Morgunblaðið - 04.01.2018, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég hef verið svo heppin að fá reglu-
lega tækifæri til að troða upp með
þessu stórkostlega bandi,“ segir
Kristjana Stefánsdóttir sem syngur
með Stórsveit Reykjavíkur á tón-
leikum í Eldborg Hörpu á sunnudag
kl. 20. Þetta verður í fimmta sinn
sem sveitin heldur stórtónleika
helgaða gullöld sveiflunnar, sem
ríkti 1930-50. Leikin verða mörg af
þekktustu lögum merkustu stór-
sveita sveiflustílsins, s.s. Benny
Goodman, Artie Shaw, Glenn Miller,
Duke Ellington og Count Basie.
Gestasöngvarar eru auk Kristjönu
þau Ragnheiður Gröndal, Friðrik
Dór og Högni Egilsson. Stjórnandi
og kynnir er Sigurður Flosason.
„Þetta er þvílíkur stjörnufloti og
ég er mjög spennt að heyra strák-
ana syngja með bandinu, enda aldrei
áður heyrt þá syngja stórsveitar-
tónlist. Ég kynntist Frikka í gegn-
um Kóra Íslands og hann er ferlega
skemmtilegur og mikill fagmaður.“
Grallarastemning ríkir
Að sögn Kristjönu hittist í ár
þannig á að öll lögin sem hún syngur
á tónleikunum eru lög sem Ella
Fitzgerald gerði fræg. „Það er alltaf
mjög gaman að læra nýjar útsetn-
ingar, en öll lögin eru flutt í upp-
runalegum útsetningum og tónteg-
und,“ segir Kristjana sem áður
hefur sungið á tvennum tónleikum
Stórsveitarinnar til heiðurs Fitzger-
ald. Lögin sem Kristjana syngur á
sunnudag eru „Let’s Face the Music
and Dance“ og „Time after Time“
sem að sögn Kristjönu eiga það
sameiginlegt að fjalla um það sem
skiptir máli í lífinu sem er listin og
ástin.
„Auk þess syng ég „Caravan“ í
mjög flottri útsetningu þar sem
brassið er dökkt, mikið er af flottum
stefbrotum og arabískum söng-
skölum og krómatík. Loks syngjum
við Ragga dúettinn „Mr. Paganini“
sem við fluttum á sérstökum afmæl-
istónleikum Stórsveitarinnar til
heiðurs Ellu í fyrra. Dúettinn er svo
skemmtilegur að við ákváðum að
syngja hann aftur. Við Ragga höfum
unnið töluvert mikið saman og dett-
um alltaf inn í einhverja fallega
orku. Það er svo einfalt og skemmti-
legt að impróvísera með henni,“ seg-
ir Kristjana og tekur fram að dúett-
inn bjóði upp á mikla grallara-
stemningu og byggist að stórum
hluta á „scat“-sólóum þar sem merk-
ingarlaus orð og atkvæði eru fléttuð
inn í laglínuna.
Æfingin skapar meistarann
„Þetta er eina lagið sem býður
upp á slíkan snarspuna og því ekki
verra að það sé með Röggu. Það er
alltaf skemmtilegra þegar tveir eru
að spinna saman. Við ákváðum að
vitna í spunanum í frasa sem fylgdu
Ellu alla tíð í bland við okkar frasa,“
segir Kristjana og segir það algeng-
an misskilning að auðveldlega sé
hægt að spinna eða flytja lög án
mikils undirbúnings. „Ég skoða vel
hljómagrind laganna til að vita
hvaða nótur ég geti valið í spunann.
Því betur sem maður þekkir lagið
því auðveldara er að spinna. Margir
halda að maður stökkvi beint upp á
svið og taki lagið. Ef við erum með
eitthvað tilbúið er vissulega hægt að
stökkva upp á svið með nær engum
fyrirvara, en þegar maður er að
flytja lög sem maður hefur aldrei
sungið áður þarf maður að leggjast
yfir þau og æfa þau þannig að það
virki eins og maður sé bara að
stökkva fyrirvaralaust upp á svið.
Það er í raun galdurinn. Því meira
sem maður æfir sig því betri verður
útkoman. Fyrir svona verkefni sest
ég við hljóðfærið á hverjum degi.“
Bjartur raddblær lykillinn
Kristjana segir alltaf gaman að
syngja með Stórsveitinni. „Við
Ragga vorum einmitt að ræða þetta
á æfingunni í gær [þriðjudag]
hversu mikil orka er í svona bandi.
Það þýðir að við þurfum nánast að
skrúfa upp í tónleikaorkuna strax
frá fyrstu æfingu og orkustigið þarf
að vera mörgum prósentustigum
hærra en venjulega með svona
bandi. Þetta getur verið pínulítið
ógnvekjandi fyrir tónlistarflytj-
endur sem eru ekki vanir því að vera
hluti af svona mikilli orku. En mað-
ur þarf bara að vera óhræddur að
gíra sig upp.“
Aðspurð segir Kristjana enda-
laust hægt að leita í brunn Ellu Fitz-
gerald. „Þessi kona var algjörlega
mögnuð og gaf út rosalegt magn af
plötum,“ segir Kristjana og tekur
fram að það hafi verið þrekvirki að
taka upp og gefa út allar plöturnar
tileinkaðar þekktum höfundum á
borð við Cole Porter, Rodgers &
Hart, Irving Berlin, George og Ira
Gershwin og Jerome Kern. „Bara
það var rosalegt magn fyrir utan all-
ar hinar plöturnar sem hún hljóðrit-
aði. Hún átti sér nánast ekkert líf
utan tónleikahaldsins,“ segir Krist-
jana og bendir á að Fitzgerald hafi
reglulega þurft að skipta um með-
leikara þegar þeir þreyttust á tón-
leikahaldinu meðan hún hélt ótrauð
áfram að túra. „Hún var alltaf á tón-
leikaferðalagi. Hún var hreint
náttúruundur,“ segir Kristjana.
Spurð hvort Fitzgerald hafi ekki
þurft að búa yfir góðri raddtækni til
að brenna ekki út svarar Kristjana
því játandi.
„Tæknilega séð var hún stór-
fengleg. Þórhildur Örvarsdóttir,
söngkona og -kennari, hjálpaði mér
að greina tækni hennar og benti mér
á hversu bjartur raddlitur hennar er
þótt hún syngi í raun frekar djúpt.
Ég held að það hafi verið galdurinn í
raddlegu úthaldi hennar, því hún
spennti nær aldrei röddina,“ segir
Kristjana og tekur fram að það sé
því ekki áhlaupaverk að syngja lögin
sem Fitzgerald gerði fræg í upp-
runalegri tóntegund. „Lögin liggja
miklu neðar en ég myndi sjálf velja
mér, en við þurfum að taka lögin í
upprunalegum tóntegundum enda
ekki hlaupið að því að tónflytja út-
setningarnar fyrir heila stórsveit,“
segir Kristjana og tekur fram að
þótt hún stúderi tækni Fitzgerald
þurfi hún á endanum alltaf að flytja
tónlistina á eigin forsendum og gera
hana að sinni. „Það væri leiðigjarnt
að herma bara eftir hennar stíl. Ég
er miklu fremur að votta henni virð-
ingu mína og túlka lögin eftir mínu
höfði.“ Þess má að lokum geta að
miðar eru seldir á vefnum harpa.is
og í miðasölu Hörpu.
„Mikil orka í svona bandi“
Stórsveit Reykjavíkur fagnar nýju ári með sveiflualdartónleikum í Eldborg á sunnudag kl. 20
Kristjana Stefánsdóttir syngur lög sem Ella Fitzgerald gerði fræg á sínum tíma og gerir að sínum
Sveifla Nýárstónleikar Stórsveitar Reykjavíkur eru helgaðir gullöld sveiflunnar frá 1930 til 1950.
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Glimmer Í tilefni tónleikanna segist
Kristjana klæðast glimmerkjól.
Danski tónlistarmaðurinn Kim Lar-
sen hefur aflýst öllum tónleikum
með hljómsveit sinni Kim Larsen &
Kjukken næstu þrjá mánuði í kjöl-
far þess að hann greindist með
blöðruhálskrabbamein skömmu fyr-
ir jól. Frá þessu er greint í öllum
helstu miðlum Danmerkur. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Jørn
Jeppesen, umboðsmanni tónlistar-
mannsins, er Larsen þegar byrj-
aður í lyfjameðferð og hefur því
ekki orku til tónleikahalds næstu
mánuði. Segir hann alla miða verða
endurgreidda.
Larsen, sem er 72 ára, biðst á
Facebook-síðu hljómsveitarinnar af-
sökunar á ónæðinu sem þetta valdi
tónleikagestum og skipuleggj-
endum. „Ég er að verða gamalt flón
og hef óviljugur neyðst til að horf-
ast í augu við að ég þarf auka tíma
til að koma mér í tónleikaform aft-
ur. En ég reikna örugglega með að
vera tilbúinn í sumar.“
Á vef Politiken kemur fram að
fyrstu tónleikarnir í tónleikaferð
Kim Larsen & Kjukken áttu að
vera 11. janúar í Amager Bio í
Kaupmannahöfn og þeir síðustu í
Greve 3. mars. Uppselt var á alla 24
tónleikana sem skipulagðir voru á
fyrstu mánuðum ársins. Sumar-
tónleikaröð sveitarinnar á sam-
kvæmt planinu að hefjast í júní.
Kim Larsen er einn þekktasti og
vinsælasti tónlistarmaður Dan-
merkur, bæði sem sólótónlist-
armaður og með hinum ýmsu
hljómsveitum. Hann vakti fyrst at-
hygli á sjöunda áratug síðustu aldar
með hljómsveitinni Gasolin, en hann
hefur leikið með Kim Larsen &
Kjukken síðan 1995. Sem sólisti hef-
ur hann selt yfir þrjár milljónir
platna, en fjöldinn fer yfir fimm
milljónir séu plötur sveita hans tald-
ar með. Seinasta plata hans, Øst for
Vesterled, sem út kom í apríl, hlaut
góðar viðtökur. Rýnir Jyllands-
Posten gaf plötunni fimm af sex
stjörnum og rýnir Information, sem
ekki gefur stjörnur, líkti plötunni
við góðar gamlar buxur, sem eru vel
slitnar en svo þægilegar að álit um-
heimsins hefur engin áhrif.
Morgunblaðið/Eggert
Safnar kröftum Kim Larsen á tón-
leikum hérlendis fyrir um áratug.
Kim Larsen aflýsir tónleik-
um vegna krabbameins
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
DUX PASCAL SYSTEM
Sérsniðna gormakaerfið
Líkamar allra eru einstakir.
Þess vegna býður Pascal de Luxe yfirdýnan upp á sérsniðin
þægindasvæði sem gerir tveimur einstaklingum kleift að velja fullkomnu
stillinguna fyrir axlirnar, neðra bakið og fótleggina þeirra.
Pascal kerfið er í boði fyrir öll DUX rúm, annað hvort
sem fellt inn í rúmið eða sem sérstök yfirdýna.