Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.11.2017, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.11. 2017
Frá því Saad al-Hariri sagði afsér sem forsætisráðherraLíbanons 4. nóvember hefur
loft verið lævi blandið og ýmsar
kenningar á lofti um hvað búi að
baki.
Hariri var staddur í Ríad, höfuð-
borg Sádi-Arabíu, þegar hann til-
kynnti afsögnina. Hann talaði um
áætlanir um að ráða sig af dögum og
var með þungar ásakanir á hendur
Írönum. Vændi hann Írana um að
nýta áhrif sín í Hizbolla-hreyfing-
unni til að ýta undir óstöðugleika í
Líbanon. Hizbollah situr í hinni svo-
kölluðu einingarstjórn Líbanons,
sem mynduð var fyrir ári, ásamt
flokki Hariris, Framtíðinni.
Fangi eða frjáls maður
Eftir yfirlýsinguna sagði Thamer al-
Sabhan, ráðherra málefna Persaflóa
í Sádi-Arabíu, að samskipti stjórnar
sinnar við stjórnvöld í Líbanon yrðu
eins og við stjórn, sem lýst hefði
stríði á hendur Sádi-Aröbum. Því
næst hvöttu stjórnvöld í Sádi-
Arabíu saudiarabíska ríkisborgara í
Líbanon til að forða sér.
Hassan Nasrullah, leiðtogi Hiz-
bollah, sakaði Sádi-Araba um að
hafa Hariri í haldi og neita honum
um að snúa aftur.
Michel Aoun, forseti Líbanons,
sagði einnig að yfirvöld í Sádi-
Arabíu hefðu tekið Hariri fastan og
neitaði að taka mark á afsögn hans.
Eftir yfirlýsingu Aouns sagði
Hariri á Twitter að ekkert amaði að
sér og hann myndi brátt snúa aftur,
en það dugði ekki til að slá á sam-
særiskenningarnar.
Nú hafa Frakkar blandað sér í
málið og er Hariri væntanlegur til
Frakklands frá Sádi-Arabíu í dag,
laugardag.
Hariri er einnig með sádiarab-
ískan ríkisborgararétt og á í víð-
tækum viðskiptum í landinu. Faðir
hans, Rafic Hariri, var myrtur í til-
ræði í Beirút 2005. Hann hafði verið
forsætisráðherra í sex ár á tíunda
áratug liðinnar aldar. Bárust böndin
að Hizbollah. Nú er hermt að Sádi-
Arabar vilji koma eldri bróður Sa-
ads, Bahaa, fyrir á stóli forsætisráð-
herra Líbanons. Pólitísk reynsla
hans er lítil, en hann mun hafa mun
meiri andúð á Hizbollah en Saad.
Þetta mál er ekki eina birtingar-
mynd togstreitunnar milli Írans og
Sádi-Arabíu og um leið milli sjía-
múslima og súnnímúslima.
Írönum hefur á undanförnum ár-
um vaxið fiskur um hrygg. Að
hyggju sádiarabískra stjórnvalda
þarf að hemja klerkaveldið eigi að
koma í veg fyrir glundroða og ring-
ulreið í Mið-Austurlöndum.
Átökin í Írak og Sýrlandi verið
vatn á myllu Írana, sem hefur tekist
að auka ítök sín og áhrif sín í Mið-
Austurlöndum svo um munar. Þar
við bætist að kjarnorkusamkomu-
lagið, sem gert var í stjórnartíð Bar-
acks Obama gæti bundið enda á út-
skúfun Írana og leyst þá undan
alþjóðlegum refsiaðgerðum.
Kveður að krónprinsinum
Frá því að Salman bin Abdulaziz tók
við krúnunni í Sádi-Arabíu í janúar
2015 hafa Sádi-Arabar færst úr hlut-
verki málamiðlara og orðið mun
ágengari. Það er ekki síst rakið til
þess að hann gerði 32 ára gamlan
son sinn, Mohammed bin Salman, að
arftaka sínum. Salman er einnig
varnarmálaráðherra. Til að tryggja
sig í sessi hefur hann sérstaklega
beint spjótum sínum að Íran.
Í mars 2015 létu Sádi-Arabar til
skarar skríða í Jemen í bandalagi við
fleiri arabaríki til að stöðva sókn
uppreisnarhreyfingar Húta. Þeir
eru sjíamúslimar og Sádi-Arabar líta
á þá sem bandamenn Írans. Því
megi þeir ekki fá að valsa um í bak-
garði Sádi-Arabíu. Stríðinu í Jemen
fylgir eymd og eyðilegging og blasir
gríðarleg neyð við íbúum þess. Sádi-
Aröbum hefur hins vegar lítið orðið
ágengt og er farið að líkja íhlutun
þeirra við hernað Bandaríkjamanna
í Víetnam á sínum tíma.
Í júní hófu Sádi-Arabía, Samein-
uðu arabísku furstadæmin, Barein
og Egyptaland viðskiptaþvinganir
gegn Katar. Var Katörum gefið að
sök að eiga í of nánu samstarfi við
Írana. Katar hefur reyndar unnið
með Írönum á sameiginlegu svæði
þar sem gas er að finna, en þar fyrir
utan er vart hægt að tala um sam-
starf milli ríkjanna, síst af öllu póli-
tískt. Katarar hafa hins vegar verið
að láta að sér kveða í auknum mæli.
Fleygt hefur verið að hinn ungi
Salman vilji með þvingununum gera
emírnum í Katar, Tamim bin Hamad
al-Thani, ljóst að hann skuli halda
sig á mottunni.
Krónprinsinn hefur líka gripið til
aðgerða heima fyrir. Í Der Spiegel
segir að hann hafi bolað burt sínum
helsta keppinaut, Mohammed bin
Naif prinsi, úr stöðu innanríkis-
ráðherra með því að ræna hann og
koma í veg fyrir að hann fengi syk-
ursýkislyfin sín þar til hann sam-
þykkti að segja af sér.
Salman hefur kynnt áætlanir um
stórfenglega hátækniborg við Rauða
hafið þar sem bílar eiga að vera
sjálfakandi og konur geta farið um
án slæða. Hann hefur þaggað niður í
bókstafstrúarmönnum eða varpað
þeim í fangelsi. Engin leið er þó að
segja til um hvað býr að baki.
Um leið hafa margir helstu auð-
menn landsins úr viðskiptum og
pólitík verið hnepptir í stofufangelsi.
Ónafngreindur ráðgjafi sádiarab-
ísku stjórnarinnar sagði Der Spiegel
að hinir handteknu hefðu dregið sér
rúmlega 11 þúsund milljarða króna á
þremur árum. Mútur og fjárkúgun
hefðu verið hefðbundnir við-
skiptahættir þeirra.
Ásakanirnar eru ugglaust ekki úr
lausu lofti gripnar, en líklegt verður
að teljast að um leið sé verið að
hreinsa til í því skyni að tryggja kon-
unginn og krónprinsinn í sessi. Og
hvernig sem fer má frekar búast við
vaxandi óstöðugleika í Mið-Austur-
löndum á næstunni er um hægist.
Sádi-Arabar
valda usla
Sádi-Arabar fara mikinn. Þeir stunda hernað í
Jemen, fangelsa auðmenn og nú virðast þeir hafa
þvingað forsætisráðherra Líbanons til afsagnar.
AFP
Saad Hariri, forsætisráðherra Líbanons, svarar spurningum á stöð í eigu fjölskyldu hans eftir að hann lýsti yfir afsögn
sinni frá Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu. Því er haldið fram að hann sé í haldi í Ríad, en í viðtalinu sagðist hann frjáls.
Árlega senda Líbanar í Sádi-Arabíu 4,5 milljarða dollara
til baka. Undanfarin 25 ár hefur ábatinn af Líbönum
í Sádi-Arabíu verið 70 milljarðar dollara.
Robert Fisk, dálkahöfundur The Independent, um hvað er í húfi
hlaupi snurða á þráðinn í samskiptum Líbanons og Sádi-Arabíu.
ERLENT
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
ÞÝSKALAND
HAMBORG Lögregla í Þýskalandi greip til aðgerða vegna
spillingar eftir að upp komst að 100 embættismenn höfðu
þegið miða á tónleika með Rolling Stones í september
eftir að leyfi var veitt til tónleikahaldsins.Athygli mun hafa
vakið hve margir embættismenn voru á tónleikunum.
Í Þýskalandi er embættismönnum bannað að þiggja gjafir.
PERÚ
LÍMA
Stjórnvöld í
Perú lýstu yfir
þjóðarfríi eftir
að perúska
landsliðið
tryggði sér
þátttökurétt á
heimsmeistaramótinu í Rússlandi á næsta ári með því
að sigra Nýja-Sjáland 2-0 í umspili. Mikill fögnuður
braust út þegar úrslitin voru ráðin. Opinberir starfs-
menn fengu frí og skólum var lokað.
SIMBABVE
HARARE Herinn tók völdin í Simbabve
á miðvikudag í því skyni að koma Robert
Mugabe frá völdum. Mugabe er 93 ára gamall
og hefur verið leiðtogi landsins í 30 ár. Hann
leiddi frelsisbaráttu landsins, en hefur verið
álasað fyrir að leggja efnahag Simbabve í rúst.
KAMBÓDÍA
PNOM PEN Hæsti-
réttur Kambódíu
bannaði helsta stjórn-
arandstöðuflokkinn
fyrir helgi og leysti
hann upp. Flokkurinn
er sakaður um að
hafa ætlað að steypa
stjórninni og verður 100 félögum úr honum bannað að stunda
stjórnmál í fimm ár. Rauði kmerinn Hun Sen hefur stjórnað
landinu í rúm 30 ár. Búist er við að hann muni mæta lítilli and-
stöðu í kosningunum á næsta ári.