Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 10

Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s:781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 Mörkin 6 - 108 Rvk. s:546-0044 Opið: Mán-fös: 11-18 - lau: 12-16 ÚTSALAN ER HAFIN 30-50% AFSLÁTTUR! Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Árangur af kjaraviðræðum ríkisins við 17 stéttarfélög háskólamanna og Félag framhaldsskólakennara hefur enn sem komið er verið sáralítill sem enginn, þrátt fyrir að langt sé um liðið frá því að kjarasamningar þeirra losnuðu. Samninganefnd ríkisins lagði þó fyrir jólin ákveðnar útfærslur fyrir BHM-félögin í heild, sem félögin hafa haft til skoðunar hvert fyrir sig og ætluðu að bregðast við eftir ára- mótin þegar þráðurinn yrði tekinn upp að nýju, að sögn Gunnars Björnssonar, formanns Samninga- nefndar ríkisins (SNR). Ekkert verið afskrifað Ríkið hvikar í engu frá ramma- samkomulaginu frá 2015 um launaþróun til ársloka 2018 sem kennt er við SALEK, þó hvorki BHM né kennarafélögin eigi aðild að því samkomulagi. „Við teljum okkur eðlilega skuld- bundin af þessu rammasamkomulagi um að fylgja þeirri tilteknu launa- stefnu,“ segir Gunnar. „Við höfum sagt við alla þessa aðila að við erum bundin af þessari launastefnu, og ekki bara bundin heldur erum við hluti af henni og erum þar af leið- andi mjög áfram um að framfylgja henni.“ Forystumenn innan BHM sem rætt var við vilja lítið tjá sig um hug- mynd SNR um útfærslur í kjara- viðræðunum og hvort þær geti kom- ið hreyfingu á viðræðurnar en segja þær þó enn vera á borði hvers félags um sig og skoðun þeirra sé ekki lok- ið. Ýmsar hugmyndir séu í gangi og ekkert hafi enn verið afskrifað eða útilokað. Lítið sem ekkert hafi hins vegar miðað á þeim samningafund- um sem einstök félög hafa átt með SNR á undanförnum dögum og vik- um. Sagðist einn viðmælendanna hafa miklar áhyggjur af því ef ríkis- stjórnin ætlaði að líta fram hjá áhrif- um úrskurða kjararáðs á stöðuna á vinnumarkaðinum. Stjórnvöld þurfi einfaldlega að horfast í augu við áhrif kjararáðs. Nú er liðið á fimmta mánuð frá því að gerðardómur um laun 17 BHM- félaga rann út og Félag framhalds- skólakennara (FF) vísaði sinni kjaradeilu við ríkið til sáttasemjara í nóvember. „Ekkert að gerast“ Enginn árangur varð af sáttafundi í kjaradeilu Félags framhaldsskóla- kennara og ríkisins síðast liðinn mið- vikudag. ,,Ríkissáttasemjari sleit fundi og boðaði næsta fund eftir rétt um hálfan mánuð,“ segir Guðríður Arnardóttir, formaður FF. Að sögn hennar hefur ekkert þok- ast í viðræðunum við samninganefnd ríkisins að undanförnu. ,,Það er ná- kvæmlega ekkert að gerast.“ Félag framhaldsskólakennara ákvað í nóvember að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Spurð hvort Samninganefnd ríkisins hafi ekki komið fram með neinar ákveðnar til- lögur eða hugmyndir að samningi segist Guðríður ekki mega tjá sig um það sem fram fer á fundum hjá sáttasemjara en í raun sé ekkert á borðinu. Þegar Guðríður er spurð hvort kennarar sé farnir að ræða næstu skref til að ýta á um gerð samninga svarar hún: ,,Það er alveg ljóst að við munum ekki sitja marga svona fundi án þess að fara yfir næstu skref okk- ar megin. Við munum ekkert sitja aðgerðalaus án kjarasamnings. Kjarasamningurinn okkar losnaði 2016 og þó að við höfum gert sam- komulag um friðarskyldu til 31. október 2017 þá er alveg ljóst að það er alveg kominn tími á að semja við okkur,“ segir hún. Að sögn Gunnars hafa menn í við- ræðunum við framhaldsskólakenn- ara m.a. verið að reyna að átta sig á áhrifum breytinga á vinnutíma- málum sem samið var um á sínum tíma og hvernig hægt sé að lagfæra þá hnökra sem upp hafa komið. Ekki komið að launaliðnum í viðræðum FG og sveitarfélaga Samningur grunnskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga rann út í lok nóvember. Viðræður samninganefndanna eru komnar í gang en enn er ekkert farið að ræða launaliðinn samkvæmt upplýsingum Ingu Rúnar Ólafsdóttur, formanns samninganefndar sveitarfélaganna. Inga Rún tekur í sama streng og Gunnar Björnsson og segir sveitar- félögin vinna eftir rammasam- komulaginu um launaþróun í við- ræðum við viðsemjendur þeirra en það gildir fram í mars 2019 hjá sveit- arfélögunum. Samtölin við FG gangi ágætlega fyrir sig ,,en það sér ekkert í land ennþá,“ segir hún. ,,Þetta er allt í góðum gangi, í eðlilegu fari og sam- kvæmt viðræðuáætlun.“ BHM-félög skoða nýja útfærslu  Ríki og sveitarfélög bundin af launastefnu Salek  „Munum ekki sitja marga svona fundi,“ segir formaður FF  BHM hefur áhyggjur af að ríkisstjórnin ætli að líta fram hjá áhrifum kjararáðs Morgunblaðið/Eggert Blikur á lofti Mikil óvissa er í kjaramálum í upphafi nýs árs. Fjölmennir hópar opinberra starfsmanna eru með lausa samninga og kjarasamningar á almenna markaðinum renna út í lok ársins verði þeim ekki sagt upp í lok febrúar. Það styttist í endurskoðun samninga á almenna vinnumarkaðinum, sem þarf að vera lokið fyrir febrúarlok. Kristján Þórður Snæbjarnarson, for- maður Rafiðnaðarsambands Íslands, segir í nýárspistli á vefsíðu RSÍ ljóst að forsendur samninganna séu brostnar. Rafiðnaðarmenn séu afar ósátt- ir við úrskurði kjararáðs en tími sé kominn á leiðréttingu launa þeirra. „Þrátt fyrir að kaupmáttur hafi aukist á undanförnum árum þá hafa laun- in dregist aftur úr þegar horft er til lengri tíma. Til þess að kjarasamningum verði sagt upp í lok febrúar þá þurfa að- stæður að vera óbreyttar. Verði hins vegar gerð breyting á úrskurðum kjararáðs þá getur svo farið að kjarasamningar gildi út árið 2018 en renni þá úr gildi um áramótin 2018/2019. Forsendunefnd ASÍ hefur það í hendi sér að úrskurða um hvort forsendur haldi eða ekki.“ Sagt upp að öllu óbreyttu GÆTU GILT ÚT 2018 EF ÚRSKURÐUM KJARARÁÐS YRÐI BREYTT Sigurður Kristján Lárusson, skipa- smíðameistari og kunnur knatt- spyrnumaður á árum áður, lést á Sjúkrahús- inu á Akureyri síðdeg- is í fyrradag, miðviku- daginn 3. janúar, 63 ára að aldri. Sigurður hafði ekki kennt sér meins fyrr en hann veiktist skyndilega aðfararnótt miðvikudagsins. Sigurður fæddist á Akureyri 26. júní 1954. Foreldrar hans voru Sigrún Guðný Gústafsdóttir og Lárus Marteinn Marteinsson. Eiginkona Sigurðar er Valdís Ármann Þorvaldsdóttir. Sigurður lærði skipasmíði í Slipp- stöðinni á Akureyri og starfaði þar en hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts og síðar Henson, á meðan fjölskyldan bjó á Akranesi þar sem hann lék knattspyrnu með ÍA um árabil. Eftir að Sigurður, Valdís og börnin fluttu til Akureyrar á ný starfaði Sigurður við smíðar í Vör hf, þvínæst í eigin fyrirtæki, Trévís, og síðan hjá Slippnum – Akureyri í nokkur ár til dauðadags. Börn Sigurðar og Valdísar eru Lárus Orri, Sigurlína Dögg, Kristján Örn og Aldís Marta. Þrjú barnanna fetuðu í fót- spor föðurins á knatt- spyrnuvellinum; Lár- us Orri og Kristján Örn eru báðir fyrrver- andi landsliðsmenn, og voru lengi atvinnu- menn erlendis, og Al- dís Marta varð Ís- landsmeistari með Þór/KA árið 2012. Barnabörn Sigurðar og Valdísar eru átta. Sigurður lék knatt- spyrnu í meistaraflokki með Íþrótta- bandalagi Akureyrar 1971 til 1974, Þór á Akureyri 1975 til 1978 og Íþróttabandalagi Akraness 1979 til 1988. Með ÍA varð Sigurður Íslands- meistari 1983 og 1984, bikarmeistari 1982, 1983, 1984 og 1986. Hann var fyrirliði ÍA í nokkur ár og lyk- ilmaður í vörn. Sigurður var spilandi þjálfari síðasta árið sem leikmaður ÍA og þjálfaði liðið einnig 1989. Sig- urður lék með Þór á Akureyri á ný 1990 og tók síðan við þjálfun liðsins. Síðar meir þjálfaði hann einnig Völ- sung í eitt ár og KA í eitt ár. Sigurður lék 11 sinnum með landsliði Íslands frá 1981 til 1984. Andlát Sigurður Lárusson skipasmíðameistari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.