Morgunblaðið - 08.01.2018, Page 14

Morgunblaðið - 08.01.2018, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018 FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐA Nutrilenk fyrir liðina GOLD NNA Vertu laus við LIÐVERKINA Eitt mest selda efnið fyrir liðina hér á landi „NUTRILENK GOLD GAF MÉR LÍFSGLEÐINA Á NÝ“ Náttúrul egt fyrir liðin a „Ég hef stundað skíði í 60 ár, línuskauta, hjólreiðar, fjallgöngur og svo æfi ég í ræktinni daglega. Fyrir nokkrum árum stóð ég frammi fyrir því að ökklarnir voru algjörlega ónýtir, aðallega vegna endalausrar tognunar á skíðum. Ástandið var orðið þannig að ég gat varla gengið. Læknirinn minn sagði að annar ökklinn væri svo illa farinn að það þyrfti að stífa hann. Þessar fréttir fundust mér vera endalokin fyrir mig og mín áhugamál og ég lagðist í mikið þunglyndi. Mér var bent áNUTRILENKGOLD sem ég ákvað að prófa og það gerði kraftaverk. Í dag fer ég á fjöll og geri nánast allt semmig langar til að gera algjörlega verkjalaus. Ef ég hætti að taka Nutrilenkið minnir ökklinn fljótt á sig. Ég skora á alla þá sem eru að glíma við svipuð vandamál að prófa þetta undraefniNUTRILENKGOLD sem gaf mér lífsgleðina á ný.“ Guðfinnur S. Halldórsson, sveitarforingi skíðasveitarskáta í Reykjavík og landskunnur bílasali. ● Davíð Lúther Sigurðsson, stofnandi Basic International ehf., hefur selt 51% hlut sinn í félaginu til Manhattan ehf.. Basic International sem sér um íþróttaviðburðina The Color Run og Gung Ho sem notið hafa töluverðra vinsælda hér á landi und- anfarin ár. Fyrir átti Manhattan ehf. 49% hlut í Basic Int- ernational, og á því félagið að fullu eftir kaupin. Í tilkynningu frá Basic International segir að kaupverðið sé trúnaðarmál en Ragnar Már Vilhjálmsson mun taka við af Dav- íð Lúther sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Basic Int- ernational stefnir að því að halda allt að tólf viðburði á þessu ári á Íslandi, Danmörku og Svíþjóð. ai@mbl.is Selur Color Run og Gung Ho til Manhattan Davíð Lúther Sigurðsson Travis Kalanick, stofnandi og fyrr- verandi forstjóri skutlþjónustunnar Uber, hefur selt tæplega þriðjung hlutabréfa sinna í fyrirtækinu. Blo- omberg hefur eftir heimildarmönn- um að Kalanic, sem áður átti um það bil 10% í Uber, muni græða 1,4 millj- arða dala á sölunni. Kaupandinn er hópur fjárfesta með SoftBank Group í fararbroddi en með kaupunum er Uber metið á 48 milljarða dala. Kal- anick hafði boðist til að selja allt að helming hlutabréfa sinna en fékk þó ekki að selja svo mikið vegna tak- markana í samkomulagi Uber og kaupendahópsins. Kaupendurnir munu eignast hluti í Uber fyrir allt að 10 milljarða dala en hlutina kaupa þeir af sumum elstu starfsmönnum og fjárfestum fyrirtækisins. Meðal þeirra sem nota tækifærið til að selja er vogunarsjóðurinn Benchmark sem, sem var með þeim fyrstu til að fjárfesta í Uber, og hefur lengi verið stærsti hluthafi fyrirtækisins. Benchmarkg mun selja 15% af eign sinni í Uber á 900 milljónir dala. Þrátt fyrir að hafa selt allstóran eignarhlut munu bæði Benchmark og Kalanic áfram ráða yfir sínu sæt- inu hvort í stjórn Uber. Er Kalanick á förum? Eins og fjölmiðlar greindu frá á síðasta ári þurfti Kalanick að segja af sér sem forstjóri Uber eftir að margskonar hneykslismál skóku fyr- irtækið. Sala Kalanicks og mikil- vægra fjárfesta á hlutabréfum í Uber þykir til marks um að þeir séu reiðubúnir að losa um tökin á fyr- irtækinu en Kalanick hefur, í krafti hlutabréfaeignar sinnar verið lang- samlega valdamestur hluthafa. Samningurinn við SoftBank og fjárfestahópinn felur m.a. í sér að felldur verður niður sérstakur flokk- ur hlutabréfa með aukinn atkvæðis- rétt, sem hafa tryggt Kalanick þau miklu ítök sem hann hefur haft í fyr- irtækinu til þessa. New York Times segir þetta þýða að nýi forstjórinn, Dara Khosrowshahi, muni fá betra svigrúm til að móta reksturinn eftir eigin höfði. Viðmælendur Los Angeles Times og Fortune telja söluna til marks um að Kalanick vilji snúa sér að öðrum verkefnum og að með meira en millj- arð dala úr að spila eigi hann hægt um vik að setja nýjan sprota á lagg- irnar. Áður hafði Kalanick hreykt sér af því að hafa aldrei selt nein af hluta- bréfum sínum í fyrirtækinu sem hann byggði upp. ai@mbl.is Kalanick selur stóran hlut í Uber AFP Bylting Sjálfakandi bílar Uber við prófanir í Pittsburgh. Fyrirtækið hefur sigrað heiminn en verið mjög umdeilt.  Losar mjög um tökin á fyrirtækinu sem hann stofnaði Nýjustu tölur um launaskiptingu stærstu fyrirtækja Bretlands benda til þess að en halli verulega á konur á vinnumarkaði þar í landi. Tölurnar sýna m.a. að hjá flugfélaginu EasyJ- et fá konur að jafnaði 52% lægri laun en karlar, en hjá veðmálafyrirtæk- inu Ladbrokes var munurinn 15% körlum í hag og 33% hjá lánastofn- uninni Virgin Money, að sögn BBC. Þessar tölur leiðrétta ekki fyrir breytur á borð við vinnutíma, stöðu, skyldur og starfsaldur og segja fyr- irtækin þrjú sem nefnd voru hér að ofan að þau greiði konum og körlum jafnhá laun fyrir sambærileg störf. Munurinn á launum kynjanna hjá EasyJet skýrist þannig m.a. af því að 6% af flugmönnum félagsins eru konur á meðan þær eru 69% flug- þjóna, og fá flugmennirnir nærri fjórfalt hærri laun. EasyJet segist stefna að því að árið 2020 verði a.m.k. einn af hverjum fimm nýjum flugmönnum hjá félaginu kvenkyns. Samkvæmt breskum lögum ber fyrirtækjum og stofnunum með 250 starfsmenn eða fleiri skylda til að upplýsa opinberlega hvernig laun hjá þeim skiptast eftir kynjum. Nú þegar hafa 527 fyrirtæki skilað inn tölum fyrir síðasta ár og er munur- inn ekki alltaf konum í óhag. Þannig fá konur hjá dýnuverslanakeðjunni Sweet Dreams að jafnaði 46,4% hærri laun en karlarnir sem þar starfa, og fyrirtækið Yellow Dot sem rekur tólf leikskóla í Hampshire, greiðir konum 35,4% hærri laun. Yellow Dot segir hægt að skýra megi muninn með því að fáir karlmenn starfi hjá fyrirtækinu og þeir fáist aðallega við uppeldisstörf sem krefj- ast minni færni. ai@mbl.is AFP Skekkja Flugfélagið EasyJet var meðal þeirra fyrirtækja þar sem mun- urinn mældist mestur vegna fárra kven-flugmanna og karl-flugþjóna. Verulegur munur á launum karla og kvenna í Bretlandi  Mun fleiri konur en karlar í láglauna- stöðum hjá flugfélaginu EasyJet ● Í desember nam gjaldeyrisforði Kína 3.140 milljörðum dala og óx um 20,7 milljarða á milli mánaða. Að sögn Blo- omberg var desember ellefti mánuður- inn í röð sem forðinn hefur farið vax- andi, en áður hafði hann minnkað um nærri fjórðung á tímabilinu frá miðju sumri 2014 fram til ársloka 2016. Vöxtur gjaldeyrisforðans þykir til marks um að strangari gjaldeyrishöft kínverskra stjórnvalda séu að bera ár- angur, samhliða því að kínverska yuanið hefur hækkað gagnvart öðrum gjald- miðlum og hagvöxtur haldist sterkur. Á öllu síðasta ári stækkaði gjaldeyrisforð- inn samanlagt um 129 milljarða dala, en gjaldeyrisforði Kína er sá stærsti í heimi. Gjaldeyriseftirlit Kína spáir því að gjaldeyrisforðinn muni haldast stöð- ugur og að jafnvægi verði á inn- og út- streymi fjármagns. ai@mbl.is Gjaldeyrisforði Kína eykst ellefta mánuðinn í röð AFP Afköst Kona í verksmiðju í borginni Ganyu. Vaxandi gjaldeyrisforði þykir góðs viti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.