Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 22

Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ætlamættiaf um- ræðunni að Do- nald Trump hafi fundið upp stjórn- málalega „tístið.“ Þótt forsetinn kalli ekki allt ömmu sína hefur hann ekki sjálfur þóst vera sá uppfinn- ingamaður. Hann man kannski brunablettina á Al Gore sem virtist um skeið telja sjálfan sig hafa haft mest með tilurð „internets- ins“ að gera. Það er ekki nóg með að Trump hafi ekki fund- ið upp fyrirbærið heldur er hann fjarri því að vera fyrsti innanbúðarmaður í keilulaga kontórnum til að nýta sér það. Þannig tísti Obama for- seti töluvert. En vandinn var sá að hans tíst vöktu sáralitla athygli og enginn stillti vekj- araklukku sína á miðja nótt til að missa ekki af neinu. Sá grunur lá á að andlitslausir búrókratar pikkuðu tístin í nafni forsetans þótt aðrir andmæltu því og segðu Obama fullfæran um að draga upp dauflegan póst. En tístin nú bera nánast öll með sér bæði hugarfar og handbragð forsetans sjálfs. Tístin sem fljúga út um heimsbyggðina í nýopnaða morgunsárið ráða iðulega umræðunni daginn sem fer á eftir, hvort sem að öflugum fjölmiðlum nær eða fjær líkar það betur eða verr. Stærstur hluti öflugustu fjölmiðla vestra hefur áratug- um saman hallast mjög til vinstri. Ýmsir sem með því fylgjast best segja að umræða um jafnvægi í því sambandi sé langt í burtu og er þá mælt í ljósárum. Sama gegnir um fjölmiðla af því tagi í Evrópu og allir kannast við hvað hið íslenska Ríkisútvarp getur orðið hlægilegt þegar það fjallar um núverandi forseta Bandaríkjanna. Þessa dagana er töluvert fjallað vestra um bók sem er við það að koma út og er sögð lýsa innanbúðarástandi í Hvíta húsinu frá valdatöku Trumps. Tilgreindar heim- ildir fyrir frásögnunum eru veikburða og mest er um „heimildir“ sem ekki vildu „láta nafn síns getið.“ Sumir þeirra sem vitnað er til undir nafni hafa svarið þann vitnisburð af sér. Þegar þetta er skrifað hefur Steve Bannon ekki gert það. Sá kom að efsta lagi kosningabaráttu Trumps á seinustu mánuðum hennar og var svo ráðinn í hóp háttsettustu ráðgjafa for- setans eftir að sigurinn hafði opnað honum allar dyr Hvíta hússins. Mörgum þykir sem nafn Bannons gefi bókinni vægi, sem ella myndi eingöngu vera sett í flokk með algengum slúðurritum um forsetatíð á fyrstu mánuðum. En þó hefur verið viðurkennt að bókarhöf- undurinn, Michael Wolff, hafi um skeið haft tiltölulega greiða leið að ýmsum starfs- mönnum Hvíta hússins. Rétt er að geta þess að hingað til hafa aðeins verið birtir kynningarkaflar úr þessari væntanlegu bók. En þeir kaflar hafa þegar vakið mikla athygli og viðbrögð. Sjónvarpsmiðlarnir og blöðin Washington Post og NYT, sem gjarnan eru kall- aðir „the mainstream media“ vestra og styðja undantekn- arlaust eða -lítið flokk og mál- stað demókrata, hafa jafnvel tekið sig til og skrúbbað nokkra bletti af Bannon, sem þeir höfðu fram að því talið af síðustu sort ómerkinga, til að gera frásögnina trúverðuga. En Trump forseti hefur einnig brugðist við og verið það mikið niðri fyrir að „tíst“ er allt of takmarkað og því hefur hann birt sérstakar yfirlýsingar. Forsetinn hefur ekki aðeins gefið embættismönnum fyrir- mæli um að leitast við að beita löglegum úrræðum til að koma í veg fyrir bókin verði gefin út. Þá hefur for- setinn ekki látið duga að senda sínum gamla ráðgjafa pillu. Nær er að segja að hann hafi hellt úr öllu pilluboxinu yfir hann. Donald Trump segir nú að þegar hann hafi rekið Steve Bannon úr starfi hafi sá ekki aðeins misst vinnuna heldur einnig vitið. Það er auðvitað hætt við að þessar yfirlýsingar og að- gerðirnar kunni að hafa öfug áhrif við þau sem ætlað er. Einhverjir, sem þó eru ekki fullkomlega forstokkaðir fé- lagar í hatursklúbbi forset- ans, sem er fjölmennur, kynnu að hugsa sem svo: Fyrst að þetta eru við- brögðin, er þá ekki líklegra en ella að eitthvað sé til í hinu meinta slúðri og ósannindum? Einhver fullyrti að þegar væri hafist handa við að þýða bókarómyndina yfir á kór- esku því í Pyongyang biði ákafur lesandi. Sá er áhugasamur um sprengjur og bókin sú virðist einmitt vera efni í eina slíka. Enginn spáði eilífu logni um Trump en varla heldur eilífum stormbeljanda} Menn brenna sig á bókabrennum Í nýsamþykktum fjárlögum var umtals- vert aukið í fjárframlög ríkisins til heil- brigðisþjónustunnar. Aukningunni var beint bæði í Landspítalann, heilbrigð- isstofnanirnar úti um land og í Heilsu- gæsluna á höfuðborgarsvæðinu. Þessi aukning er í samræmi við langvarandi kröfu úr sam- félaginu öllu, sameiginlega áherslu nánast allra stjórnmálaflokka í aðdraganda kosninga en ekki síst þá staðreynd að heilbrigðiskerfið hef- ur setið eftir nú þegar efnahagslífið hefur náð að rétta úr kútnum eftir efnahagshrunið. Fyrir liggur að innspýting af þessu tagi dug- ar hvergi nærri til að tryggja að heilbrigðis- þjónustan á Íslandi dragist ekki aftur úr. Til þess þarf frekari aðgerðir. Hin mikilvægasta er að setja saman skýra og markvissa heilbrigð- isstefnu sem verði leiðarljós fyrir alla þá sem starfa í málaflokknum allt frá ráðuneyti til einstakra stofn- ana og rekstraraðila sem veita heilbrigðisþjónustu. Það þarf að liggja fyrir hverjum beri að sinna hverjum geira þjónustunnar, hvort um skörun er að ræða og ekki síður hvort einhvers staðar er um að ræða skort á þjónustu sem sannarlega er þörf fyrir. Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar er sjónum ekki síður beint að jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Þar er um að ræða almenna heilbrigðisþjónustu, fæðingarhjálp, mæðravernd og aðra þætti sem telja má til grunnþjónustu. Um leið má öllum vera ljóst að ákveðinn hluta þjónustunnar er aðeins hægt að bjóða á öflugu móð- ursjúkrahúsi íslenska heilbrigðiskerfisins, Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi. Þar fara fram rannsóknir, kennsla auk þess sem allar flóknari aðgerðir og þyngri þjónusta er veitt. LSH þjónar landinu öllu þegar þjónustunni í heimabyggð sleppir og er þannig bakland alls heilbrigðiskerfisins í landinu. Íbúaþróun, ferðamennska, samgöngur, ólík fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og mismun- andi aldurssamsetning gera það að verkum að þarfir heilbrigðisstofnana út um land er með mismunandi hætti. Þessa þjónustu þarf að meta, greina þörfina og gera áætlanir til lengri framtíðar með þjónustu við alla landsmenn að markmiði. Góð heilbrigðisþjónusta byggist á skýrri heilbrigðisstefnu sem er og á að vera hluti af samfélagssáttmálanum. Stefna sem lifir af kosningar og breytingar í landsstjórninni og snýst um jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu án tillits til efnahags eða búsetu og þar sem almannafé er skynsamlega ráðstafað. Í fjárlagaumræðunni nú fyrir jól varð ég þess áskynja í þingsal að almennur vilji þingmanna stendur til þess að stefnumótun af þessu tagi fari fram og að jöfnuður sé þar leiðarljós. Ég mun ráðast í mótun á skýrri heilbrigðisstefnu nú á næstu mánuðum sem mun hafa það hlutverk að liggja til grundvallar öllum helstu ákvörðunum í málaflokknum til framtíðar. Svandís Svavarsdóttir Pistill Jöfnuður sem leiðarljós Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is B likur eru á lofti í sam- skiptum Íslendinga og Færeyinga í sjávar- útvegi eftir að viðræður um tvíhliða samning þjóðanna sigldu í strand í síðasta mán- uði. Að óbreyttu fá Færeyingar ekki að veiða hér við land og Íslendingum er óheimill aðgangur að færeyskri lög- sögu. „Ef Færeyingar loka alfarið á okkur þá eru fleiri þjóðir með aðgang að fiskimiðum í eigin lögsögu. Þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar og ef ekki nást samningar við Færeyinga gætu stjórnvöld snúið sér til annarra þjóða eins og Íra, Breta og Evrópu- sambandsins,“ segir Gunnþór Ingva- son, framkvæmdastjóri Síldar- vinnslunnar í Neskaupstað. Á nýliðnu ári veiddu íslensk skip um 230 þúsund tonn af kolmunna, þar af veiddust yfir 190 þúsund tonn í fær- eyskri lögsögu og tæplega 27 þúsund tonn í íslenskri lögsögu. Þá veiddu ís- lensk skip 26 þúsund tonn af norsk- íslenskri síld í færeyskri lögsögu í fyrra, skv. yfirliti á vef Fiskistofu. Færeyingar höfðu heimild til að veiða 5% af úthlutuðum loðnukvóta Ís- lendinga, að hámarki 30 þúsund tonn. Ef miðað er við árið í ár og 208 þúund tonna upphafskvóta hefðu Fær- eyingar fengið að veiða rúmlega 10 þúsund tonn að minnsta kosti. Fær- eyingar höfðu heimild til að veiða 5.600 tonn af bolfiski hér við land, þar af 2.400 tonn af þorski. Samkvæmt aflareynslu Erfitt er að bera saman verðmæti í þessum samningi því sá reginmunur var á að Færeyingar tóku sinn afla af heildarkvóta Íslendinga. Íslensk skip fengu hins vegar aðgang að færeyskri lögsögu, en tóku með sér heimildir af hlutdeild Íslands. Þær tóku mið af hlutdeild samkvæmt aflareynslu og eldri samningi strandríkja, en síðustu ár hafa samningar ekki verið í gildi um veiðar á kolmunna, makríl og norsk- íslenskri síld. Í frétt á vef sjávarútvegsráðu- neytisins er greint frá því að ráðherra hafi ákveðið að fella úr gildi allar heimildir færeyskra fiskiskipa til að stunda veiðar innan íslenskrar lög- sögu á árinu 2018. Þar er greint frá viðræðunum við Færeyinga 12.-13. desember og segir þar að Ísland hafi boðið óbreyttan samning en Færeyjar krafist aukinna heimilda til veiða á botnfiski í íslenskri lögsögu ásamt af- léttingu takmarkana á manneld- isvinnslu á loðnu. Útgerðarmenn sem rætt var við í vikunni og hafa mikla hagsmuni af uppsjávarveiðum sögðust ánægðir með að „ráðherrann skuli standa í lappirnar gagnvart Færeyingum“. Þeir sögðu þó ljóst að til að ná eins miklum kolmunnaafla og veiddist í fyrra þyrftu útgerðir að breyta sóknarmynstrinu. Með auknum veið- um á íslensku og alþjóðlegu hafsvæði mætti veiða meira þar en gert hefði verið, t.d. á síðasta ári. Þá þyrfti að breyta sóknarmynstri í veiðum á öðr- um tegundum, en síðsumars og á haustin hafa uppsjávarskipin verið á makríl og síld. Þær tegundir fara að mestu til manneldisvinnslu, en kol- munninn í bræðslu. Viljum hafa þetta óbreytt Ákveðin óvissa er um hversu mikið væri hægt að veiða af kolmunna í íslenskri lögsögu og eins er langt að sækja á alþjóðlega hafsvæðið vestur af Írlandi, þar sem oft hefur fengist góður kolmunnaafli. Hagkvæmt hefur verið að sækja kolmunna til Færeyja, en á móti er bent á að Íslendingar eiga orðið stór og burðarmikil skip til að sækja á fjarlæg mið. Gunnþór segist telja mögulegt að ná þessum kolmunnaafla þó svo að Færeyjamið lokist. „Við eigum þessa hlutdeild og höfum möguleika á að veiða annars staðar, en við höfum gert síðustu ár. Við viljum að sjálf- sögðu hafa þetta óbreytt, en munum laga okkur að þeim veruleika sem við stöndum frammi fyrir,“ segir Gunn- þór. Aflaheimildir við Ísland, aðgangur við Færeyjar Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Óvissa Á kolmunnaveiðum á Víkingi AK norðan Færeyja í fyrravetur. Ekkert hefur verið ákveðið með viðræður við Færeyinga um nýjan fisk- veiðisamning, samkvæmt upplýsingum úr sjávarútvegsráðuneytinu. Samning um bolfiskveiðar Færeyinga við Ísland má rekja til ársins 1976 í kjölfar útfærslu íslensku landhelginnar. Samkvæmt þeim samningi eru færeyskum skipum heimilaðar línu- og handfæraveiðar á botnfiski með takmörkunum um hámarksafla, skipafjölda, tímabilatakmörkum og svæðatakmörkunum. Samningar um loðnuveiðar Færeyinga hér við land voru fyrst gerðir 1991. Á það hefur verið bent að megnið af loðnuaflanum fór þá til bræðslu, en nú er stór hluti aflans frystur og loðnan orðin verðmætara hráefni. Samningar á gömlum meiði ÓLJÓST UM FRAMHALD VIÐRÆÐNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.