Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.12.2017, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.12.2017, Qupperneq 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.12. 2017 Sáttmáli nýrrar ríkisstjórnar,sem kynntur var á fimmtu-dag, hefur mælst vel fyrir. Í honum eru sett fram sérstaklega metnaðarfull markmið í velferðar-, mannréttinda- og loftslagsmálum og einnig boðuð kröftug sókn í upp- byggingu innviða um allt land og stórefling heilbrigðis- og mennta- kerfa. Í sáttmálanum er að finna um það bil 100 aðgerðir og áherslur. Að sjálfsögðu fá ekki allir allt sem þeir vildu, enda um að ræða sam- starf þriggja ólíkra flokka sem spanna hið pólitíska litróf frá vinstri til hægri. Ég tel þó að allir geti mjög vel við unað og tek undir með þeim sem hafa orða það þann- ig, að þeir séu mjög hlynntir lang- flestum þessara hundrað aðgerða og missi ekki svefn yfir neinni þeirra. Fyrir kosningar var Sjálfstæð- isfólk mest uggandi yfir miklum skattahækkunum sem mögulega yrðu á dagskrá ef vinstriflokkar kæmust til valda. Ein megináhersla Sjálfstæðisflokksins í kosningabar- áttunni var að þessu þyrfti að af- stýra. Það er því ánægjulegt hvern- ig til hefur tekist varðandi þau mál í stjórnarsátt- málanum. Lýst er yfir vilja til að lækka neðra þrep tekjuskatts. Það eru mikil og góð tíðindi þótt útfærsla og tímasetningar verði háðar kjarasamningum. Þetta er þó ekki það sem hlotið hefur mesta athygli. Líklega er óhætt að segja að áherslur sáttmál- ans á nýsköpun hafi fengið best og sterkust viðbrögð, sem er mjög ánægjulegt og réttmætt. Ég tel að þrennt ráði mestu um viðbrögðin. Í fyrsta lagi sá skilningur á sí- vaxandi mikilvægi nýsköpunar og hugvits sem birtist í þessum orðum stjórnarsáttmálans: „Nýsköpun og hvers konar hagnýting hugvits er mikilvæg forsenda fjölbreytts at- vinnulífs, sterkrar samkeppn- isstöðu, hagvaxtar og velferðar þjóða, ekki síst í ljósi þeirra þjóð- félagsbreytinga sem vænta má í at- vinnu- og menntamálum vegna örra tæknibreytinga.“ Í öðru lagi sú staðreynd að ný- sköpun er ekki afmarkað viðfangs- efni í stjórnarsáttmálanum heldur nefnd í samhengi við fjölda annarra málaflokka, sem endurspeglar vel hvernig nauðsynlegt er að nálgast þessi mál til að ná raunverulegum árangri. Talað er um mikilvægi ný- sköpunar í opinberri þjónustu og stjórnsýslu, velferðarþjónustu og rótgrónum atvinnugreinum á borð við landbúnað og sjávarútveg. Boð- uð er heildstæð nýsköpunarstefna fyrir Ísland, sem mótuð verði á þverpólitískum grunni í samráði stjórnmálaflokka, atvinnulífs, vís- indasamfélags og skólasamfélags, og nefnt að hún verði samþætt við framtíðarsýn í menntamálum frá leikskóla til háskóla. Í þriðja lagi sá vaxandi stuðn- ingur sem boðaður er við rann- sóknir og þróun. Það skiptir vænt- anlega mestu að lýst er yfir vilja til að afnema þak sem verið hefur á endurgreiðslum vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar, en flest ef ekki öll okkar kröftugustu þekk- ingar- og nýsköpunarfyrirtæki hafa kalla mjög sterkt eftir afnámi þess. Ég er þakklát fyrir að fá tæki- færi til að halda áfram sem ráð- herra nýsköp- unarmála, ekki síst þegar lagt er af stað með eins gott vega- nesti og felst í þessum stjórn- arsáttmála. Ég mun gera mitt besta til að láta framtíðarsýn hans verða að veruleika þannig að með réttu megi tala um þessa rík- isstjórn sem „nýsköpunarstjórnina hina síðari“. Framtíð íslensks sam- félags veltur að verulegu leyti á hvernig til tekst í þessum efnum og það mun aftur ráðast af góðu samstarfi margra ráðuneyta, at- vinnulífsins og vísinda- og fræða- samfélagsins. Þótt stjórnarsáttmálinn sé sums staðar almennt orðaður, eins og oft vill verða, eru eins og áður segir í honum um það bil 100 beinharðar aðgerðir og verkefni sem ég hvet fólk til að kynna sér. Upptalning á þeim öllum, í stysta mögulega skeytastíl, yrði næstum þrisvar sinnum lengri texti en þessi blaða- grein mín. Það gefur ágæta hug- mynd um að ríkisstjórnin ætlar að láta hendur standa fram úr ermum og stendur sameinuð um mjög mörg framfaramál. Eins og sagði í yfirskrift á kynn- ingu á sáttmálanum er hér um að ræða samstarf um sterkara sam- félag. Við erum samfélag í sókn og ef við nálgumst verkefnið af ábyrgð er bjart framundan. Metnaðarfullur sáttmáli um nýsköpun, sókn og framfarir ’Líklega er óhætt aðsegja að áherslur sátt-málans á nýsköpun hafifengið einna best og sterk- ust viðbrögð. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Morgunblaðið/Eggert Rithöfundurinn Börkur Gunn- arsson fylgdist með því þegar dregið var í riðla á HM í Rússlandi eins og svo margir aðrir og skrif- aði á Facebook: Það verður dásamlegt að mæta Argentínu á fyrsta heimsmeist- aramótinu okkar, held að fyrsta HM sem ég hafi fylgst smá með sem átta ára gutti hafi verið þegar Passarella, fyrirliði Argentínu, lyfti sigurbikarnum. En að mæta Króatíu enn og aft- ur, ó nei. Við höfum aðeins unnið einn heppnissigur gegn þeim og maður er orðinn þreyttur á þeim. Og svo fengum við Nígeríu úr neðsta flokknum, langbesta liðið sem þar er og flestir spekúlantar töluðu um að það ætti að vera miklu hærra. Jesús Kristur, afhverju gátum við ekki dregið önnur þrjú lið úr pott- inum, einsog til dæmis Gíbraltar, Falklandseyjar og Færeyjar?“ Fréttakonuna Birtu Björns- dóttur var farið að lengja eftir niðurstöðu og skrifaði á Twitter: „Ég hélt það ætti að draga í riðla en ekki draga á langinn …“ Sagnfræðing- urinn Stefán Pálsson fylgdist líka með: „Ekki sé ég hvernig Úrúgvæ-mennirnir mín- ir eiga að geta klúðrað heims- meistaratitlinum úr þessu.“ Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ, varð bjartsýn við lest- ur stjórnarsátt- málans: „Sumir dagar eru betri en aðrir hér í LHÍ: „Unnið verður að lausn á húsnæðis- málum Listahá- skóla Íslands á kjörtímabilinu“. - Úr nýjum stjórnarsáttmála, bls. 9.“ AF NETINU Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Mystical Paris Kynningarfundur þriðjudaginn 5. desember kl. 17:00 í húsakynnum Úrval Útsýn Hlíðasmára 19, 201 Kópavogi Inga Sólnes fararstjóri mun kynna ferðina. Bjóðum alla velkomna. Þeir sem eru búsettir út á landi geta bókað símatíma með fararstjóra í síma 585 4000. NÁNARI UPPLÝSINGAR Á URVALUTSYN.IS EÐA Í SÍMA 585 4000 KYNNINGARFUNDUR SIGLING FRÁ SINGAPORE TIL JAPAN 11.-28. APRÍL 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.