Morgunblaðið - 08.01.2018, Page 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018
Skólaskáld eru fleiri en maður kannski heldur. Sjálfum finnstmér gaman að skrifa sögur og yrkja ljóð, hvort sem þau erumódernísk og rómantísk. Já, sjálfsagt má samkvæmt því segja
að ég sé gömul sál,“ segir Jón Hallmar Stefánsson sem er tvítugur í
dag. Hann er nemandi við Menntaskólann á Akureyri hvaðan hann
brautskráist í sumar. „Ég er alveg óráðinn um hvað ég tek mér fyrir
hendur eftir stúdentspróf og tek mér sennilega frí frá skóla næsta
vetur. En auðvitað held ég áfram; sálfræði er eitt af því sem kemur til
greina og svo blaðamennska. Sérstaklega heillar mig að verða frétta-
ritari sem fer um erlendis og segir tíðindi af vettvangi mikilla at-
burða.“
Foreldrar Jóns Hallmars eru Stefán Þór Hallgrímsson lög-
reglumaður á Húsavík og Heiðrún Emelía Jónsdóttir lögmaður í
Garðabæ.
„Mig langaði að prófa eitthvað nýtt og fór því í menntaskóla fyrir
norðan. Í vetur leigi ég íbúð með félaga mínum og að reka lítið heimili
og standa á eigin fótum er heilmikill lærdómur. Ég er til dæmis orð-
inn ljómandi góður í því að elda kjúkling,“ segir Jón Hallmar sem
núna er í jólafríi fyrir sunnan. Er þó á norðurleið en kennsla í MA eft-
ir jólafrí hefst 16. janúar. Í fríinu hefur afmælisbarnið unnið í máln-
ingavöruverslun í Reykjavík, en eins og íslenskra ungmenna er háttur
hefur hann prófað margt og meðal annars unnið á golfvelli og á bíla-
leigu. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Menntaskólanemi Langaði að prófa eitthvað nýtt, segir Jón Hallmar.
Skólaskáldið sem
eldar kjúklinginn
Jón Hallmar Stefánsson er tvítugur í dag
Þ
uríður fæddist í Reykja-
vík 8.1. 1948 og ólst þar
upp. Hún lauk prófi frá
Hjúkrunarskóla Íslands
1973, stundaði fram-
haldsnám í hand- og lyflækninga-
hjúkrun 1983 og lauk diplómaprófi
frá Norræna heilbrigðisháskólanum
1992. Hún var í varastjórn og stjórn
HFÍ 1973-78, kjararáði HFÍ og
fræðslunefnd BSRB 1976-79.
Þuríður var hjúkrunarfræðingur
og deildarstjóri á Borgarspítalanum
1973-80, hjúkrunarfræðingur við
Heilsuverndarstöðina í Reykjavík
og Heilsugæslustöðina Asparfelli
1980-82 og við Sjúkrahúsið á Egils-
stöðum 1983-85. Hún var hjúkr-
unarforstjóri Heilsugæslustöðv-
arinnar á Egilsstöðum 1985-88,
hjúkrunarfræðingur þar 1988-90,
fræðslufulltrúi Krabbameinsfélags
Íslands 1990-96 og hjúkrunarfræð-
ingur við Heilsugæslustöðina á Eg-
ilsstöðum og Heilbrigðisstofnun
Austurlands 1994-99.
Þuríður sat í bæjarstjórn Egils-
staða 1990-98, var forseti bæjar-
stjórnar 1994-98, var varaþingmað-
ur fyrir Alþýðubandalagið 1992-98,
þingmaður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs á Austurlandi 1999-
2003, og þingismaður NA-kjör-
dæmis fyrir VG 2003-2013, var þing-
flokksformaður VG 2011, sat í heil-
brigðis- og trygginganefnd,
landbúnaðarnefnd, heilbrigðisnefnd
og var formaður hennar 2009-2011,
sat í félags- og tryggingamálanefnd,
menntamálanefnd, fjárlaganefnd,
umhverfisnefnd, þingskapanefnd,
allsherjar- og menntamálanefnd,
umhverfis- og samgöngunefnd, vel-
ferðarnefnd, utanríkismálanefnd,
sat í Íslandsdeild Alþjóðaþing-
mannasambandsins og var formaður
hennar 2009-2013, sat í Íslandsdeild
Evrópuráðsþingsins og var formað-
ur hennar 2011-2013.
Þuríður var formaður Krabba-
meinsfélags Héraðssvæðis 1986-
2000, sat í Ferðamálaráði 1989-93,
Þuríður Backman, hjúkrunarfræðingur og fyrrv. alþm. – 70 ára
Fjölskyldan Þuríður með eiginmanni, dóttur, sonum, tengadóttur og barna-
barni í Berlín á því herrans ári 2003.
Ræktar garðinn sinn
eins og Birtingur
Brosmild og sæl Þuríður og Björn í sínum glæsilegu þjóðbúningum.
Þorlákshöfn Arney Eva fædd-
ist 24. janúar 2017 kl. 19.03.
Hún vó 4.135 g og var 51 cm
löng.
Foreldrar hennar eru Anna
Ragnarsdóttir og Haukur Atli
Hallgrímsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.