Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 27
buðum upp á útreiðartúra en urðum
að hætta því vegna anna við gist-
inguna og veitingareksturinn.“
Hefur þú unnið við hótel- og veit-
ingareksturinn frá upphafi?
„Já. Ég byrjaði strax að stússa í
kringum gistireksturinn og vann við
þetta nánast öll sumur með námi.
Ég var svo búsettur á Höfðabrekku
til 2010 er ég og fjölskylda mín flutt-
um á Selfoss. Fjölskyldan er samt
mikið hér, einkum á sumrin, en ann-
ars ek ég á milli.
Voru ekki mikil viðbrigði að
hætta hefðbundnum búskap og snúa
sér alfarið að hótel- og veitinga-
rekstri?
„Nei, í rauninni ekki. Þetta þróað-
ist svona jafnt og þétt svo við feng-
um öll góða aðlögun að þessari
breytingu. Hér er nú ekkert
skepnuhald lengur að undanskildum
hundi og ketti.“
Með hótelstörfunum var Bjögvin
jafnframt leiðbeinandi við Víkur-
skóla 2003-2004, sat í sveitarstjórn
Mýrdalshrepps 2006-2008 og í
stjórn Skólaskrifstofu Suðurlands á
sama tíma.
Björgvin hefur setið í stjórn Golf-
klúbbsins í Vík um árabil og er
starfandi formaður Félags
ferðaþjónustubænda.
Helstu áhugamál Björgvins eru
golf, körfubolti og ferðalög: „Ég
byrjaði að æfa og keppa í körfu á
Laugarvatni og lék síðan með ýms-
um liðum, s.s. Laugdælum á
Laugarvatni, keppti með Þór á Ak-
ureyri og Hamri í Hveragerði. Við
stofnuðum svo körfuboltadeild í Vík
sem heitir Drangur en með þeim
keppti ég í fyrstu deild um skeið. Nú
leik ég mér með gamlingjum í FSU
Legends á Selfossi og hef gaman af.
Ég byrjaði að fikta við golf á
menntaskólaárunum og hef haft
áhuga á því síðan. Að vísu hefur for-
gjöfin verið að færast í öfuga átt að
undanförnu en það stendur til bóta.“
Fjölskylda
Eiginkona Björgvins er Halla Rós
Arnarsdóttir, f. 14.5. 1978, fram-
kvæmdastjóri hjá Efstadal í Laug-
ardal. Foreldrar hennar eru Odd-
geir Arnar Jónsson, f. 29.6. 1950,
húsasmíðameistari í Njarðvík, og
Björg Ingvarsdóttir, f. 21.6. 1958,
ferðaþjónustubóndi í Efstadal II,
gift Snæbirni Sigurðssyni, f. 3.4.
1955, bónda í Efstadal II.
Dætur Björgvins og Höllu Rósar
eru: 1) Sandra Lilja Björgvins-
dóttir, f. 13.4. 2000, nemi í Fjöl-
brautaskóla Suðurlands á Selfossi;
2) Sólbjörg Lind Björgvinsdóttir, f.
16.7. 2003, nemi á Selfossi, og 3)
Selma Lísa Björgvinsdóttir, f. 11.11.
2006, nemi á Selfossi.
Bræður Björgvins eru Kristján
Jóhannesson, f. 21.2. 1974, verk-
stjóri hjá Árborg á Selfossi, og
Ingvar Jóhannesson, f. 27.4.1982,
vélvirki á Höfðabrekku:
Hálfsystir Björgvins, samfeðra,
er Guðrún Berglind Jóhannesdóttir,
f. 24.9. 1971, hjúkrunarfræðingur í
Vík í Mýrdal.
Foreldrar Björgvins eru Jóhann-
es Kristjánsson f. 1.8. 1952, ferða-
þjónustubóndi á Höfðabrekku, og
Sólveig Sigurðardóttir, f. 17.6. 1950,
ferðaþjónustubóndi á Höfðabrekku.
Björgvin
Jóhannesson
Steinþóra Sigríður Einarsdóttir
húsfr. í Hafnarfirði, ættuð af Mýrunum
Friðfinnur Guðmundsson
frá Hellu í Hafnarfirði
Guðbjörg Friðfinnsdóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Sigurður Kr. Arnórsson
kirkjugarðsstj. frá Jófríðarstöðum í Hafnarfirði
Sólveig Sigurðardóttir
ferðaþjónustub. í Höfðabrekku
Arnór Þorvarðarson
frá Jófríðarstöðum í Hafnarfirði
Sólveig Sigurðardóttir
frá Ási í Hafnarfirði
Guðmundur Júlíusson kaupmaður í Melabúðinni
Leifur Jóhannesson fyrrv. forstöðum. Stofnlánadeildar landbúnaðarins
Brynja Kristjánsdóttir
kennari á Hofi í Öræfum
Jón Júlíusson kaupmaður í Nóatúni
Sigríður Sigurðardóttir
bankastarfsm. í Hafnarfirði
SigrúnArnórsdóttir
kennari í Hafnarfirði
Höskuldur Björnsson
verkfr. hjá HAFRÓ
Friðfinnur Sigurðsson læknir í Svíþjóð
Arnór Sigurðsson kirkjugarðsstj.
við Kirkjugarðinn í Hafnarfirði
Sigríður Katrín Guðmundsdóttir
frá Þorvaldarbúð á Hellissandi
Jensína Á.
Jóhannsdóttir
húsfr. á
Hellissandi og
í Rvík
Jóhann Hjálmarsson
skáld
Katrín
Hjálmarsdóttir fyrrv.
húsmæðrakennari í
Borgarfirði
Jóhann
Þórarinsson
sjóm. á
Hellissandi
Júlíus Alexander Þórarinsson
frá Saxhóli á Snæfellsnesi, bróðursonur Jóns,
langafa Friðriks Ólafssonar stómeistara
Bjarkey Magnús-
dóttir gestgjafi á
Hellissandi
Hrefna Júlíusdóttir
verslunarstj. frá
Sólheimum á Hellissandi
Kristján Jóhannesson
framkv.stj. í Garðabæ
Jóhannes Hallsson b.
á Leiti á Skógarströnd
Guðrún Hallsdóttir
húsfr. á Saurum, í Jónsnesi og
í Stykkishólmi, frá Gríshóli,
systurdóttir Ingibjargar, ömmu
Sigfúsar Daðasonar skálds
Jóhannes Guðjónsson
b. á Saurum og í Jónsnesi
Úr frændgarði Björgvins Jóhannessonar
Jóhannes Kristjánsson
ferðaþjónustub. í Höfðabrekku
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
Sigurður Baldursson fæddist íReykjavík 4.1. 1923. For-eldrar hans voru Maren
Ragnheiður Friðrika Pétursdóttir,
kennari, húsfreyja og umboðsmaður
Happdrættis Háskólans, og Baldur
Sveinsson, skólastjóri á Ísafirði og
síðar ritstjóri Vísis.
Baldur var sonur Sveins Víkings
Magnússonar, gestgjafa og söðla-
smiðs á Húsavík, og Kristjönu Guð-
nýjar Sigurðardóttur, en Maren
Ragnheiður var dóttir Péturs Krist-
inssonar, útvegsbónda í Engey, og
k.h., Ragnhildar Ólafsdóttur.
Baldur var bróðir Benedikts
Sveinssonar, föður Bjarna Bene-
diktssonar eldri forsætisráðherra,
Sveins framkvæmdastjóra og Pét-
urs, alþm. og sendiherra, en Maren
Ragnheiður var systir Guðrúnar
kvenréttindafrömuðar, móður
þeirra Bjarna, Sveins og Péturs.
Meðal systkina Sigurðar voru
Ragnheiður Kristjana, húsfreyja og
kennari, og Kristinn Magnús lög-
fræðingur.
Seinni kona Sigurðar var Lilja
Bernhöft skrifstofumaður sem lést
2010. Fyrri eiginkona Sigurðar er
Anna Gísladóttir kennari og eru syn-
ir þeirra Baldur, dósent í íslensku
við HÍ, og Gísli, vísindamaður á
Árnastofnun.
Sigurður ólst upp á Laugavegi 66,
varð stúdent frá MR 1942 og lauk
embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1948. Hann fékk réttindi sem hér-
aðsdómslögmaður árið 1949 og sem
hæstaréttarlögmaður 1960.
Sigurður var fulltrúi hjá Ragnari
Ólafssyni hrl. í Reykjavík 1948-67,
er hann stofnaði eigin lögfræðiskrif-
stofu í Reykjavík sem hann rak fram
yfir sjötugt.
Sigurður var ritari læknaráðs
1952-84, endurskoðandi Stúdenta-
félags Reykjavíkur, formaður Ís-
lenzk-þýzka menningarfélagsins og
sat í yfirkjörstjórn Reykjavíkur.
Hann var sæmdur gullstjörnu Stúd-
entafélags Reykjavíkur og ári síðar
gullmerki Liga für Völkerfreund-
schaft der DDR.
Sigurður lést 28.1. 2005.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Baldursson
90 ára
Hannes Vigfússon
Sigurður Árni Sigurðsson
Stefán B. Stefánsson
85 ára
Esther Marteinsdóttir
Gíslína G. Guðmundsdóttir
Jenný Ólöf Valsteinsdóttir
80 ára
Andrés Pétur Jónsson
Jón Ingi Steindórsson
Sigtryggur Björnsson
Steinar Geirdal
75 ára
Alda Jóhannesdóttir
Ásgeir Sigurðsson
Ingi I. Guðjónsson
Kristín Bernhöft
Svana E. Einarsdóttir
Unnur Jóhannsdóttir
70 ára
Benedikt Gunnarsson
Einar S. Guðjónsson
Erla Linda Benediktsdóttir
Friðrik Ólafur Guðjónsson
Svavar Sigurðsson
Sæmundur Hrólfsson
Þórdís Kristín Pétursdóttir
60 ára
Ágústa Gísladóttir
Áslaug Sigurþórsdóttir
Elsa Pálmey Pálmadóttir
Fjóla B. Þorsteinsdóttir
Fjóla Egedía Sverrisdóttir
Gunnar Jónsson
Gunnar Þorláksson
Helen Jónsdóttir
Helga Gísladóttir
Jóna Karitas Ívarsdóttir
Ragnheiður S. Helgadóttir
Sigurður D. Gunnarsson
Steingrímur Guðmundsson
50 ára
Arnbjörg Drífa Káradóttir
Artur Dominiak
Barbara Iwona Formella
Berglind Bjarnadóttir
Bjarnþór S. Harðarson
Dorin Hutuliac-Brai
Edda Lovísa Edvardsdóttir
Guðjón Grétarsson
Guðrún Sigurðardóttir
Harpa Eiríksdóttir
Jóhanna B. Guðjónsdóttir
Karen Anne Björnsson
Kolbrún M. Hannesdóttir
Luzviminda Velasco Burnot
Sigurgeir Guðjónsson
Soffía Guðrún Brandsdóttir
Stefán Alfreð Stefánsson
Steinunn Braga Bragadóttir
40 ára
Dariusz Golubiewski
Einar Bárður Brynjólfsson
Eiríka Benný Magnúsdóttir
Grímur Sigurðarson
Guðmundur Harðarson
Heiðar Lár Halldórsson
Heiko Alexander Scheible
Hrafnkell Helgi Helgason
Jón Baldur Valdimarsson
Kristín Á. Ögmundsdóttir
Krzysztof Rachubka
Leifur G. Sigmundsson
Marteinn Björnsson
Nikulás Hjaltason
Rebekka S. Magnúsdóttir
30 ára
Amalía Van Hong Nguyen
Anna Rósa Nikulásdóttir
Gísli Björn Þráinsson
Jóhann Örn Helgason
Magda Janicka
Margrét Irma Jónsdóttir
Vilmar Herbert Baldursson
Til hamingju með daginn
30 ára Gunnar ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
BSc-prófi í rafmagns-
tæknifræði frá HR og
starfar hjá Landsvirkjun.
Systkini: Jóhannes Þor-
kelsson, f. 1982; Björg
Þorkelsdóttir, f. 1985;
Nanna Rúnarsdóttir, f.
1989, og Guðrún Rúnars-
dóttir, f. 1990.
Foreldrar: Magnús Rúnar
Magnússon, f. 1956, raf-
virki, og Kristín Jóhann-
esdóttir, f. 1961, bókari.
Gunnar
Rúnarsson
40 ára Steina býr í Kópa-
vogi, lauk prófi í við-
skiptafræði og er verk-
efnastjóri hjá Deloitte.
Maki: Sorin Lazar, f.
1967, aðstoðarfrkvstjóri
hjá Íslandshótelum.
Börn: Victoría, f. 2001;
Finnur Alexander, f. 2005;
Haraldur Aron, f. 2009,
og Davíð Máni, f. 2015.
Foreldrar: Jóhanna S.
Björnsdóttir, f. 1952, og
Finnur Þór Friðriksson, f.
1951.
Steina M. Lazar
Finnsdóttir
40 ára Páll Axel býr í
Grindavík, starfar hjá
ISAVIA og er þekkt körfu-
boltakempa.
Maki: Margrét Birna
Valdimarsdóttir, f. 1985,
við farþegaþjónustu IGS.
Börn: Gísli Matthías Eyj-
ólfsson, f. 2007 (stjúp-
sonur), Ásdís Vala Páls-
dóttir, f. 2012, og Páll
Valdimar Pálsson, f. 2014.
Foreldrar: Margrét Páls-
dóttir, f. 1954, og Vilberg
M. Ármannsson, f. 1952.
Páll Axel
Vilbergsson
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL
AF UMGJÖRÐUM
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu