Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018 ✝ Sigurveig Sig-urðardóttir fæddist á Brúar- hrauni í Kolbeins- staðahreppi 8. júlí 1941. Hún lést á Landspítalanum 20. desember 2017. Hún var dóttir Elínborgar Þórðardóttur, f. 15.8. 1911, og Sig- urðar Hallbjörns- sonar, f. 4.5. 1894. Sambýlis- maður hennar er Björn Sævarr Ingvarsson, f. 10.4. 1942, dóttir hennar er Svanhvít Ada Björnsdóttir, f. 2.12. 1979, og fósturdóttir er Sigrún Sif við Landspítalann 9. janúar 1966. Hún starfaði við Sjúkrahús Akraness 1965, lyfjadeild Landspítalans 1965-1966, svæf- ingarhjúkrun við Nacka Lasa- rett í Svíþjóð frá 1.10.1966, við Umeå Nacka 1.6. 1968 til 1.10.1968, svæfingardeild Barnaspítalans 1969 og var skólahjúkrunarfræðingur að Laugarvatni frá 1.9. 1970 til 1.6. 1975. Hún var í stjórn BSRB 1977- 1984, stjórn HFÍ 1974-1977, Ritnefnd Tímarits HFÍ, Kjara- málanefnd HFÍ, 1976-1983, Skólanefnd HFÍ, Jafnréttisráði 1987-1989 og Félagsdómi 1987. Sigurveig var svæfingar- hjúkrunarfræðingur hjá Land- spítalanum og hjúkrunarfræð- ingur hjá Blóðbankanum. Útför Sigurveigar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 4. janúar 2018, klukkan 15. Kristjánsdóttur, f. 28.2. 1982. Systkini Sigur- veigar eru Hall- björn Valdimar, f. 1931, d. 2010, Hörður Baldur, f. 1932, Gunnar Helgi, f. 1933, d. 1995, Þórir Ágúst, f. 1935, d. 2011, Svanur, f. 1936, d. 1968, Guðrún, f. 1939, Auður, f. 1943, Kristján, f. 1949, og Trausti, f. 1951. Sigurveig lauk gagnfræða- og landspróf í Reykholti 1960, námi við HSÍ í mars 1965 og framhaldsnámi í svæfingum Það er alltaf vont að missa gott fólk. Þá sérstaklega manneskju eins og Sigurveigu sem geymdi lítið annað en manngæsku í barmi sér. Móðir mín var einstök mann- eskja sem hélt dyrum sínum opn- um fyrir þá sem þurftu. Góðhjört- uð manneskja sem vildi lítið annað en gera heiminn betri. Hún gaf af sér eins mikið og hún hafði efni á og jafnvel gott betur. Margar af mínum bestu minn- ingum um móður mína voru í hinu hversdagslega. Að skreppa sam- an eitthvað um borgina og/eða fá okkur að borða eða jafnvel versla. Í þeim samverustundum gátum við talað um allt og ekkert. Núna, þegar hún er farin, þá kann ég svo miklu betur að meta þennan tíma sem við áttum saman. Þá tíma sem maður taldi sjálfsagða, eins og hvernig dagur fylgir nótt og öf- ugt. Tíma sem ég og aðrir munum aldrei aftur eiga með henni í lif- anda lífi. Mamma snerti á mörgum í gegnum ævi sína þrátt fyrir eilífa hógværð. Án efa er hér fólk sem á líf sitt henni að þakka, en hún vann sem hjúkrunarfræðingur lengi vel. Hún sagði samt sjaldan frá dáðum sínum enda ekki mikið fyrir að tala um sjálfa sig. Hún stóð einnig í ötulli kjarabaráttu fyrir réttindum hjúkrunarfræð- inga sem og opinberra starfs- manna og eyddi ófáum árum inn- an BSRB. Hún var kona sem barðist fyrir réttlætinu eins og henni einni var tamt. Hver einasta sál sem Sigurveig snerti á lífsævi sinni hefur sögu að segja og segja þær allflestar af góðhjartaðri manneskju sem neitaði engum um hjálp. Þessar sögur sem og gjörðir hennar munu endurhljóma um ókomna tíð en með brotthvarfi hennar hefur heimurinn misst af ljósi sem veitti hlýrri birtu inn í hið ei- lífa svartnætti alheimsins. Hennar verður sárt saknað en við sem áfram lifum munum geyma ljós hennar í barmi okkar um ókomna tíð. Svanhvít Ada Björnsdóttir. Sigurveig. Amma Veiga. Ég og börnin vorum á sunnu- daginn, þremur dögum áður en þú kvaddir okkur, í góðu yfirlæti hjá þér á Otró. Allt var eins og það átti að vera. Börnin suðuðu um ís og ég lá í sófanum. Við spjölluðum mikið eins og alltaf. Síðasta samtalið okkar var um hvað þú værir stolt af dótturdótt- ur þinni Lukku. Stolt yfir því hversu sjálfstæð hún væri og færi sínar eigin leiðir. Ég hefði aldrei trúað því að þetta væri síðasta skiptið sem við spjölluðum saman. Eins árs var ég farin að koma oft og títt til þín. Ég var bara nokkurra ára gömul þegar ég var komin til að vera og vildi hvergi annars staðar vera. Ég hef engar minningar um þetta en ég fékk alltaf sömu notalegu tilfinninguna þegar þú sagðir mér frá þessu. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér. Kærleiks- ríkt, frjálslegt, rólegt og yfir- vegað heimili. „Það kemur með kalda vatninu“ er málsháttur sem þú notaðir mikið og lýsir vel heim- ilishaldinu sem var á Otró. Þú slakaðir á með því að vinna í garð- inum og spila Super Maríó Bros. Þú studdir mig í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. Hvort sem það var að sauma furðuflík og leggja stofuna undir saumaskap svo vikum skipti eða koma með mér í að bera út DV sem ég réð jú auðvitað ekkert við ein. Ég reyni að vera eins og þú þegar kemur að mínum börnum. Veita þeim frelsi og styðja við það sem þau taka sér fyrir hendur. Það er ekki alltaf auðvelt og ég sé alltaf betur og betur með tímanum hversu mikið þú gafst af þér fyrir okkur systur. Botnlaus uppspretta ástar og þolinmæði. Ég og systir mín, Svanhvít, fylltum Otró af vinum alla daga ársins. Allir voru velkomnir. Bræður þínir sem bjuggu einir komu alltaf á Otró yfir jólin. Donna frá Júgóslavíu, þá fimm ára, var hjá okkur heilan vetur þar sem hún átti engan að á með- an pabbi hennar var í vinnu á dag- inn. Amma flutti á Otró þegar hún gat ekki lengur búið ein. Vinkona þín bjó hjá þér núna í sumar þeg- ar hún var að jafna sig eftir að- gerð. Ekkert var sjálfsagðara. Þú hjálpaðir öllum hvort sem það var í vinnunni, systkinum þínum í veikindum sínum eða mér í frekjukasti. Þú varst mjög heimakær og eyddir öllum þínum tíma í börnin þín. Enda fékk ég fyrsta lykilinn minn þegar ég flutti að heiman. Ég er enn í veseni með að passa upp á lyklana mína og kann enn ekki að búa í fjölbýli. Ég var alin upp við mikið frelsi. Ég er þakklát fyrir að Máni og Lukka fengu að eiga þig sem ömmu. Amma Veiga. Ég er þakk- lát fyrir liðið ár. Margar heim- sóknir á Otró, þriðju Bjarkartón- leikarnir okkar saman og að fá að leyfa börnunum að vera hjá þér í sumarfríinu sínu. Það er erfitt að kveðja þig. Börnin mín sem eru ekki nema sjö og fimm ára eiga erfitt með að kveðja þig. Það er svo margt ósagt. Þó ekki. Það voru tengslin á milli okkar sem sögðu flest. Ég á eftir að sakna þín svo mikið. Ég bý yfir svo mörgum góðum og ljúfum minningum. Sigrún. Ég er glöð að hafa átt þig sem ömmu. Amma Veiga. Ég á eftir að sakna þess að koma til þín. Ég á eftir að sakna þess að fá ís og horfa á sjónvarpið heima hjá þér. Takk fyrir ísinn. Lukka. Það er rosa rosa leiðinlegt að amma Veiga er dáin. Takk fyrir að gefa mér nammi, amma Veiga. Við erum búin að skreyta jólatréð þitt, amma Veiga. Ég er líka búinn að eiga afmæli, nú er ég fimm ára. Gott að þú sért hjá englunum og að það fari vel um þig. Máni. Sigurveig móðursystir mín lést 20. desember, rétt um vetrar- sólstöður. Tilfinningarnar eru blendnar, sorg og söknuður vegna þess að Veigu hef ég þekkt alla mína ævi og átti við hana góð samskipti. Hún fór jafn snögg- lega og hún kom en þegar hún fæddist lá henni svo á að ljósmóð- irin náði ekki í tæka tíð. Barnið var fætt og móðuramma mín búin að skilja á milli en hún hafði feng- ið aðstoð frá tæplega átta ára syni sínum, Gunnari, með að fá skæri til þess arna. Þegar ljósmóðirin og afi minn mættu á hann að hafa sagt kotroskinn „Það er komin stelpa svona lítil“ og sýnt með báðum höndum stærðina á systur sinni. Mínar fyrstu minningar tengj- ast bernskunni þegar Veiga kom vestur í sveit á bláa voffanum, Volkswagen-bjöllunni, og bauð okkur eldri systkinunum í göngu- ferðir m.a. að Grettisbæli og Barnaborgum. Einnig man ég eftir ævintýraferð að Laugar- vatni þar sem hún vann sem hjúkrunarfræðingur. Á mennta- skólaárunum dvaldi ég hjá henni og fjölskyldunni og eftir að ég hóf búskap urðu margar ferðirnar í kaffi til Veigu á Otrateignum þar sem amma mín dvaldi einnig sín síðustu ár. Veiga ólst upp í stórum syst- kinahópi og var rétt tæplega 18 ára gömul þegar hún missti föður sinn og níu árum síðar lést Svan- ur bróðir hennar, en þá bjó hún erlendis. Við þau tímamót sendi hún minningarorð heim í bundnu máli því hún gat verið hagmælt þótt hún flíkaði því ekki að ráði. Áföllin hafa án efa mótað hana en hún lét ekki á því bera. Hún gekk í Reykholtsskóla og Hjúkrunarskólann. Þaðan lá leið- in til Stokkhólms þar sem hún lærði svæfingahjúkrun, ein af þeim fyrstu sem það gerðu. Lengstan hluta starfsævinnar vann hún á Borgarspítalanum en síðustu árin vann hún í Blóðbank- anum þar sem margir minnast hennar. Veiga var sjálfstæð og var einn af frumbyggjunum í Breiðholtinu. Hún hafði mikinn áhuga á pólitík og var á framboðslistum til al- þingiskosninga, fyrir Samtök frjálslyndra og vinstrimanna 1971 og síðar á lista Þjóðvaka árið 1995. Hún tók einnig þátt í störf- um innan BSRB og var mikill jafnréttissinni og hugsjónakona fyrir jöfnuði og réttlæti í þjóð- félaginu. Saman fórum við til Óslóar árið 1988 á Norræna kvennaráðstefnu þar sem jafn- rétti kynjanna var rætt. Hún sat í stjórn Búmanna og ég held að hún hafi alla tíð haft gaman af fé- lagsstörfum ýmiss konar. Hún sinnti fólkinu sínu vel þegar veik- indi komu upp á en gleymdi e.t.v. að huga að sjálfri sér. Frænka mín hafði mikla ánægju af útiveru, vann í garð- inum sínum og fór ófáar berja- ferðirnar, nú hin síðari ár vestur að Arnarstapa þar sem henni þótti gott að koma. Á bernsku- slóðunum gróðursetti hún tré í Glámunni og þau koma til með að standa þar til minningar um hana. Norður í Vestur-Húnavatnssýslu áttu þau Björn líka skika á æsku- slóðum móður hans. Veiga skilur eftir sig eina dóttur, Svanhvíti, en einnig ólst bróðurdóttir hennar, Sigrún Sif, upp hjá henni að mestu leyti. Þeim báðum sem og Birni, sam- býlismanni hennar, votta ég mín dýpstu samúð og ég veit og trúi að minningarnar um Veigu eigi eftir að ylja þeim um ókomna tíð þegar sárasta sorgin hefur sefast. Ég kveð frænku mína með ljóði afa míns, Sigurðar Hallbjörns- sonar, og kem til með að minnast hennar með hlýju alla tíð. „Ó lifðu í fegurð, lífið er, ljósgeisli hverfull veittur hér. Láttu því bestu blómin þín, blómgast á meðan sólin skín.“ Elínborg Sigvaldadóttir. Elskuleg vinkona okkar, Sigurveig, er látin. Það er ótrúlegt að hugsa til Sigurveig Sigurðardóttir ✝ Örn Erlends-son fæddist á Jarðlangsstöðum 6. janúar 1935. Hann lést 18. desember 2017 á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi. Foreldrar hans voru Erlendur Jónsson, f. 28.9. 1896, d. 5.9. 1980, og Auður Finnbogadóttir, f. 28.10. 1904, d. 12.3. 1985. Systkini Arnar eru þær Þur- íður, f. 27.8. 1927, Ragnhildur, f. 14.4. 1931, og Erna, f. 6.1. 1935, Erlendsdætur. Örn átti börnin Finnboga Rút með fyrri eiginkonu sinni, Elínu Finn- bogadóttur, Sigríði með Rann- veigu Haraldsdóttur og synina Orm og Rolf Hákon með seinni eiginkonu sinni Renötu Erlendsdóttur. Að loknu stúd- entsprófi frá Verzlunarskóla Ís- lands nam Örn við Humboldt- háskólann í A- Berlín þar sem hann útskrifaðist með doktorsgráðu í hagfræði. Að námi loknu setti hann á laggirnar Sölustofnun lagmetis, hóf út- flutning á niðursoðnum fisk- afurðum. Árið 1977 stofnaði Örn útflutningsfyrirtækið Tri- ton ásamt eiginkonu sinni Re- nötu og rak fyrirtækið til árs- ins 2016. Örn starfaði um árabil sem heiðursræðismaður Malasíu á Íslandi. Útför hans fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 4. janúar 2018, klukkan 15. 68 ár – 68 ára vinátta. Haustið 1949 komu tvíburasystkinin Örn og Erna Erlendsbörn í fyrsta bekk í Verslunarskóla Íslands. Þar hófst sterk vinátta, sem alltaf hélst og aldrei bar skugga á. Í þessum vinahópi voru einnig Gunnar Dofri frændi minn og Eyþór Heiðberg. Við eyddum saman skóladögum okkar í gleði æskunnar. Eftir skólann dreifðist hópurinn en böndin héldu. Vin- skapurinn var ekta, traustur og gagnheill. Ekkert truflaði hann. Stjórnmálaskoðanir voru mjög ólíkar en það kom alveg af sjálfu sér að það hafði engin áhrif á okk- ar hjartaþel. Leiðir skildi í lang- an tíma, allt að 10 ár, þegar Örn var í Þýskalandi, en þegar hann kom aftur heim eftir þessa löngu útivist var alveg eins og við hefð- um hist síðast í gær. Nýr þáttur hófst eftir að við keyptum labradorhvolp af Erni. Við Örn gengum með hunda okk- ar um allt nágrenni Reykjavíkur okkur til mikillar ánægju og endurnæringar. Ógleymanlegt var á þessum ferðum þegar Örn tók upp úr pússi sínu ginseng-te og kexkökur og fróðlegar um- ræður hófust yfir tesopa. Örn Erlendsson kom upp sterku fyrirtæki í framleiðslu niðursoðinnar þorsklifrar sem hann flutti út til fjölmargra landa. Á þessu sviði gerðist Örn brautryðjandi og hafði mikil áhrif. Hér sit ég eftir með dýrmætar minningar um góðan dreng. Jóhann J. Ólafsson. Samskipti okkar Arnar voru mest kringum 1960. Við vorum saman í fararstjórn um hundrað manna hóps sem sótti heimsmót æskunnar í Vínarborg sumarið 1959. Þar sem hann var stúdent úr Verslunarskólanum þótti ein- boðið að hann annaðist hin sam- eiginlegu fjármál hópsins. Þarf ekki að orðlengja að hann leysti það verkefni af hendi með sóma. Síðar dvöldumst við samtímis í Berlín árin 1963-1965, hvor sím- um megin við Múrinn. Við skipt- umst öðru hverju á heimsóknum og gerðum hvor öðrum smá- greiða á sínu svæði. Einnig urð- um við nokkrum sinnum sam- ferða í lest á gleðifundi Íslendinga suður í Leipzig. Stundum fóru á milli okkar gamanmál sem varla koma nein- um öðrum við. Örn var nokkrum árum lengur en ég í Berlín og eftir að báðir voru komnir heim fór hvor sína leið, hann í viðskiptalífið og ég í menningarsöguna. Það var einna helst að við rækjumst saman á Keflavíkurflugvelli meðan við biðum eftir flugfari hvor í sína áttina. En það urðu jafnan fagn- aðarfundir. Árni Björnsson. Það fylgir því að eldast að við missum vini okkar á lífsleiðinni og við það verðum við fátækari. Ég kynntist Erni í Verzlunar- skólanum. Við sátum saman í 1. bekk. Það stækkaði mjög lífssýn mína að kynnast Erni og fjöl- skyldu hans. Við vinir Arnar komum oft í heimsókn á Flóka- götuna þar sem fjölskyldan hans bjó. Auður, mamma Arnar, kom þá með kaffikvörnina inn í stofu og spurði hver vildi mala kaffið. Mér til ánægju kom það oft í minn hlut. Á meðan malað var vafði Auður sígarettu fyrir sig. Svo var spjallað á meðan notið var veitinganna. Auður hafði nokkra kostgangara og kynntist ég sumum þeirra. Það voru oftast ungir menn sem voru að ljúka námi og alltaf fannst mér eins og Auður væri þeim sem önnur móð- ir. Það gerði mér gott að finna hvað ég var þarna velkominn. Með árunum má segja að við Örn höfum farið hvor í sína áttina en við héldum alltaf góðri vináttu. Það gladdi mig alltaf mikið að heyra Örn tala um hversu mikla ánægju hann hafði haft af því að heimsækja mig í foreldrahúsum á Laufásveginum og tala við for- eldra mína og þiggja þar veit- ingar. Það snjóar yfir margt í lífi okkar nema minningarnar, þær standa alltaf upp úr. Þakklæti er mér efst í huga þegar ég kveð góðan vin. Ég bið Guð að hugga, styrkja og blessa alla hans nánustu. Eyþór Heiðberg. Leiðir okkar Arnar lágu fyrst saman í DDR þar sem við stund- uðum báðir nám, ég í Dresden en Örn í Austur-Berlín. Í Berlín átt- um við saman margar góðar stundir. Örn var ætíð greiðvikinn og með skopskynið í lagi. Dæmi um það er þegar vin minn vantaði gull í giftingarhringi, en þar sem það var ófáanlegt í DDR sendi ég Erni kort með beiðni um skreppi- túr vestur yfir. Skömmu seinna fékk ég bókarsendingu, í bókinni var gullþynna, bókin hét Gull- smyglararnir. Að námi loknu hélt vinskapur okkar áfram á Íslandi. Örn fékk mig í lið með sér ásamt fleirum við að endurreisa Ferðamiðstöð- ina og gekk samstarf okkar vel. Síðar þegar mig vantaði stuðning við að byggja fjórðu hæð Hafnar- strætis 20 var Örn reiðubúinn og vorum við þar til húsa með skrif- stofur okkar árum saman. Þegar veikindi Arnar byrjuðu vildi hann sem minnst um þau tala, enda bjartsýnismaður. Ætlaði að sigra krabbann eins og Bakkus forðum. Þegar ég heimsótti Örn á líknardeildina var talað um að fara í kaffi þegar hann losnaði, en því miður varð ekki af því. Þakka Erni allar okkar samverustundir. Ég kveð vin minn Örn með söknuði og sendi ættingjum hans mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Gunnar Rósinkranz. Örn var í mínum augum sann- kallaður herramaður. Hann lagði mikið upp úr vönd- uðu útliti og naut þess að klæðast gæðafatnaði með góðu sniði. Þetta var hins vegar ekki yfir- borðskennd framkoma heldur hluti af persónuleika hans sem einkenndist af umhugsun um sjálfan sig og aðra. Hann stóð upp úr hvar sem kann kom. Ég kynntist Erni fyrst í æf- ingabúðum á Spáni þar sem hann var við æfingar ásamt öðrum Ís- lendingum. Hann bar af þeim í fagmannleika, stundvísi og fram- komu og var fyrirmynd í alla staði. Hann var alhliða íþrótta- maður, stundaði hlaup og sund og það var vel þekkt í æfingasal Stefáns að hann gat lyft sömu þyngdum og mun yngri menn. Hann talaði mörg tungumál reiprennandi og var mjög lipur í samskiptum og átti auðvelt með að aðstoða mig og aðra á sinn ein- staka hátt. Ég hefði ekki áorkað öllu sem ég hef gert ef það væri ekki fyrir atbeina hans, leiðbein- ingar og hvatningu og fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Örn kom sér alltaf beint að efninu og lá ekki á skoðunum sín- um hvort sem það snerti mat, fatnað, stjórnmál og mér líkaði einlæg framkoma hans. Það sem stendur þó mest uppúr í fari Arn- ar var hjartagæska, gestrisni og hugulsemi. Hann var vanur að segja að það væri tilgangslaut að eiga eitthvað ef þú gætir ekki deilt því með öðrum. Hann var góður hlustandi og mikilvægur þátttakandi í lífi mínu þegar ég setti ný met eða vann til verð- launa. Hann var mjög stoltur af mér og endurtók gjarnan að hann væri mikill aðdáandi minn. Örn var heiðursræðismaður Malasíu á Íslandi og hafði mikinn áhuga á stjórnmálum. Honum þótti gaman að spjalla um stjórn- mál yfir kaffibolla við góða vini sína eins og Magnús, Jónas eða Hauk svo einhverjir séu nefndir. Erni tókst að láta mér líða eins og ég væri eðalborin og hann kom fram við mig eins og drottn- ingu. Tími okkar saman var kannski ekki mjög langur en engu að síður mjög ánægjulegur. Geraldine Finigan. Örn Erlendsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.