Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.12.2017, Síða 32
Það er kannski ekki skrýtið aðenn eigi Íslendingar eftir aðuppgötva ýmsar dásemdir
Póllands. Ferðir okkar hafa frekar
legið í vesturhluta Evrópu og á sólar-
strendur. Íslendingar eru svolítið að
„uppgötva“ Pólland þessi misserin.
Það er svolítið merkilegt að það sé
hváð þegar Wroclaw er nefnd í ljósi
þess að borgin er stærsta borg Vest-
ur-Póllands, var ein merkilegasta
borg Prússlands og svo mikilvæg
Þýskalandi að Hitler fyrirskipaði að
borgarbúar skyldu berjast til síðasta
blóðdropa til að passa borgina. Á eft-
ir Berlín var hún honum mikilvæg-
ust, enda önnur stærsta borg Austur-
Þýskalands á þeim tíma.
Þá hét hún Breslau og hún og land-
svæðið í kring í Neðri-Slésíu hafði til-
heyrt Þýskalandi í 200 ár, var höf-
uðborg allrar Slésíu. Þar áður höfðu
Habsborgarar ráðið yfir borginni,
þar á undan Tékkar, en fyrsti „land-
námsmaður“ borgarinnar var þó
pólskur. Og aftur er hún orðin pólsk í
dag.
Það verður að segjast að borgin
kom ótrúlega á óvart og blaðamaður
hefur ákveðið að bóka sér aðra ferð
þangað eftir nokkra mánuði.
Sagan Wroclaw er hreiður stórbrot-
innar sögu, sem nær 1.000 ár aftur í
tímann. Sökum þess að þarna hafa
svo margar þjóðir ráðið ríkjum og
mörg trúarbrögð ríkt er borgin eins
og samsuða úr hámenningu margra
þjóða. Konungshöll Prússakeisara er
frá 1700. Miðbærinn og markaðs-
torgið eru þéttsetin sjarmerandi
gömlum byggingum, óteljandi
kirkjur að skoða og brýr að rölta yfir,
enda hefur borgin ýmist verið kölluð
borg brúa, og verið líkt við Feneyjar,
eða borg kirkna.
Lífleg Í háskólunum í Wroclaw eru
hvorki meira né minna en hálf ís-
lenska þjóðin, 160.000 nemendur.
Íbúar borgarinnar eru í heild 600.000
svo að meira en ¼ borgarbúa er í há-
skólanámi. Ungt fólk setur því sitt
mark á borgina og gerir andrúms-
loftið afar líflegt. Elsti háskólinn í
borginni er fyrirbæri út af fyrir sig til
að skoða. Byggingin sjálf er stórkost-
leg, frá því um 1700, og hátíðarsal-
urinn eins og konungshöll. Enginn
háskóli í heiminum á fleiri nóbels-
verðlaunahafa en sá í Wroclaw.
Elsti kjarninn Ostrów Tumski er
elsti kjarni borgarinnar og var áður
eyja, þekkt sem „Dómkirkjuey“. Það
er ævintýri líkast að ganga þar um,
skoða dómkirkjuna, sem var upp-
runalega byggð á 10. öld, og fleiri
margra alda gamlar byggingar. Auð-
velt er að fá leiðsögumann til að fara
rúnt um bæinn og mæla má með því.
Ótrúlegt en satt þá er Dómkirkjuey
lýst upp á kvöldin aðeins með gaslu-
ktum. Maður, klæddur skósíðum
frakka og með pípuhatt, gengur þá á
milli með kyndil og kveikir á 100
gasluktum, 365 daga ársins. Göngu-
túr í slíkri birtu að kvöldlagi er eins
Ráðhúsið er upphaflega byggt á 13. öld en nokkrar breytingar hafa verið gerð-
ar á því í gegnum tíðina, þær síðustu á 15. öld.
Thinkstock/GettyImages
Flugvöllurinn í Wroclaw hefur unnið til fjölda verðlauna og viðurkenna og
þykir afar þægilegur að fara um, ekki nema um 20 mínútur frá miðbænum.
Ljósmynd/Martijn Veenman
Djásn Slésíu
Pólland nýtur sívaxandi vinsælda sem áfangastaður íslenskra ferðalanga.
Gimsteinn Póllands, borg brúa, borg kirkja, er borgin Wroclaw. Blaðamaður
Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins heimsótti borgina á dögunum.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Markaðtorgið sefur aldrei og æðislegur jóla-
markaðurinn þar í desember er einn sá vin-
sælasti í Póllandi og þótt víðar væri leitað.
Ekki gleyma að líta við í gamla háskólanum, salarkynni hans eru engu lík.
Útsýnið af þaki háskólans yfir borgina er líka frábært.
Ljósmynd/Martijn Veenman
Hér fer fólk yfir til að komast á Dómkirkjuey en á brúnni eru óteljandi lásar
sem ástfangið fólk hefur nælt í brúarstólpana sem merki um innsiglaða ást.
Thinkstock/GettyImages
Dýragarðurinn í Póllandi er með þeim stærri og glæsilegri í Evrópu.
Ljósmynd/Martijn Veenman
FERÐALÖG Ekki gleyma að kíkja á geggjaðan indverskan veit-ingastað í miðbænum, Mangó mömmu. Þar kemur
fólk með eigið áfengi og greiðir lágt tappagjald.
Mango Mamma
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.12. 2017