Morgunblaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 VINNINGASKRÁ 36. útdráttur 4. janúar 2018 709 10932 21503 29442 39000 48873 59881 71799 1086 11003 21701 30063 39251 49017 59935 71960 1704 12041 21875 30198 39716 49314 60194 72037 1705 12063 22213 30237 39757 49341 61429 72298 2005 12191 22275 30416 39817 49500 61458 72327 2078 12231 22317 30517 41197 49774 61614 72784 2156 12380 22545 30562 42349 50435 61647 72957 2319 12643 22676 30594 43195 51600 62831 72979 2398 13039 22931 30754 43331 51968 62850 73030 2560 13159 23048 30977 43347 52038 63564 73088 2895 13515 23213 31061 43578 52689 63742 73100 3070 13624 23239 31099 43786 52942 64161 73650 3306 14317 23322 31262 43942 53278 64387 73722 3460 14490 23368 31364 44170 53358 64471 73749 3570 14737 23512 31375 44198 53518 65013 73762 3718 14759 24071 31468 44283 54001 65061 74687 4266 15096 24437 32063 44341 55004 65228 75019 4300 15097 24598 32146 44421 55023 65404 75975 4327 15301 25134 32250 44458 55039 65856 76169 4385 15448 25245 32635 44731 55481 66447 76298 5206 15783 25629 34488 44784 56158 66786 76810 5254 15894 25870 35275 44890 56181 67327 76953 5661 16230 26015 35578 45182 56384 68429 77342 6067 16784 26040 35600 45196 56419 68643 77497 6306 17044 26114 35867 46544 56446 68771 77909 6485 17796 26367 36549 46615 56562 69475 78611 6567 18157 26405 36559 46868 56930 69477 78665 6761 18395 27254 36632 46968 57433 69599 79248 6785 18448 27736 36685 47004 57942 69739 79512 7683 18561 27883 37039 47234 58047 69820 79692 7734 19172 28145 37141 47338 58280 70364 79916 8004 20007 28261 37483 48359 58317 70522 8503 20054 28399 37523 48385 59079 70804 8910 20261 28434 37875 48599 59195 70913 9077 20633 28926 38199 48667 59427 71015 9612 20774 28949 38464 48817 59707 71539 10232 20785 29201 38521 48843 59716 71545 311 12179 24644 34652 43299 53397 62970 70904 776 12708 25350 35331 44538 54379 63540 71428 1971 13276 25355 36069 44575 54553 65072 71769 2622 13278 25972 36782 44952 54825 65184 72033 2640 15789 26791 37311 46633 54948 65273 72592 3778 16457 27642 37915 46793 55036 65494 72958 3865 16838 28437 38159 46866 55279 65647 76567 6094 17226 28503 38695 47616 57387 67744 76653 7482 18067 30329 38841 49092 58092 68573 76738 7682 18912 30726 38998 49728 59230 68990 7883 19370 32218 40315 49752 60312 70086 8147 20637 33169 40336 49771 61796 70336 8293 21870 34523 42553 50002 62241 70744 Næstu útdrættir fara fram 11., 18., 25. jan & 1. feb 2018 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 15216 49490 64584 65527 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 3877 12139 22208 30651 43254 69469 5369 12207 23024 30828 54714 70821 6073 15687 28428 33338 55006 76674 9125 22125 30481 38290 62838 78532 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 2 0 3 1 0 Atvinna Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Markaðsmál sauðfjárbænda verða í brennidepli á fundi sem haldinn verður í íþróttahúsinu á Hellu á morgun, 6. janúar. Lambakjöt er verðmæt vara er yfirskrift fund- arins sem Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjördæmi, stendur að en margir eru með í málinu, svo sem bændur í héraði, IKEA, Kjöt- kompaníið og Markaðsráð kindakjöts. „Við þurfum að nálg- ast málin af bjartsýni því ef rétt er á málum haldið eru mikil tækifæri í íslensk- um landbúnaði. En það má gera betur á markaðinum, samanber að nú koma tvær milljónir ferða- manna til landsins á ári en salan á lambakjötinu eykst ekki. Ein- hversstaðar eru ónýtt tækifæri,“ sagði Ásmundur í samtali við Morgunblaðið. Efla nýsköpun Vandi sauðfjárbænda komst í fréttirnar síðastliðið haust þegar sláturleyfishafar gáfu út að skerða þyrfti afurðaverð til bænda vegna mikilla óseldra birgða. Rétt fyrir áramót samþykkti Alþingi tillögu um að verja 665 milljónum króna til að koma til móts við sauð- fjárbændur, en stuðningur við hvern og einn byggist á ýmsum forsendum. Hluti af aðgerðunum felst síðan í nýsköpun og vöruþróun. Í því efni segir Ásmundur Friðriksson áhugavert að horfa til þess góða árangurs sem hafi náðst. Í verslun IKEA í Garðabæ seljist nú til dæmis lambaskankar og lokur með lambakjöti afar vel – og lambafita sé notuð tl þess að steikja kleinur sem seljist vel. Þá sé Jón Örn Stefánsson í Kjötkompaníinu í Hafnarfirði að gera góða hlut og selji kótelettur sem seldar eru á 5.990 kr. kílóið. Þeir Ásmundur og Jón Örn muni segja frá þessari markaðssetningu á Hellufund- inum, sem sé mjög áhugavert mál. Snertir alla bændur „Efni fundarins snertir alla bændur, ekki bara þá sem eru með sauðfé heldur líka þá sem eru með nauta- og svínakjöt, kartöflur og grænmeti. Suðurlandið er stærsta landbúnaðarsvæði landsins og hér eru mikilvæg mál til um- fjöllunar,“ segir Ásmundur um fundinn sem lýkur á því að öllum er boðið í veislu. Því þarf fólk að skrá sig fyrirfram á vefnum bbl.is en þegar hafa 300 manns stimplað sig inn. Þurfa að gera betur í markaðsmálum bænda  Fundað um lambakjöt á Hellu á laugardag  Boðið í veislu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sauðfé Vænt og fallegt fé rekið heim úr réttunum í sveitinni á Suðurlandi. Ásmundur Friðriksson Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Kvartanir frá félögum sjóstanga- veiðimanna vegna stjórnsýslu Fiski- stofu eru nú á borði umboðsmanns Al- þingis. Þá er fyrirhugaður fundur fulltrúa félaganna með sjávarút- vegsráðherra 24. janúar. Aðeins eitt sjóstangaveiðimót var haldið síðasta sumar, en þau eru venjulega á annan tuginn. Forystumenn Landssam- bands sjóstangaveiðifélaga segja erf- itt að sætta sig við vinnubrögð og óbil- girni Fiskistofu gagnvart íþróttafélögum, sem sum hafi starfað í meira en 60 ár. Meðal annars er deilt um uppgjörsgögn vegna fyrra móta- halds. Elín Snorradóttir, formaður Landssambands sjóstanga- veiðifélaga, (SJÓL), segir að í áratugi hafi sambandið átt gott samstarf við ráðuneytið um mótahald og hafi sjó- stangaveiðimenn fengið heimild til að veiða, á öllum mótum sumarsins sam- anlagt allt að 200 tonn af fiski. Þegar umsjón með mótahaldi hafi verið fært frá ráðuneytinu til Fiskistofu með reglugerð árið 2013 hafi staðan hins vegar breyst smám saman. Athugasemdir týndust Haustið 2016 óskaði Fiskistofa eftir breytingum á reglugerð um sjó- stangaveiði og lagði ráðuneytið fram tillögur að breytingum. SJÓl sendi ráðuneytinu ítarlegar athugasemdir og ábendingar, en ekki hafi tekist bet- ur til en svo að þær hafi týnst í póst- kerfi ráðuneytisins. Þegar þær fund- ust hafi verið búið að setja reglugerðina, tveimur mánuðum fyrr en áður hafði verið tilkynnt. Því var hafnað að taka tillit til sjónarmiða SJÓL. Í nýrri reglugerð er m.a. að finna ákvæði um að Fiskistofu sé heimilt að krefjast aðgangs að bókhaldsgögn- um. Í kjölfarið hafi Fiskistofa farið að krefjast gagna um mótahald fyrir 2015 og 2016, en þau mót hafi verið haldin í samræmi við eldri reglugerð. Elín segir fráleitt að krefjast gagna afturvirkt á þennan hátt. Félögin hafi hins vegar sent Fiskistofu áritaða ársreikninga frá viðurkenndum og löggiltum aðilum, þar sem fram komi uppgjör vegna mótahalds og ráðstöf- un aflaverðmætis. Auknar kröfur hafi þýtt aukinn kostnað og þannig hafi vinna endurskoðenda samsvarað ár- gjöldum í einu félaganna. Í fyrrasumar sendu sjóstangaveiði- félögin kæru til ráðuneytisins vegna framgöngu Fiskistofu. Í svari ráðu- neytisins síðasta haust var tekin af- staða með Fiskistofu. Félögin kvört- uðu þá til umboðsmanns eins og áður sagði. Elín segir alls óvíst hvort mót verði haldin 2018 því um leið og um- sóknir um þau hafi verið send inn hafi borist kröfur um bókhaldsgögn fyrir 2015 og 2016, sem þau telji ekki standast. Hugmyndir um kvóta Af helstu kostnaðarliðum við móta- hald nefnir Stefán B. Sigurðsson, fyrrverandi formaður SJÓL, leigu á bátum með skipstjórum, olíu, löndun, vigtun og ís. Hóflegir verðlaunagripir séu keyptir fyrir hvert mót og síðan fyrir Íslandsmeistara. Sala afla á markaði standi undir þessum kostn- aði og þá sé félögunum heimilt að eiga allt að þriggja milljóna varasjóð. Þátt- tökugjald sé innheimt og eigi það að dekka setningu móta og mótsslit. Mikils aðhalds sé gætt. Elín og Stefán segja það hafa verið álitamál á sínum tíma hvort félögin hefðu ekki tryggt sér rétt til kvóta með aflareynslu, en niðurstaðan hafi verið allt að 200 tonna pottur fyrir fé- lögin. Stefán segir að sjaldan hafi þessi afli náðst og oft verið rétt rúm- lega 100 tonn, en þá fellur tæpur helmingur heimildanna aftur til rík- isins. Hann segir að nú séu um 4-500 manns í félögunum átta sem eru inn- an Landssambandsins. Mótahald krefjist mikillar sjálfboðavinnu af hendi félagsmanna. Alls voru veidd 132 tonn á sjó- stangaveiðimótum sem fram fóru árið 2016, en þau voru alls 15 samkvæmt upplýsingum sem finna má á vef Fiskistofu. „Afla þessara móta er ekki heimilt að fénýta til annars en að standa straum af kostnaði við móts- haldið,“ segir á vefnum. Kengur í samskiptum og kvarta til umboðsmanns  Aðeins eitt sjóstangaveiðimót  Óánægja með Fiskistofu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sjóstöng Evrópumót var haldið í Eyjafirði fyrir nokkrum árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.