Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
Þessi litla og laglega bók er,eins og felst í titlinumDvalið við dauðalindir,helguð einu viðfangsefni:
dauðans óvissa
tíma og að segja
má þeirri fró sem
í dauðanum felst.
Í kverinu eru 25
kvæði, það er
hálfgildings bálk-
ur um ævilokin,
og tónninn er
sleginn í því
fyrsta:
Spor mín liggja til dauðans
og þrá mín
þekkist við hann.
Lífið hverfist
í laufvana greinar
og nákaldan næturblæ.
Bókin kom út í fyrravor og hefur
sýnilega ratað til sinna því eintak
rýnis er úr annarri prentun og er
ánægjulegt að sjá að ljóðabækur
þurfi að endurprenta. Eins og hér
má sjá gengst ljóðmælandinn við
þeirri staðreynd að sporin liggi til
dauðans og sá tónn ríkir í verkinu að
ljóðmælandinn fagnar þeirri vissu,
eins og hér að ofan þar sem þrá hans
þekkist við dauðann.
Og myndheimur ljóðanna snýst
allur um sölnandi gróður, myrkur og
kulda og er smekklega undir-
byggður alls kyns vísunum í kveð-
skap sem skáldið gjörþekkir og fer
vel með. Eins og hér þar sem í lýs-
ingarorði lokalínunnar er vísað til
kvæðis Hannesar Sigfússonar í
Dymbilvöku, „Þófamjúk rándýr“:
Hógvær en styrkur
bíður dauðinn við dyrnar.
Tjaldar með hægð
í haustkyrrðinni.
Nálgast
í þófamjúkri þögn.
Ljóðin kallast bæði í formi og ljóð-
máli á við heim atómskáldanna og
annarra skálda sem komu fram um
og upp úr miðri síðustu öld og eru
tengingarnar undirbyggðar með
slíkum vísunum. Eitt einkennið á ög-
uðum skáldskap Valdimars er mark-
viss notkun samsettra orða, þegar
hann dregur upp kyrrar og hóf-
stilltar myndir í þessum ljóðum um
dauðann; þögnin er þófamjúk, lilja
sem berst til hafs er sögð blaðfögur,
kvíðanum er boðin kvöldró, hugur er
sagður haustmyrkvaður, friður er
blæmildur og sæla bölþrungin.
Þá er unnið markvisst með litaorð,
svo minnir á myndmál Matthíasar
Johannessen, eins og sjá má í þrem-
ur dæmum hvar skáldið málar með
bláa litnum: í einu kvæðinu er heim-
urinn töfrablár, í öðru er kyrrlát
þögn sögð bládjúp og í því þriðja er
myrkrið blákynjað.
Það er athyglisvert að sjá hve
sáttur ljóðmælandinn er, á frið-
saman og fallegan hátt, við vitneskj-
una um dauðann. Og hvað mynd-
irnar og umfjöllunin um það sem
bíður tengjast vel, innan ljóða og
jafnframt milli þeirra. Í sumum er
vísað til sársauka, bæði einstaklings
og heims, sem dauðinn einn er sagð-
ur geta sefað, og hann geti jafnframt
verið „Lausnin / sem lífið hafnar“, í
þessari ljóðrænu og upphöfnu feg-
urð:
Í kyrrum hyl
kristallast dauðinn.
Tímalaus
tifa dauðinn og þögnin.
Tjalda
yfir töfrabláan heiminn.
Morgunblaðið/Hari
Skáldið Í ljóðunum í bók sinni Dvalið við dauðalindir yrkir Valdimar
Tómasson um dauðann með athyglisverðum og oft fögrum hætti.
Tímalaus tifa
dauðinn og þögnin
Ljóð
Dvalið við dauðalindir bbbbn
Eftir Valdimar Tómasson.
JPV útgáfa, 2017. Mjúk kápa, 31 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Sjálfstæður bandarískur menningarsjóður, The
Foundation for Contemporary Arts, sem lista-
mennirnir John Cage og Jasper Johns stofnuðu á
sjöunda áratug síðustu aldar til að styðja við sköp-
un annarra listamanna, veitti í vikunni þremur
bandarískum tilraunakenndum ljóðskáldum
styrki að andvirði 40 þúsund dollara hverju, rúm-
lega fjórar milljónir króna.
Hver styrkur var gefinn af ákveðnum lista-
manni, eða sjóði sem fer með dánarbú listamann-
anna, Ellsworth Kelly og sambýlismanni hans
Jack Shear, og dánarbúum Cy Twombly og Roy
Lichtenstein.
Einn styrkinn hlaut kanadíska skáldið Lisa Robertson en hún hefur verið
búsett í Frakklandi í á annan áratug. Annan hlaut Anne Boyer, skáld sem
býr og starfar í Missouri og hefur skrifar á opinskáan hátt um kyn og kyn-
ferði, stéttaskiptingu og sjúkdóma, og þann þriðja hlaut ljóðskáldið og
gagnrýnandinn Fred Moten sem starfar í New York. Hann hefur skrifað
mikið um menningu blökkumanna og ýmiskonar félagslegar hreyfingar.
Þekktir listamenn styrkja minna þekkta
Styrkur Dánarbú Roy Licht-
enstein veitti einn styrk, að
upphæð um 4 milljónir kr.
Undir trénu 12
Atli flytur inn á foreldra sína
sem eiga í deilu við fólkið í
næsta húsi. Stórt og fagurt
tré sem stendur í garði for-
eldranna skyggir á garð ná-
grannanna, sem eru þreyttir
á að fá ekki sól á pallinn.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 6,9/10
Bíó Paradís 20.00
The Party
Janet heldur veislu til að
fagna stöðuhækkun en ekki
fer allt eins og hún bjóst við.
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 73/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 23.00
The Killing of a
Sacred Deer
Metacritic 73/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 22.00
Eldfim ást 16
Kappaksturskona og glæpa-
maður verða ástfangin þrátt
fyrir ólíkan uppruna. Það
reynir á trygglyndi beggja
þegar glæpalífernið súrnar.
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 17.30, 20.00
Pitch Perfect 3 12
Enn og aftur snúa Bellurnar
söngelsku til baka. Eftir að
þær unnu heimsmeistara-
mótið sundrast hópurinn og
þær komast brátt að því að
það er ekki auðvelt að fá
vinnu sem tónlistamaður. En
Bellurnar fá annað tækifæri
til að koma fram sem söng-
hópur og búa til geggjaða
tónlist.
Metacritic 40/100
IMDb 6,2/10
Laugarásbíó 17.45, 20.00,
22.00
Smárabíó 15.20, 18.20,
20.10, 20.40, 22.30, 22.50
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 18.00,
22.30
Daddy’s Home 2 12
Þeir Dusty og Brad taka
höndum saman um að halda
hin fullkomnu jól fyrir
börnin.
Metacritic 30/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20
Justice League 12
Batman safnar liði af ofur-
hetjum; Wonder Woman,
Aquaman, Cyborg og The
Flash, til að sigrast á að-
steðjandi ógn.
Metacritic 49/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
The Greatest
Showman 12
Söngleikur sem segir ótrú-
lega sögu sýningastjórnand-
ans P.T. Barnum.
Metacritic 48/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00
Smárabíó 17.00, 17.40,
19.30, 20.00, 22.20
Háskólabíó 18.00, 20.50
Borgarbíó Akureyri 17.20,
20.00
Wonder
Saga um ungan dreng með
afmyndað andlit, sem tekst
að fá fólk til að skilja að feg-
urð er ekki á yfirborðinu.
Metacritic 68/100
IMDb 8,1/10
Laugarásbíó 20.00
A Bad Mom’s
Christmas 12
Metacritic 42/100
IMDb 5,7/10
Háskólabíó 20.50
Thor: Ragnarok 12
Thor er í kapphlaupi við tím-
ann til að komast aftur heim
til Ásgarðs til að stöðva
heimsendi.
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 72/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Ferdinand Ferdinand er risastórt naut
með stórt hjarta. Hann er
tekinn í misgripum fyrir
hættulegt óargadýr, og er
fangaður og fluttur frá heim-
ili og fjölskyldu. Hann er
ákveðinn í að snúa aftur
heim til fjölskyldunnar, og
safnar saman mislitri hjörð
aðstoðarmanna.
Laugarásbíó 17.45
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.20, 17.40
Smárabíó 15.10, 15.40,
17.10
Háskólabíó 18.00, 18.30
Borgarbíó Akureyri 13.00,
15.10
Coco Röð atburða, sem tengjast
aldagamalli ráðgátu, fer af
stað. Það leiðir til óvenju-
legra fjölskylduendurfunda.
Metacritic 80/100
IMDb 8,9/10
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.20, 17.40
Sambíóin Kringlunni 18.00
Sambíóin Akureyri 17.40
The Lego Ninjago
Movie Sambíóin Álfabakka 13.00
Myndin byrjar þar sem sú síðasta endaði. Rey
heldur áfram ferðalagi sínu með Finn, Poe og
Luke Skywalker.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 85/100
IMDb 8,4/10
Laugarásbíó 22.25
Sambíóin Álfabakka 14.00, 15.40, 17.10, 18.50, 20.20,
22.00
Sambíóin Egilshöll 16.20, 17.40, 19.30, 21.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 18.00, 20.20, 21.10
Sambíóin Akureyri 19.00, 22.10
Sambíóin Keflavík 19.30, 22.20
Star Wars VIII - The Last Jedi 12
Jumanji: Welcome to the Jungle 12
Fjögur ungmenni finna gamlan tölvuleik en komast fljótt
að því að þetta er enginn venju-
legur leikur.
Metacritic 58/100
IMDb 7,0/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00,
22.30
Smárabíó 17.30, 20.00, 22.00,
22.40
Háskólabíó 18.10, 21.00
Borgarbíó Akureyri 13.20,
15.40, 20.00, 22.20
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
The Disaster Artist 12
Mynd sem skyggnist bak við tjöldin þegar verið var að gera
myndina The Room, sem hefur fengið stimpilinn versta kvik-
mynd allra tíma.
Metacritic 76/100
IMDb 8,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 22.20
Sambíóin Kringlunni 18.00,
20.20, 22.40
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.40
Bíó Paradís 18.00, 22.30
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna