Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 36
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 4. DAGUR ÁRSINS 2018  Forsvarsmenn menningardeildar BBC hafa valið nýjan geisladisk Sin- fóníuhljómsveitar Íslands, Re- currence, einn af bestu diskum nýlið- ins árs. Á diskinum, sem Sono Luminus gaf út, hljóma ný íslensk tónverk undir stjórn Daníels Bjarna- sonar, verk eftir Önnu Þorvalds- dóttur, Hlyn A. Vilmarsson, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Þuríði Jónsdóttur og Daníel sjálfan. Í umsögn um diskinn á vef BBC segir að Ísland sé í miðri „endurreisn á sviði klassískrar tónlistar“ og að diskurinn sýni hvílíku hæfileikafólki eyþjóðin geti státað af. Þá var diskurinn efstur á blaði yfir bestu diska ársins í áramótauppgjöri Naxos Music Library. Diskur SÍ með nýjum verkum einn sá besti  Jón Thor Gíslason myndlistar- maður opnar sýningu á nýjum verk- um í SÍM salnum, Hafnarstræti 16, í dag kl. 17. Sýninguna kallar hann „Dulhvíta fjarlægð“. Jón Thor lauk námi við Listaakademíið í Stuttgart árið 1994 og hefur síðan þá búið og starfað í Þýskalandi, þar af síðast- liðin 20 ár í Düsseldorf. Jón Thor hef- ur getið sér gott orð fyrir expressjón- ísk málverk sín og hefur verið iðinn við sýningarhald þar ytra. Langt er þó liðið frá síðustu einkasýningu hans hér á landi en hún var í Hafnarborg fyrir 15 árum. Sýningin er opin virka daga frá kl. 10 til 16. Dulhvít fjarlægð málverka Jóns Thors Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Mig hafði alltaf langað til að rækta hreindýr þannig að ég ákvað að láta verða af því og flutti til Græn- lands,“ segir Stefán Magnússon, ís- lenskur hreindýrabóndi, sem rekið hefur hreindýraræktunarstöðina Is- ortuusua Reindeer Station á Suður- Grænlandi undanfarna þrjá áratugi. Á búgarðinum sem er um 1.500 fer- kílómetrar að stærð starfa að stað- aldri sex manns yfir sumarið en hópurinn stækkar þegar sláturtíðin hefst að hausti til og er starfs- mannafjöldinn þá í kringum 15 manns, þar með talin börn Stefáns, Freyja Nielsen og Manitsiaq John. Stefán segir að starfsemi á bú- garðinum fari að mestu leyti fram á sumrin, en sjálfur er hann þó bú- settur á búgarðinum stærstan hluta ársins. „Ég bý á Grænlandi í um átta mánuði ársins, en ég kem þangað yfirleitt í lok febrúar og fer svo aftur um miðjan október. Börn- in mín koma síðan og aðstoða mig á sumrin þegar nálgast fer slátrun enda erum við að slátra um 3-500 dýrum árlega,“ segir Stefán, en hver hreindýrsskrokkur er seldur á um 100 þúsund krónur til verslana á Grænlandi. Lítil tenging við umheiminn Þegar talið berst að Grænlandi og lífsskil- yrðum þar segir Stefán það hafa verið talsverð viðbrigði að setjast að á Grænlandi. „Ég flutti til Grænlands eftir fjögurra ára nám í Noregi en þá hafði ég áður dvalið þar yfir sumartímann. Helsti mun- urinn á því að búa á Íslandi og á Grænlandi er tengingin við umheiminn, en hún er af- ar léleg frá búgarðinum okk- ar sem er í um 150 km fjar- lægð frá flugvellinum í Narsarsuaq. Þá er afskaplega dýrt að komast til og frá landinu,“ segir Stefán sem kann þó afar vel við sig á Græn- landi. Rekur búgarð á Grænlandi  Hefur ræktað hreindýr undan- farna 3 áratugi Stefán Hér er Stefán ásamt dóttur sinni, Freyju Nielsen, en Freyja býr hjá honum á búgarðinum yfir sumarið. Stefán hefur á undanförnum árum komið með tillögur að hreindýrarækt hér- lendis sem hluta af auk- inni nýsköpun í landbún- aði. „Þegar ég skoða hrein- dýrakjöt í frystikistum á Íslandi get ég ekki annað en hlegið að verðinu. Stjórnmálamenn eru alltaf að tala um að það þurfi aukna ný- sköpun í landbúnaði, gæti t.d. ekki verið ágætis ráð að leyfa hreindýrarækt á Íslandi?“ segir Stefán sem kveðst hafa tal- að fyrir daufum eyrum stjórn- málamanna í gegnum tíðina. „Þeir tala mikið um nýsköpun í aðdraganda kosninga en enginn virðist tala um hverskyns nýsköp- un það á að vera. Ef stjórn- málamenn myndu skoða málið betur myndu þeir sjá að Ísland er tilvalið til hreindýraræktar,“ segir Stefán. Skilningsleysi hérlendis TILVALIÐ AÐ STUNDA HREINDÝRARÆKT Á ÍSLANDI Nuuk Narsarsuaq Isertoq Reykjavík GRÆNLAND Isertoq VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Banaslys á Vesturlandsvegi 2. Mjög alvarlegt umferðarslys 3. Milljónir tölva mögulega í hættu 4. Óörugg í kjölfar aðgerðaleysis »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Á föstudag Norðaustan og austan 3-10 m/s og skýjað með köfl- um en stöku él við N- og A-ströndina, jafnvel einnig á V-landi um kvöldið. Frost 2 til 12 stig, mest í innsveitum fyrir norðan. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, víða 5-13 m/s en 18-23 syðst á landinu og við Öræfajökul. Bjart með köflum en dálítil él eystra. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum N-lands. VEÐUR Ísland vann stórsigur á Jap- an, 42:25, í eina vináttu- landsleiknum á heimavelli fyrir Evrópumótið í hand- knattleik karla sem hefst í Króatíu 12. janúar. Íslenska liðið fer á morgun til Þýska- lands og leikur þar tvo leiki. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 8 mörk í fyrri hálf- leik og hann varð í gærkvöld næstleikjahæsti landsliðs- maður Íslands frá upphafi. »1,4 Stórsigur og Guð- jón í annað sætið Svava Rós Guðmundsdóttir, knatt- spyrnukona úr Breiðabliki, er gengin til liðs við norska úrvalsdeildar- félagið Röa og hefur samið við það til eins árs. Þar með hafa fimm leikmenn Breiðabliks frá síð- asta tímabili gengið til liðs við erlend félög frá því í haust. »1 Svava til Röa og fimm farnar úr Breiðabliki Frá því að karlalið Keflavíkur í körfu- bolta varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 1989 hefur liðið aldrei þurft að bíða eins lengi og nú eftir stórum titli. Raunar er að verða kominn ára- tugur síðan Keflavík varð síðast Ís- landsmeistari, og liðið vann bikar- meistaratitilinn síðast árið 2012. Ítarlega er fjallað um lið Keflavíkur í opnu íþróttablaðsins. » 2-3 Lengsta bið Keflvíkinga eftir stórum titli ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.