Morgunblaðið - 08.01.2018, Side 23
var varamaður í Tryggingaráði
1995-99, sat í stjórn Listskreyt-
ingasjóðs 1997-99, í tóbaks-
varnanefnd 1997-99, í stjórn
Krabbameinsfélags Íslands 1997-99,
í verkefnisstjórn Staðardagskrár 21
1998-2000, í Þingvallanefnd 2010 og
2011-2013 og var formaður Garð-
yrkjufélags Íslands 2013-2017.
Þuríður og Björn, eiginmaður
hennar, fluttu að austan er hún lét af
þingmennsku 2013: „Þá keyptum við
hús með stórri lóð í Kópavogi en þar
höfum við verið að koma okkur fyrir
í rólegheitum og rækta garðinn.“
Þuríður hefur alla tíð haft gaman
af ferðalögum og að kynnast nýjum
aðstæðum: „Á síðastliðnu hausti var
ég í mánuð í Palestínu og vann sem
sjálfboðaliði og stuðningsmaður
bænda sem búa í nágrenni land-
tökubyggða eða hernuminna svæða
við ólífutínslu. Þessir ólífubændur
eiga erfitt með að ná uppskerunni,
þar sem þeir verða fyrir stöðugu
ónæði og árásum frá landtöku-
byggðunum, þeir eru frekar látnir í
friði við tínsluna ef þeir njóta að-
stoðar erlendra sjálfboðaliða, sem
taka myndir og semja skýrslur um
ólöglegar aðgerðir landtökufólks,
lögreglu og herliðs.
Að öðru leyti nýt ég þess að vera
komin á eftirlaun og hafa meiri tíma
fyrir foreldra mína og fjölskyldu.“
Fjölskylda
Þuríður giftist 6.1. 1973 Birni
Kristleifssyni, f. 1.12. 1946, arkitekt.
Foreldrar hans voru Kristleifur
Jónsson, 18.11. 1898, d. 29.1. 1978,
vegaverkstjóri, og Sigríður Þóra
Jensdóttir, f. 27.8. 1910, d. 11.7.
1995.
Fyrri sambýlismaður Þuríðar:
Bjarni K. Sívertsen, f. 16.11. 1946,
tæknifræðingur.
Börn Þuríðar eru: 1) Ragnheiður
Sívertsen, f. 28.3.1966, íþróttakenn-
ari í Kópavogi en maður hennar er
Hilmar Sigurðsson vélstjóri og eru
börn þeirra Tinna Björk, f. 23.3.
1992, og Hildur Sif, f. 26.11. 1996; 2)
Kristleifur Björnsson, f. 12.11. 1973,
myndlistamaður í Reykjavík og er
dóttir hans Ronja Þuríður, f. 12.2.
2002, og 3) Þorbjörn Björnsson, f.
28.6. 1978, sviðslistamaður í Berlín.
Bróðir Þuríðar er Jón Rúnar
Backman, f. 6.1. 1951, húsasmiður í
Garðabæ en kona hans er Þóra Elín
Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Foreldrar Þuríðar eru Ernst Fri-
dolf Backman, f. 21.10. 1920, íþrótta-
kennari, og Ragnheiður Jónsdóttir,
f. 10.4. 1928, sjúkraliði.
Þuríður
Backman
Guðrún Ólína Sveinbjörnsdóttir
húsfr. í Haga, Borgum og á Gunnarsstöðum
Friðfinnur Kristjánsson
b. í Haga og Borgum í Vopnafirði,
síðar á Gunnarsstöðum á Langanesi
Ólöf Friðfinnsdóttir
húsfr. í Berjanesi
Jón Einarsson
trésmiður í Berjanesi í
Vestmannaeyjum
Ragnheiður Jónsdóttir
sjúkraliði í Garðabæ
Einar Einarsson
b. á Norður-Fossi í Mýrdal
Sigríður
Helgadóttir
húsfr. í Rvík
Magnús
Óskar Guð-
mundsson
Guðmundur
Magnússon
leikari
Þorsteinn
Guðmundsson
leikari
Halldór Sigurður
Backman húsasmíðam.
á Akranesi og í RvíkInga J. Backman söngkona
Arnmundur S.H. Backman hrl. í Rvík
Edda Heiðrún Backman leikkona,
leikstjóri og myndlistarkona
Ernst Jóhannes Backman auglýsingateiknari
Einarína Eyrún
Helgadóttir
húsfr. í
Vestmanna-
eyjum
Álfheiður Ingadóttir
fyrrv. alþm
Ingi Ragnar Ingason
kvikmyndagerðarmaður
Ingi R.
Helgason hrl.
Halldóra Sigurðardóttir
húsfr. á Kvíavöllum
Helgi Jónsson
b. og sjóm. á Kvíavöllum á Miðnesi
Jónína Salvör Helgadóttir Backman
húsfr. í Rvík
Ernst Fridolf Backman
verkam. í Rvík
Móðir sænsk, nafn
hennar ekki þekkt
Ernst F. Backman
úr Dölunum í Svíþjóð
Úr frændgarði Þuríðar Backman
Ernst Fridolf Backman
íþróttakennari í Garðabæ
Gunnar Guttorms-
son fyrrv. forstjóri
Einkaleyfastof-
unnar
Loftur
Guttormsson
prófessor
Guðrún M.
Pálsdóttir
húsfr. á Hall-
orms stað
Hjörleifur
Gutt ormsson
fyrrv. alþm.
og ráð herra
Jón Helgason
alþm. og
ráðherra í
Seglbúðum
Gyðríður
Pálsdóttir
húsfr. í
Seglbúðum
Margrét
Elíasdóttir
húsfr. í
Þykkvabæ
Þuríður Elíasdóttir
húsfr. á Norður-Fossi
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Þýska merkið Greiff framleiðir
hágæða fatnað með áherslur á
nútíma hönnun, þægindi og
fjölbreytt vöruúrval.
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
STARFSMANNAFATNAÐUR
FYRIR HÓTEL
OG VEITINGAHÚS.Sigurður fæddist á Hofi íVopnafirði 8.1. 1912 en ólstupp á Teigi, sonur Þórarins
Stefánssonar, bónda þar, og Snjó-
laugar Sigurðardóttur.
Eiginkona Sigurðar var Inga
Backlund frá Svíþjóð og eignuðust
þau tvö börn, Snjólaugu og Sven.
Sigurður lauk stúdentsprófi frá
MA 1931, cand.phil.-prófi frá Hafn-
arháskóla, fil.kand.-prófi í almennri
jarðfræði, bergfræði, landafræði og
grasafræði frá Stokkhólmsháskóla,
og fil.lic.-prófi í landafræði og dokt-
orsprófi þaðan 1944.
Þórarinn var dósent í landafræði
við Stokkhólmsháskóla 1944, vann
að rannsóknum á Vatnajökli sumrin
1936-38 og í Þjórsárdal 1939, sinnti
rannsóknarstörfum í Svíþjóð og
vann við ritstjórn Bonniers Kon-
versationslexikon 1939-45, var kenn-
ari við MR 1945-65, prófessor í
landafræði og forstöðumaður landa-
fræðideildar háskólans í Stokkhólmi
1950-51 og 1953 og prófessor í jarð-
fræði og landafræði við HÍ frá 1968,
vann við jökla- og eldfjallarann-
sóknir hér á landi frá 1945 og flutti
fjölda fyrirlestra víða um heim.
Sigurður var einn virtasti vísinda-
maður Íslendinga. Hann gerði
gjóskulagarannsóknir að mik-
ilvægum þætti í fornleifafræði.
Skömmu eftir lát hans ákváðu Al-
þjóðasamtök um eldfjallafræði
(IAVCEI) að heiðra minningu hans
með því að kenna æðstu viðurkenn-
ingu sína við hann. Hann var virkur
náttúruverndarmaður, formaður
Hins íslenska náttúrufræðifélags,
ritstjóri Náttúrufræðingsins, starf-
aði í Jöklarannsóknarfélaginu, sat í
stjórn Norrænu eldfjallastöðv-
arinnar, Náttúruverndarráði, for-
maður Jarðfræðafélagsins og forseti
Ferðafélags Íslands. Hann var glað-
sinna og prýðilega hagmæltur,
samdi fjölda vinsælla söngtexta, svo
sem Þórsmerkurljóð, Vorkvöld í
Reykjavík og Að lífið sé skjálfandi
lítið gras. Þá þýddi hann texta eftir
Bellman, gaf út bók um hann og tók
þátt í starfsemi Vísnavina.
Sigurður lést 8.2. 1983.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Þórarinsson
90 ára
Kristrún Daníelsdóttir
85 ára
Ásta Guðmundsdóttir
80 ára
Hulda Hatlemark
Ólafur Ingvi Ólafsson
Steinunn Aðólfsdóttir
75 ára
Elías Snæland Jónsson
Gísli J. Ellerup
Halldór Gíslason
70 ára
Ásdís L. Stroebel
Snorradóttir
Erna Guðrún Árnadóttir
Gestur O. Karlsson
Gérard Roger
Lemarquis
Hannes Guðmundsson
Hreiðar Jónsson
Viktor Már Gestsson
Þorbjörg Kristvinsdóttir
Þuríður Backman
60 ára
Björn Valdimarsson
Edda Björk Kristinsdóttir
Elínbet Rögnvaldsdóttir
Elmars Berzkalns
Freyja Bergsveinsdóttir
Guðmundur Sigurður
Magnússon
Halldór Pétursson
Jakob Rúnarsson
Nimrod Libalib Balsaki
Ólafía Þórey Sigurðardóttir
Ólöf Aðalheiður Elíasdóttir
Sigríður María Jónsdóttir
50 ára
Áslaug Ólöf Kolbeinsdóttir
Dagbjört Þórunn
Þráinsdóttir
Dario Kozina
Guðrún Elísabet
Árnadóttir
Helena Eiríksdóttir
Jónberg V. Hjaltalín
Nína Hrönn
Guðmundsdóttir
Sigríður M. Ingimarsdóttir
Þórður Pálsson
40 ára
Agnieszka Hirsz
Anna Turowska
Basant Raj Shrestha
Borgþór Guðmundsson
Hafsteinn Már Sigurðsson
Hafþór Freyr Víðisson
Hlynur Ólafsson
Jónas Svanur
Albertsson
Rita Mieciute
Snorri Petersen
Stefán Lenar Rúnarsson
Tomasz Piechowski
30 ára
Aleksandra Rudic
Amanda Rosa Egholm
Aníta Þórsdóttir
Anna Karakulina
Arturs Cirulis
Daniel Bay Jensen
Elín Friðriksdóttir
Guðni Þór Grönvold
Jónsson
Helgi Siemsen
Sigurðarson
Jón Gunnar Ólafsson
Lita Mallari de Jesus
Móeiður Sif Skúladóttir
Rebekka Katrínardóttir
Sigríður Helga
Þórhallsdóttir
Sigurgeir Bárðarson
Snædís Karlsdóttir
Tim Sonnemann
Til hamingju með daginn
30 ára Snædís ólst upp í
Skagafirði og Reykjavík,
býr þar, var að ljúka BA-
prófi í lögfræði frá HR og
er í fæðingarorlofi.
Maki: Úlfar Kári Jóhanns-
son, f. 1992, nemi í vél-
stjórn við Tækniskólann.
Dætur: Margrét, f. 2009,
og ónefnd dóttir, f. 2017.
Foreldrar: Gerður Hauks-
dóttir, f. 1958, húsnæð-
isráðgjafi hjá Íslands-
banka, og Karl Bergmann,
f. 1952, bifvélavirki.
Snædís
Karlsdóttir
30 ára Sigurgeir ólst upp
Hafnafirði, býr þar, lauk
ML-prófi í lögfræði frá HR
og er lögmaður hjá LEX.
Maki: Sandra Björk Æv-
arsdóttir, f. 1988, sjóðs-
stjóri hjá Landsbréfum.
Dóttir: Aníta Eik Sig-
urgeirsdóttir, f. 2014.
Foreldrar: Bárður Sig-
urgeirsson, f. 1955, húð-
læknir, búsettur í Hafn-
arfirði, og Jenný
Axelsdóttir, f. 1958, d.
2016, félagsfræðingur.
Sigurgeir
Bárðarson
30 ára Rebekka rekur
verslun á Hvolsvelli.
Maki: Magnús Haralds-
son, f. 1977, kaupmaður
og leigubílstjóri.
Börn: Einar Logi, f. 2000
(stjúpsonur) Kristófer
Örn Ívarsson, f. 2013
(fóstursonur) og Daníel
Ágúst, f. 2015.
Foreldrar: Katrín Jónína
Óskarsdóttir, f. 1953, og
Kolbeinn Andrésson, f.
1949. Stjúpfaðir: Eysteinn
F. Arason, f. 1938.
Rebekka
Katrínardóttir