Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
MIKIÐ ÚRVAL
ELDHÚSVASKA
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Skattaglaðir stjórnmálamenn eruekki einir á ferð. Skattaglaðir
prófessorar, uppáhaldsálitsgjafar
„RÚV“, eru ekki síðri, eins og
Björn Bjarnason bendir á.
Þórólfur Matt-híasson er einn
af góðkunningjum í
þeim hóp. For-
sprakkar Við-
reisnar höfðu álit á
Þórólfi og skipuðu í
nefndir:
Lá við bænda-uppreisn þegar
Þorgerður K. Gunn-
arsdóttir skipaði
Þórólf til að koma
að ákvörðunum um
afkomu bænda. Þór-
ólfur hefur verið
hallur undir ESB-aðildarstefnuna
sem átti lokavígi sitt innan stjórn-
arráðsins í Viðreisn.
Óðni Jónssyni, stjórnanda Morg-unvaktarinnar, þótti rétt að
minna hlustendur á gamalkunnan
tón í upphafi nýs árs með samtali
við prófessorinn. Af því sem Þór-
ólfur sagði rataði þetta á ruv.is:
Það er minni kerfisbundin hugs-un í tekjuöfluninni núna held-
ur en var í frumvarpi Benedikts Jó-
hannessonar. Sem er afturför, mikil
afturför.
Þar sá maður heildarhugsun þarsem menn voru að leggja út frá
því að það átti að draga úr kolefn-
islosun og haga skattlagningunni í
samræmi við það. Það var byrjað að
taka inn auknar tekjur af ferða-
mennskunni, það var horfið af
þeirri braut....
Það má ekki nefna það að taka
greiðslur af ferðamönnum. Það má
ekki hækka virðisauka á þjónustu
sem ferðamönnum er veitt, nema
þá í afar hægum skrefum...““
Björn Bjarnason
Ákafur álitsgjafi
STAKSTEINAR
Þórólfur
Matthíasson
Veður víða um heim 3.1., kl. 18.00
Reykjavík -2 skýjað
Bolungarvík -3 alskýjað
Akureyri -4 léttskýjað
Nuuk -12 léttskýjað
Þórshöfn 3 rigning
Ósló 1 súld
Kaupmannahöfn 3 súld
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 2 rigning
Lúxemborg 5 skúrir
Brussel 9 skúrir
Dublin 8 skýjað
Glasgow 7 skúrir
London 9 skýjað
París 8 alskýjað
Amsterdam 8 skýjað
Hamborg 6 rigning
Berlín 6 rigning
Vín 5 skýjað
Moskva 2 súld
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 11 skýjað
Aþena 10 léttskýjað
Winnipeg -25 léttskýjað
Montreal -15 snjókoma
New York -5 heiðskírt
Chicago -9 snjókoma
Orlando 8 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
4. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:16 15:51
ÍSAFJÖRÐUR 11:56 15:20
SIGLUFJÖRÐUR 11:41 15:01
DJÚPIVOGUR 10:54 15:12
Síðustu dagar ársins voru kaldir á
landinu, sérstaklega norðaustan-
lands. Úrkoma og vindhraði voru
undir meðallagi. Frá þessu segir á
vef Veðurstofu Íslands.
Kaldast var í desember á
Vesturlandi, en hlýjast á Norð-
austur- og Austurlandi, miðað við
mesta vik frá meðaltali. Meðalhiti
í desember var hæstur í Surtsey,
2,4 stig, en lægstur í Sandbúðum,
-7,8 stig. Í byggð var meðalhitinn
lægstur í Möðrudal, -5,4 stig.
Mesta frost mældist 29 stig, í
Svartárkoti. Hæsti hiti í desember
var 16,6 stig, á Kvískerjum.Úr-
koma í Reykjavík mældist 63,6
mm, á Akureyri 46,1 mm, hvort
tveggja undir meðaltali, í Stykk-
ishólmi 35,1 mm og 83,7 mm á
Höfn í Hornafirði. Alhvítt var átta
morgna í Reykjavík en á Akureyri
voru alhvítu dagarnir 17, hvort
tveggja undir meðaltali. 21 sól-
skinsstund var í Reykjavík, níu
stundum fleiri en í meðal-
desember en á Akureyri var sól-
arlaust. Vindhraði á landsvísu var
0,8 m/s undir meðallagi sl. tíu ára.
Meðalloftþrýstingur í Reykjavík
mældist yfir meðallagi, hæstur
mældist loftþrýstingur1030,4 hPa,
á Húsafelli, en lægstur 973,9 hPa,
í Grindavík.
Hægt og kalt
í desember
Úrkoma og vindur
undir meðallagi
Nokkrir sjósundfélagar úr starfsliði
Háskólans í Reykjavík (HR) létu sig
ekki vanta í hádeginu í gær í Naut-
hólsvík. Þau syntu í sjónum sem var
talsvert undir frostmarki, eða -1,9
gráður.
„Það þarf að þjálfa sig upp í að
fara í sjóinn og þegar hann er kom-
inn undir fjórar gráður á veturna, þá
þarf maður að nota hugann og vilja-
styrkinn. Þetta er fín hugleiðsla, það
kemst ekkert annað að á meðan,“
segir Arnar Egilsson, þjónustustjóri
upplýsingatæknisviðs HR, hress í
bragði í samtali við Morgunblaðið.
Hann hefur stundað sjóböð síðan ár-
ið 2010. Arnar segir þetta sjóbað
hafa verið það kaldasta síðan árið
2011 en þá synti hann við -1,8 gráður.
„Það er nú ekki langt að fara fyrir
okkur í HR, en baðaðstaðan í Naut-
hólsvík er opin nokkrar klukku-
stundir fjóra daga vikunnar yfir
vetrartímann. Aðspurður segist Arn-
ar ekki vita til þess að í hans hópi
hafi einhver veikst eða ofkælst, en
það hafi þó hugsanlega komið fyrir
aðra.
„Maður verður auðvitað að þekkja
sín takmörk og við félagarnir pöss-
um hver upp á annan og syndum að-
eins meðfram ströndinni. Síðan för-
um við beint í heita pottinn. Þetta er
hin fínasta heilsubót en auðvitað
verður fólk að fara varlega og fara
aldrei eitt í sjóinn.“ ernayr@mbl.is
Syntu í sjónum langt undir frostmarki
Sjósundgarpar úr Háskólanum í Reykjavík slógu sitt eigið kuldamet í sjónum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sjósund Arnar Egilsson á sundi.