Morgunblaðið - 08.01.2018, Page 21

Morgunblaðið - 08.01.2018, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Boðinn Leikfimi í fríi en byrjar aftur 15. janúar, félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13, spjallhópur Boðans kl. 15. Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl. 9, brids kl. 13. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga hjá Carynu kl. 10, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spil- að brids kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur kl. 12.30, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Grafarvogskirkju, inni í Egilshöll og frá Borgum, félagsvist kl. 13 í Borgum og tréútskurður kl. 13 á Korpúlfs- stöðum. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega vel- komnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568 2586. Stangarhylur 4, Zumba námskeið hefst kl. 10.30, leiðbeinandi Tanya. Seltjarnarnes Leir og listasmiðja Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátu og kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga salnum Skólabraut kl. 11. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sund- lauginni kl. 18.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Sumarbústaðalóðir til sölu í Vaðnesi Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með aðgangi að heitu og köldu vatni í vinsælu sumarhúsahverfi í landi Vaðness í Grímsnes- og Grafningshreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár. Allar nánari upplýsingar gefur Jón í síma 896-1864 og á facebook síðu okkar vaðnes-lóðir til sölu. Til sölu Askalind 4, Kóp. Sími 564 1864 www.vetrarsol.is 48V Lithium-ion ralaða, hlaðin Dreing 1 – 6 metrar 51cm vinnslubreidd Með Led ljósabúnaði Í léari snjómokstur ST 4851 snjóblásari Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald     ✝ GunnlaugurLárusson fæddist við Kára- stíg í Reykjavík 10. apríl 1923. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 24. desember 2017. Foreldrar Gunn- laugs voru Lárus Hansson, f. 16.12. 1891, d.14.3. 1958, innheimtumaður Reykjavíkurborgar, og Jónína Gunnlaugsdóttir, f. 30.11. 1885, d. 12.1. 1943, húsmóðir. Systkini Gunnlaugs voru Að- alsteinn, f. 27.2. 1920, d. 14.3. 1974, búfræðingur og sjómað- ur. Jóhanna, f. 11.8. 1921, d. og Margréti, f. 1959. Gunn- laugur lauk námi frá Sam- vinnuskólanum í Reykjavík. Stundaði framhaldsnám í versl- unarfræðum í Svíþjóð og Skot- landi. Að námi loknu hóf hann störf hjá Framleiðsluráði land- búnaðarins og vann þar allan sinn starfsferil sem skrif- stofustjóri. Gunnlaugur gekk snemma til liðs við Knattspyrnufélagið Vík- ing og var hann Víkingur alla sína tíð. Hann lét félagsmál mikið til sín taka, sat m.a. í aðalstjórn Vikings um árabil og í bygg- inganefnd félagsheimilisins við Hæðargarð. Var hann gerður að heiðursfélaga Víkings. Einn- ig starfaði hann fyrir KSÍ og sat m.a. í landsliðsnefnd um margra ára skeið. Útför Gunnlaugs fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi í dag, 8. janúar 2018, og hefst athöfnin kl. 13. 5.11. 2014, hús- móðir og fótaað- gerðafræðingur. Róbert, f. 1.11. 1924, d. 7.11. 2006, sjómaður. Hálfsystir Gunn- laugs samfeðra var Ástríður, f. 22.2. 1909, d. 30.5. 1996, húsmóðir í Banda- ríkjunum. Gunnlaugur kvæntist 14. september 1946 Fjólu Gísladóttur, f. 11.1. 1924, d. 21.3. 2010. Þau höfðu þá eignast tvær dætur, Stefaníu Erlu, f. 1942, og Ólöfu Kristínu, f. 1943. Síðar eignuðust þau Lárus, f. 1949, Jónínu, f. 1954, Margar minningar koma upp í hugann þegar ég hugsa um hann pabba minn sem kvaddi okkur á aðfangadag á slaginu tólf, 94 ára að aldri. Það reyndar lýsir honum mikið því nákvæmnismaður var hann, gekk ekki frá hálfunnu verki hvorki í vinnu né heldur þeim verkum sem honum var treyst fyrir og hann tók að sér. Strangur var hann í uppvexti okkar systkina. Hafði sterkar skoðanir og sagði sína meiningu sem var ekki alltaf vinsælt. En sanngjarn, hlýr og fyrstur til að rétta fram hjálparhönd ef eitthvað bjátaði á. Vildi halda utan um alla sína og mátti ekkert aumt sjá eða vita af og skipti þá ekki máli hvort um vini eða ókunnuga var að ræða, hugur og hönd vöru lögð af stað og verkin farin að tala. Smekkmaður var hann og fínn í tauinu, bar sig einstaklega vel. Fótbolta- og félagsmaður mikill og sannur Víkingur. Tónlist hafði hann alla tíð mikla unun af. Fór oft á tónleika hér heima og erlendis þegar færi gafst. Beniamino Gigli, Pavarotti, Domingo og Carreras voru í miklu uppáhaldi ásamt fjölmörgum öðr- um listamönnum. Við fjölskyldan fluttum inn í Skeiðarvog þegar ég var fimm ára en þar byggði pabbi raðhús sem við systkinin ólumst upp í og áttum heima alla okkar bernsku. Mamma var heimavinnandi húsmóðir og sá um að halda öllu gangandi þar með sóma. Pabbi vann sem skrifstofu- stjóri hjá Framleiðsluráði land- búnaðarins öll sín starfsár. Mamma og pabbi bjuggu síðan á Sléttuveginum í Reykjavík í nokkur ár. Þóttu þau mjög glæsi- leg hjón, en mamma lést árið 2010 og það var pabba mikill missir. Við pabbi áttum oft góðar stundir, spjölluðum um lífið og til- veruna og á ég eftir að sakna þeirra stunda. Dálæti hafði hann á ljóðum og var Einar Benediktsson ljóðskáld í miklu uppáhaldi, gat hann t.d. farið með ljóðið „Í Dísarhöll“ ut- anbókar og með miklum tilþrifum. Þótti það mörgum alveg ótrúlegt. Bumba er knúð og bogi dreginn, blásinn er lúður og málmgjöll slegin. Svo glatt er leikið af gripfimum drengj- um sem gneistar kveikist af fiðlunnar þvengjum. Og hljómgeislinn titrar, án ljóss og án lit- ar, ljómar upp andann, sálina hitar og brotnar í brjóstsins strengjum. Allt hneigir og rís fyrir stjórnanda stafs- ins, sem straumunum vísar til samradda hafsins, sem hastar á unn þess, sem hljómrótið magnar, sem hrærir hvern brunn þess til róms eða þagnar. Hann vaggast í liðum með list og með sniði og leikur hvern atburð á tónanna sviði, svo augað með eyranu fagnar. – (Einar Benediktsson) En hvíldin er komin eftir langa og viðburðaríka ævi. Elsku pabbi, hvíl í friði, takk fyrir allt. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Jónína. Gunnlaugur móðurbróðir minn er látinn á 95. aldursári. Það var viðbúið, hann kvaðst sáttur við líf- ið og tilbúinn að fara á vit feðra sinna. Þó er skrítið og tómlegt til þess að hugsa að nú séu þau öll farin systkinin, og við systkina- börnin orðin elsta kynslóðin. Barnæska mín er tengd fjöl- skyldunni í Skeiðarvogi órjúfan- legum böndum og þær eru ótelj- andi góðu minningarnar sem ég á þaðan. Ég leit á Skeiðarvoginn sem mitt annað heimili og fannst ég alltaf velkomin þangað. Mikill samgangur var milli heimilanna og þegar pabbi dó gistum við hjá Gunnlaugi og Fjólu dagana á eftir og þau vildu allt fyrir okkur gera. Gunnlaugur kom færandi hendi með okkar fyrsta sjónvarp og þau buðu okkur mömmu í mína fyrstu og ógleymanlegu utanlandsferð með Gullfossi. Sem unglingur var ég heilt sumar í hádegismat hjá Fjólu þegar ég vann í bókabúðinni í Álfheimum og þannig mætti lengi telja, svo greiðvikin og hjálp- söm voru Gunnlaugur og Fjóla með alla hluti. Eftir að ég sjálf eignaðist fjöl- skyldu sýndu þau okkur Andrési og dætrum okkar alltaf mikinn áhuga og velvild. Mamma og Gunnlaugur voru alla tíð náin og kærleiksrík systk- ini og mamma og Fjóla miklar vin- konur. Mömmu fannst Gunnlaug- ur heldur stjórnsamur á stundum, þegar hann vildi hafa vit fyrir henni (sem var oft), en hún sagði að í raun væri það ekki annað en hugulsemi og umhyggja fyrir systur sem réði ferðinni, hann vildi bara það besta fyrir hana. Gunnlaugur var óvenju glæsi- legur maður, mikið snyrtimenni, alltaf vel til hafður og smart í tauinu. Á sínum yngri árum var hann afburða íþróttamaður í fót- bolta og bar það með sér alla tíð. Gunnlaugur barðist til mennta og sinnti ábyrgðarmiklu starfi. Hann var nákvæmur og vinnu- samur og gerði kröfur um að fólk legði sig fram. Hann var traustur sem klettur, vildi hag allra sem bestan og reyndist mörgum hjálp- samur á raunastund. Ég á Gunn- laugi margt að þakka og hann lét mig alla tíð finna að hann væri ánægður með mig, uppáhalds- frænku sína eins og hann kallaði mig oft. Hvíl í friði, elsku frændi minn. Björg Cortes. Séntilmaður. Háttvísi. Þessi tvö orð finnst mér lýsa best mínum kæra Gunnlaugi sem ég fékk að kalla tengdapabba í 13 ára sam- búð minni með Jónínu dóttur Gunnlaugs. Gunnlaugur kenndi þeim sem nenntu að taka eftir með sinni hæglátu framkomu. Gunn- laugur kenndi mér m.a. að básúna ekki hjálpsemi heldur hafa lágt um þá hjálp sem Gunnlaugur veitti mörgum í kringum sig í gegnum árin. Ég var svo heppinn að fara nokkrum sinnum í veiðiferðir með Gunnlaugi og þá fékk ég enn eina kennslustundina, því þegar við yngri mennirnir eltumst upp og niður ár við vonarbröndur þá stóð Gunnlaugur rólegur við sinn hyl og landaði á annan tug fiska með- an við eftir okkar span komum með öngulinn í rassinum. Allt vinnur sá sem kann að bíða. Ein minning frá góðri stund er ljóslifandi í mínum huga er við sát- um saman góðglaðir og hann fór blaðlaust, orðrétt að sjálfsögðu, og með leikrænni tjáningu með allan bálk Einars Ben. Í dísarhöll, en þar er lýst hljóðfærum sinfóníu- sveitar á einstakan hátt af ein- stökum manni sem unni góðri tón- list og vildi hafa nákvæmlega og rétt eftir haft. Líf þitt var hlaðið fallegum gildum sem þú kenndir þeim sem í kringum þig voru með góðu fordæmi. Þegar við hittumst síðast fyrir u.þ.b. mánuði var af þér dregið og mér fannst þú svara spurningunni úr söngtextanum „skyldi maður verða leiður á því til lengdar að vera til“ afgerandi já. Það er með virðingu sem ég kveð þig, kæri Gunnlaugur, í þeirri vissu að þú sért kominn á þinn rétta stað við hlið Fjólu þinnar. Farðu í friði. Tryggvi Magnússon. Látinn er í Reykjavík á nítug- asta og fimmta aldursári Gunn- laugur Lárusson, heiðursfélagi í Knattspyrnufélaginu Víkingi frá árinu 1990. Gunnlaugur lauk námi frá Samvinnuskólanum og stund- aði framhaldsnám í verslunar- fræðum í Svíþjóð og Skotlandi. Að námi loknu hóf hann störf hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins og vann þar allan sinn starfsferil sem skrifstofustjóri. Gunnlaugur bar aldurinn vel og var heilsu- hraustur alla tíð, ef undan eru skil- in síðustu árin. Hann var mikið Reykjavíkurbarn, enda fæddur og uppalinn í Vesturbænum við Ás- vallagötuna. Skaphöfnin var alltaf mjög ljúf en hann var mikill keppnismaður og kunni því illa að tapa. Gunnlaugur gekk snemma til liðs við Víking, sem þá var með aðsetur í miðbæ Reykjavíkur. Hann lék knattspyrnu með félag- inu og fór í gegnum allt yngri- flokkastarf félagsins á þeirra tíma vísu. Þá þótti ekki tiltökumál að leika með þriðja flokki að morgni, með öðrum flokki eftir hádegi og með meistaraflokki að kvöldi. Í meistaraflokki félagsins lék Gunn- laugur í tólf ár, í stöðu framvarðar og jafnan fyrirliði. Hann lék tvo landsleiki fyrir Íslands hönd á ár- unum 1947 og 1948, á móti Svíum og Finnum, og var þriðji Víking- urinn frá upphafi til að komast í landslið Íslands. Á undan honum voru þeir Haukur Óskarsson hár- skurðarmeistari og Brandur Brynjólfsson lögfræðingur. Í íþróttaheiminum skiptast á skin og skúrir eins og í lífinu sjálfu. Sigrar og ósigrar ganga yfir í ár- anna rás. Gunnlaugur Lárusson skildi þessar sveiflur manna best og brást ævinlega við með stóískri ró, enda gjörþekkti hann leikinn og flest leyndarmál hans. Við sem vorum úti á vellinum eftir að Gunnlaugur lagði skóna á hilluna lærðum mikið af honum. Hann átti það til að birtast í klefanum fyr- irvaralaust á ögurstundum, alltaf jafn sallarólegur og jákvæður á hverju sem gekk. Hann var alltaf nálægur og fyrir það skal þakkað á útfarardegi hans. Gunnlaugur sýndi félagi sínu alla tíð mikla ræktarsemi. Það gladdi hann því mjög þegar Víkingi tókst að ná fjórða sæti í efstu deild knatt- spyrnunnar árið 2012 og leika svo í Evrópukeppni félagsliða árið eft- ir. Orðinn nokkuð lasburða var hann viðstaddur leikinn á glæsi- legum heimavelli Víkinga í Foss- vogi. Þó að úrslit hefðu ekki orðið sem skyldi gladdist gamli harð- jaxlinn innilega yfir framgangi síns félags. Á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar voru miklir uppgangstímar í sögu Knatt- spyrnufélagsins Víkings í barn- mörgu nýju hverfi í Reykjavík, Smáíbúða- og Bústaðahverfinu, en sú ákvörðun að flytja höfuð- stöðvar félagsins úr miðbæ Reykjavíkur áratug áður var mjög umdeild. Ekki þarf að deila um það í dag hvílíkt heillaspor sú ákvörðun var fyrir félagið, en Gunnlaugur var málinu mjög fylgjandi. Gunnlaugur var mikill gæfumaður í einkalífi sínu. Hann kvæntist ágætri konu, Fjólu Gísla- dóttur, en hún lést árið 2010. Þeim hjónum varð fimm barna auðið, sem öll lifa föður sinn. Þeim öllum og fjölskyldum þeirra eru sendar samúðarkveðjur við fráfall Gunn- laugs Lárussonar. Við Víkingar kveðjum aldinn höfðingja og þökkum honum leiðsögnina. Ólafur Þorsteinsson. Gunnlaugur Lárusson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.