Morgunblaðið - 08.01.2018, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Boðinn Leikfimi í fríi en byrjar aftur 15. janúar, félagsvist kl. 13.
Myndlist kl. 13, spjallhópur Boðans kl. 15.
Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl. 9, brids kl. 13.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, jóga hjá Carynu kl. 10, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spil-
að brids kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur kl. 12.30,
handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30.
Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Grafarvogskirkju, inni í Egilshöll og frá
Borgum, félagsvist kl. 13 í Borgum og tréútskurður kl. 13 á Korpúlfs-
stöðum.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og
meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega vel-
komnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568 2586.
Stangarhylur 4, Zumba námskeið hefst kl. 10.30, leiðbeinandi Tanya.
Seltjarnarnes Leir og listasmiðja Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu
kl. 10. Krossgátu og kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga salnum
Skólabraut kl. 11. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sund-
lauginni kl. 18.30.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Sumarbústaðalóðir
til sölu í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir
með aðgangi að heitu og köldu
vatni í vinsælu sumarhúsahverfi í
landi Vaðness í Grímsnes- og
Grafningshreppi.
Vaxtalaus lán í allt að eitt ár.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón
í síma 896-1864 og á facebook
síðu okkar vaðnes-lóðir til sölu.
Til sölu
Askalind 4, Kóp.
Sími 564 1864
www.vetrarsol.is
48V Lithium-ion ralaða, hlaðin
Dreing 1 – 6 metrar
51cm vinnslubreidd
Með Led ljósabúnaði
Í léari snjómokstur
ST 4851 snjóblásari
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
✝ GunnlaugurLárusson
fæddist við Kára-
stíg í Reykjavík 10.
apríl 1923. Hann
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 24.
desember 2017.
Foreldrar Gunn-
laugs voru Lárus
Hansson, f. 16.12.
1891, d.14.3. 1958,
innheimtumaður
Reykjavíkurborgar, og Jónína
Gunnlaugsdóttir, f. 30.11. 1885,
d. 12.1. 1943, húsmóðir.
Systkini Gunnlaugs voru Að-
alsteinn, f. 27.2. 1920, d. 14.3.
1974, búfræðingur og sjómað-
ur. Jóhanna, f. 11.8. 1921, d.
og Margréti, f. 1959. Gunn-
laugur lauk námi frá Sam-
vinnuskólanum í Reykjavík.
Stundaði framhaldsnám í versl-
unarfræðum í Svíþjóð og Skot-
landi. Að námi loknu hóf hann
störf hjá Framleiðsluráði land-
búnaðarins og vann þar allan
sinn starfsferil sem skrif-
stofustjóri.
Gunnlaugur gekk snemma til
liðs við Knattspyrnufélagið Vík-
ing og var hann Víkingur alla
sína tíð.
Hann lét félagsmál mikið til
sín taka, sat m.a. í aðalstjórn
Vikings um árabil og í bygg-
inganefnd félagsheimilisins við
Hæðargarð. Var hann gerður
að heiðursfélaga Víkings. Einn-
ig starfaði hann fyrir KSÍ og
sat m.a. í landsliðsnefnd um
margra ára skeið.
Útför Gunnlaugs fer fram frá
Lindakirkju í Kópavogi í dag, 8.
janúar 2018, og hefst athöfnin
kl. 13.
5.11. 2014, hús-
móðir og fótaað-
gerðafræðingur.
Róbert, f. 1.11.
1924, d. 7.11. 2006,
sjómaður.
Hálfsystir Gunn-
laugs samfeðra var
Ástríður, f. 22.2.
1909, d. 30.5. 1996,
húsmóðir í Banda-
ríkjunum.
Gunnlaugur
kvæntist 14. september 1946
Fjólu Gísladóttur, f. 11.1. 1924,
d. 21.3. 2010. Þau höfðu þá
eignast tvær dætur, Stefaníu
Erlu, f. 1942, og Ólöfu Kristínu,
f. 1943. Síðar eignuðust þau
Lárus, f. 1949, Jónínu, f. 1954,
Margar minningar koma upp í
hugann þegar ég hugsa um hann
pabba minn sem kvaddi okkur á
aðfangadag á slaginu tólf, 94 ára
að aldri. Það reyndar lýsir honum
mikið því nákvæmnismaður var
hann, gekk ekki frá hálfunnu verki
hvorki í vinnu né heldur þeim
verkum sem honum var treyst
fyrir og hann tók að sér.
Strangur var hann í uppvexti
okkar systkina. Hafði sterkar
skoðanir og sagði sína meiningu
sem var ekki alltaf vinsælt. En
sanngjarn, hlýr og fyrstur til að
rétta fram hjálparhönd ef eitthvað
bjátaði á. Vildi halda utan um alla
sína og mátti ekkert aumt sjá eða
vita af og skipti þá ekki máli hvort
um vini eða ókunnuga var að
ræða, hugur og hönd vöru lögð af
stað og verkin farin að tala.
Smekkmaður var hann og fínn í
tauinu, bar sig einstaklega vel.
Fótbolta- og félagsmaður mikill
og sannur Víkingur.
Tónlist hafði hann alla tíð mikla
unun af. Fór oft á tónleika hér
heima og erlendis þegar færi
gafst. Beniamino Gigli, Pavarotti,
Domingo og Carreras voru í miklu
uppáhaldi ásamt fjölmörgum öðr-
um listamönnum.
Við fjölskyldan fluttum inn í
Skeiðarvog þegar ég var fimm ára
en þar byggði pabbi raðhús sem
við systkinin ólumst upp í og áttum
heima alla okkar bernsku. Mamma
var heimavinnandi húsmóðir og sá
um að halda öllu gangandi þar með
sóma. Pabbi vann sem skrifstofu-
stjóri hjá Framleiðsluráði land-
búnaðarins öll sín starfsár.
Mamma og pabbi bjuggu síðan
á Sléttuveginum í Reykjavík í
nokkur ár. Þóttu þau mjög glæsi-
leg hjón, en mamma lést árið 2010
og það var pabba mikill missir.
Við pabbi áttum oft góðar
stundir, spjölluðum um lífið og til-
veruna og á ég eftir að sakna
þeirra stunda.
Dálæti hafði hann á ljóðum og
var Einar Benediktsson ljóðskáld
í miklu uppáhaldi, gat hann t.d.
farið með ljóðið „Í Dísarhöll“ ut-
anbókar og með miklum tilþrifum.
Þótti það mörgum alveg ótrúlegt.
Bumba er knúð og bogi dreginn,
blásinn er lúður og málmgjöll slegin.
Svo glatt er leikið af gripfimum drengj-
um
sem gneistar kveikist af fiðlunnar
þvengjum.
Og hljómgeislinn titrar, án ljóss og án lit-
ar,
ljómar upp andann, sálina hitar
og brotnar í brjóstsins strengjum.
Allt hneigir og rís fyrir stjórnanda stafs-
ins,
sem straumunum vísar til samradda
hafsins,
sem hastar á unn þess, sem hljómrótið
magnar,
sem hrærir hvern brunn þess til róms
eða þagnar.
Hann vaggast í liðum með list og með
sniði
og leikur hvern atburð á tónanna sviði,
svo augað með eyranu fagnar. –
(Einar Benediktsson)
En hvíldin er komin eftir langa
og viðburðaríka ævi.
Elsku pabbi, hvíl í friði, takk
fyrir allt. Minning þín mun lifa í
hjörtum okkar.
Jónína.
Gunnlaugur móðurbróðir minn
er látinn á 95. aldursári. Það var
viðbúið, hann kvaðst sáttur við líf-
ið og tilbúinn að fara á vit feðra
sinna. Þó er skrítið og tómlegt til
þess að hugsa að nú séu þau öll
farin systkinin, og við systkina-
börnin orðin elsta kynslóðin.
Barnæska mín er tengd fjöl-
skyldunni í Skeiðarvogi órjúfan-
legum böndum og þær eru ótelj-
andi góðu minningarnar sem ég á
þaðan. Ég leit á Skeiðarvoginn
sem mitt annað heimili og fannst
ég alltaf velkomin þangað. Mikill
samgangur var milli heimilanna
og þegar pabbi dó gistum við hjá
Gunnlaugi og Fjólu dagana á eftir
og þau vildu allt fyrir okkur gera.
Gunnlaugur kom færandi hendi
með okkar fyrsta sjónvarp og þau
buðu okkur mömmu í mína fyrstu
og ógleymanlegu utanlandsferð
með Gullfossi. Sem unglingur var
ég heilt sumar í hádegismat hjá
Fjólu þegar ég vann í bókabúðinni
í Álfheimum og þannig mætti
lengi telja, svo greiðvikin og hjálp-
söm voru Gunnlaugur og Fjóla
með alla hluti.
Eftir að ég sjálf eignaðist fjöl-
skyldu sýndu þau okkur Andrési
og dætrum okkar alltaf mikinn
áhuga og velvild.
Mamma og Gunnlaugur voru
alla tíð náin og kærleiksrík systk-
ini og mamma og Fjóla miklar vin-
konur. Mömmu fannst Gunnlaug-
ur heldur stjórnsamur á stundum,
þegar hann vildi hafa vit fyrir
henni (sem var oft), en hún sagði
að í raun væri það ekki annað en
hugulsemi og umhyggja fyrir
systur sem réði ferðinni, hann
vildi bara það besta fyrir hana.
Gunnlaugur var óvenju glæsi-
legur maður, mikið snyrtimenni,
alltaf vel til hafður og smart í
tauinu. Á sínum yngri árum var
hann afburða íþróttamaður í fót-
bolta og bar það með sér alla tíð.
Gunnlaugur barðist til mennta
og sinnti ábyrgðarmiklu starfi.
Hann var nákvæmur og vinnu-
samur og gerði kröfur um að fólk
legði sig fram. Hann var traustur
sem klettur, vildi hag allra sem
bestan og reyndist mörgum hjálp-
samur á raunastund. Ég á Gunn-
laugi margt að þakka og hann lét
mig alla tíð finna að hann væri
ánægður með mig, uppáhalds-
frænku sína eins og hann kallaði
mig oft.
Hvíl í friði, elsku frændi minn.
Björg Cortes.
Séntilmaður. Háttvísi. Þessi tvö
orð finnst mér lýsa best mínum
kæra Gunnlaugi sem ég fékk að
kalla tengdapabba í 13 ára sam-
búð minni með Jónínu dóttur
Gunnlaugs. Gunnlaugur kenndi
þeim sem nenntu að taka eftir með
sinni hæglátu framkomu. Gunn-
laugur kenndi mér m.a. að básúna
ekki hjálpsemi heldur hafa lágt
um þá hjálp sem Gunnlaugur
veitti mörgum í kringum sig í
gegnum árin.
Ég var svo heppinn að fara
nokkrum sinnum í veiðiferðir með
Gunnlaugi og þá fékk ég enn eina
kennslustundina, því þegar við
yngri mennirnir eltumst upp og
niður ár við vonarbröndur þá stóð
Gunnlaugur rólegur við sinn hyl
og landaði á annan tug fiska með-
an við eftir okkar span komum
með öngulinn í rassinum. Allt
vinnur sá sem kann að bíða.
Ein minning frá góðri stund er
ljóslifandi í mínum huga er við sát-
um saman góðglaðir og hann fór
blaðlaust, orðrétt að sjálfsögðu, og
með leikrænni tjáningu með allan
bálk Einars Ben. Í dísarhöll, en
þar er lýst hljóðfærum sinfóníu-
sveitar á einstakan hátt af ein-
stökum manni sem unni góðri tón-
list og vildi hafa nákvæmlega og
rétt eftir haft. Líf þitt var hlaðið
fallegum gildum sem þú kenndir
þeim sem í kringum þig voru með
góðu fordæmi. Þegar við hittumst
síðast fyrir u.þ.b. mánuði var af
þér dregið og mér fannst þú svara
spurningunni úr söngtextanum
„skyldi maður verða leiður á því til
lengdar að vera til“ afgerandi já.
Það er með virðingu sem ég kveð
þig, kæri Gunnlaugur, í þeirri
vissu að þú sért kominn á þinn
rétta stað við hlið Fjólu þinnar.
Farðu í friði.
Tryggvi Magnússon.
Látinn er í Reykjavík á nítug-
asta og fimmta aldursári Gunn-
laugur Lárusson, heiðursfélagi í
Knattspyrnufélaginu Víkingi frá
árinu 1990. Gunnlaugur lauk námi
frá Samvinnuskólanum og stund-
aði framhaldsnám í verslunar-
fræðum í Svíþjóð og Skotlandi. Að
námi loknu hóf hann störf hjá
Framleiðsluráði landbúnaðarins
og vann þar allan sinn starfsferil
sem skrifstofustjóri. Gunnlaugur
bar aldurinn vel og var heilsu-
hraustur alla tíð, ef undan eru skil-
in síðustu árin. Hann var mikið
Reykjavíkurbarn, enda fæddur og
uppalinn í Vesturbænum við Ás-
vallagötuna. Skaphöfnin var alltaf
mjög ljúf en hann var mikill
keppnismaður og kunni því illa að
tapa. Gunnlaugur gekk snemma
til liðs við Víking, sem þá var með
aðsetur í miðbæ Reykjavíkur.
Hann lék knattspyrnu með félag-
inu og fór í gegnum allt yngri-
flokkastarf félagsins á þeirra tíma
vísu. Þá þótti ekki tiltökumál að
leika með þriðja flokki að morgni,
með öðrum flokki eftir hádegi og
með meistaraflokki að kvöldi. Í
meistaraflokki félagsins lék Gunn-
laugur í tólf ár, í stöðu framvarðar
og jafnan fyrirliði. Hann lék tvo
landsleiki fyrir Íslands hönd á ár-
unum 1947 og 1948, á móti Svíum
og Finnum, og var þriðji Víking-
urinn frá upphafi til að komast í
landslið Íslands. Á undan honum
voru þeir Haukur Óskarsson hár-
skurðarmeistari og Brandur
Brynjólfsson lögfræðingur. Í
íþróttaheiminum skiptast á skin
og skúrir eins og í lífinu sjálfu.
Sigrar og ósigrar ganga yfir í ár-
anna rás. Gunnlaugur Lárusson
skildi þessar sveiflur manna best
og brást ævinlega við með stóískri
ró, enda gjörþekkti hann leikinn
og flest leyndarmál hans. Við sem
vorum úti á vellinum eftir að
Gunnlaugur lagði skóna á hilluna
lærðum mikið af honum. Hann átti
það til að birtast í klefanum fyr-
irvaralaust á ögurstundum, alltaf
jafn sallarólegur og jákvæður á
hverju sem gekk. Hann var alltaf
nálægur og fyrir það skal þakkað
á útfarardegi hans. Gunnlaugur
sýndi félagi sínu alla tíð mikla
ræktarsemi. Það gladdi hann því
mjög þegar Víkingi tókst að ná
fjórða sæti í efstu deild knatt-
spyrnunnar árið 2012 og leika svo
í Evrópukeppni félagsliða árið eft-
ir. Orðinn nokkuð lasburða var
hann viðstaddur leikinn á glæsi-
legum heimavelli Víkinga í Foss-
vogi. Þó að úrslit hefðu ekki orðið
sem skyldi gladdist gamli harð-
jaxlinn innilega yfir framgangi
síns félags. Á sjöunda og áttunda
áratug síðustu aldar voru miklir
uppgangstímar í sögu Knatt-
spyrnufélagsins Víkings í barn-
mörgu nýju hverfi í Reykjavík,
Smáíbúða- og Bústaðahverfinu,
en sú ákvörðun að flytja höfuð-
stöðvar félagsins úr miðbæ
Reykjavíkur áratug áður var mjög
umdeild. Ekki þarf að deila um
það í dag hvílíkt heillaspor sú
ákvörðun var fyrir félagið, en
Gunnlaugur var málinu mjög
fylgjandi. Gunnlaugur var mikill
gæfumaður í einkalífi sínu. Hann
kvæntist ágætri konu, Fjólu Gísla-
dóttur, en hún lést árið 2010. Þeim
hjónum varð fimm barna auðið,
sem öll lifa föður sinn. Þeim öllum
og fjölskyldum þeirra eru sendar
samúðarkveðjur við fráfall Gunn-
laugs Lárussonar. Við Víkingar
kveðjum aldinn höfðingja og
þökkum honum leiðsögnina.
Ólafur Þorsteinsson.
Gunnlaugur
Lárusson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Minningargreinar