Morgunblaðið - 04.01.2018, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
Bretar slógu nýtt met í fyrra í niður-
hali á tónlist, streymdu 68,1 milljarði
laga yfir árið og er þá ekki átt við
titla heldur hversu mörg skiptin
voru í streymi. Jafngildir það því að
hver landsmaður hafi streymt yfir
þúsund lögum á árinu, að því er fram
kemur á vef breska ríkisútvarpsins,
BBC. Lögum Ed Sheeran var oftast
streymt og átti hann jafnframt fjög-
ur af tíu mest seldu lögum eða smá-
skífum ársins.
Í fréttinni kemur fram að streymi
sé nú orðið um 50,4% allrar tónlist-
arneyslu í Bretlandi en það var
36,4% í fyrra og hefur því aukist all-
hressilega. Mun nú fleiri lögum vera
streymt á einni viku í Bretlandi en á
fyrri helmingi ársins 2012.
Í fyrrnefndum tölum um fjölda
streymdra laga er streymi á You-
Tube ekki talið með og væri það gert
myndi talan hækka allhressilega,
eins og gefur að skilja, því margir
kjósa að hlusta á lög og horfa á
myndbönd við þau um leið. Segir í
frétt BBC að ef YouTube væri tekið
með í reikninginn myndi talan tvö-
faldast.
Í heildina voru tekjur af sölu á
tónlist um 1,2 milljarðar punda í
Bretlandi í fyrra og plötusala jókst
um 9,5%. Sala á vínylplötum jókst þó
hún hafi aðeins verið um 3% af heild-
arsölu á tónlist en sala á geisla-
diskum dróst saman, líkt og undan-
farin ár. Árið 2004 seldust 162,4
milljónir diska en aðeins 41,6 millj-
ónir í fyrra. Sala með stafrænu
niðurhali minnkaði einnig, 13,8 millj-
ónir eintaka af plötum seldust með
þeim hætti og er það 23% minna en
árið 2016. Á heildina litið jókst tón-
listarnotkun eða -neysla í Bretlandi
um 8,7% í fyrra og hefur ekki aukist
jafnmikið milli ára frá árinu 1998.
Met slegið í lagastreymi í Bretlandi
AFP
Vinsæll Ed Sheeran naut mikilla
vinsælda í Bretlandi í fyrra.
» Sérstök hátíðarsýning var hald-in í Háskólabíói í gærkvöldi á
kvikmynd Ásu Helgu Hjörleifs-
dóttur, Svaninum, sem byggð er á
samnefndri skáldsögu Guðbergs
Bergssonar. Í henni segir af níu
ára stúlku sem er send í sveit að
sumri til að vinna og þroskast en
verður þess í stað þátttakandi í at-
burðarás sem hún skilur varla
sjálf. Gríma Valsdóttir fer með
hlutverk stúlkunnar og aðrir
helstu leikarar eru Þorvaldur
Davíð Kristjánsson, Þuríður Blær
Jóhannsdóttir, Ingvar E. Sigurð-
arson og Katla Margrét Þorgeirs-
dóttir. Almennar sýningar hefjast
á kvikmyndinni á föstudaginn.
Hátíðarsýning haldin á Svaninum í Háskólabíói
Ánægðar Ása Helga Hjörleifsdóttir leikstjóri og Gríma Valsdóttir leikkona á hátíðarsýningunni.
Stoltir Guðni Þorbjörnsson og Guðbergur Bergsson.
Kát Brynjólfur Löve Mogensson og Kristín Pétursdóttir. Glöð Ingi Garðar og Rut Sigurðardóttir.
Morgunblaðið/Hanna
Atvinna
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fös 5/1 kl. 20:00 53. s Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Fös 23/2 kl. 20:00 aukas.
Lau 6/1 kl. 20:00 54. s Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Lau 24/2 kl. 20:00 aukas.
Sun 7/1 kl. 20:00 55. s Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 12/1 kl. 20:00 56. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Lau 3/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Sun 4/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Lau 10/3 kl. 20:00 aukas.
Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s
Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s
Síðustu sýningar leikársins!
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Fim 11/1 kl. 20:00 Frums. Þri 16/1 kl. 20:00 4. s Sun 21/1 kl. 20:00 7. s
Lau 13/1 kl. 20:00 2. s Mið 17/1 kl. 20:00 5. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s
Sun 14/1 kl. 20:00 3. s Fim 18/1 kl. 20:00 6. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s
Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar.
Medea (Nýja sviðið)
Lau 13/1 kl. 20:00 Frum Þri 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 18/1 kl. 20:00 5. s
Sun 14/1 kl. 20:00 2. s Mið 17/1 kl. 20:00 4. s Mið 24/1 kl. 20:00 6. s
Ástir, svik og hefndarþorsti.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 5/1 kl. 20:00 aukas. Fös 12/1 kl. 20:00 aukas. Fim 18/1 kl. 20:00 aukas.
Lau 6/1 kl. 20:00 aukas. Lau 13/1 kl. 20:00 aukas. Fös 19/1 kl. 20:00 aukas.
Draumur um eilífa ást
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 7/1 kl. 13:00 aukas. Sun 21/1 kl. 13:00 aukas.
Sun 14/1 kl. 13:00 aukas. Sun 28/1 kl. 13:00 aukas.
Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Lau 6/1 kl. 13:00 Frums. Lau 13/1 kl. 13:00 3. s Lau 20/1 kl. 13:00 5. s
Sun 7/1 kl. 13:00 2. s Sun 14/1 kl. 13:00 4. s Sun 21/1 kl. 13:00 6. s
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 7/1 kl. 13:00 Sun 21/1 kl. 13:00 Sun 4/2 kl. 13:00
Lau 13/1 kl. 13:00 Sun 28/1 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Faðirinn (Kassinn)
Lau 6/1 kl. 19:30 Auka Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn
Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka
Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Hafið (Stóra sviðið)
Fim 4/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 14/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 26/1 kl. 19:30 10.sýn
Fös 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn
Lau 13/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn
Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Lau 6/1 kl. 19:30 15.sýn Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn
Fös 12/1 kl. 19:30 16.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 4/1 kl. 20:00 Lau 13/1 kl. 20:00 Fim 25/1 kl. 20:00
Fös 5/1 kl. 20:00 Lau 13/1 kl. 22:30 Fös 26/1 kl. 20:00
Fös 5/1 kl. 22:30 Sun 14/1 kl. 20:00 Fös 26/1 kl. 22:30
Lau 6/1 kl. 20:00 Fös 19/1 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 20:00
Lau 6/1 kl. 22:30 Fös 19/1 kl. 22:30 Lau 27/1 kl. 22:30
Fim 11/1 kl. 20:00 Lau 20/1 kl. 20:00 Fim 1/2 kl. 20:00
Fös 12/1 kl. 20:00 Lau 20/1 kl. 22:30
Fös 12/1 kl. 22:30 Sun 21/1 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Efi (Kassinn)
Lau 13/1 kl. 19:30 Frum Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn
Sun 14/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka
Mið 17/1 kl. 19:30 Auka Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn
Fim 18/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn
Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 Auka
Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 7/1 kl. 15:00 Frums Lau 20/1 kl. 15:00 3.sýn
Sun 14/1 kl. 15:00 2.sýn Lau 27/1 kl. 15:00 4.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00
Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!