Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.12.2017, Page 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.12. 2017
Sáttmáli nýrrar ríkisstjórnar,sem kynntur var á fimmtu-dag, hefur mælst vel fyrir. Í
honum eru sett fram sérstaklega
metnaðarfull markmið í velferðar-,
mannréttinda- og loftslagsmálum
og einnig boðuð kröftug sókn í upp-
byggingu innviða um allt land og
stórefling heilbrigðis- og mennta-
kerfa.
Í sáttmálanum er að finna um
það bil 100 aðgerðir og áherslur.
Að sjálfsögðu fá ekki allir allt sem
þeir vildu, enda um að ræða sam-
starf þriggja ólíkra flokka sem
spanna hið pólitíska litróf frá
vinstri til hægri. Ég tel þó að allir
geti mjög vel við unað og tek undir
með þeim sem hafa orða það þann-
ig, að þeir séu mjög hlynntir lang-
flestum þessara hundrað aðgerða
og missi ekki svefn yfir neinni
þeirra.
Fyrir kosningar var Sjálfstæð-
isfólk mest uggandi yfir miklum
skattahækkunum sem mögulega
yrðu á dagskrá ef vinstriflokkar
kæmust til valda. Ein megináhersla
Sjálfstæðisflokksins í kosningabar-
áttunni var að þessu þyrfti að af-
stýra. Það er því ánægjulegt hvern-
ig til hefur tekist
varðandi þau mál
í stjórnarsátt-
málanum. Lýst
er yfir vilja til að
lækka neðra
þrep tekjuskatts.
Það eru mikil og
góð tíðindi þótt
útfærsla og tímasetningar verði
háðar kjarasamningum.
Þetta er þó ekki það sem hlotið
hefur mesta athygli. Líklega er
óhætt að segja að áherslur sáttmál-
ans á nýsköpun hafi fengið best og
sterkust viðbrögð, sem er mjög
ánægjulegt og réttmætt. Ég tel að
þrennt ráði mestu um viðbrögðin.
Í fyrsta lagi sá skilningur á sí-
vaxandi mikilvægi nýsköpunar og
hugvits sem birtist í þessum orðum
stjórnarsáttmálans: „Nýsköpun og
hvers konar hagnýting hugvits er
mikilvæg forsenda fjölbreytts at-
vinnulífs, sterkrar samkeppn-
isstöðu, hagvaxtar og velferðar
þjóða, ekki síst í ljósi þeirra þjóð-
félagsbreytinga sem vænta má í at-
vinnu- og menntamálum vegna örra
tæknibreytinga.“
Í öðru lagi sú staðreynd að ný-
sköpun er ekki afmarkað viðfangs-
efni í stjórnarsáttmálanum heldur
nefnd í samhengi við fjölda annarra
málaflokka, sem endurspeglar vel
hvernig nauðsynlegt er að nálgast
þessi mál til að ná raunverulegum
árangri. Talað er um mikilvægi ný-
sköpunar í opinberri þjónustu og
stjórnsýslu, velferðarþjónustu og
rótgrónum atvinnugreinum á borð
við landbúnað og sjávarútveg. Boð-
uð er heildstæð nýsköpunarstefna
fyrir Ísland, sem mótuð verði á
þverpólitískum grunni í samráði
stjórnmálaflokka, atvinnulífs, vís-
indasamfélags og skólasamfélags,
og nefnt að hún verði samþætt við
framtíðarsýn í menntamálum frá
leikskóla til háskóla.
Í þriðja lagi sá vaxandi stuðn-
ingur sem boðaður er við rann-
sóknir og þróun. Það skiptir vænt-
anlega mestu að lýst er yfir vilja til
að afnema þak sem verið hefur á
endurgreiðslum vegna rannsókna-
og þróunarkostnaðar, en flest ef
ekki öll okkar kröftugustu þekk-
ingar- og nýsköpunarfyrirtæki hafa
kalla mjög sterkt eftir afnámi þess.
Ég er þakklát
fyrir að fá tæki-
færi til að halda
áfram sem ráð-
herra nýsköp-
unarmála, ekki
síst þegar lagt
er af stað með
eins gott vega-
nesti og felst í þessum stjórn-
arsáttmála. Ég mun gera mitt
besta til að láta framtíðarsýn hans
verða að veruleika þannig að með
réttu megi tala um þessa rík-
isstjórn sem „nýsköpunarstjórnina
hina síðari“. Framtíð íslensks sam-
félags veltur að verulegu leyti á
hvernig til tekst í þessum efnum
og það mun aftur ráðast af góðu
samstarfi margra ráðuneyta, at-
vinnulífsins og vísinda- og fræða-
samfélagsins.
Þótt stjórnarsáttmálinn sé sums
staðar almennt orðaður, eins og oft
vill verða, eru eins og áður segir í
honum um það bil 100 beinharðar
aðgerðir og verkefni sem ég hvet
fólk til að kynna sér. Upptalning á
þeim öllum, í stysta mögulega
skeytastíl, yrði næstum þrisvar
sinnum lengri texti en þessi blaða-
grein mín. Það gefur ágæta hug-
mynd um að ríkisstjórnin ætlar að
láta hendur standa fram úr ermum
og stendur sameinuð um mjög
mörg framfaramál.
Eins og sagði í yfirskrift á kynn-
ingu á sáttmálanum er hér um að
ræða samstarf um sterkara sam-
félag. Við erum samfélag í sókn og
ef við nálgumst verkefnið af
ábyrgð er bjart framundan.
Metnaðarfullur sáttmáli um
nýsköpun, sókn og framfarir
’Líklega er óhætt aðsegja að áherslur sátt-málans á nýsköpun hafifengið einna best og sterk-
ust viðbrögð.
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
Morgunblaðið/Eggert
Rithöfundurinn Börkur Gunn-
arsson fylgdist með því þegar
dregið var í riðla á HM í Rússlandi
eins og svo margir aðrir og skrif-
aði á Facebook:
Það verður
dásamlegt að
mæta Argentínu á
fyrsta heimsmeist-
aramótinu okkar,
held að fyrsta HM sem ég hafi
fylgst smá með sem átta ára gutti
hafi verið þegar Passarella, fyrirliði
Argentínu, lyfti sigurbikarnum.
En að mæta Króatíu enn og aft-
ur, ó nei. Við höfum aðeins unnið
einn heppnissigur
gegn þeim og
maður er orðinn
þreyttur á þeim.
Og svo fengum
við Nígeríu úr
neðsta flokknum, langbesta liðið
sem þar er og flestir spekúlantar
töluðu um að það ætti að vera
miklu hærra.
Jesús Kristur, afhverju gátum við
ekki dregið önnur þrjú lið úr pott-
inum, einsog til dæmis Gíbraltar,
Falklandseyjar og Færeyjar?“
Fréttakonuna Birtu Björns-
dóttur var farið að lengja eftir
niðurstöðu og skrifaði á Twitter:
„Ég hélt það ætti að draga í riðla
en ekki draga á
langinn …“
Sagnfræðing-
urinn Stefán
Pálsson fylgdist
líka með: „Ekki sé
ég hvernig Úrúgvæ-mennirnir mín-
ir eiga að geta klúðrað heims-
meistaratitlinum úr þessu.“
Fríða Björk Ingvarsdóttir,
rektor LHÍ, varð bjartsýn við lest-
ur stjórnarsátt-
málans: „Sumir
dagar eru betri en
aðrir hér í LHÍ:
„Unnið verður að
lausn á húsnæðis-
málum Listahá-
skóla Íslands á kjörtímabilinu“. -
Úr nýjum stjórnarsáttmála, bls. 9.“
AF NETINU
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Mystical Paris
Kynningarfundur þriðjudaginn 5. desember
kl. 17:00 í húsakynnum Úrval Útsýn
Hlíðasmára 19, 201 Kópavogi
Inga Sólnes fararstjóri mun kynna ferðina.
Bjóðum alla velkomna. Þeir sem eru
búsettir út á landi geta bókað símatíma með
fararstjóra í síma 585 4000.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á URVALUTSYN.IS
EÐA Í SÍMA 585 4000
KYNNINGARFUNDUR
SIGLING FRÁ SINGAPORE TIL JAPAN
11.-28. APRÍL 2018