Morgunblaðið - 09.01.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.01.2018, Qupperneq 4
 Þverpólitísk samstaða um frumvarp Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Stefnt er að því að frumvarp um lækkun kosningaaldurs til sveitar- stjórna úr 18 í 16 ár verði að lögum á yfirstandandi þingi. Að því standa 15 þingmenn úr öllum þingflokkum á Alþingi og verði frumvarpið lög- fest fyrir vorið munu aldursmörk kosningaréttar í sveitarstjórnar- kosningunum 26. maí næstkomandi verða við 16 ára aldur í stað 18 ára eins og nú er. Fá þá nærri því 9.000 manns á þessum aldri að kjósa í fyrsta skipti. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins sem lagt var fram á Alþingi fyrir jól og er nú til með- ferðar í stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd. „Við erum nokkuð bjartsýn og vonum að það náist að ljúka þessu í tæka tíð fyrir kosningarnar í vor,“ segir hann. Ef stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd nær að ljúka sinni vinnu innan ekki mjög langs tíma þá er lækkun kosningaaldursins vel framkvæmanleg fyrir sveitarstjórn- arkosningarnar í vor. Þingmál þetta hefur áður verið lagt fram en þá náðist ekki að ljúka umfjöllun um það. Síðast var sams- konar frumvarp lagt fram sl. haust og var Katrín Jakobsdóttir, núver- andi forsætisráðherra, fyrsti flutn- ingsmaður þess. Fram kemur í greinargerð að fyrri mál þessa efnis hafa miðað að því að lækka kosningaaldur almennt úr 18 árum í 16 ár, sem krefst þess að gerðar séu breytingar á 33. gr. stjórnarskrárinnar. „Hér er hins vegar lagt til að stíga skrefið til hálfs með því að breyta kosninga- aldri í kosningum til sveitarstjórna sem krefst aðeins einfaldrar laga- breytingar,“ segir í greinargerð. Þingnefndin hefur óskað eftir um- sögnum frá á fjórða hundrað aðilum en umsagnarfresturinn rennur út 19. janúar nk. Samband íslenskra sveitarfélaga er að vinna að því að fá þann frest lengdan svo að leggja megi málið fyrir næsta stjórnarfund 26. janúar en í umfjöllun á vefsíðu sambandsins er óskað viðbragða frá sveitarstjórnum fyrir þann fund. Andrés Ingi bendir á að í sumum löndum hafi lækkun kosningaaldurs verið tekin í skrefum eins og nú er lagt til. „Almennt heyrist mér fólk vera opið fyrir því að láta á þetta reyna. Við höfum haldið því á lofti m.a. þegar við ræðum um þetta við ungt fólk og börn sem þetta kemur til með að ná til, að það þarf að efla fræðslu á öllum stigum. Hvort sem þetta frumvarp verður samþykkt eða ekki þarf að tryggja að lýðræð- isfræðslan í grunnskólum sé eins góð og unnt er.“ Bjartsýn á að kosningaaldur lækki í 16 ár í vor 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018 aðallega fólgin í því að þurfa að koma fyrir réttinn. Það er hin eig- inlega refsing,“ segir Rakel en markmið ákvæðisins er að reyna að höggva í eftirspurnarhlið vændis. Þá kemur fram í ritgerðinni að sektir fyrir vændiskaup á Íslandi eru afar lágar. Í öllum málunum frá 2013 var refsing fyrir ein vænd- iskaup ákvörðuð 80.000 kr. fésekt og árið 2014 var fésektin 100.000 kr. en sem fyrr segir voru 78 sak- fellingar á þessum tveimur árum. Þá var 25.000 kr. algeng fjárhæð sem greidd er fyrri vændið. Kemur fram í rannsóknum Rakelar að meðalaldur vændiskaupenda á Ís- landi var rétt undir fertugu, aðeins hærri en í Svíþjóð. Aldursbil kaup- enda var allt frá 18 til 78 ára. anda fram og þar eru ekki lokuð þinghöld. Það eru bara lokuð þing- höld vegna brotaþola í Svíþjóð.“ Í ritgerðinni kemur einnig fram að enginn hæstaréttardómur hefur fallið þar sem reynir einvörðungu á 1. mgr. 206. hgl. en nokkrir þar sem reynir á önnur brot eins og nauðgun samhliða vændiskaupum. Varnaðaráhrifin skerðast Rakel segir að málsmeðferð á Ís- landi í vændismálum sé gagnrýn- isverð en bæði eru þinghöld lokuð og svo eru dómar ekki birtir og tel- ur hún slíkt hafa neikvæð áhrif á varnaðaráhrifin sem felast í ákvæð- inu. „Rannsóknir sýna í Svíþjóð að þeim sem eru dæmdir finnst ekkert mál að fá sektina en refsingin er Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Rúmlega þrjú hundruð Íslendingar leituðu sér læknismeðferðar erlendis árið 2017 og fengu kostnaðinn niður- greiddan af Sjúkratryggingum Ís- lands (SÍ). Samkvæmt tilskipun Evrópusam- bandsins (ESB) um heilbrigðisþjón- ustu yfir landamæri, svokallaðri landamæratilskipun sem tók gildi 1. júní 2016, á fólk innan aðildarríkja EES rétt á að sækja sér heilbrigðis- þjónustu til annarra aðildarríkja og fá endurgreiddan útlagðan kostnað sem samsvarar því að þjónusta hefði verið veitt í heimalandi þess. Árið 2017 voru samþykktar 253 umsóknir samkvæmt þeirri tilskipun. Af þeim falla 56 umsóknir undir 2. gr. reglu- gerðarinnar. Þar er um að ræða þjónustu sem er í boði á Íslandi en fólk velur að fá hana erlendis. Til að fá aðgerðina niðurgreidda þarf að fá samþykki frá SÍ fyrirfram. Þrjátíu og þrjár þessara umsókna falla undir 9. grein um fyrirframsamþykki Sjúkratrygginga um þátttöku í kostnaði en sú læknismeðferð er ekki endilega í boði hér á landi. Þá eru 164 umsóknanna 2017 vegna nauðsynlegrar læknisþjón- ustu vegna tímabundinnar dvalar er- lendis, innan aðildarríkja EES. Frá 1. júní 2016 til ársloka voru slíkar umsóknir 39, langflestar vegna bráðameðferðar á Spáni. Árið 2016 nýttu fjórtán einstaklingar í viðbót sér læknisþjónustu vegna landa- mæratilskipunarinnar, samkvæmt 2. og 9. gr. Áframhaldandi aukning 2018 Læknismeðferðir eru greiddar að fullu af SÍ ef beðið hefur verið lengur en í 90 daga eftir aðgerð hér heima og einstaklingurinn velur að bíða ekki lengur og sækja sér læknis- þjónustuna erlendis. 56 einstak- lingar fengu niðurgreiddar slíkar biðtímaaðgerðir árið 2017. Stærsti hluti þeirra aðgerða voru liðskipti. Nauðsynlegt er að afla samþykkis SÍ fyrir aðgerðinni áður en haldið er út. Samkvæmt upplýsingum frá SÍ er 90 daga biðtími einungis viðmiðunar- biðtími og hver og ein umsókn yfir- farin af fagráði SÍ. Ef mál er sam- þykkt þá er greiddur ferðakostnað- ur, dagpeningar, meðferðar- kostnaður og mögulegur fylgdar- mannskostnaður. Árið 2016 fóru fimm einstaklingar í slíkar biðtíma- aðgerðir erlendis. Ljóst er að mikil fjölgun var á þeim sem leituðu sér læknisþjónustu erlendis bæði á grundvelli landa- mæratilskipunarinnar og biðtíma- ákvæðisins árið 2017. Búist er við áframhaldandi fjölgun á þessu ári, samkvæmt upplýsingum frá SÍ. Fleiri leita sér lækninga erlendis  309 Íslendingar leituðu sér læknismeðferðar erlendis árið 2017 á grundvelli landamæratilskipunar ESB og biðtímaákvæðis  56 fóru út eftir að hafa beðið eftir aðgerð hér heima í 90 daga eða lengur Læknisþjónusta » Árið 2017 voru samþykktar 253 umsóknir samkvæmt til- skipun ESB um heilbrigðis- þjónustu yfir landamæri, svo- kallaðri landamæratilskipun sem tók gildi 1. júní 2016. » Einstaklingur getur valið að sækja sér læknisþjónustu er- lendis ef hann hefur beðið í 90 daga eða lengur eftir aðgerð hér heima. Þær aðgerðir eru greiddar að fullu af SÍ. Snorri Birgisson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og yfirmaður mansalsteymis lögreglunnar, segir að það verði að taka mið af því að mörg vændismál séu afgreidd með sektum en slíkt sé ekki óop- inbert. „Við gáfum út tölur fyrir stuttu um að lögreglan á höfuðborgar- svæðinu hefði á síðustu 10 árum kært 150 einstaklinga fyrir kaup á vændi. Hluti hefur farið fyrir dómstóla og hluti verið afgreiddur með sektargerð,“ segir Snorri. „Það er í sjálfu sér ekki erfitt að komast að því hvar vændi fer fram. Þunginn í þessum rannsóknum felst í því að ef við erum að rannsaka vændismál þá eru oft gríðarlega margir kaupendur sem eiga í hlut. Það er það sem veldur því að minna hefur verið gert í gegnum tíðina. Síðastliðin ár hefur verið meiri forgangsröðun hjá okkur gagnvart vændi.“ Hann segir að flest mál snúi að vændiskaupandanum en á síðustu árum hafa tvö mál komið inn á borð lögreglunnar sem snúa að milligöngu um vændi. Kom eitt slíkt mál upp árið 2009 og er annað slíkt mál til rannsóknar núna. Sektargerð algeng niðurstaða 150 EINSTAKLINGAR KÆRÐIR FYRIR VÆNDI SL. 10 ÁR Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Á árunum 2013 og 2014 voru sak- fellingar fyrir kaup á vændi sam- tals 78 en einungis tvær árið 2015 og engin árið 2016. Þetta kemur fram í nýlegri meistaraprófsritgerð Rakelar Þorsteinsdóttur í lögfræði við Háskóla Íslands. Rakel tók þar saman umfang og framkvæmd dómstóla á 1. mgr. 206. gr. al- mennra hegningarlaga sem lýsir háttseminni að kaupa vændi sem refsiverðri. Rakel segir í samtali við Morg- unblaðið að eitt að markmiðunum hafi verið að skoða hvort ákvæðið væri til þess fallið að draga úr vændi. Þá voru lokuð þinghöld sem einkenna vændiskaupmálin gerð að umfjöllunarefni og stóð Rakel í ströngu við að nálgast héraðsdóma í vændiskaupamálum hérlendis en einungis nokkrar dómsniðurstöður héraðsdóma í 97 málum, á árunum 2009-2016 hafa verið birtar. „Ég stóð í stappi við stjórnsýsluna og að endingu fékk ég að koma í hér- aðsdóm og skoða þessa dóma,“ seg- ir Rakel. „Það er enginn sem segir að við þurfum að birta dóma. Dóm- stólaráð, sem er skipað á grundvelli laga um dómstóla, ákveður að hafa síðu og birta dóma. Þeir ákveða að birta dóma samkvæmt sínum eigin reglum en það þarf að gæta sam- ræmis í því. Þetta er bara stjórn- sýsla,“ segir Rakel en mun auð- veldara var að nálgast sænska dóma „Svíar birta ekki dómana sína á vefsíðunni en ég óskaði eftir dómum og þeir sendu mér dómana. Þar kemur kennitala vændiskaup- Morgunblaðið/Árni Torfason Vændiskaup Samkvæmt greiningu á dómaframkvæmd er meðalaldur vændiskaupenda á Íslandi rétt undir fertugu. Sakfellingum fyrir vændiskaup fækkað  Meðaltal fésekta fyrir vændiskaup í kringum 100.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.