Morgunblaðið - 09.01.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 09.01.2018, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er eitt-hvað dul-arfullt við það hvernig hug- myndinni um borgarlínu, eins og nýtt kerfi almennings- samgangna er kallað, hefur vaxið ásmegin. Ljóst er að kostnaður við þetta kerfi yrði yfirgengilegur og hugmyndir um væntanlega nýtingu þess óskhyggja ein. Engu að síður er talað um þessar hugmyndir eins og þær séu sjálfsagður hlutur, ekki feigðarflan. Ekki eru þó allir jafn heill- aðir af fásinnunni. Frosti Sig- urjónsson, rekstrarhagfræð- ingur og fyrrverandi þingmaður, segir eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær í grein um borgarlínu á vef sín- um að borgarlína muni kosta hvert heimili á höfuðborg- arsvæðinu eina til tvær millj- ónir króna. Rekstur hennar muni síðan að auki kosta hvert heimili tugi þúsunda króna á ári til viðbótar stofnkostn- aðinum. Niðurstaða Frosta er sú að borgarlína muni í engu spara tíma eða auka þægindi. Þvert á móti muni hún sólunda tíma allra, sem komast ætla leiðar sinnar, hvort sem þeir nota línuna eða ekki. Þegar upp er staðið muni íbúar á höfuðborg- arsvæðinu verða fátækari bæði af tíma og peningum. Frosti reiknar út að þeir sem ferðist með borgarlínunni verði að jafnaði 15 til 20 mínútur lengur að komast leiðar sinnar en þeir sem aki um á rafbíl. „Þeir sem meta tíma sinn mikils munu því forðast að nota borg- arlínu nema yfirvöld grípi til aðgerða til að minnka þennan mikla tímamun,“ skrifar Frosti og bendir á að það sé einmitt sú leið sem danska ráðgjafarfyrirtækið COWI bendi á. Það væri með ólíkindum að borgaryfirvöld færu að tefja gagngert fyrir umferð með því að þrengja götur og fækka bílastæðum til þess að þvinga almenning til að ferðast með almenningssamgöngum. Margar stórborgir heims glíma við mikinn vanda vegna umferðar. Myndu íslenskir umferðarhnútar seint ná máli í samanburði við þær stöppur, sem myndast geta þar sem ástandið er verst. Í slíkum borgum kallar vandinn á stór- tækar lausnir. Nú skal ekki gert lítið úr umferðinni á höfuðborg- arsvæðinu. Þó er full ástæða til að spyrja hvort ekki séu til einfaldari, ódýrari og skilvirk- ari lausnir en að ausa 150 milljörðum króna úr vösum skattborgara í borgarlínu. Það er hár verðmiði fyrir hæpna tilraun. Það á ekki bara að búa til lausn – það á líka að búa til vanda} Hver borgar borgarlínu? Nútímatæknigefur mikil tækifæri sem áð- ur voru jafnvel fjarri ímyndunar- aflinu, hvað þá raunveruleik- anum. Nú á fólk samskipti án erfiðleika hvar í veröldinni sem það er statt. Dugar til þess lítið tæki sem flestir hafa í vasanum og kallað er sími, þó að tækið minni að- eins að litlu leyti á samnefnd tæki fyrri tíðar. En jafn mikið þarfaþing og síminn er þá þarf líka að var- ast að ofnota hann. Þetta á ekki síst við um notkun barna, sem hætt er við að verði úr hófi mikil og enginn veit enn hvaða áhrif mun hafa til lengri tíma litið. Þeir eru til sem hafa mikl- ar áhyggjur af vaxandi síma- notkun barna og að minnsta kosti einhverjir þeirra eru hluthafar í Apple, einum helsta símaframleiðanda heims, og eiga tvo milljarða dala í fyrirtækinu. Þetta er svo sem ekki stór hluti í slíkum risa en það vekur engu að síð- ur athygli að slík- ir hluthafar, þeirra á meðal eftir- launasjóður kennara í Kali- forníu, skuli lýsa áhyggjum af áhrifum símanotkunar á börn og hvetji símaframleið- andann til að grípa til að- gerða til að takmarka óæski- leg áhrif á æskuna. Nú einskorðast möguleg óæskileg áhrif af óhóflegri símanotkun vitaskuld ekki við ákveðna tegund símtækja. Aðrir framleiðendur þyrftu að hugsa sinn gang einnig og bjóða foreldrum öflugri leiðir til að stýra símanotkun og stilla henni í eðlilegt hóf. Um leið er þó rétt að hafa í huga að ábyrgðin á þessu, eins og öðru í uppeldi barna, liggur fyrst og fremst hjá foreldrum og öðrum forráða- mönnum. Stórir fjárfestar hafa áhyggjur og hvetja Apple til aðgerða } Snjallsímanotkun barna R íkisstjórnin fékk fyrsta fjárlaga- frumvarp sitt samþykkt á dög- unum og sýndi þar meðal ann- ars á fyrstu skattaspilin. Því miður verður að segja að sú sýning var skattgreiðendum ekki sér- staklega í hag. Í stjórnarsáttmálanum er tal- að um fjármagnstekjuskatt og hótað að hækka hann, en sagt að á móti því mætti breyta skattstofninum þannig að skatturinn leggist á raunávöxtun en ekki nafnávöxtun. Við afgreiðslu fjárlaganna var svo annað at- riðið efnt en ekkert raunhæft varð úr hinu. Fjármagnstekjuskatturinn var hækkaður en gjaldstofninn hafður óbreyttur. Hækkunin mátti ekki bíða en það sem yrði skattgreið- endum í hag, það þarf að skoða miklu betur. Sparifjáreigandinn þarf því enn að borga fjármagnstekjuskatt af vaxtatekjunum sínum, þótt hann fá litla sem enga raunávöxtun. Varla þarf að segja neinum hvaða aldurshópur fer verst út úr þessu. Margir segja að ekki megi lækka skatta í efnahagslegri uppsveiflu. Skattalækkun sé olía á eldinn. En ættu þau rök þá ekki líka að mæla með niðurskurði ríkisútgjalda? Ef eyðsla almennings er hættuleg fyrir efna- hagslífið, er þá eyðsla ríkisins eitthvað betri? En stjórnmálamenn virðast ekki hafa miklar áhyggjur af því að opinber eyðsla auki þenslu. Þeir hrósa sér af útgjaldaaukn- ingunni og halda að hún sé merki um mikla sókn. Allt er kallað innviðir og þá þurfi að efla. En hvað með venjulega skattgreið- endur? Eru þeir ekki mestu innviðirnir? Er ekki ástæða til að efla þá með myndarlegum skattalækkunum? bergthorola@althingi.is Bergþór Ólason Pistill Skattahækkanir strax, lækkanir síðar Höfundur er alþingismaður. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Stjórnvöld boða í fjár-málastefnu til ársins 2022,sem lögð var fram á Alþingifyrir jól, framhald útgjalda- aukningar, sem á sér ekki hliðstæðu á síðustu áratugum. Raunvöxtur út- gjalda skv. fjárlögum er um 8% frá fyrra ári. Þetta kemur fram í álits- gerð fjármálaráðs við nýja þings- ályktunartillögu fjármála- og efna- hagsráðherra um fjármálastefnu fyrir árin 2018-2022. „Aukning útgjalda sem jafn- framt felur í sér að aðhaldsstigi sé viðhaldið við þensluaðstæður kallar á frekari tekjuöflun eða niðurskurð annarra útgjalda eða blöndu hvors tveggja. Ef stjórnvöld gera hvorugt felur það í raun í sér að þau velta ábyrgðinni yfir á stjórn peningamála, að öðru óbreyttu,“ segir í kafla með helstu ábendingum fjármálaráðs. Þar er einnig bent á að framlögð fjár- málastefna boði auknar fjárfestingar í innviðum. Leiði þær fjárfestingar til aukinnar framleiðni í hagkerfinu dragi þær einnig úr framleiðslu- spennu og minnki þörfina á aðhaldi til lengri tíma. Fjármálaráðið hefur það hlut- verk að leggja mat á hvort fjár- málastefnan fylgi grunngildum í opinberum fjármálum og fjármála- reglum skv. lögum. Ráðið ítrekar fyrri ábendingar þess að erfitt sé að rökstyðja skattalega ívilnun til ferða- þjónustunnar umfram aðrar atvinnu- greinar. Gagnrýnt er að viðhalda eigi skattaívilnun greinarinnar sem sé ekki til þess fallin að auka vöxt og fjölbreytni í íslensku atvinnulífi. Fjármálaráð kemur víða við í álitsgerð sinni. Lýst er m.a. áhyggj- um af einsleitni hvað varðar þjóð- hagslíkön þau sem notast er við hér á landi. Þetta leiði til þess að spár séu svipuðum eiginleikum gæddar og aukin hætta sé á að allir geri sömu mistök við spágerðina. Nú virðist sem aftur sé gefið í Bent er á að til að viðhalda því aðhaldsstigi sem boðað var í fyrri fjármálastefnu sem lögð var til grundvallar fjárlagafrumvörpum 2017 og því sem lagt var fram í sept- ember sl. hefði þurft að draga úr út- gjöldum í nýju fjármálastefnunni eða auka skatttekjur svo afgangurinn yrði meiri en lagt var upp með. Minn- ir fjármálaráð á ummæli þess um síð- ustu fjármálaáætlun um að svo virtist sem stjórnvöld væru að stíga lausar á bensíngjöfina þegar þau ættu að vera að bremsa og áfram yrði slakað á að- haldsstiginu. ,,Nú virðist sem verið sé að gefa aftur í á sama tíma og óvissan hefur aukist.“ Í umfjöllun um skattastefnuna segir að það sé vel að stjórnvöld boði aðgerðir í skattamálum en minnt er á að gróflega megi áætla að hvert pró- sentustig í grunnþrepi tekjuskatts svari til 10-15 milljarða í tekjum hins opinbera. „Skattalækkun á tímum mikillar framleiðsluspennu getur vart talist framlag til stöðugleika í efnahagsmálum nema hún sé sett í samhengi við annað. Slíkt er ekki gert í stefnunni.“ Þá er bent á að í greinargerð komi fram ótti um að yfirvofandi kjarasamningalota muni fela í sér launahækkanir umfram vöxt fram- leiðslugetu og með tilheyrandi verð- bólgu og samdrætti. Skattalækkun sé ætlað að stuðla að hóflegri kjara- samningum en ella. ,,Lækkun skatta við þessar aðstæður leiðir til auk- innar verðbólgu og er þar að auki þensluhvetjandi, þ.e. ef önnur tekju- öflun er ekki aukin eða dregið úr út- gjöldum hins opinbera á sama tíma. Stefnan útlistar engar slíkar aðgerð- ir.“ Útgjaldavöxtur án hliðstæðu í áratugi Alþingi Fjármálastefnan liggur fyrir þinginu og hafði fjármálaráð tvær vikur til að leggja mat á hana. Fulltrúar sveitarfélaga hafa verið mjög ósáttir við skort á samráði o.fl. varðandi markmið um af- komu A-hluta sveitarfélaga þegar fjármálastefna og fjármálaáætlun hefur verið mótuð. Var því ákveð- ið sl. vor að byrja strax undirbún- ing vegna fjármálastefnunnar fyr- ir 2018-2022. Sú vinna hófst þó ekki fyrr en í nóvember sl., m.a. vegna þingkosninganna. Þetta kemur fram í umsögn Reykjavík- urborgar við fjármálastefnuna. Í bókun samráðsnefndar um op- inber fjármál er lýst miklum efa- semdum um mat, markmið og framreikning á launakostnaði, fasteignasköttum, fjárfestingu og sölu á þjónustu. „Við framlagn- ingu fjármálastefnu þarf að vekja athygli á óvissu matsins, einkum varðandi framvindu kjarasamn- inga næstu misserin sem gæti kallað á breytingar á forsendum við gerð fjármálaáætlunar fyrir tímabilið 2018-2022.“ Hafa miklar efasemdir ÓVISSA KJARASAMNINGA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.