Morgunblaðið - 08.01.2018, Síða 32
MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 8. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Rúta fór á hliðina á Mosfellsheiði
2. Ólykt og veikindi um borð
3. Í jólaboði skömmu fyrir hvarfið
4. Lá öskrandi á akbraut
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fyrsta Kúnstpása ársins fer fram á
morgun kl. 12.15 í Norðurljósum í
Hörpu. Þá koma fram Kristján Jó-
hannesson barítónsöngvari og Bjarni
Frímann Bjarnason píanóleikari og
flytja ballöðuna Kafarinn (Der Tauc-
her) eftir Schubert við ljóð Schillers.
Verkið samanstendur af 27 erindum
og fjallar um ógnarafl sjávarins gegn
ungum og hugprúðum riddara. Tón-
leikarnir verða um 30 mínútur að
lengd og eru allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Kristján býr í Vínarborg þar sem
hann hefur verið við nám og störf.
Bjarni Frímann er nýráðinn tónlistar-
stjóri Íslensku óperunnar og stjórn-
aði síðast uppfærslu ÍÓ á Toscu.
Kafarinn eftir Schu-
bert í Kúnstpásu
Jón Ólafsson og söngkonan Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir, jafnan köll-
uð Hansa, munu leika saman og
syngja og spjalla milli laga í Salnum í
Kópavogi á fimmtudaginn kl. 20.30.
Viðburðurinn er hluti af röð Jóns, Af
fingrum fram, sem hóf göngu sína í
formi sjónvarpsþátta á RÚV en færðist
svo yfir á svið Salarins þar sem hún
hefur verið í rúm níu ár. Jóhanna Vig-
dís vakti athygli fyrir sönghæfileika
sína í uppfærslu Balt-
asar Kormáks á Hárinu
árið 1994 í Íslensku
óperunni og hélt í
kjölfarið í leiklist-
arnám og er nú
orðin helsta söng-
leikjastjarna Borg-
arleikhússins,
eins og segir á
vef Salarins.
Af fingrum fram með
Jóhönnu og Jóni
Á þriðjudag Suðaustanhvassviðri eða stormur aðfaranótt þriðju-
dags, en lægir nokkuð með morgninum. Talsverð rigning, en úr-
komulítið norðan heiða. Hiti 1 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 8-13 síðdegis og sums staðar
skúrir eða él, en gengur í suðaustanhvassviðri eða storm í kvöld
með talsverðri rigningu, fyrst sunnanlands. Hiti um frostmark.
VEÐUR
„Íslenska liðið gæti fengið
að kenna á eigin bragði ef
leikmenn verða ekki fljótari
að stilla upp í vörnina. Hluti
vandans er vitaskuld sá að
nokkrir leikmanna liðsins
eru ekki framúrskarandi
varnarmenn,“ skrifar Krist-
ján Jónsson eftir annað
stórt tap Íslands gegn
Þýskalandi fyrir Evrópu-
mótið í handbolta. Ísland
mætir Svíþjóð í fyrsta leik á
EM á föstudag. » 2
Á EM með tvö stór
töp í farteskinu
Línur tóku aðeins að skýrast í hinni
annars jöfnu Dominos-deild karla í
körfubolta í gærkvöld. Fjögur efstu
liðin fögnuðu sigri hvert um sig, og
eru Haukar, KR og ÍR því áfram efst
og jöfn að stigum eftir 13 leiki. Þór
Akureyri, sem er í fallsæti, setti tals-
verða pressu á liðin fyrir ofan sig, Þór
Þ. og Val, með óvæntum sigri í
spennuleik í Keflavík. »4
Þórsarar unnu í Keflavík
og toppliðin fögnuðu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Svavar Garðarsson úr Búðardal í
Dalabyggð var nýlega valinn Vest-
lendingur ársins 2017 af héraðs-
fréttablaðinu Skessuhorni. Hlaut
Svavar langflestar tilnefningar í
kosningu íbúa á Vesturlandi.
Skessuhorn hefur nú staðið fyrir
valinu á Vestlendingi ársins í tutt-
ugu skipti eða alveg síðan blaðið
kom fyrst út. Í umsögnum þeirra
sem greiddu Svavari atkvæði sitt er
tekið fram að hann hafi lagt fram
hundruð klukkustunda í sjálfboða-
starfi við að fegra og bæta um-
hverfið á heimaslóðum og svo beitti
Svavar sér fyrir því að selkópar úr
Húsdýragarðinum yrðu fluttir í
laug í Búðardal. Að sögn Svavars
hófust samskipti hans við Hús-
dýragarðinn síðasta sumar, en
garðurinn varð að láta kópana af
hendi vegna plássleysis.
„Ég var bara búinn að senda
þeim bréf snemma í sumar og óska
eftir þeim. Þeir þurftu að losa sig
við kópana eins og þeir hafa gert á
hverju ári vegna plássleysis og vildi
ég taka við þeim og fóstra þá hér,“
segir Svavar í samtali við Morgun-
blaðið.
Óskar eftir undanþágu
Kópunum hefði verið lógað hefði
Svavar ekki tekið við þeim en hann
hefur unnið að því að fá undanþágu
frá ráðherra til þess að sleppa þeim
lausum en lög um velferð dýra
bannar slíkt. „Þau [Húsdýragarð-
urinn] voru búin að reyna að fara
þessa leið en fengu lítil svör. Það
hafa venjulega fæðst tveir kópar á
hverju sumri í Húsdýragarðinum,“
segir Svavar sem vonar að nýr ráð-
herra taki málið til greina. „Ég er
búinn að skrifa að minnsta kosti
tvisvar til ráðuneytisins en síðan þá
hafa orðið ráðherraskipti og þetta
er sjálfsagt í einhverju ferli, en ég
ætla nú að taka þetta upp aftur og
skrifa bréf til Kristjáns Þórs Júl-
íussonar, því hann hefur ekki komið
að þessu áður.“ Kóparnir fá mat
tvisvar til fjórum sinnum á dag og
segir Svavar að þeir njóti sín vel í
Búðardal. „Þeir eru endalaust á
sundi eða skutla sér upp á bakk-
ann. Um leið og þeir fara upp á
bakkann myndast svell og þeir
leika sér gjarnan að því að renna
sér á því.“
Hann segir einnig að margir sem
leggja leið sína vestur komi við og
skoði kópana. Hann vonast til þess
að geta sleppt þeim lausum sem
fyrst og segir það furðulegt ef eigi
að lóga þeim þegar selastofninn
hefur hrunið síðustu ár.
Vestlendingur ársins elur seli
Skessuhorn
velur Vestlending
ársins í 20. sinn
Ljósmynd/Steinunn Matthíasdóttir
Í góðu yfirlæti Svavar segir kópana tvo njóta sín í Búðardal. Þeir fá mat tvisvar til fjórum sinnum á dag.
Í lögum um velferð dýra frá 2013, nr. 55/2013, sem leystu af hólmi dýra-
verndarlögin, er að finna ákvæði sem segir að óheimilt sé að sleppa dýr-
um sem hafa alist upp hjá mönnum út í náttúruna í þeim tilgangi að þau
verði þar til frambúðar. Eina undantekningin á þessu eru seiði og fiskar.
Svavar hefur óskað eftir því við landbúnaðarráðuneytið að hægt sé að fá
undanþágu fyrir kópana tvo. Hann segir að nauðsynlegt sé að gera grein-
armun á dýrum í þessu samhengi.
„Það er enginn greinarmunur gerður á kanínum sem sleppt er úr
heimahúsi, fjölga sér hratt og valda skemmdum í kirkjugörðum og tveim-
ur saklausum selkópum frá einum húsdýragarði,“ segir Svavar.
Óheimilt að sleppa dýrum
LÖG UM VELFERÐ DÝRA NR. 55/2013
Haukakonur fögnuðu góðum sigri á
Stjörnunni, 82:76, þegar keppni í
Dominos-deildinni í körfubolta hófst
að nýju um helgina eftir jólafrí. Hauk-
ar léku þó án Helenu Sverrisdóttur
sem var lánuð til sló-
vakíska liðsins
Good Angels
Kosice. Valur
styrkti
stöðu sína á
toppnum.
»6
Unnu góðan sigur á
Stjörnunni án Helenu