Morgunblaðið - 04.01.2018, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
✝ Ottó M. Þor-gilsson fæddist
á Vestdalseyri við
Seyðisfjörð 10.
mars 1936. Hann
lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Lögmannshlíð á
Akureyri 26. des-
ember 2017.
Foreldrar hans
voru Magnús Guð-
finnsson og Júl-
íana Guðmundsdóttir. Hann var
næstyngstur í hópi 12 systkina,
en þau eru Óskar, f. 1922, d.
1991, Einar Ársæll, f. 1924, d.
1924, Vilhelmína, f. 1925, d.
2015, Guðmundur, f. 1927, d.
1946, Oddný, f. 1928, d. 2016,
Guðný, f. 1929, d. 2017, Gunn-
Hafdís Hrönn, f. 1957 gift Sig-
urði Leópoldssyni, þau eiga
tvær dætur, Söru Björgu og
Olgu, Fjóla Björk, f. 1961, var í
sambúð með Jóni Helgasyni,
þau eiga einn son, Helga Hrafn,
og Gunnhildur, f. 1963, gift
Elíasi Björnssyni, þau eiga tvo
syni, Ottó og Unnar Björn.
Barnabarnabörnin eru fjögur
talsins.
Frá unglingsárum var Ottó
sjómaður og starfaði bæði á
togurum og síldarskipum, neta-
og línubátum. Árið 1966 gerð-
ist hann verslunarstjóri hjá
útibúi KEA í Hrísey og starfaði
þar í 35 ár. Eftir að hann hætti
störfum sem sjómaður átti
hann alltaf báta og í fríum og
þegar færi gaf reri hann til
fiskjar.
Útför Ottós fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 4. jan-
úar 2018, klukkan 13.30.
ar, f. 1931, Ólafur,
f. 1932, Árni, f.
1933, d. 1953,
Helga, f. 1935, og
Hrefna, f. 1939.
Á fyrsta aldurs-
ári var Ottó ætt-
leiddur af Guð-
björgu Einars-
dóttur og Þorgils
Baldvinssyni. Hjá
þeim ólst hann upp,
lengst af í Hrísey.
Hann var eina barn þeirra.
29. desember 1957 kvæntist
Ottó Svandísi Gunnarsdóttur
frá Ytri-Vík á Árskógsströnd, f.
3. nóvember 1938. Þau settust
að í Hrísey og bjuggu þar til
ársins 2014 en fluttust þá til
Akureyrar. Dætur þeirra eru
Elsku Ottó minn, vinurinn minn
væni. Það er sorg og tregi í hjarta
mínu en líka gleði og sátt þegar ég
sest niður til að skrifa fáein
kveðjuorð til þín. Það fóru ekki
mörg bréf á milli okkar í gegnum
tíðina en nokkur þó fyrstu árin
þegar þú varst á vertíðum. Þá
voru þau skrifuð af öðrum tilefn-
um og með öðrum hætti en nú.
Það er ekki sjálfgefið að fá að vera
saman í jafn langan tíma og við
fengum, en þú lagðir upp í hinstu
ferðina í þessu lífi þremur dögum
fyrir 60 ára brúðkaupsafmælið
okkar – 60 ár í blíðu og stríðu.
Ótal minningar leita á hugann
og þær góðu yfirgnæfandi. Við
vorum aldrei aðskilin nema stutt-
an tíma í einu fyrr en í september
2016 þegar þú fórst frá mér á
sjúkrahús. Þá hafði sá sjúkdómur
sem lagðist svo þungt á þig gert
það að verkum að þú áttir ekki
afturkvæmt heim.
Hugurinn leitar á Austurveg
12 í Hrísey þar sem stelpurnar
okkar fæddust og við vorum
fyrstu 14 árin, svo í Sólvallagöt-
una þar sem við bjuggum okkur
yndislegt heimili í 41 ár. Ég man
öll jólin og áramótin þegar allir
voru hjá okkur, allar útilegurnar,
sjóferðirnar, þegar við gerðum að
fiskinum sem við hertum í harð-
fisk, vinnuna okkar í garðinum
sem var oft æði mikil og jólaþrifin
á bílskúrnum sem enduðu á að þú
skrúbbaðir gólfið með Þrifi, við
hlustuðum á jólalög í útvarpinu á
meðan, tókum stundum eitt eða
tvö dansspor og fengum okkur
einn bjór að loknu góðu dags-
verki. Þetta eru gæðastundir sem
ég geymi innra með mér.
Þú áttir alltaf bát, eiginlega all-
an okkar búskap með smá hléum.
Bátarnir urðu þrír. Þó að örlögin
hafi hagað því svo til að þú vannst
stóran hluta af þinni starfsævi við
annað en sjómennsku varstu allt-
af sjómaður í hjarta þínu og fyrir
mér. Þú varst svo nátengdur sjón-
um og náttúrunni, laðaðir að þér
dýr og fugla. Rjúpan, sólskríkjan
og þrestirnir voru daglegir gestir
í garðinum okkar og þeim gafst
þú að borða nær allan ársins
hring. Þegar ég fór að hugsa um
að ef til vill myndum við ekki alltaf
eiga heima í Hrísey og fara burt
vissi ég að það yrði þér erfitt, ekki
síst vegna fuglanna sem ekki yrðu
heimagangar hjá okkur í nýjum
heimkynnum.
Mig langar líka að segja þér
hvað ég var stolt og ánægð þegar
þú varst heiðraður á sjómanndag-
inn vorið 2014 í Hrísey rétt eftir
að við fluttum í burtu úr Eyjunni
sem hafði fóstrað og farið vel með
okkur í öll þessi ár. Í maíbyrjun
það sama ár fluttum við til Ak-
ureyrar og eignuðumst gott heim-
ili þar. Nú er allt breytt og komið
að kveðjustund þar til við hitt-
umst í öðrum heimi sem mér er
enn hulinn. Ég trúi því að farnir
ættingjar og vinir hafi tekið á
móti þér þegar þú hvarfst héðan á
nýjar slóðir og að þeir varði þér
veginn til áframhaldandi þroska í
öðru lífi. Ég veit að tómið verður
mikið þegar ég get ekki lengur
heimsótt þig þar sem þú dvaldir
síðastliðið ár eins og ég gerði á
nær hverjum degi en ég veit að þú
verður mér einhvers staðar ná-
lægur. Ég kveð þig með kærri
þökk fyrir samfylgdina í gegnum
lífið, elsku Ottó minn. Ég bið Guð
okkar allra að vera með þér og
umvefja þig kærleiksljósi sínu.
Þín
Svandís (Dísa).
Fæðing, dauði. Á milli er
mannsævin, löng eða stutt eftir
atvikum. Manneskjan sem kveður
tekur með sér minningar, hugs-
anir, tilfinningar, allt sem hún
hefur upplifað og fundið fyrir á
heilli mannsævi. Við hin sem vor-
um samferða, mislangan tíma,
þekkjum bara lítið brot af því öllu.
Elsku pabbi, kveðjan mín til
þín verður stutt. Við fylgdumst að
í 56 ár, sá pabbi sem ég þekkti
sem barn var annar en sá sem ég
þekkti sem fullorðin manneskja
og sem gamall maður varstu enn
annar. Í grunninn varstu þó sam-
ur. Æðrulaus, sterkur og heil-
steyptur, harður af þér og stund-
um harður í horn að taka,
lífsglaður, úrræðagóður, greið-
vikinn, stríðinn og góðhjartaður.
Náttúrubarn sem einhvern veg-
inn náði oftast að greina kjarnann
frá hisminu. Það skil ég núna. Þú
og mamma voruð ólíkar persónur
en slípuðust svo fallega saman
með árunum. Þið, Sólvallagatan
og Hrísey voruð eitt, allt var þar
einhvern veginn til staðar og mað-
ur kom og gekk að öllu vísu.
Minningarnar sem ég á um þig og
mömmu í Sólvallagötunni vekja
núna bæði gleði og söknuð, hlátur,
hlýju, þakklæti og endalausa
væntumþykju.
Þú fluttist til Hríseyjar 10 ára
gamall og þar, umkringdur sjón-
um sem alltaf átti hug þinn og fal-
legasta fjallahringnum, áttir þú
höfn í næstum 70 ár. Ég treysti
því að þú hvílir nú í þinni heima-
höfn.
Farðu í friði, elsku pabbi minn.
Þín
Fjóla.
„Mikil ósköp er gaman að lifa.“
Þetta varð pabba gjarnan á orði á
góðum stundum þegar allir voru
saman komnir, oftar en ekki á
Sólvallagötunni. Hann var í ess-
inu sínu með alla fjölskylduna í
kringum sig og móttökurnar eftir
því. Þegar ferjan lagði að stóð
Gamli rauður þolinmóður á
bryggjunni að flytja burtflognu
fuglana heim í hreiðrið.
Dagarnir eru sjálfum sér líkir
en samt ekki eins og áður. Vet-
urinn hefur minnt á sig þessa jóla-
daga, kalt í lofti en fjörðurinn
skartað sínu fegursta í skamm-
degisbirtunni. Það var einmitt
alltaf svona veður í gönguferðun-
um á jóladag í Hrísey, kalt, stillt
og gullin birtan baðaði fjalla-
hringinn – það minnir mig í það
minnsta. Í sjálfu sér var það
pabba líkt að velja þennan tíma til
að kveðja, mesti jólaerillinn af-
staðinn og vegna hátíðanna voru
nánast allir í húsi, hann vildi ekki
valda óþarfa usla.
Það er undarlegt hvernig lífið
leikur mann, hann kenndi okkur
systrum að hver væri sinnar gæfu
smiður og þegar pabbi hefur litið
yfir farinn veg er ég viss um að
hann taldi sig gæfusaman og hafa
átt gott líf enda með mömmu sér
við hlið í 60 ár. Samt kemur lífið
aftan að manni, maður kýs ekki
sitt ævikvöld svo mikið er víst.
Það er erfitt að enda í þeirri stöðu
sem maður síst vildi en það varð
hlutskipti pabba, hann hélt þó í
sitt einstaka æðruleysi allt til
enda – svona eru hlutirnir og því
verður ekki breytt – það þýðir
ekki að velta sér upp úr orðnum
hlut – svona hugsaði pabbi og
sagði ósjaldan eitthvað þessu líkt.
Þetta viðhorf hefur án efa hjálpað
honum í gegnum þennan and-
styggilega sjúkdóm sem hann
glímdi við síðustu árin og kímni-
gáfan held ég að hafi staðið með
honum til enda. Seigla og þraut-
seigja var einnig lyndiseinkunn
pabba og það veganesti reyndi
hann seinþreyttur að búa okkur
afkomendur sína út með. Mínir
drengir munu vonandi aldrei
gleyma því að þolinmæðin þrautir
vinnur allar og maður gefst ekki
upp fyrr en þrautreynt er.
Það er ekki fyrr en maður
hættir að taka öllu og öllum sem
sjálfsögðum að maður áttar sig á
kostunum sem í þeim felast. For-
eldrar eru eitt af því sem maður
tekur sem gefnu, pabbi er bara
pabbi en nú sé ég að minn pabbi
var hlýr, traustur, nægjusamur,
umhyggjusamur og allir þessir
þættir styrktust með árunum.
Auðvitað var hann ekki gallalaus
og ég get kallað fram atvik úr
æsku sem ég hefði viljað að væru
öðruvísi en svona er að vera
manneskja, það er fallegt en sorg-
legt, svo vitnað sé í annarra orð.
Elsku pabbi minn, þetta er fá-
tækleg kveðja en ég veit þú gerir
enga kröfu á fljúgandi mælsku og
aldrei hefur þú haft þörf fyrir að
vera miðpunktur og láta hlutina
snúast um þig en ég veit og finn að
margt af því sem þú hafðir fyrir,
meðvitað eða ekki, hefur þegar
skilað sér til góðs.
Takk fyrir allt.
Þín
Gunnhildur.
Mig langar að minnast hans
pabba með nokkrum orðum, en
hann kvaddi að kvöldi annars
dags jóla, hvíldinni feginn.
Ólæknandi sjúkdómur, Lewy
Body, læddist aftan að honum,
ágerðist og endaði með því að öll
færni var frá honum tekin. Stæði-
legur, hraustur, úrræðagóður og
laghentur maður hvarf smám
saman. Þessi tími reyndist fjöl-
skyldunni erfiður en það voru
æðruleysið og húmorinn, eigin-
leikar sem einkenndu hann og
hann hélt lengst af, sem hugguðu
okkur hin. Hugurinn leitar til
baka og myndir og minningar
lifna. Áhyggjulaus uppvaxtarár í
Hrísey, pabbi í kaupfélaginu,
pabbi á sjó, pabbi við hefilbekkinn
að smíða og dunda. Stundum sló í
brýnu á milli okkar á unglingsár-
unum. Ég bráðþroska og sjálf-
stæð, svolítið ódæl, vildi fara á
ball upp á land með vinum. Þó að
tekist væri á í rökræðunni og
hurðum skellt kom ekki til greina
að stúlkan færi á dansleik fimm-
tán ára gömul þar sem aldurstak-
markið væri sextán ár. Ákveðnum
og hörðum í horn að taka varð
honum ekki hnikað, en hann lét
þau orð falla að þegar ég næði
sjálfræðisaldri og ætti pening
yrði ég frjáls allra minna ferða.
Við það stóð hann enda alla tíð
maður orða sinna. Sólvallagatan
var byggð, með sólpalli sunnan
við hús og fallegum garði. Sólpall-
ur þótti þá óþarfa prjál, en hann
var fyrstur sinnar tegundar í Eyj-
unni. Pabbi fór eigin leiðir. Ég hef
ekki tölu á gleðistundunum á
snyrtilegri lóðinni og sólpallinum
fína. Þar var drukkið kaffi, þar
héldum við grillveislur, sleiktum
sólina og ræddum heimsmálin.
Dásamlegar stundir. Darri liggur
við bryggju á Árskógssandi,
pabbi er mættur til að ferja okkur
Sigga út í Eyju þótt liðið sé á nótt-
ina og Hríseyjarferjan löngu hætt
að ganga. Hvort heldur siglt var
með Darra eða ferjunni til Hrís-
eyjar brást aldrei að Gamli Rauð-
ur, Fergusoninn hans pabba, biði
okkar á bryggjunni ásamt bros-
andi bílstjóra. Tilbúinn að flytja
ferðalanga og farangur síðasta
spölinn heim í Sólvallagötuna.
Þessar ferðir urðu óteljandi og
pabbi blessaður alltaf jafn viljug-
ur og glaður að greiða götu síns
fólks. Pabbi, Gamli Rauður og
Darri meðan hans naut voru eitt.
Í Sólvallagötunni varð til sögnin
að bílskúrast. Merkingin breyti-
leg eftir því hvað og hver átti í
hlut. Pabbi og Siggi náðu vel sam-
an. Bílskúrinn var þeirra helga
vé. Þar var setið, spjallað og skál-
að síðkvöldin löng um leið og lagð-
ur var grunnur að sannri vináttu
þeirra. Heimsóknir barna-
barnanna í bílskúrinn þjónuðu
kennslu- og uppeldishlutverki.
Þar mátti finna ýmiss konar verk-
færi sem börnin lærðu um. Þar
var líka smíðað, tálgað og málað,
hnífar brýndir, gert að fiski,
þurrkaður harðfiskur, þaðan var
smáfuglunum gefið og margt
fleira. Samverustundirnar í bíl-
skúrnum urðu til að styrkja og
slípa tengslin á milli afa og afa-
barnanna. Í stjórnunarfræðunum
er talað um árangursrík sam-
skipti. Þannig voru samskiptin í
bílskúrnum. Pabbi kunni þá list
að lifa lífinu lifandi, „slaggur að
njódda og liffa“, ómetanlegur eig-
inleiki í erli hvunndagsins sem
mig langar að tileinka mér. Elsku
pabbi, takk fyrir allt. Siggi biður
fyrir kveðju.
Þín
Hrönn.
Ekki leið langur tími frá því að
við Gunnhildur byrjuðum saman
að ég hitti Ottó og Dísu í Hrísey í
fyrsta skipti. Ekki var laust við að
„sláninn“ sem Ottó hafði séð á
götum Akureyrar með yngstu
dóttur sinni kviði því að setjast við
morgunverðarborðið í Sólvalla-
götunni, en fljótlega fann ég þó að
allur ótti var óþarfur því mér var
Ottó M. Þorgilsson
✝ Elsa fæddist íVesterlöv í Sví-
þjóð 12. febrúar
1920. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Eiri í Reykja-
vík 26. desember
2017.
Foreldrar henn-
ar voru Agnes Zet-
terström og Gustav
Zetterström. Bróð-
ir hennar var Elís
Zetterström.
Elsa giftist Skúla Hansen, f.
15.7. 1921, d. 13.8. 1964.
Börn þeirra eru 1) Ann Mari
Hansen, f. 29.11. 1946, börn
hennar eru a) Skúli Hansen Vil-
hjálmsson, f. 1969, börn hans
eru Stefán Hansen, f. 25.10.
1986, d. 12.7. 2010, og Þöll
Skúladóttir, f. 12.7. 2000, b)
María Vilhjálms-
dóttir, f. 1970, börn
hennar eru 1) Ást-
hildur Erlings-
dóttir, f. 1989, dótt-
ir hennar er Elsa
María Jóhanns-
dóttir, f. 2017, 2)
Ann-Marí Guðna-
dóttir, f. 1999, og 3)
Guðbjörg Jóna
Guðnadóttir, f.
2006. c) Arnar
Gustav Vilhjálmsson, f. 1976,
börn hans eru Davíð Ernir
Arnarson, f. 1999, og Ísak Örn
Arnarson, f. 2006.
2) Mariann Setterström Han-
sen, f. 25.8. 1957.
Útför Elsu fer fram frá
Garðakirkju í dag, 4. janúar
2018, og hefst athöfnin klukkan
15.
Í dag kveðjum við Elsu, sem við
vorum svo heppnar að fá að
ferðast með síðustu árin. Elsa var
fædd í Vesterlöv í Svíþjóð 12. febr-
úar 1920. Ung að aldri flutti fjöl-
skyldan til Sala, þar sem Elsa óx
úr grasi ásamt yngri bróður.
Árið 1943 kynntist hún
myndarlegum ungum manni,
Skúla Hansen, kaupmannssyni
frá Hafnarfirði. Honum hafði með
ævintýralegum hætti verið smygl-
að sjóleiðis til Svíþjóðar frá Dan-
mörku. Skúli var virkur í and-
spyrnuhreyfingunni í
Kaupmannahöfn á stríðsárunum
en þegar fór að hitna undir kol-
unum síðla árs 1943 tókst að koma
honum og nokkrum öðrum undan.
Í stríðslok fór Skúli aftur heim til
Íslands, en ástin blómstraði og í
ágúst 1945 kom Elsa með Gull-
fossi til Íslands og giftist Skúla í
kirkjunni í Hafnarfirði 27. október
sama ár. Þau fluttu í sumarbústað
í grösugri laut í Hafnarfirði og
Skúli, sem var hagleikssmiður,
byggði við bústaðinn og bætti svo
úr varð heilsárshús. Þau eignuð-
ust tvær dætur, Ann Mari Han-
sen, f. 29.11. 1946, og Mariann
Hansen, f. 21.6. 1957.
Elsa var dugleg að heimsækja
fjölskylduna í Svíþjóð og sigldi ut-
an með Gullfossi með stelpurnar á
hverju sumri. Í ágúst 1964 þegar
þær mæðgur voru í Svíþjóð bárust
þeim fréttir um sviplegt andlát
Skúla. Eftir að Skúli var fallinn frá
stóð Elsa á tímamótum, hún velti
fyrir sér hvort hún ætti að flytja
aftur til Svíþjóðar eða vera áfram
á Íslandi.
Á þessum tíma var Mathilde
Hansen, tengdamóðir Elsu, orðin
heilsulítil og Elsa afréð að vera
áfram á Ísland til að sinna tengda-
móður sinni. Samhliða því fór hún
að vinna við aðhlynningu á Sól-
vangi í Hafnarfirði. Mathilde Han-
sen lést árið 1969, en þá var fyrsta
barnabarn Elsu nýfætt og árið
eftir kom það næsta. Elsa hélt því
áfram að búa á Íslandi þó að Sví-
þjóð stæði hjarta hennar alltaf
nærri og henni þótti leitt að geta
ekki sinnt foreldrum sínum meira
síðustu ár þeirra.
Einhvern tímann spurði ég
Elsu hvort það hefði ekki verið
erfið ákvörðun fyrir hana að rífa
sig upp með rótum og elta ástina
til Íslands, sem hún vissi lítið sem
ekkert um á þeim tíma. Elsa hugs-
aði sig aðeins um en svaraði því til
að hún hefði verið ung og þegar
maður væri ungur væri maður svo
vitlaus og hugsaði bara um sjálfan
sig og líðandi stund.
Á heimili Elsu að Skálabergi í
Hafnarfirði (seinna Stekkjarberg
11) bjuggu þrjár kynslóðir undir
sama þaki og þar uxu barnabörnin
upp. Elsa tók virkan þátt í uppeldi
barnabarnanna og seinna barna-
barnabarna. Að auki fóstraði Elsa
ýmis húsdýr, þó aðallega hunda af
ýmsum tegundum. Hún hafði
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum og fyrir kom að afkom-
endum þætti hún helst til of af-
skiptasöm.
Þegar við minnumst Elsu
minnumst við konu sem sárnaði
óréttlæti, konu sem var bæði bón-
góð og greiðvikin, við minnumst
líka matargerðar, saftgerðar og
bollubaksturs. Þó að Elsa hafi ver-
ið öll þessi ár á Íslandi varð henni
íslenskan aldrei töm og hennar
tungumál var skandinavísk
blanda sem við kölluðum Elsísku.
Um leið og við þökkum samvistir
við Elsu sendum við fjölskyldunni
samúðarkveðjur.
Guðlaug María Sigurðar-
dóttir, Eik Skorradóttir og
Þöll Skúladóttir.
Elsa Ingeborg
Zetterström Hansen
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar
Afi Elli var mjög góður maður. Hann
hjálpaði mér oft að setja upp leikfanga-
lestarteina. Mér fannst gaman að leika við
langafa. Hann var besti langafi í heim-
inum.
Hrafnar Jökull.
Elís Gunnar
Þorsteinsson
✝ Elís Gunnar Þorsteinsson fæddist 5.júlí 1929. Hann lést 3. desember
2017.
Útför Elísar var gerð 15. desember
2017.