Morgunblaðið - 09.01.2018, Side 11

Morgunblaðið - 09.01.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Dómstólasýslan, sem tók til starfa nú um áramótin hefur sent Lögmanna- félagi Íslands bréf, þar sem breytt fyrirkomulag á tíðni reglulegra dóm- þinga er kynnt. Ólöf Finnsdóttir, framkvæmda- stjóri Dómstólasýslunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að reglulegum dómþingum yrði fækkað úr tveimur í mánuði í eitt hjá svo- nefndum einmenningsdómstólum. „Regluleg dómþing hjá einmenn- ingsdómstólunum fjórum, Héraðs- dómi Vestfjarða, Héraðsdómi Norð- urlands vestra, Héraðsdómi Austurlands og Héraðsdómi Vestur- lands, hafa verið tvisvar í mánuði en verða hér eftir einu sinni í mánuði,“ sagði Ólöf. Ólöf segir að tilgangurinn með þessari breytingu sé að auka sveigj- anleikann í kerfinu, svo að héraðs- dómari í einmenningsdómstóli sé ekki bundinn yfir reglulegum dómþingum nema einu sinni í mánuði. „Nú er beð- ið skipunar nýrra héraðsdómara og hjá Héraðsdómi Vestfjarða verður hér eftir faranddómari, sem getur tekið að sér verkefni annars staðar frá og getur fengið úthlutað verkefn- um frá öðrum dómstólum ef á þarf að halda. Lögin gera ráð fyrir að hægt sé að hafa þrjá faranddómara,“ sagði Ólöf. „Afleit byggðastefna“ Byggðaráð Skagafjarðar bókaði nýverið harðorða gagnrýni á fækkun reglulegra dómþinga. Í bókuninni segir m.a. „Byggðaráð skorar á ráðherra að standa vörð um Héraðsdóm Norðurlands vestra og tryggja að tíðni reglulegra dómþinga verði ekki skert. Ljóst er að með því að fækka reglulegum dómþingum myndi þjónusta við íbúa svæðisins skerðast og er það verulega afleit byggðastefna.“ Ólöf sagði um þessa gagnrýni að við skoðun á fjölda mála hefði komið fram að hann væri það lítill hjá ofan- greindum einmenningsdómstólum að fækkun úr tveimur í eitt dómþing í mánuði ætti ekki að valda neinni rösk- un á starfseminni, auk þess sem alltaf yrði hægt að taka mál fyrir á milli reglulegra dómþinga ef þörf krefði. Ólöf segir að stjórn Dómstólasýsl- unnar sé þessa dagana að ljúka stefnumótunarvinnu. „Auðvitað byggist stefnan á ákvæðum laganna en við höfum að undanförnu verið að fá að borðinu alla þá sem hagsmuna eiga að gæta til þess að auðveldara verði fyrir okkur að átta okkur á því hvað bíður okkar á komandi árum,“ sagði Ólöf Finnsdóttir. Hörð gagnrýni á fækkun þinga  Segir verið að auka sveigjanleikann  Embætti faranddómara verða til Annað þriggja mánaða tímabilið í röð virðist hafa náðst árangur í viðleitni Fiskistofu til að bæta endurvigtun á ísuðum afla. Síðasta hálfa árið hefur munurinn farið minnkandi hjá vigt- unarleyfishöfum þegar eftirlitsmenn hafa staðið yfir við endurvigtun mið- að við aðrar slíkar kannanir síðustu tvö ár. Eftirlitsmenn inni á gólfi Eyþór Björnsson fiskistofustjóri segir að gagnsæi upplýsinga virðist veita aðhald og hvetji til þess að menn vandi sig, en Fiskistofa byrjaði fyrir tveimur árum að birta upplýs- ingar um íshlutfall í afla. Hann segir að vísbendingar séu um að vigtunar- leyfishafar breyti um hegðum við yf- irstöðu, sem er þá framkvæmd á kostnað leyfishafa. Fiskistofu hefur verið heimilt frá síðasta vori að hafa eftirlitsmenn inni á gólfi á kostnað vigtunarleyfishafa við eftirlit með vigtun. Þessu ákvæði hefur verið beitt og leiddi það til þess að breytileiki í hlutfalli íss í þeim til- vikum varð lítill sem enginn. Veiðar, endurvigtun og verkun eru víða á sömu hendi og geta ástæður breytilegs íshlutfalls verið margvís- legar. Ísaður fiskur er fyrst brúttó- vigtaður á hafnarvog og svo er hann endurvigtaður hjá fiskvinnslu þar sem ísinn er skilinn frá aflanum. Nettóvigtin, þ.e. aflinn án íss, er það sem dregst frá kvóta bátsins. Þetta kerfi býður heim þeirri hættu að fiski sé komið framhjá vigt með því að segja hann vera ís. Með því móti gengur hægar á kvóta bátsins. aij@mbl.is Gagnsæi upplýsinga veitir aðhald við vigtun  Minni frávik í íshlutfalli í afla SMÁRALIND www.skornirthinir.is Kíktu á útsöluverðið! TeporDry - 100% vatnsheldni Innsóli: Ortholite Sóli: Vibram Mondeox Cesen OX 15 Útsöluverð 8.099 Verð áður 26.995 Stærðir 40-46 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Buxur á útsölu 50% afsláttur Str. 36-52 BRIDS SKÓLINN Viltu læra að spila brids? Námskeið fyrir byrjendur hefst 22. jan. Átta mánudagskvöld frá 8-11 í Síðumúla 37. Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er ekki gert ráð fyrir neinni kunnáttu. Þú getur komið ein eða einn, með öðrum eða í hóp og það er sama hvort þú ert 18 ára eða 90. Eða þar á milli. ♦ Nánari upplýsingar og innritun í síma 898-5427 ♦ Sjá ennfremur á bridge.is /fræðsla ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is viðkemur rafhitun. Síðdegis í gær hafði á fjórða tug manna leitað á bráðadeild Land- spítalans vegna hálkuslysa. Flug- hálft hefur verið á höfuðborg- arsvæðinu í kjölfar rigninga síðustu daga. Voru víða stórir hálkublettir. „Fólk er að brjóta sig, þetta eru leiðindabrot bæði á ökklum og höndum. Útlimabrot mikið en einn- ig höfuðhögg,“ sagði Bryndís Guð- jónsdóttir, deildarstjóri bráðadeild- ar Landspítalans, þar sem álag hefur verið mikið undanfarna daga vegna hálkuslysa. Bryndís sagði í samtali við mbl.is að víða þyrfti að gera betur í hálkuvörnum bæði hjá hinu opinbera en einnig hjá fyr- irtækjum til að draga úr hættunni. Áberandi væri t.d. að fólk hefði dottið í kirkjugörðum. Fjöldamörg hálkuslys í höfuðborginni Knattspyrnufélag Akureyrar (KA) varð 90 ára í gær. Hús- fyllir var á afmæliskaffinu í fyrradag í KA-heimilinu. Af- mælishátíðinni verður framhaldið nk. laugardag, 13. jan- úar, með samkvæmi í KA-heimilinu. Fram koma Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Hamrabandið, Vandræðaskáld og Páll Óskar. Veislustjóri verður Sigurður Þorri Gunn- arsson útvarpsmaður, en frá þessu segir í tilkynningu frá félaginu. „Það var óvenjugóð mæting á afmæliskaffiboð KA í ár en um 300 manns komu,“ segir Siguróli Magni Sigurðsson, íþróttafulltrúi KA. Heimildarmynd í vændum „Við fórum yfir starfið á árinu, heiðruðum látna félaga og landsliðsmennina okkar, en 29 félagar spiluðu fyrir Ís- lands hönd á árinu. Kjör á íþróttamanni ársins var fært yf- ir á laugardaginn, en þá verður samkvæmi í íþróttahúsi KA í tilefni af stórafmælinu. Við höfum gefið út bækur á stórafmælum en stefnum á að gefa út stutta heimildar- mynd í staðinn í haust. Kynning á henni verður sýnd á laugardaginn,“ segir Siguróli sem reiknar með að um 500 manns mæti. Dagskráin í afmæliskaffinu var með hefð- bundnu sniði en Hrefna G. Torfadóttir formaður fór yfir árið 2017 og minntist m.a. látinna félaga og helstu afreka KA innan sem utan vallar. Ingvar Gíslason varaformaður las upp annála deilda og voru landsliðsmenn KA heiðraðir með rós. Ræðumaður dagsins var Katrín Káradóttir at- hafnakona. Í lok dagskrárinnar var Böggubikarinn af- hentur. Böggubikarinn var gefinn af Gunnari Níelssyni og fjölskyldu til minningar um Sigurbjörgu Níelsdóttur, fyrr- verandi starfsmann KA, sem lést aðeins 53 ára gömul árið 2011. Alexander Heiðarsson, júdó, var hlutskarpastur meðal drengjanna en þær Berenika Bernat og Karen María Sigurgeirsdóttir voru jafnar í tvennum kosningum hjá stúlkunum og deila þær því bikarnum. ernayr@mbl.is Margt um manninn í níutíu ára afmæliskaffiboði KA Ljósmynd/Þórir Tr. Afmæliskaffiboð Landsliðsmenn KA heiðraðir með rós.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.