Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við verðum alla þessa viku að deila út
gjöfum, en í ár bárust alls 5.110 kassar
sem er afar góð tala,“ segir Mjöll Þór-
arinsdóttir, ein þeirra sem tekið hafa
þátt í verkefninu Jól í skókassa, sem
leitt er af KFUM og KFUK á Íslandi.
Þegar Morgunblaðið náði tali af Mjöll
í gær var hún stödd í nágrenni úkra-
ínsku borgarinnar Kirovohrad, sem er
suðaustan við höfuðborgina, Kænu-
garð, en þar var hópur sjálfboðaliða
önnum kafinn við að dreifa jólapökk-
um til ungmenna.
„Þau sem fá pakka hjá okkur eru á
aldrinum 3 til 18 ára, en það eru alveg
dæmi þess að yngri krakkar fái líka,“
segir Mjöll og bendir á að dreifingin,
sem skipulögð er af KFUM í Úkraínu,
í samstarfi við íslenska sjálfboðaliða,
fari meðal annars fram á heimilum
munaðarleysingja, barnaspítala og
skólum fyrir börn með þroskaskerð-
ingar.
Ósvikin gleði og þakklæti
Aðspurð segir Mjöll gjöfunum vera
tekið af mikilli og ósvikinni gleði og
þakklæti, en mörg barnanna eru hissa
á gjafmildi Íslendinga.
„Þau geta sum hver varla beðið eft-
ir því að fá að opna kassana og verða
eitt bros þegar glaðningurinn kemur í
ljós. Svo keppast þau við að sýna
hvert öðru gjafirnar,“ segir Mjöll og
heldur áfram: „Með okkur í för er
prestur frá Rétttrúnaðarkirkjunni og
hann útskýrir fyrir krökkunum hvað-
an pakkarnir koma, þ.e. frá fjöl-
skyldum og einstaklingum á Íslandi,
og segir hann þeim um leið aðeins frá
landinu. Þau verða mörg mjög hissa á
því að til sé fólk í öðru landi sem vilji
gleðja þau með gjöfum og smá
nammi. Frá foreldrum og kennurum
þessara barna finnur maður fyrir
miklu þakklæti.“
Jól í skókassa eru alþjóðlegt verk-
efni sem fyrst hófst hér á landi árið
2004. Fyrsta árið var eingöngu safnað
innan KFUM og KFUK og söfnuðust
þá um 500 kassar. Ári síðar var verk-
efnið víkkað út og safnast nú á bilinu
4.500 til um 5.000 skókassar á hverju
ári.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Söfnunin Það er oft margt um manninn í húsnæði KFUM og KFUK í Reykjavík þegar jólakassarnir streyma í hús.
Kassarnir farnir að ber-
ast börnunum í Úkraínu
Fá skóladót, sælgæti, hlý föt og leikföng frá Íslendingum
Gleði Þessi unga stúlka var ánægð
með jólaglaðninginn frá Íslandi.
Jól í skókassa
» Verkefnið er alþjóðlegt og
hófst fyrst hér á landi árið
2004, fyrir tilstuðlan félaga
KFUM og KFUK.
» Fyrsta árið söfnuðust 500
skókassar en í ár voru kass-
arnir 5.110 talsins.
» Í þeim má m.a. finna skóla-
dót, sælgæti, föt og leikföng.
» Kassarnir eru sendir bág-
stöddum börnum í Úkraínu.
Grallari Dótið sló í gegn og lýsti sá
litli velþóknun sinni með látbragði.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Katrín Sigurðardóttir, formaður Fé-
lags geislafræðinga, segir félagið
ekki hafa lagt fram prósentutölur í
kjaraviðræðunum. Hins vegar sé
ljóst að félagið
horfi til þeirra
breytinga sem
urðu á lífeyris-
kerfinu á nýliðnu
ári. Þá hafi verið
stigin skref til að
jafna lífeyris-
réttindi á al-
menna og opin-
bera markaðnum.
Með því hljóti
launakjörin jafn-
framt að verða jöfnuð.
„Við teljum að það hljóti að vera
kominn tími til að leiðrétta launin.
Það voru gerðar breytingar á lífeyr-
iskerfinu. Fyrir vikið eru lífeyris-
réttindi opinberra starfsmanna lak-
ari en áður. Ef þau réttindi hafa
verið færð til jafns við almennan
markað hlýtur það að skapa viðmið
um laun. Þau hljóta að verða líkari
því sem gerist á almennum markaði.
Við þurfum að sjá að leiðrétting fari í
gang sem er í þá veruna.“
Kjarasamningar félagsins urðu
lausir í lok ágúst og hafa fulltrúar
þess fundað fimm sinnum með samn-
inganefnd ríkisins undanfarið.
Gera rannsóknir sjálfir
Katrín vísar svo til launakrafna
biskups Íslands hjá kjararáði.
„Biskup Íslands sendi kjararáði
bréf með upplýsingum um breyting-
ar á starfi. Það sama hefur gerst hjá
okkur án þess að við höfum fengið
nokkra leiðréttingu. Við höfum horf-
ið frá því að vera aðstoðarmenn
lækna í að vinna okkar starf. Áður
gátum við ekki tekið röntgenmynd
án samþykkis læknis. Nú fram-
kvæmum við allar okkar rannsóknir
og afgreiðum þær yfir til lækna. Það
er gjörbreyting. Fyrst það er svo
mikið góðæri hlýtur að vera svigrúm
til að leiðrétta þetta,“ segir Katrín.
Minna starfsöryggi
Katrín bendir jafnframt á að
starfsöryggi opinberra starfsmanna
í heilbrigðiskerfinu hafi minnkað.
Það séu því ekki lengur rök fyrir
lægri launum hjá hinu opinbera að
starfsöryggið sé meira. Hún segir
enga ákvörðun hafa verið tekna um
hvort viðræðunum verði vísað til rík-
issáttasemjara. Geislafræðingar séu
ekki farnir að ræða um verkfall.
Geislafræðingar
fái launin leiðrétt
Séu í takt við almenna markaðinn
Ekki lengur aðstoðarmenn lækna
Morgunblaðið/Rósa Braga
Á Landspítalanum Geislafræðingar
telja sig sitja eftir í launaþróuninni.
Katrín
Sigurðardóttir
Myndatextar víxluðust á tveimur
myndum með greininni 100 ár frá
komu fyrsta traktorsins til Íslands í
Morgunblaðinu í gær. Myndin
merkt Sandgerði er af verslunar- og
skrifstofuhúsi Þórðar Ásmunds-
sonar, sem var reist 1942 við Vest-
urgötu 48 á Akranesi, og myndin
merkt Akranes er af verstöð Þórðar
og Lofts í Sandgerði árið 1913.
Myndatextar
víxluðust
LEIÐRÉTT
Haft var eftir Gyðu Hrönn Einarsdóttur, varaformanni BHM, í Morgun-
blaðinu sl. laugardag að BHM-félögin horfi til leiðréttingar kjararáðs á
launum þeirra sem undir það heyra. Það komi illa út fyrir BHM-félögin
að miða við launaþróun frá 2013 en ekki 2006, líkt og kjararáð geri. Hjá
sumum aðildarfélögum BHM vanti „verulega mikið upp á“ leiðréttingu
launa. BHM-félög í heilbrigðisgeiranum horfi til kjarabóta sem læknar
og þeir sem heyra undir kjararáð hafi fengið.
Skv. vef stjórnarráðsins voru heildarlaun lækna að meðaltali 1,099
milljónir í janúar 2013. Þau voru til samanburðar 1,482 millj. í sept-
ember sl. Það er um 35% hækkun. Til samanburðar voru heildarlaun
geislafræðinga að meðaltali 553 þús. í janúar 2013 en 780 þús. í sept-
ember sl. Það er 41% hækkun. Launin sveiflast milli mánaða.
Hækkað um 41% frá 2013
LAUN GEISLAFRÆÐINGA
Hvað er í bíó?
mbl.is/bio