Morgunblaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Arndís Jóhannsdóttir ásta créative clothes
Sunna Sigfríðardóttir
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ný-
sköpunarráðherra segir að hún vilji
sjá þak afnumið á endurgreiðslu
rannsóknar- og þróunarkostnaðar
hjá fyrirtækjum. „Stjórnarsáttmál-
inn styður það markmið. Það hefur
þó ekki verið tímasett enn þá og
kemur til skoð-
unar í vinnu við
næstu fjármála-
áætlun,“ segir
hún.
Spurð hvers
vegna þakið hafi
ekki verið af-
numið í síðustu
fjármálaáætlun
segir Þórdís Kol-
brún að ríkis-
stjórnin sem stóð að síðustu fjár-
málaáætlun hafi ekki sett þetta mál
á dagskrá. „Nú hefur ný ríkisstjórn
hins vegar sett þetta inn í stjórn-
arsáttmála sinn,“ segir hún.
Forsvarsmenn í atvinnulífinu
hafa kallað eftir því að þakið verði
afnumið vegna þess að fyrirkomu-
lagið nýtist ekki umsvifameiri
fyrirtækjum sem leggi stund á ný-
sköpun. Hámark endurgreiðslu er
300 milljónir króna. 20% af þeirri
fjárhæð sem varið er í rannsóknir
og þróun hjá fyrirtækjum eru end-
urgreidd upp að hámarkinu. Ásta
Sigríður Fjeldsted, framkvæmda-
stjóri Viðskiptaráðs, hefur bent á
það í Morgunblaðinu að í löndum á
borð við Bretland, Írland og Kan-
ada sé ekkert hámark.
Standa skil á hærri launum
Fram kom í Morgunblaðinu fyrir
viku að fyrirtæki, líka þau sem séu
að stíga sín fyrstu skref og hafi litl-
ar tekjur, verði að greiða starfs-
mönnum laun sem samrýmast þeim
taxta sem gengur og gerist í sam-
félaginu. „Margir frumkvöðlar
sætta sig við að greiða sér lág laun,
rétt til að framfleyta sér, á upp-
hafsstigum. Þeir eru hins vegar
skuldbundnir til að standa skil á
skattgreiðslum af hærri launum en
þeir greiða sér,“ sagði Gunnar Ósk-
arsson, lektor við viðskiptafræði-
deild Háskóla Íslands, sem nýlega
birti ritrýnda grein um reglugerð-
arumhverfi frumkvöðla á Íslandi.
Spurð hvort það komi til greina
að veita frumkvöðlum svigrúm í
þessum efnum segir Þórdís Kol-
brún að eðlilegt sé að þetta sé
skoðað. „Enda er það stefna þess-
arar ríkisstjórnar að vinna að því
að hér verði framúrskarandi um-
hverfi fyrir frumkvöðla og sprota-
fyrirtæki,“ segir hún.
Umhverfið hefur batnað
„Ég vek sérstaka athygli á að í
greininni er vitnað í norrænan
samanburð á lagaumhverfi frum-
kvöðla og þar fékk Ísland mun
betri einkunn en nokkurt hinna
norrænu landanna fyrir tekju-
skatta einstaklinga og fyrirtækja-
og eignarskatta. Vissulega eru
skattar almennt frekar háir á
Norðurlöndum en þetta var engu
að síður jákvæð niðurstaða. Frá því
að sá samanburður var gerður höf-
um við síðan bætt umhverfið enn
frekar, meðal annars með því að
innleiða undanþágur varðandi
skattgreiðslur erlendra sérfræð-
inga. Skortur á slíkum undanþág-
um var einmitt nefndur í greininni
sem einn stærsti gallinn við okkar
lagaumhverfi, en jafnframt tekið
fram að nýlega hefði verið bætt úr
því. Við höfum því verið á réttri
leið en ætlum okkur að gera enn
betur.“
Ráðherra fylgjandi afnámi
Morgunblaðið/Eggert
Fjármálaáætlun Afnám þaks á endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar kemur til skoðunar í vinnu við
næstu fjármálaáætlun. Stærri fyrirtæki segjast bera skarðan hlut frá borði vegna þaksins og vilja breytingar.
Nýsköpunarráðherra vill afnema þak á endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar fyrirtækja
Stærri fyrirtækjum svíður að þakið skuli vera til staðar Hámarkið er 300 milljónir króna í dag
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
„Stærsta verkefnið framundan
er að setja nýsköpunarstefnu
fyrir Ísland, eins og kveðið er á
um í stjórnarsáttmálanum, og
við erum byrjuð að ræða hver
ramminn geti verið utan um þá
vinnu,“ segir Þórdís Kolbrún.
„Það eru mörg önnur verk-
efni í deiglunni. Það stendur
yfir merkilegt samvinnuverk-
efni með MIT-háskóla um ný-
sköpunarumhverfið hér á
landi.
Við erum líka að endurskoða
umgjörðina um Nýsköp-
unarsjóð atvinnulífsins með
tilliti til stöðu sjóðsins og
reynslunnar af honum.“
Setja nýsköp-
unarstefnu
STÆRSTA VERKEFNIÐ
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Enginn hefur skilað inn framboði
vegna leiðtogaprófkjörs Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík sem fara á fram
27. janúar næstkomandi. Framboðs-
frestur rennur út á miðvikudaginn í
næstu viku.
Margir hafa verið nefndir sem
mögulegir frambjóðendur að undan-
förnu en aðeins borgarfulltrúarnir
Kjartan Magnússon og Áslaug Frið-
riksdóttir hafa staðfest að þau gefi
kost á sér.
„Ég er bara að fara að skila inn
framboði og undirskriftum. Ég
hlakka til baráttunnar,“ sagði Áslaug
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Kjartan sagðist sömuleiðis horfa
bjartsýnn til næstu vikna. „Ég
skynja á öllu því sjálfstæðisfólki sem
ég hef rætt við mikinn baráttuanda.
Fólk vill einhenda sér í baráttuna og
vinna borgina.“
Skiptar skoðanir hafa verið um þá
ákvörðun Varðar að halda leiðtoga-
prófkjör í borginni og að valnefnd
stilli upp í önnur sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar í vor. Fjölmargir utan
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis-
flokksins hafa þó verið orðaðir við
framboð síðustu daga en enginn hef-
ur tekið af skarið. Hefur ástandinu
verið líkt við störukeppni. Enn er
unnið að því á bak við tjöldin að fá
fólk í framboð. „Það er verið að pikka
í stórstjörnur,“ sagði einn viðmæl-
enda Morgunblaðsins.
Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrr-
verandi alþingismaður úr Suðurkjör-
dæmi og forseti Alþingis, sagðist að-
eins geta gefið sömu svör og hún
hefði gefið að undanförnu: „Nei, ég
hef ekki tekið ákvörðun um framboð
en ég er að hugsa málið.“
Annað nafn sem ítrekað hefur ver-
ið nefnt í tengslum við framboð er
nafn Eyþórs Arnalds fjárfestis.
Hann lét nýverið hafa eftir sér að
hann hefði mikinn áhuga á borgar-
málum. Í samtali við Morgunblaðið
sagðist Eyþór enn ekki hafa gert upp
hug sinn en viðurkenndi að margir
hafi komið að máli við hann vegna
prófkjörsins og hvatt hann til að láta
slag standa.
Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
stjóri hjá Isavia, sagðist ánægður og
þakklátur fyrir að sitt nafn hefði ver-
ið nefnt en hann hefði ekki tekið
ákvörðun um framboð. „Það er heið-
ur að fólk hafi haft samband við mig
vegna þessa og ég hef samþykkt að
hugsa málið,“ sagði hann í gær.
Ásdís Halla Bragadóttir, athafna-
kona og fyrrverandi bæjarstjóri í
Garðabæ, ætlar ekki að blanda sér í
slaginn, öfugt við sögusagnir. „Nei,
það ætla ég ekki að gera,“ sagði hún.
Hermann Guðmundsson, forstjóri
Kemi, sagði að vissulega hefði verið
rætt við hann um framboð en það
kæmi þó ekki til greina. „Ég er á
fullu að reka mitt fyrirtæki og sé ekki
fyrir mér að það breytist. Ég hef ekki
áhuga á því að bjóða mig fram.“
Leita enn að frambjóð-
endum í leiðtogaprófkjör
Enginn hefur skilað inn framboði hjá sjálfstæðismönnum
Morgunblaðið/Ómar
Ráðhús Reykjavíkur Enginn hefur enn skilað inn framboði fyrir leiðtoga-
prófkjör Sjálfstæðisflokksins. Enn er leitað álitlegra frambjóðenda.
Alls sótti 31 um embætti eins dóm-
ara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem
auglýst var laust til umsóknar 17.
nóvember. Miðað er við að skipað
verði í embættið frá og með 24. jan-
úar eða hið fyrsta eftir að dómnefnd
um hæfni umsækjenda hefur lokið
störfum.
Umsækjendurnir eru: Arnaldur
Hjartarson, Auður Björg Jónsdóttir,
Ásgeir Jónsson, Ásgerður Ragn-
arsdóttir, Bergþóra Ingólfsdóttir,
Bjarni Lárusson, Bjarnveig Eiríks-
dóttir, Brynjólfur Hjartarson, Daði
Kristjánsson, Guðfinnur Stefánsson,
Guðmundína Ragnarsdóttir, Guð-
mundur Örn Guðmundsson, Hákon
Þorsteinsson, Helgi Sigurðsson,
Hrannar Hafberg, Indriði Þorkels-
son, Ingiríður Lúðvíksdóttir, Jón
Þór Ólason, Jónas Jóhannsson,
Nanna Magnadóttir, Ólafur Freyr
Frímannsson, Pétur Dam Leifsson,
Ragnheiður E. Þorsteinsdóttir, Sig-
urður Jónsson, Sonja María Hreið-
arsdóttir, Sólveig Ingadóttir, Stef-
anía Guðrún Sæmundsdóttir, Stefán
Erlendsson, Valborg Steingríms-
dóttir, Þórhildur Líndal og Þórir
Örn Árnason.
31 lögfræðingur sótti um eitt laust emb-
ætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur