Morgunblaðið - 04.01.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
tengslum við HM, en hann hefur
verið einn af sérfræðingunum í um-
fjöllun um leiki liðsins í undankeppn-
inni. „Eiður Smári hefur lýst yfir
vilja til að vinna með RÚV í kringum
HM. Við erum að kasta á milli okkar
spennandi hugmyndum. Þetta ætti
að skýrast á næstu vikum.“
Stærsti íþróttaviðburðurinn
Hilmar segir að allt verði lagt í
sölurnar í umfjöllun um HM. „Þetta
er stærsti íþróttaviðburður í sögu Ís-
lands og við viljum gera þetta eins
vel og hægt er fyrir þjóðina. Það er
mikill metnaður innan RÚV að
standa vel að þessari umfjöllun á öll-
um miðlum RÚV.“
Sögu HM. Þetta eru hátt í 90 mín-
útna langar myndir um hverja
keppni fyrir sig, skotnar á filmu og
menn á borð við Sean Connery, Sean
Penn, Michael Caine og fleiri þekkta
einstaklinga tala yfir þær. Búið er að
uppfæra eldri myndirnar í háskerpu.
Á svipuðum tíma verður líka byrjað
að sýna þætti þar sem liðin á HM í ár
eru kynnt til leiks, tvö í hverjum
þætti.
Hilmar segir að einnig verði ráðist
í innlenda dagskrárgerð fyrir keppn-
ina þar sem meðal annars verður
tekinn púlsinn á íslenska liðinu í
undirbúningsferlinu. Þá er unnið að
því að Eiður Smári Guðjohnsen taki
að sér dagskrárgerð fyrir RÚV í
HM í Rússlandi hefst 14. júní og stendur í mánuð. Fyrsti
leikur Íslands verður við Argentínu í Moskvu laugardag-
inn 16. júní. Hilmar Björnsson, íþróttastjóri RÚV, segir
að allir leikirnir 64 verði sýndir á RÚV og RÚV2.
„Síðustu leikir riðlakeppninar verða að vera spilaðir á
sama tíma og þá notum við bæði RÚV og RÚV2. Flesta
daga verða leikirnir klukkan 12, 15 og 18 og verður dag-
urinn gerður upp strax að loknum síðasta leik. Með upp-
hitun og uppgjöri má því gera ráð fyrir að annasömustu
dagana verði stanslaus HM-umfjöllun í hátt í níu
klukkustundir, segir Hilmar Björnsson.
Allir leikirnir sýndir á RÚV
ALLT AÐ NÍU TÍMA HM-UMFJÖLLUN Á DAG Á RÚV Í SUMAR
Hilmar
Björnsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Undirbúningur fyrir útsendingar
Ríkisútvarpsins frá HM í knatt-
spyrnu í Rússlandi gengur vel að
sögn Hilmars Björnssonar, íþrótta-
stjóra þar á bæ.
„Við verðum með heljarinnar um-
gjörð um alla leiki Íslands, bæði hér
heima og í Rússlandi. Við verðum
með teymi sem fylgir íslenska liðinu
eftir allan tímann í Rússlandi. Okkar
fólk verður í höfuðstöðvum liðsins og
flýgur með því í leiki enda viljum við
ekki missa af neinu sem gerist í
kringum íslensla landsliðið,“ segir
Hilmar.
Þessi mikla umfjöllun hlýtur að
kalla á aukinn mannskap, eða hvað?
„Við erum mjög vel mönnuð hér
en það er þó ljóst að við þurfum lík-
lega að bæta við okkur mannskap.
Það er í vinnslu.“
Ræða við Eið Smára og Gumma
Guðmundur Benediktsson sló í
gegn með lýsingum sínum á leikjum
Íslands á EM í Frakklandi. Þá fékk
Sjónvarp Símans hann að láni frá
Stöð 2. Er ekki borðleggjandi að
RÚV fái hann að láni hjá núverandi
vinnuveitendum, Vodafone?
„Það mál er í vinnslu og ég get
voða lítið tjáð mig um það núna.
Þetta skýrist vonandi núna í janúar.“
Upphitun hefst í næsta mánuði
þegar byrjað verður að sýna þættina
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sigurgleði Lýsingar Gumma Ben á leikjum Íslands á EM í Frakklandi slógu í gegn. RÚV vill fá hann í HM-teymið.
Unnið að því að Gummi
Ben lýsi leikjum Íslands
Allir leikir á HM sýndir á RÚV Ræða við Eið Smára
jan
Stefán Pálsson, fyrr-
verandi bankastjóri
Búnaðarbanka Íslands,
lést í Reykjavík 2. jan-
úar síðastliðinn. Hann
náði 83 ára aldri.
Stefán fæddist 7.
desember 1934 á
Skinnastað í Öxarfirði.
Hann var sonur
hjónanna Páls Þorleifs-
sonar, prófasts á
Skinnastað, og Guð-
rúnar Elísabetar Arnórsdóttur.
Stefán útskrifaðist frá Samvinnu-
skólanum í Reykjavík árið 1955 og
frá bankaskóla í Englandi 1957. Að
námi loknu sá hann um búskapinn á
Skinnastað en hóf störf hjá Bún-
aðarbanka Íslands haustið 1958 og
starfaði þar allan sinn starfsferil eða
í 42 ár. Fyrst starfaði hann sem
gjaldkeri, síðan sem starfsmanna-
stjóri, sem framkvæmdastjóri Stofn-
lánadeildar landbúnaðarins og að
síðustu sem bankastjóri Búnaðar-
bankans samfleytt í 17 ár eða frá
árinu 1984 til ársins 2001. Stefán
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
vegna starfa sinna við
bankann, sat í stjórn-
um sjóða og samtaka
og nefndum sem
fulltrúi bankamanna.
Hann var meðal ann-
ars formaður Sam-
bands viðskiptabanka
um skeið, formaður
Reiknistofu bankanna
og Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins.
Hann var einnig
virkur í félagsstarfi hestamanna.
Átti sæti í stjórn Landssambands
hestamannafélaga í átta ár og þar af
formaður á árunum 1981 til 1986.
Hann hafði mikinn áhuga og ánægju
af hestum og hestamennsku og
stundaði það áhugamál með fjöl-
skyldu sinni í frístundum.
Stefán og Arnþrúður Arnórsdóttir
kennari giftust árið 1957 og eign-
uðust þau fimm börn. Þau eru Páll
ljósmyndari, Guðrún Elísabet arki-
tekt, Arnór sem lést 1976, Helga
Ingunn, leikmynda- og búningahöf-
undur, og Auður, kennari og starfs-
maður Icelandair.
Andlát
Stefán Pálsson, banka-
stjóri Búnaðarbankans
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þessi ákvörðun kom okkur algjör-
lega á óvart og ég tel að hún sé mjög
alvarleg fyrir allt okkar samfélag hér
í Mývatnssveit,“ segir Ólöf Hall-
grímsdóttir, eigandi veitingahússins
og gististaðarins Vogafjóss við Mý-
vatn.
Ólöf sótt um framkvæmdaleyfi til
að byggja móttöku- og biðaðstöðu við
Vogafjós en Umhverfisstofnun hafn-
aði umsókninni á dögunum. Vísaði
stofnunin í að Vogafjós uppfyllti ekki
kröfur heilbrigðisnefndar Norður-
landssvæðis eystra um að skólp á
vatnasvæði verndarsvæðis Mývatns
og Laxár skuli hreinsað með ítarlegri
hreinsun tveggja þrepa. Vogafjós er
160 metra frá Mývatni en verndarlín-
an miðast við 200 metra.
Ólöf er ósátt við þessa niðurstöðu.
„Þetta er allt svolítið furðulegt mál.
Við erum búin að vera að vinna að
deiliskipulagi á okkar landi síðustu
tvö ár og þessi umsókn var sam-
kvæmt deiliskipulagi. Það sem við er-
um að sækja um er tæplega 120 fer-
metra viðbygging, þar sem nú er
bílastæði, sem á að bæta aðstöðu
starfsfólks og gesta. Þar á ekki að
bæta við einu einasta salerni, borðum
verður ekki fjölgað og það verður
ekki breyting á starfsleyfi svo að per-
sónueiningum í frárennsli fjölgar ekki
vegna tilkomu
þessarrar við-
byggingar. Það er
ekkert hlustað á
okkar rök.“
Hún bendir á að
samkvæmt reglu-
gerð um verndun
Mývatns og Laxár
skuli Umhverfis-
stofnun leita um-
sagna Náttúru-
rannsóknarstöðvarinnar við Mývatn
og Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Báðar umsagnir voru jákvæðar og
töldu viðbygginguna vera minnihátt-
ar og ekki líklega til að valda auknu
álagi í frárennsli. Stofnunin hefði kos-
ið að leita einnig til heilbrigðisnefnd-
arinnar sem hafnaði stækkuninni í
sinni umsögn.
„Það er verið að vinna að úrbótum í
frárennslismálum hér á svæðinu. Sú
áætlun er í vinnslu en hefur dregist,
meðal annars vegna ríkisstjórnar-
skipta. Túlkun ráðuneytisins er að
hér sé ekki um bráðavanda að ræða.
Það á að vanda til verka og gera þetta
vel og skynsamlega.
Ég hef óskað eftir því að sjá fund-
argerð heilbrigðisnefndar þar sem
þetta var tekið fyrir. Hún er ekki til
þar sem þetta var ekkert tekið fyrir.
Þetta virðist vera ákvörðun eins
manns. Þrátt fyrir að þeim starfs-
manni ætti að vera vel kunnugt um að
hér er verið að vinna að úrbótaáætlun
um frárennslismál. Mér virðist bara
eins og þessar ríkisstofnanir séu ekki
að tala í takt. Hægri höndin veit ekk-
ert hvað sú vinstri er að gera.“
Ólöf segist ekki vita hvaða skref
þau taki næst í málinu.
„Við getum kært til úrskurðar-
nefndar en það batterí er gjörsam-
lega máttlaust. Þar eru menn að bíða
uppundir tvö ár eftir að fá niðurstöður
og það er gjörsamlega óásættanlegt,“
segir Ólöf sem leggur áherslu á það
hversu smá umrædd framkvæmd sé í
sniðum og unnið sé að gerð sameig-
inlegrar úrbótaáætlunar sveitarfé-
lagsins og rekstraraðila innan svæð-
isins.
Ósátt við að fá ekki að byggja á Mývatni
Umhverfisstofnun hafnaði umsókn Vogafjóss um framkvæmdaleyfi vegna viðbyggingar
Ólöf
Hallgrímsdóttir