Víkurfréttir - 03.05.2018, Síða 20
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Þeir ákváðu að henda
í eitt hreinsunarátak
þarna í Grindavík.
Landsnet vekur athygli á að Skipulagsstofnun hefur lagt fram til kynningar tillögu að
matsáætlun fyrir Suðurnesjalínu 2.
Hægt er að gera athugasemdir við áætlunina og skulu þær berast skriflega til Skipulagsstofnunar
eigi síðar en 11. maí 2018. Einnig er hægt að senda athugasemdir með tölvupósti á
skipulag@skipulag.is.
Tengil á tillögu að matsáætlun ásamt athugasemdum við drög má finna á heimasíðu
Skipulagsstofnunar; skipulag.is.
HAFNARFJÖRÐUR – SUÐURNES
Suðurnesjalína 2 – Mat á umhverfisáhrifum
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Líf í miðbæinn
Það eru ekki mörg ár síðan að um-
ræðan um miðborg Reykjavíkur
snerist öll um að miðborgin væri
deyjandi. Ekkert líf, ekkert fólk og
tómt verslunarhúsnæði. Fyrirsagnir
á borð við „Miðbærinn er dauður“
voru algengar í dagblöðum og við-
fangsefnið betri miðbær var áberandi
í umræðunni fyrir velflestar borgar-
stjórnarkosningar.
En ekki lengur. Nú er líf í miðborginni
frá morgni til kvölds, alla daga og
allan ársins hring. Miðbærinn hefur
stækkað og nær nú vestur á Granda og
austur fyrir Hlemm. Gömul uppgerð
hús með sterka sögu í bland við ný
hús laða til sín margvíslega atvinnu-
starfsemi og gestum fjölgar. Erlendir
ferðamenn eru auðvitað í miklum
meirihluta gesta miðborgarinnar en
með fjölgun þeirra og þar með fjölgun
viðskiptavina hefur skapast rekstar-
grundvöllur fyrir fjölbreyttan atvinnu-
rekstur, veitingastaði og verslanir sem
heimamenn fá líka notið. Þannig hafa
lífsgæði borgarbúa og okkar hinna
sem sækja borgina heim aukist. Það
er gaman að rölta um líflega borg og
njóta fjölbreytts mannlífs.
Það má hrósa borgaryfirvöldum
fyrir að hafa lagt metnað í að hlúa
að miðborginni og efla hana með
þeim tækjum og tólum sem hand-
hafi skipulagsvaldsins hefur úr að
spila. Þarna tel ég að Reykjanesbær
geti mikið lært og eigi stórt verk fyrir
höndum- og mikil tækifæri ef rétt er
á málum haldið.
Hafnargatan okkar og miðbæjar-
svæðið hefur alla möguleika til að
geta laðað til sín fjölbreytta atvinnu-
starfsemi og iðandi mannlíf. Þrátt
fyrir að vera steinsnar frá hliðinu inn í
landið- Keflavíkurflugvelli- er Reykja-
nesbær ekki sérstakur áfangastaður
ferðamanna, heldur miklu frekar við-
komustaður ferðamanna á leið sinni
inn og út úr landinu. Í tölum frá Ferða-
málastofu kemur fram að rúmlega
300.000 erlendir ferðamenn sóttu
Reykjanesbæ heim á árinu 2017, u.þ.b.
16-17% af heildarfjölda ferðamanna
sem til landsins komu, eða svipað og
heimsóttu Húsavík það sama ár, sem
er eins og allir vita hinum megin á
landinu og eins langt frá “hliðinu” og
mögulegt er. Þegar fjöldi innlendra
ferðamanna er skoðaður hallar jafn-
vel meira á okkur hér, en einungis um
28.000 innlendir ferðamenn heim-
sóttu Reykjanesbæ 2017.
Við hljótum að geta gert betur- síldar-
torfan syndir framhjá okkur. Og þann-
ig erum við ekki að ná að njóta af-
raksturs fjölgunar ferðamanna í formi
lifandi og fjölbreytts miðbæjar fyrir
okkur íbúana. Þarna eru óþrjótandi
tækifæri og þarf samstillt átak og
skýra stefnu. Hvernig viljum við hafa
bæinn okkar?
Ég vil fallegan bæ þar sem gott er að
búa og sem eftirsótt er að heimsækja.
Þar sem hlúð er að menningarverð-
mætum og söguarfi en það er einmitt
það sem innlendir og erlendir ferða-
menn sækjast eftir að skoða. Þar sem
heildarhugsun ríkir í skipulagsmálum
og metnaður ríkir fyrir því að byggja
upp ásamt því að leggja rækt við hið
gamla. Þannig sköpum við líf - líf í
miðbæinn okkar.
LOKAORÐ
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
Landvernd og Blái herinn hleyptu í dag af stað strandhreinsunarátakinu
Hreinsum Ísland við Grunnskóla Grindavíkur í síðustu viku. Nemendur
í 6. bekk Grunnskóla Grindavíkur og leikskólanna Lautar og Króks tóku
þátt í að hleypa átakinu af stað.
Margrét Hugadóttir frá Landvernd
var með kynningu á átakinu ásamt
fróðleik um plast og mengun. Leik-
skólabörnin sungu lag, 6. bekkur
sagði frá hreinsun og hreinsunará-
taki sem þau hafa tekið þátt í, gerð
var núvitundaræfing og 6. bekkur
hljóp í stórfiskaleik. Grindavíkurbær
mun ásamt öðrum sveitarfélögum
á Reykjanesi taka þátt í Norrænni
strandhreinsun þann 5. maí næst-
komandi.
Dagana 25. apríl - 6. maí vekja Land-
vernd og Blái herinn athygli á þeim
hættum sem fylgja plastmengun
í hafi. Landsmenn eru hvattir til
að skipuleggja sínar eigin strand-
hreinsanir og má skrá sig til leiks á
hreinsumisland.is en þar má finna
góðar leiðbeiningar um hvernig skipu-
leggja megi hreinsun á árangursríkan
hátt, í sátt við menn og náttúru.
Landvernd vonast til þess að sem
flestir leggi hönd á plóg og taki þátt í
að minnka plastmengun. Hvetja þau
fólk til að nota minna plast, kaupa
minna og auka endurvinnslu.
Allir sem skrá sína hreinsun geta
fengið hana birta á Íslandskort
átaksins.
Íslandshreinsun
hófst í Grindavík
Vortónleikar
Sönghóps Suðurnesja
verða haldnir í Ytri-Njarðvíkurkirkju
þriðjudaginn 8. maí kl. 20
Kórstjóri: Magnús Kjartansson
Á dagskrá verða létt og skemmtileg lög
í anda hópsins.
Miðaverð: 1500 kr.