Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 41

Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 Myndasögusýning Arnars Heið- mars, Here and Back Again, verður opnuð í Borgarbókasafninu í Gróf- inni í dag kl. 16. Á sýningunni má sjá myndasögur sem listamaðurinn hefur unnið að bæði sem mynda- söguhöfundur og ritstjóri með lista- mönnum. Þar sem allir textar verk- anna eru á ensku var ákveðið að yfirskrift sýningarinnar væri einn- ig á ensku. Hún vísar í upphaf ferils Arnars sem hófst í Grófinni árið 2013 þegar hann tók þátt í mynda- sögusamkeppni með Elizabeth Katrínu Mason. „Áhugi minn á myndasögum snýr einkum að því að sjá hvernig mynd- irnar geta bætt við sjálfa frásögn- ina, t.d. þegar kemur að því að lýsa tilfinningum sögupersóna. Í því hafa áhrifavaldar mínir verið myndasöguhöfundar á borð við Neil Gaiman auk þess sem mynda- sögudeildir Borgarbókasafnsins veittu mér innblástur sem ungum manni,“ segir Arnar. Here and Back Again í Borgarbókasafni Sögupersóna Galaxy Knight. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Barnaleikritið Ég get eftir Peter Engkvist verður frumsýnt í Kúl- unni í Þjóðleikhúsinu á sunnudag- inn kl. 15. Verkið er ætlað allra yngstu leikhúsgestum, börnum á aldrinum tveggja til fimm ára, og er lýst sem ljóð- rænni leiksýn- ingu sem er í kjörinni lengd fyrir þennan ald- urshóp, um 30 mínútur. Leik- stjóri sýningar- innar er Björn Ingi Hilmarsson og leikarar María Thelma Smáradóttir og Stefán Hallur Stefánsson. Búninga hannar Leila Arge, leikmynd Högni Sigurþórsson, Kristinn Gauti Einarsson hannar hljóðmynd og lýsing er í höndum Hermanns Karls Björnssonar. Gapandi af undrun „Þau voru alveg stórkostleg,“ segir leikstjórinn Björn Ingi að ný- afstöðnu rennsli á sýningunni og á þar við gestina, leikskólabörn á aldrinum 3-5 ára. Ég get segir af tveimur litlum manneskjum sem eru að æfa sig í að vinna saman. Þær leika sér saman, prófa sig áfram og komast að því hvað gerist þegar forsendum í leiknum er breytt, eins og það er orðað á vef leikhússins. Björn Ingi er spurður hvort þungu fargi hafi verið af honum létt með góðum viðtökum rennslis- gesta. „Já, það var gaman að sjá hvað þau voru mikið með, þau voru algjörlega með og mér fannst það bara stórkostlegt. Þá veit ég að við erum að gera eitthvað rétt,“ segir hann léttur í bragði. –Þetta er ekki fyrsta sýningin sem þú leikstýrir fyrir þennan ald- urshóp? „Nei, ég byrjaði á að leikstýra Lofthrædda erninum Örvari, hann var fyrir svipaðan aldur,“ svarar Björn Ingi og á þar við uppfærslu Þjóðleikhússins á því verki, sem sýnd var leikárið 2016-17. Hann segir hópana geta verið ólíka sem komi á sýningarnar og gaman að sjá börnin gapa af undrun og fylgj- ast með einlægum viðbrögðum þeirra við töfrum leikhússins. Uppgötvanir –Titill verksins, Ég get, vísar væntanlega til þess að verkið snú- ist um hvað börn geti og að þau geti kannski meira en þau halda? „Já, en þetta er líka tengt ákveðnum aldri, þegar sjálfið fer að verða til,“ svarar Björn Ingi. Verk- ið sé upphaflega sænskt og setn- ingar í því á borð við „ég get“ og „ég á“ komi upphaflega úr munni fjögurra ára drengs. Björn segir að börn á þessum aldri séu að upp- götva allt í lífi sínu og umhverfi og hafi óbilandi trú á sjálfum sér sem sé afar fallegt. „Þetta eru aðstæður sem maður getur ímyndað sér að börn lendi í og við erum að endur- spegla á einhvern hátt þeirra veru- leika. Ég myndi segja að verkið væri að einhverju leyti um það að verða einstaklingur eða öðlast sjálfsmynd, fyrir utan svo margt annað,“ segir hann. Spurður út í búninga og leik- mynd segir Björn Ingi að hvort tveggja sé einfalt og fallegt. „Það er gaman að leika sér með lýsingu og hljóðmynd og þá lýsinguna sér- staklega,“ segir hann. Úr leik- myndinni, sem einkennist einna helst af pappakössum, sé hægt að búa til hina ýmsu hluti og aðstæður og eitt og annað öðlist líf líkt og fyrir töfra, eins og verða vill í leik- húsi. Langt samstarf Ég get var frumsýnt fyrir tveim- ur árum í Stokkhólmi, að sögn Björns Inga, og hafa þeir Engkvist, höfundur verksins, unnið saman oftar en einu sinni. „Ég byrjaði að vinna með honum 1993-4, þá gerð- um við sýninguna Lofthræddi örn- inn Örvar, ég lék og hann leik- stýrði. Svo unnum við aftur saman í Borgarleikhúsinu í Beðið eftir Godot og svo var ég að vinna í leik- húsinu í Stokkhólmi, sem hann er listrænn stjórnandi við, frá 2010 til 2015,“ segir Björn Ingi og á þar við Teater Pero. Engkvist hefur leikstýrt nokkr- um leiksýningum hér á landi, m.a. Ormstungu og Mr. Skallagrímsson og Maðurinn sem hélt að konan hans væri hattur. „Hann er búinn að vinna mikið hérna á Íslandi, hann á íslenska eiginkonu sem er leikkona í leikhúsinu hjá honum úti,“ segir Björn Ingi um vin sinn Engkvist. Ég get verður frumsýnt í dag sem fyrr segir og næstu sýningar verða 14. og 20. janúar. Ljósmynd/Halldór Örn Óskarsson Töfraheimur Stefán Hallur Stefánsson og María Thelma Smáradóttir leika í Ég get í Kúlunni. Í leikritinu segir af tveimur litlum manneskjum sem eru að æfa sig í að vinna saman, leika sér saman og prófa sig áfram. Mótun sjálfsins  „Þetta eru aðstæður sem maður getur ímyndað sér að börn lendi í,“ segir leikstjóri barnaleikritsins Ég get Björn Ingi Hilmarsson ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ? ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 5, 8, 10.30 Sýnd kl. 5 Sýnd kl. 5, 8, 10 /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.