eðvarð Atli Bjarnason í Þrótt V.
Einar Daníelsson í Ísbjörninn
Guðmundur Marinó Jónsson í Reyni S.
Helgi Þór Jónsson í Njarðvík
Magnús Þórir Matthíasson í Reyni S.
Ólafur Jón Jónsson í Reyni S.
Piotr Bujak í Þrótt V. (var á láni)
Sigurður Hallgrímsson í GG
Tómas Jónsson í GG
Unnar Már Unnarsson í Njarðvík
Þröstur I. Smárason í Njarðvík (var
á láni)
Víðir leikur sinn fyrsta leik gegn
Hetti þann 5. maí á Fellavelli á Egils-
stöðum.
Grindavík spáð níunda sæti
í Pepsi-deild kvenna
Grindavík er spáð níunda sæti í
Pepsi-deild kvenna af Fótbolti.
net en liðið endaði í sjöunda sæti
deildarinnar í fyrra og náði þar
með að halda sér uppi. Aðeins tíu lið
eru í deildinni og er því liðinu spáð
fallsæti. Nýr þjálfari hefur tekið við
liðinu en það er Ray Anthony Jóns-
son, fyrrum leikmaður Grindavíkur.
Liðið hefur misst marga reynslu-
bolta úr liðinu frá því í fyrra og
teflir Grindavík fram frekar ungu
liði en efnilegir leikmenn eru innan
liðsins. Þá hefur Grindavík fengið til
sín sterka erlenda leikmenn sem hafa
verið lyftistöng fyrir liðið. Þetta segir
meðal annars í umfjöllun um styrk-
leika liðsins: Hafa verið skipulagðar
og reynt að spila sterkan varnarleik og
stungið stærri liðin illa með hröðum
skyndisóknum. „Ef styrkingin erlendis
frá verður úr efri skúffunum þá gætu
þær hjálpað kjarnanum sem fyrir er
að taka skref upp á við frá í fyrra.“
Lykilleikmenn liðsins eru taldir vera
Vivian, markmaður liðsins, Ísabel Jas-
mín Almarsdóttir, fyrirliði og hin brasil-
íska Rilany. Dröfn Einarsdóttir er einnig
talin upp sem leikmaður sem verður
gaman að fylgjast með en hún hefur
leikið með yngri landsliðum Íslands.
Komnar:
Rio Hardy frá Englandi
Steffi Hardy frá Englandi
Margrét Hulda Þorsteinsdóttir frá
Keflavík
Farnar:
Sara Hrund Helgadóttir hætt
Emma Higgins í Selfoss
Carolina Mendes til Ítalíu
Thaisa de Moraes Rosa til Brasilíu
Lauren Brennan til Nýja-Sjálands
Guðrún Bentína Frímannsdóttir hætt
Anna Þórunn Guðmunsdóttir hætt
Grindavík tekur á móti Þór/KA þann
5. maí á Grindavíkurvelli.
FÓTBOLTASAMANTEKT
Keflavík með stjörnuleik í
Garðabænum
Keflavík mætti Stjörnunni í sín-
um fyrsta leik í Pepsi-deild karla
í knattspyrnu sl. föstudag og er
óhætt að segja að Keflvíkingar
hafi átt stjörnuleik en þeir náðu
að knýja fram jafntefli eftir að hafa
verið 2–0 undir. Mörk Keflavíkur
skoruðu þeir Ísak Óli Ólafsson og
Frans Elvarsson en mark Frans var
kosið mark umferðarinnar í Pepsi-
mörkunum á Stöð 2 sport. Frans
segir í samtali við Víkurfréttir að
það er hafi verið skemmtilegt að
fá mark umferðarinnar. „Það voru
nokkur flott mörk í umferðinni
en bara gaman að mitt hafi orðið
fyrir valinu.“
Tíu spjöld á loft í Grindavík
Grindavík mætti FH á heimavelli í
fyrstu umferð Pepsi-deildar karla í
knattspyrnu sl. laugardag. Leikur-
inn endaði með sigri gestanna og
voru lokatölur leiksins 0–1. Alls
fóru tíu spjöld á loft í leiknum.
Gunnar Þorsteinsson, fyrirliði
Grindavíkur sagði í samtali við
Víkurfréttir að þeir hefðu mætt vel
undirbúnir til leiks með góða leiká-
ætlun. „Við lágum frekar aftar-
lega varnarlega og Hafnfirðingar
leyfðu okkur að bera boltann upp
eins og við bjuggumst við. Mörk
breyta leikjum og við urðum að
setja aukinn þunga í sóknarleik-
inn í seinni hálfleik. Við urðum
kannski helst til óþreyjufullir og
fórum að beita löngum boltum of
fljótt sem þeir áttu í litlum vand-
ræðum með að verjast. Við lærum
vonandi af þeim mistökum því við
munum auðvitað einhvern tímann
á tímabilinu lenda aftur í því að
vera undir þegar lítið er eftir.“
Keflavík og Grindavík mætast í
næsta leik í deildinni þann 7. maí
nk. á Nettóvellinum í sannköll-
uðum nágrannaslag og hefst
leikurinn kl. 19:15.