Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
Lestrarátak Ævars vísindamanns
hófst á nýársdag í fjórða sinn og
verður sú nýlunda tekin upp í ár að
börn í unglingadeild geta líka tekið
þátt í átakinu. Nemendur í öllum
bekkjum grunnskóla geta því tekið
þátt, frá fyrsta upp í tíunda bekk.
Síðustu þrjú ár hafa samanlagt
verið lesnar rúmlega 177 þúsund
bækur í átakinu, að því er fram
kemur í tilkynningu og fyrir hverj-
ar þrjár bækur sem þátttakendur
lesa fylla þeir út miða sem má
finna á næsta skólabókasafni og
skilja eftir þar.
Átakinu lýkur 1. mars og verða
þá allir miðarnir sendir til Ævars
og hann mun draga af handahófi
fimm miða úr lestrarátakspottin-
um. Lestrarhestarnir fimm verða
gerðir að persónum í ævintýralegri
ofurhetjubók eftir Ævar sem kem-
ur út í vor og verður sú fjórða í
syrpunni Bernskubrek Ævars vís-
indamanns. Athygli er vakin á því í
tilkynningu að börn í útlöndum
geta líka tekið þátt því hægt er að
nálgast lestrarmiðana og prenta þá
út í gegnum www.visindamadur.is.
Unglingar geta nú líka tekið þátt
Ofurhetja Ævar á einu veggspjaldanna
sem gerð voru fyrir lestrarátakið í ár.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Leikkonan Auður Finnbogadóttir
landaði hlutverki í bandarískri
þáttaröð, The Let Down, sem sýn-
ingar hófust á 13. desember síðast-
liðinn í bandarísku streymisveitunni
Veteran TV sem er með tugþúsundir
áskrifenda. Auður á nú í viðræðum
við fyrirtækið um fastráðningu fyrir
næstu þáttaröð og í febrúar mun
hún taka að sér hlutverk í þremur
öðrum verkefnum. Auk þess hefur
Auður nú leikstýrt sinni fyrstu stutt-
mynd, Retail.
Besta leikkona árgangsins
Auður nam leiklist í tvö ár við The
American Academy of Dramatic
Arts í Los Angeles og segir hún
skólann leggja áheyrslu á bæði leik-
húss- og kvikmyndaleik.
„Þegar ég var að leita mér að leik-
listarskóla stefndi ég fyrst á London
en komst svo inn í þrjá skóla og gat
valið á milli skóla í London, New
York og LA. Ég hafði aldrei komið
til LA og fannst það hljóma eins og
fjarlægur draumur að fara í nám
þangað, enda hafa margir frábærir
leikarar útskrifast þaðan. Meðal
þeirra eru Anne Hathaway, Jessica
Chastain, Paul Rudd og Danny De-
vito. Ég tók því sénsinn á að LA
væri eitthvað fyrir mig og dustaði
rykið af stuttbuxunum mínum og
hélt af stað út í hinn stóra heim,“
segir Auður. „Ég eyddi mestum
tíma mínum á þessum árum í að
læra úti í sólinni, þegar ég var ekki
inni í skólastofunni og útskrifaðist
að lokum með heiðursverðlaun í bak-
pokanum, var valin besta leikkona
árgangsins.“
Léttir lund þjáðra hermanna
VeteranTV stofnuðu fyrrverandi
hermenn sem þjáðst hafa af áfalla-
streituröskun og þunglyndi í langan
tíma eftir að hafa verið í stríði, að
sögn Auðar. „Það var ekki margt
sem dró fram bros hjá þeim og lítið
gert til að hjálpa þeim að komast
upp úr þunglyndinu. Þeir eru flestir
með mjög dökkan og umdeildan
húmor og vildi fyrirtækið því búa til
sjónvarpsefni sem fær milljónir her-
manna sem þjást á sama hátt til að
hlæja,“ segir hún.
„Ég hló svo mikið meðan á tökum
stóð að ég var með harðsperrur í
kinnunum í marga daga eftir tökur.
Svo var ég sjálf í svolitlu sjokki þeg-
ar ég sá hvað þættirnir voru grófir
þegar þeir komu út en eftir að hafa
kynnst öllu fólkinu hjá fyrirtækinu
og heyrt sögur af því sem hermenn-
irnir gengu í gegnum finnst mér
ekki skrítið hvað húmorinn þeirra er
dökkur. Ég hef samt sem áður mjög
gaman af þáttunum enda hefur verið
yndislegt að vinna með því fólki sem
er á bak við þá,“ bætir Auður við.
Allir klikkaðir
– Um hvað fjalla þessir þættir?
„Þættirnir The Let Down fjalla
um tvo fyrrverandi hermenn sem
vinna á sjálfstætt starfandi sjón-
varpsstöð og skapa einungis vand-
ræði þegar þeir reyna að búa til
væmna heimildarmynd um aðra
fyrrverandi hermenn. Karakterinn
minn, Tammie, býður strákunum í
heimsókn til að taka viðtal við eig-
inmann hennar sem er fyrrverandi
hermaður. Hjónabandið er ekki í
besta standi og Tammie er ótrú eig-
inmanni sínum og svo komumst við
að því hvað allir eru klikkaðir á
heimilinu í raun og veru.
Vonandi fær karakterinn Tammie
að koma fram í annarri seríu af The
Let Down en ég á í samnings-
viðræðum við fyrirtækið um stærra
hlutverk í glænýrri seríu og tökur á
henni byrja í janúar,“ segir Auður.
Miklar breytingar
– Þú varst að leikstýra þinni
fyrstu stuttmynd, segðu mér aðeins
frá henni.
„Mig hefur lengi langað að prófa
að leikstýra og varð sá draumur
loksins að veruleika þegar ég leik-
stýrði minni fyrstu stuttmynd um
miðjan desember. Stuttmyndin ber
nafnið Retail og er einnig dökk kó-
medía. Hún fjallar um atvinnulausan
unglingsstrák sem býður dópsala
bróður síns í leynilega heimsókn í
von um að læra hvernig á að selja
dóp.
Myndin á vonandi eftir að opna
fleiri dyr fyrir mig sem leikstjóra.
Hollywood er loksins að ganga í
gegnum miklar breytingar eftir allt
sem er komið upp á yfirborðið í kvik-
myndabransanum og vonandi lærir
fólk eitthvað af þessu og fer að virða
hvað annað af alvöru.“
Þrjú spennandi verkefni
Eins og fram hefur komið mun
Auður taka að sér hlutverk í þremur
ólíkum verkefnum í byrjun árs og
segist hún afar spennt fyrir næstu
mánuðum. „Ég er komin með aðal-
hlutverk í þremur öðrum verk-
efnum. Ég er að leika rannsókn-
arkonu í leit að nornum í ævintýra-
þáttaröð sem heitir WitchHaven PI.
Það er framleitt af Validus Product-
ions sem framleiðir YouTube-
seríuna Life As a Mermaid. Svo leik
ég samkynhneigða stelpu sem missir
ástina sína í bílslysi í stuttmynd sem
byggð er á sannri sögu.
Einnig mun ég leika í dramatískri
stuttmynd um misheppnaða leik-
konu sem er alveg að gefast upp á
draumum sínum í Hollywood. Hlut-
verkið var upprunalega skrifað fyrir
strák en leikstjórinn sagði mér að
mæta í prufuna í gamni. Ég átti
mjög erfiðan dag og mér tókst ein-
hvern veginn að hella kaffi yfir mig
alla og þurfti að halda aftur af tár-
unum þegar ég mætti í prufuna. Það
mætti segja að ég hafi komið í kar-
akter og nældi mér þannig í hlut-
verkið,“ segir Auður kímin.
Tammie Auður Finnbogadóttir í hlutverki Tammie í einum þátta syrpunnar The Let Down.
Freistar gæfunnar
Auður Finnbogadóttir leikur í þáttaröðinni The Let Down
Hlaut heiðursverðlaun við útskrift úr leiklistarnámi í LA
Í LA Auður nam leiklist í LA og hef-
ur landað nokkrum hlutverkum.
ICQC 2018-20
Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is
Hörku herslulyklar frá
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 5.45, 8, 10
Sýnd kl. 5.45 Sýnd kl. 10.25 Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 5.30, 8, 10.30