Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018 Umferð í desember sl. jókst um 9,3% miðað við sama mánuð árið 2016. Þessi aukning er mun minni en varð á síðasta ári en svipar til aukningarinnar á milli áranna 2014 og 2015. Umferð á landinu jókst um 10,6% í fyrra miðað við árið 2016. Þetta kemur fram á vef Vegagerð- arinnar. Mest jókst umferð á Suðurlandi eða um 16,1% en minnst á Austur- landi eða um 4,3%, skv. teljurum. Umferð jókst skv. þeim mest um hringveginn á Mýrdalssandi eða um 21,8%. Þessi mikla aukning vekur athygli þar sem ári áður hafði um- ferðin aukist um 89,3% milli desem- bermánaða 2015 og 2016 og þar á undan um 41,3%. Umferðaraukn- ingin austan við Vík í Mýrdal í des- ember, hefur því líkt og aðra mán- uði ársins verið fádæma mikil undanfarin ár. Frá árinu 2005 hefur umferðin aukist að jafnaði langmest í ágúst, september og október eða frá 3,8%- 4,2% árlega. Fyrir árið í heild hefur umferð aukist um 3,4% á ári að jafnaði frá árinu 2005, sem telja verður hóflegan vöxt, en frá árinu 2012 hefur árlegur vöxtur numið um 7,6%. Áfram eykst umferðin  Jókst um 10,6% í fyrra miðað við 2016 Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála hefur úrskurðað að Reykjavíkurborg hafi verið heimilt að leggja sorpgjald á fasteign við Skógarás árið 2016. Eigandi fast- eignarinnar, sem samanstendur af íbúð og þremur bílskúrum, taldi að borginni væri óheimilt að leggja fermetratölu bílskúra til jafns við íbúðir í húsinu og reikna tunnu- gjald út frá heildarfermetrafjölda hússins. Í málsrökum Reykjavíkurborgar segir að hver og einn matshluti eigi hlutdeild í sameign og hafi sameig- inleg hlutdeild allra matshluta ver- ið lögð til grundvallar álagningu. Eigendum fasteigna beri að greiða gjald fyrir meðhöndlun úrgangs fyrir allar fasteignir og skipti þar ekki máli hvort fasteign sé skil- greind sem bílskúr. Úrskurðarnefndin hafnar kröfu kæranda um að ógilda álagningu sorpgjalds á fasteign hans. Segir í úrskurðinum að samkvæmt fast- eignaskrá Þjóðskrár Íslands sé íbúðareign hans skráð 203,2 fer- metrar. „Samkvæmt skránni skipt- ist eignin í íbúð sem er 129,3 m² og þrjá bílskúra sem eru alls 73,9 m² að flatarmáli. Bílskúrarnir eru sam- kvæmt þessu hluti af eignarhluta kæranda í fasteigninni og er hans eignarhlutfall í fjöleignarhúsinu um 27%. Greiðir hann fyrir afnot af tunnum fyrir heimilissorp og papp- ír í samræmi við þá hlutfallstölu,“ segir þar. hdm@mbl.is Mátti leggja gjald á bílskúr Morgunblaðið/Eggert Sorphirða Reykjavíkurborg er heimilt að rukka tunnugjald fyrir bílskúra.  Reykjavíkurborg heimilt að rukka tunnugjald á bílskúra Páll Hreinsson tók til starfa sem forseti EFTA- dómstólsins 1. janúar sl., en dómarar við dóm- stólinn völdu Pál til starfans á fundi sínum 14. nóvember 2017. Hann gegnir embættinu til ársloka 2020, að því er fram kemur í tilkynningu frá EFTA-dómstólnum. Páll var skipaður dómari við EFTA-dómstólinn árið 2011 og tók hann við af Þorgeiri Örlygssyni sem þá sneri aftur til Hæstaréttar Ís- lands. Páll hefur verið í leyfi frá Hæstarétti síðan haustið 2011, en hætti hjá dómstólnum í haust eftir að hafa verið í leyfi í sex ár. Páll fæddist 20. febrúar 1963. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983, embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1988, lagði stund á framhaldsnám í stjórnsýslurétti og stjórnsýslufræðum við Hafnar- háskóla 1990 til 1991 og lauk dokt- orsprófi í lögfræði frá Háskóla Ís- lands 5. febrúar 2005. Þá hefur hann m.a. gefið út 13 bækur og 42 greinar um lögfræðileg málefni. Páll nýr for- seti EFTA- dómstólsins Páll Hreinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.