Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Viðreisnkynnti sigtil sögunnar sem frjálslyndan flokk en snerist í raun aðeins um eitt mál; inngöngu Ís- lands í Evrópusambandið. Þeg- ar flokkurinn komst til valda skamma hríð kom skýrt í ljós að flokkurinn er í reynd aðeins hefðbundinn vinstriflokkur og keppir því á sama markaði og Samfylkingin, annars vegar um þá fáu kjósendur sem vilja inn í Evrópusambandið og hins veg- ar þá sem vilja aukin rík- isumsvif og hærri skatta. Í snautlegri stjórnartíð sinni hegðaði Viðreisn sér eins og aðrir vinstriflokkar með fjand- skap í garð atvinnulífsins og stuðningi við óhóflegar álögur á almenning og fyrirtæki. Þetta var svo kryddað með ým- iskonar popúlisma í örvænting- arfullri tilraun til að bjarga flokknum frá falli af þingi eins og í stefndi lengst af. Eftir kosningar var ekki síð- ur skýrt hvar flokkurinn lá á pólitíska litrófinu. Hann skip- aði sér í sveit með Samfylkingu og Pírötum, sem hafa í seinni tíð meira og minna runnið sam- an málefnalega. Þetta útspil mislukkaðist og leiddi ekki til stjórnarmyndunarviðræðna, en innsiglaði hvar hjarta Við- reisnar slær. Nú eru nokkrir mánuðir frá kosningum og enn er Viðreisn við sama heygarðshornið. Fram hefur komið hjá stjórn- arflokkunum að til skoðunar sé að lækka veiðigjöld til að mæta þeirri staðreynd að útgerðum „stórblæðir núna um hver ein- ustu mánaðamót“, eins og framkvæmdastjóri einnar þeirra orð- aði það í samtali við Morgunblaðið í gær. Útfærsla þeirrar aðgerðar liggur ekki fyrir en þó liggur þegar fyrir hvernig formaður Viðreisnar hyggst nálgast málið. Í samtali við Ríkisútvarpið í gær tók for- maðurinn til varna fyrir rík- issjóð og hafði miklar áhyggjur af að ríkissjóður mundi missa spón úr aski sínum og sagði að ekki mætti lækka álögur á greinina í heild sinni. Ekki mætti nota litlar og meðal- stórar útgerðir „sem skjól til þess að lækka heildarálögur á útgerðina“. Þetta er athyglisverð afstaða hjá flokki sem segist frjáls- lyndur. Það að sérstakur við- bótarskattur á eina atvinnu- grein sé að sliga hana þannig að stórum hluta hennar sé að blæða út má ekki nota „sem skjól“ til að lækka þessar óeðli- legu álögur. Flokkur sem væri frjáls- lyndur í raun mundi hafa áhyggjur af því ranglæti sem felst í veiðigjöldunum en hann hefði minni áhyggjur af því þó að skattar almennt myndu lækka. Hann væri hlynntur al- mennri skattalækkun, ekki síst þeirri sem þýddi að heildar- tekjur ríkissjóðs myndu lækka. Stjórnlyndur vinstriflokkur, eins og Viðreisn hefur reynst vera, hefur hins vegar meiri áhyggjur af ríkissjóði en at- vinnulífi og almenningi í land- inu, sem starfar í þessu sama atvinnulífi og er háður afkomu þess um eigin afkomu og vel- ferð. Formaðurinn má ekki heyra minnst á hugmyndir um lægri skatta } Vinstriflokkurinn Viðreisn Meiri sáttatónnvar hjá Kim Jong-un, einræð- isherra Norður- Kóreu, í garð Suð- ur-Kóreu um nýlið- in áramót en oft áður. Opnaði Kim meðal annars á það að norðurkóreskir íþróttamenn tækju þátt í vetr- arólympíuleikunum, sem fram eiga að fara í Suður-Kóreu í febrúar. Suður-Kóreumenn hafa boðið Norður-Kóreu til viðræðna í landamæraþorpinu Panmun- jom, en tvö ár eru liðin síðan fulltrúar ríkjanna funduðu síð- ast. Norður-Kóreumenn tóku vel í boðið og það er svo til enn frekara merkis um hina nýju „áramótaþíðu“ í samskiptum Kóreuríkjanna, að Norður- Kóreumenn ákváðu að opna á bein samskipti í gegnum sér- staka símalínu, sem þeir höfðu lokað fyrir tveimur árum. Þó að vissulega sé það fagnaðarefni að fulltrúar Kór- euríkjanna hyggist ræða saman, má þó ekki fara fram úr sér í gleðinni. Engin leið er að vita með hvaða huga Norður-Kóreumenn munu nálg- ast viðræðurnar og þær gætu hæglega farið út um þúfur. Þá er það síður en svo hug- hreystandi, að í sama áramóta- ávarpi lýsti Kim Jong-un því yf- ir að „kjarnorkuhnappurinn“ væri alltaf á skrifborðinu hans, að hann vildi að ríki sitt hæfi fjöldaframleiðslu á kjarn- orkuvopnum og héldi áfram til- raunum með þau. Á meðan ein- ræðisherrann talar með þessum hætti er lítil von um raunveru- lega þíðu. Kóreuríkin vilja ræða saman en Kim Jong-un er ekki sannfærandi} Áramótaþíða? A uðvitað eru þingmenn mannlegir, annað væri undarlegt. Það sem er hins vegar undarlegt er hvernig mannlegi þátturinn hefur áhrif á þingmenn og störf þeirra. Þingið er nefnilega umhverfi átaka og það er mjög vel þekkt í hinum ýmsu fræðum hvers konar hegð- un skilar árangri fyrir átakaaðila. Þar á ég við fræði frá list stríðsins eftir Sun Tzu til sál- fræðiaðferða Fischers í skák. Í fyrstu sérstöku umræðum þessa kjör- tímabils ræddi ég við forsætisráðherra um ný vinnubrögð á Alþingi. Þar minnti ég á að það er ekki nóg að breyta kerfunum og reglunum því hegðunin breytist ekki sjálfkrafa með, sem er vandamálið. Það lýsir sér þannig að það er farið í manninn eða sagt að verið sé að fara í mann- inn. Gert er mál úr engu eða ekkert gert úr miklu. Fólki eru gerðar upp skoðanir. Enginn viðurkennir mistök. Öll brögð eru notuð. Fólk skellir hurðum, öskrar, bendir puttum í andlitið á öðrum, gerir sig að fórnarlambi, þykist vera vinur, lýgur, skilur útundan … hvað sem þarf til þess að búa til betri samningsstöðu. Sem dæmi þá heyrði ég einu sinni sagt: „Við erum í póli- tík, við veljum bara þau rök sem henta okkar málflutn- ingi.“ Samhengi og innihald virðast ekki skipta neinu máli. Það er ekkert rúm til þess að endurskoða afstöðu eða að- laga sjónarhorn með tilliti til nýrra upplýsinga. Það þarf bara að finna nægilega krassandi staðhæfingar sem hægt er að fleygja yfir á hina. Miðað við átakaumhverfið er þetta augljóst, fólk finnur sér yfirleitt bara heppileg rök sem staðfesta eigin skoðun þess, það er auðveldara en að taka tillit til allra sjón- armiða og endurskoða afstöðu sína. Á sama tíma hlýtur það að vera krafa okkar að þing- menn taki einmitt tillit til allra sjónarmiða. Þingmenn eru einungis bundnir við sann- færingu sína. Þingmenn geta ekki verið sér- fræðingar í öllu. Því hlýtur hlutverk þeirra að vera að safna saman sérfræðiálitum, vega þau og meta samkvæmt sannfæringu sinni og taka síðan upplýsta ákvörðun. Ef það eina sem þingmenn gera er að leita að rökum sem stað- festa skoðanir þeirra þá getur niðurstaðan ekki orðið rétt, nema með heppni. Ef það er mannlegt að Alþingi sé átakaum- hverfi, ef það er mannlegt að leita bara að stað- festingu á eigin skoðunum og ef hlutverk þing- manna er bara að fara eftir eigin sannfæringu, þá hljótum við að vilja ómannlega þingmenn. Þingmenn sem öskra ekki á aðra þó það myndi skila skammvinnum árangri samkvæmt átakafræðunum. Þingmenn sem skoða mál frá öllum sjónarhornum og láta ekki eigin skoðanir þvælast fyrir staðreyndum. Það vill örugglega enginn gangast við þessu, enda viðurkennir enginn mistök hérna. En þetta er greining mín á aðstæðunum. Samantekt sem lýsir því hvernig aðstæður stýra okkur frá lýðræðislegum niður- stöðum. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Ómannlegir þingmenn Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Alls voru skráð 1.646 fíkni-efnabrot hjá lögreglunni áhöfuðborgarsvæðinu árið2017 en það er 22% fjölg- un mála á milli ára. Langstærstur hluti fíkniefnabrota ársins, heil 72%, voru vegna vörslu og meðferðar áv- ana- og fíkniefna, alls 1.191 brot. Er það fjölgun á milli ára en slík mál voru 932 árið 2016. Hafa ber í huga að mörg þessi mál koma upp í tengslum við rannsókn ann- arra mála hjá lög- reglunni. Sam- kvæmt bráðabirgðatöl- um upplýsinga- og áætlunar- deildar lögregl- unnar á höfuð- borgarsvæðinu voru skráð alls 217 mál vegna flutn- ings fíkniefna á milli landa á árinu sem leið. Voru slík mál einungis 195 árið 2016. Eins fjölgaði málum vegna sölu og dreifingar fíkniefna úr 120 málum í 153 mál. Lögreglan lagði einnig hald á umtalsvert meira magn af fíkniefnum árið 2017. Ber þar hæst mikla aukningu á hald- lögðu kókaíni, sem fór úr 621 gr árið 2016 í 1,8 kg í fyrra, Haldlögð alsæla eða ecstasy fór úr 1,8 kg árið 2016 í 4,3 kg árið 2017. Alls var lagt hald á 11,9 kg af amfetamíni árið 2017 í samanburði við 8,8 kg árið áður. Gríðarleg aukning varð einnig í haldlögðu hassi sem fór úr 646 gr í 23 kg. Haldlagning á miklu magni af hassi á leið til Grænlands hefur þar mikil áhrif á tölfræðina. Mikið magn efna í umferð Grímur Grímsson, yfirlögreglu- þjónn segir lögregluna taka eftir því í störfum sínum hversu mikið magn fíkniefna er í umferð um þessar mundir. „Þetta er eitthvað sem við byggjum á þeim málum sem við höf- um farið í. Það er töluvert magn efna í umferð og það er tiltölulega opið að menn séu að selja þetta á facebook og samfélagsmiðlum,“ segir Grímur. Spurður hvernig þessi efni komi helst til landsins nefnir Grímur þrjár meginleiðir sem hann telur að séu notaðar til fíkniefnainnflutnings. „Ég held það komi töluvert mikið í gegnum flugvöllinn. Fyrir nokkrum vikum síðan voru töluvert mörg svokölluð burðardýr í gæslu- varðhaldi. Þá fer maður að velta vöngum yfir því hvað er líklegt að þeir [Tollgæslan] nái stóru prósenti af því magni sem kemur þar í gegn. Jafnvel þó þeir væru með, á einum tíma, alls 13 einstaklinga í gæslu- varðhaldi. Þannig að flugvöllurinn er eitt, jafnvel þó þau séu að standa sig gríðarlega vel. Síðan er það ferjan, þar kemur líka eitthvað í gegn og síðan er náttúrulega bara gríðarlega mikið sem er verið að senda hingað af pökkum og það hefur aukist mikið með aukinni verslun á netinu,“ segir Grímur og bætir við að magnið geri það erfitt fyrir okkur að fylgjast með öllum pökkum sem koma til lands- ins. Í fyrra var fjallað um það í fjöl- miðlum að kókaínneysla hefði aukist á síðustu árum og segir Grímur lög- regluna taka eftir því bæði á göt- unni, sölusíðum og í þeim málum sem lögreglan hefur unnið að á síð- ustu misserum. Hann segir einnig að magnið gefi til kynna að neyslan sé víðtækari en áður í samfélaginu. „Ef maður horfir nokkra áratugi aftur í tímann, þá voru þeir sem neyttu fíkniefna kallaðir fíkniefnaneyt- endur og höfðu ákveðinn stimpil á sér. Ef það er eitthvað sem er hægt að kalla helgarnotkun á fíknefnum, og ekki síst þessum hvítu efnum, þá teljum við að það sé nokkuð mikið um slíkt. Fólk lítur ekki á sig sem fíkla þó það lengi skemmtana- augnablikið með notkun á þessum efnum“. Fíkniefnamálum fjölgar á flestum vígstöðvum Grímur Grímsson Fjöldi fíkniefnabrota 2012 til 2017 2012 2013 2014 2015 2016 2017* Flutningur fíkniefna milli landa 68 147 217 159 195 217 Framleiðsla fíkniefna 176 140 97 73 74 75 Sala og dreifing fíkniefna 115 177 201 133 120 153 Varsla og meðferð ávana- og fíkniefna 892 1.026 1.205 947 932 1.191 Ýmis fíkniefnabrot 74 24 17 21 24 10 Alls 1.325 1.514 1.737 1.333 1.345 1.646 1.000 800 600 400 200 0 2015 2016 2017* 947 386 413 1.191 455 Varsla og meðferð ávana- og fíkniefna Önnur fíkniefnabrot 27,8 % a ukn ing 201 6-2 017 932 *Bráðabirgðatölur Heimild: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Tilkynnt var um 9.421 hegning- arlagabrot til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu árið 2017. Það er 9% fjölgun milli ára. Sér- refsilagabrotum fjölgaði um 34% á milli ára og voru 3.958 árið 2017. Umferðarlagabrotum fækkaði um 16% á milli ára og voru þau alls 27.940 árið 2017. Tilkynnt var um 4.815 auðg- unarbrot á árinu og voru lang- flest þeirra þjófnaðarbrot, alls 3.305 mál. Þá voru 309 kynferðisbrot til- kynnt á árinu. Um helmingur til- kynntra kynferðisbrota voru nauðganir og fjölgaði til- kynntum nauðgunum um 16% á milli ára. Í málaflokknum mann- dráp og líkamsmeiðingar fjölg- aði tilkynningum um 9% og voru alls tilkynnt 1.307 brot. Slíkar tilkynningar hafa ekki verið svo margar á einu ári frá því að samræmdar skráningar hófust hjá lögreglu árið 1999. Meginskýring þessarar fjölg- unar er breytt verklag vegna heimilisofbeldismála. Stærstur hluti ofbeldisbrota, 80%, var vegna minniháttar líkamsárasa (217.gr. alm.hgl). Helstu afbrot ársins 2017 AFBROTUM FJÖLGAR VÍÐA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.