Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 35
Að námi loknu hóf Bjarni störf að
skipulagsmálum hjá borginni og
vann við það í rúma tvo áratugi.
Hann var m.a. ritstjóri þriggja að-
alskipulagsáætlana fyrir Reykjavík-
urborg.
Bjarni lauk störfum hjá borginni
2004 og sama ár stofnaði hann ráð-
gjafafyrirtækið Land-ráð sf sem
hefur unnið að ráðgjöf í skipulags-
málum og framkvæmt viðhorfskann-
anir fyrir Reykjavíkurborg og Vega-
gerðina.
Bjarni hefur verið stundakennari
á háskólastigi í rúma þrjá áratugi,
hefur kennt háskólanemum um þró-
un og skipulag borga en síðasta ára-
tuginn hefur hann stundað jöfnum
höndum leiðsögn fyrir erlenda
ferðamenn, stundakennslu á há-
skólastigi og unnið að ýmsum ráð-
gjafastörfum tengdum skipulagi.
Bjarni hefur skrifað mikið um
skipulagsmál í blöð og tímarit og
gefið út tvær bækur um skipulag
Reykjavíkur. Árið 2014 kom út bók-
in Borgir og borgarskipulag og vorið
2017 ritgerðasafnið Reykjavík á
tímamótum, sem hann ritstýrði.
Fjölskyldan er samhent og
ferðast mikið saman innanlands og
utan: „Vinsæll sumardvalarstaður
okkar er ættaróðal Jóhönnu,
Hvammeyri við Tálknafjörð. Áhuga-
málin eru fjölbreytt, auk áhuga á
náttúru landsins og sögu byggðar,
þá söng ég í Karlakór Reykjavíkur í
tvo áratugi og var formaður kórsins
um tíma. Mér til heilsubótar syndi
ég á morgnana í sundlauginni á Sel-
tjarnarnesi þar sem góður hópur
hittist daglega og kryfur landsmálin.
Ég fer þrisvar í viku í blak með HÍ-
kennurum sem kalla sig því lág-
stemmda nafni Menningarfélag Há-
skóla Íslands. Lífið hefur leikið við
mig og á afmælisdaginn verðum við
Jóhanna í Marrakesh í Marokkó.“
Fjölskylda
Bjarni kvæntist 1975 Jóhönnu
Einarsdóttur, f. 11.11. 1952, forseta
Menntavísindasviðs HÍ. Foreldrar
hennar voru Einar Einarsson, f.
12.5. 1909, d. 26.8. 1994, frá Urr-
iðafossi í Flóa, starfsmaður í Iðnó,
og Halldóra Jónsdóttir, f. 4.12. 1931,
d. 24.9. 2017, frá Hvammeyri við
Tálknafjörð, húsfreyja.
Bjarni og Jóhanna hafa búið í
rúman aldarfjórðung á Ásvallagötu
75 í Reykjavík. Börn þeirra eru 1)
Einar Hugi, f. 16.11. 1977, hrl. hjá
Lögfræðistofu Reykjavíkur, búsett-
ur þar en eiginkona hans er Margrét
Þorsteinsdóttir viðskiptafræðingur
og eru dætur þeirra Jóhanna Helga
og Tinna Margrét en stjúpsynir Ein-
ars eru Elías Ýmir og Leó Steinn; 2)
Reynar Kári, f. 13. 1. 1982, sálfræð-
ingur hjá Líf og Sál í Reykjavík en
eiginkona hans er Erla Dís Arnar-
dóttir textílkennari og eru dætur
þeirra Ísafold Eva, Halldóra Móey
og Bjarney Ósk, og 3) Halldóra Sig-
ríður, f. 26.1. 1987, prjónahönnuður.
Fyrir hjónaband átti Bjarni með
Helgu S. Ragnarsdóttur Ragnar Pál
Bjarnason, f. 9.2. 1970, kerfisfræð-
ing hjá Rarik en kona hans er Hulda
G. Valdimarsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur og þeirra börn eru Arnar
Breki, Tindur Helgi og Guðrún
Embla.
Systkini Bjarna eru 1) Gunnar H.
Reynarsson, f. 25.11. 1944, leigubíl-
stjóri og söngvari í Mosfellsbæ; 2)
Sigrún Reynarsdóttir, f. 15.1. 1947,
launafulltrúi á Elliheimilinu Grund;
3) Elís Reynarsson, f. 20.01.1958,
fjármálastjóri hjá Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja.
Foreldrar Bjarna voru hjónin
Reynar Hannesson, f. 26.2. 1922, d.
19.9. 2013, stöðvarstjóri hjá Esso á
Gelgjutanga í Reykjavík, fæddur á
Vaðstakksheiði undir Enni. og Sig-
ríður Sigfúsdóttir, f. 9.11. 1921, d.
24.2. 1998, húsfreyja, fædd á Stóru
Hvalsá í Bæjarhreppi á Ströndum.
Bjarni
Reynarsson
Sólbjörg J. Vigfúsdóttir
húsfr. á Stóru-Hvalsá
Guðmundur Nikulásson
b. á Stóru-Hvalsá
Bæjarhreppi
Kristín G. Guðmundsdóttir
húsfr. Stóru-Hvalsá
Sigfús Sigfússon
b. á Stóru-Hvalsá í Bæjarhr. í
Strandasýslu
Sigríður Sigfúsdóttir
húsfr. í Rvík
Salóme Þorbergsdóttir
húsfr. í Eyjum
Sigús Bjarnason
b. í Eyjum í Kaldraneshr. Str.
Richard Hannesson framkvstj. í Rvík
Guðmundur
Guðbjörnsson
skipstj. á
Hellissandi,
Keflavík og í
Hafnarfirði
Ásbjörn
Guðmundsson
pípulagningam. í
Hafnarfirði
Sigurður Valur
Ásbjörnsson
byggingafr. og
fyrrv. bæjarstj.
í Sandgerði og
í Fjallabyggð
Lárus Sigfússon b. á Kolbeinsá í Bæjarhr.
og ráðherrabílstjóri í Rvík (nú 102 ára)
Steingrímur Sigfússon organisti
og tónskáld á Patreksfirði
Haraldur Sigfússon
leigubílstjóri í Rvík og
píanóstillingarmaður
Hreinn Haraldsson
vegamálastjóri
G. Helga Jónsdóttir
húsfr. á Sveinsstöðum, frá Sauðanesi í Rvík
Guðbjörn Ó. Bjarnason
bóndi Sveinsstöðum
Neshr., Snæfellsnesi
Guðrún Guðbjörnsdóttir
húsfr. á Vaðstakksheiði og í Rvík
Hannes Elísson
b. á Vaðstakksheiði í Neshreppi, seinna húsvörður í Rvík
Gróa H. Hannesdóttir
húsfr. á Berserkseyri
Elís Guðnason
b. á Berserkseyri á Snæfellsnesi
Úr frændgarði Bjarna Reynarssonar
Reynar Hannesson
stöðvarstj. Esso á Gelgjutanga í Rvík
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018
Páll Sigurðsson fæddist íReykjavík 4.1. 1918. For-eldrar hans voru Sigurður
Ólafsson, rakarameistari í Reykjavík
og einn af stofnendum Rakarameist-
arafélags Reykjavíkur, og k.h., Hall-
dóra Jónsdóttir.
Systkini Páls voru Jón Guðmunds-
son, vallarvörður við Melavöllinn í
Reykjavík; Ásgerður Sigurðardóttir
Hafstein, húsfreyja í Reykjavík; Guð-
rún Sigurðardóttir, búsett í Reykja-
vík; Þorsteinn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, og Ólafía
Sigurðardóttir, húsfreyja í Reykja-
vík.
Eiginkona Páls var Kristbjörg
Hermannsdóttir húsfreyja sem lést
1970.
Sonur Páls frá fyrra hjónabandi
með Sigurlaugu Ingibjörgu Júl-
íusdóttur er Brynjar verslunarmaður
en börn Páls og Kristbjargar: Kol-
beinn Hermann framkvæmdastjóri;
Vigdís Valgerður flugfreyja, og Sig-
urbjörg innanhússarkitekt.
Páll lærði rakaraiðn hjá föður sín-
um, Sigurði Ólafssyni, á rakarastof-
unni í Eimskipafélagshúsinu. Hann
starfaði þar að loknu námi, tók síðar
við rekstri rakarastofunnar og starf-
rækti stofuna til 1987.
Páll gegndi ýmsum félags- og trún-
aðarstörfum fyrir Meistarafélag hár-
skera um langt árabil en hann var
m.a. formaður félagsins um skeið, en
faðir hans hafði verið fyrsti formaður
þess. Þá var hann einn af stofnendum
almenns lífeyrissjóðs iðnaðarmanna
og sat í bankaráði Iðnaðarbankans.
Páll var elsti heiðursfélagi Meist-
arafélags hárskera.
Páll hafði mikinn fjölda fastra við-
skiptavina enda mjög vinsæll hár-
skeri í Miðbæ Reykjavíkur. Um Pál
segir Ingi Þorsteinsson m.a. í minn-
ingargrein: „Páll var mikið snyrti-
menni til orðs og æðis. Hann var
drenglyndur, orðvar og nærgætinn,
og aldrei heyrði ég hann tala illa eða
niðrandi um nokkurn mann. Páls
verður minnst sem sanns heið-
ursmanns og góðs drengs.“
Páll lést 19.3. 2000.
Merkir Íslendingar
Páll
Sigurðsson
90 ára
Gunnhildur Björnsdóttir
Sigríður Benediktsdóttir
Sigvaldi Gunnarsson
85 ára
Einar Benediktsson
Hera A. Ólafsson
80 ára
Halldór Þorgils Þórðarson
Rannveig Randversdóttir
75 ára
Anna Lísa Michelsen
Ágúst Rósmann Morthens
Elínborg Eyþórsdóttir
Gígja Árnadóttir
Kristín Carol Chadwick
Sigurjón Einarsson
Sigurlín E.V. Thacker
Trausti Björnsson
Þorbjörn Sigvaldason
70 ára
Ágústa Hrund Emilsdóttir
Áróra Sverrisdóttir
Ásvaldur Marísson
Bjarni Reynarsson
Dagbjört Soffía
Sigurðardóttir
Elín Ragnarsdóttir
Eva Ö. Christensen
Guðmundur Magnússon
Hugrún Ólafsdóttir
Jóhanna Lára Árnadóttir
Sigríður Katrín Júlíusdóttir
Sigurður A. Kristjánsson
Sjöfn Hinriksdóttir
60 ára
Birgit Eivor Schov
Jan Wieslaw Florczak
Sigfús Guðmundsson
Svanhildur Karlsdóttir
Sverrir Gísli Hauksson
Þorbjörg Þorsteinsdóttir
50 ára
Anna Einarsdóttir
Arndís Bergsdóttir
Atli Þór Tómasson
Bozena Suszczynska
Edward Wawer
Elín Valdís Þorsteinsdóttir
Klemens Arnarson
Kristinn S. Jórmundsson
40 ára
Anna Chernysh
Gísli Rúnar Guðmundsson
Hilmar Þór Guðmundsson
Irene Maria Morera Vargas
Jón Benjamín Jónsson
Kjartan Sverrisson
Magnús Ásgeirsson
Mikael Jón Jónsson
Ólafía Guðbjörg
Gústafsdóttir
Racel C. Rivera
Rut Eiríksdóttir
Stefán Aðalsteinsson
Sveinbjörn Þ. Einarsson
Viggó Örn Guðbjartsson
Þórey Bjarnadóttir
30 ára
Alexander Jarl Ríkharðsson
Dilixiati Remina
Guðjón Gunnarsson
Hafþór Jónasson
Hektor Már Jóhannsson
Helga Rún Hjartardóttir
Hildur Ýr Arnardóttir
Hjördís H. Ásmundsdóttir
Hugrún Jóna Hilmarsdóttir
Jóhann Berentsson
Jónatan Arnar Örlygsson
Kristín Elva Sigurðardóttir
Monika Helena Jankowska
Sigþrúður Elínardóttir
Stefán Freyr Michaelsson
Vignir Karl Gylfason
Til hamingju með daginn
30 ára Stefán ólst upp í
Reno í Nevada í Banda-
ríkjunum, býr í Garðabæ,
er að ljúka námi í íþrótta-
fræði við HR og rekur fyr-
irtækið True Viking Bus-
iness.
Maki: Pálína Pálsdóttir, f.
1988, einkaþjálfari í World
Class og fram-
kvæmdastjóri.
Sonur: Anton, f. 2006.
Foreldrar: Michael Jo-
hnston, f. 1961, og Ásta
Freysdóttir, f. 1961.
Stefán Freyr
Michaelsson
30 ára Kristín ólst upp í
Hafnarfirði, býr í Garð-
inum og er heimavinnandi
um þessar mundir.
Maki: Pétur Valur Pét-
ursson, f. 1988, húsamál-
ari.
Börn: Júlíana Líf, f. 2014,
og Arnar Breki, f. 2016.
Foreldrar: Sigurður Elvar
Sigurðsson, f. 1964, sjó-
maður, og Kristbjörg D.
Þorbjarnardóttir, f. 1966,
d. 2017, blómaskreytinga-
kona og kaupkona.
Kristín Elva
Sigurðardóttir
30 ára Jónatan býr í
Reykjavík, lauk BA-prófi í
vefþróun frá KEA í Kaup-
mannahöfn og er verk-
efnastjóri við Vefskólann í
Tækniskólanum.
Maki: María Leifsdóttir, f.
1987, verkfræðingur hjá
Icelandair.
Börn: Lára Jónatans-
dóttir, f. 2014.
Foreldrar: Örlygur Jón-
atansson, f. 1950, og Lára
Sveinbergsdóttir, f. 1956,
d. 2015.
Jónatan Arnar
Örlygsson
Skál fyrır hollustu