Morgunblaðið - 09.01.2018, Side 19

Morgunblaðið - 09.01.2018, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018 Stund á milli stríða Undanfarna daga hafa verið miklar sviptingar í veðrinu og göngufærið verið með misjöfnum hætti á höfuðborgarsvæðinu, en aðalatriðið hefur verið að komast leiðar sinnar. RAX Hér getur að líta „matsblað“ umsagn- arnefndar um 33 um- sækjendur sem sóttu um 15 embætti dómara við Landsrétt sl. vor. Hafa margir þeirra, sem tekið hafa þátt í al- mennum umræðum um málið, talið að hér væri um að ræða stórasann- leik um niðurröðun umsækjenda eftir hæfni. Frá henni hafi ekki mátt víkja. Meira að segja sjálfur Hæsti- réttur Íslands hefur talið í tveimur dómum nýverið að það þarfnaðist sérstakrar rannsóknar hjá ráðherra að víkja í tillögum sínum til Alþingis frá þeirri niðurröðun sem fram kem- ur á þessu blaði. Og það eins þó að lagaákvæði hafi kveðið skýrt á um heimild ráðherrans til þess arna án þess að þar væri minnst á slíka skyldu. Rétturinn toppaði svo sjálf- an sig með því að dæma mönnum miskabætur fyrir að hafa ekki fengið starf sem þeir sóttu um en fengu ekki. Það er eins gott fyrir ríkissjóð að leggja til hliðar fjármuni til að eiga fyrir útgjöldum af þessu tagi í framtíðinni. Ef blaðið er skoðað sést þegar í stað að niðurröðun umsækjendanna byggist á algerlega ótækum aðferð- um. Búin eru til „matshólf“ og kveð- ið á um hvert vera skuli vægi hvers og eins hólfs. Hér er ekki verið að meta hæfni. Hafi átt að raða um- sækjendum eftir aðferð matsblaðs- ins þurfti varla matsnefnd til. Fyrir liggur að einkunnagjöf í hverju hólfi ræðst fyrst og fremst af þeim tíma sem viðkomandi umsækjandi hefur sinnt viðkomandi starfsþáttum. Þetta mátti allt finna út án þess að sett væri í nefnd. Þessar aðferðir fela því ekki í sér mat á hæfni umsækj- enda. Miklu fremur má segja að með þeim sé verið að komast hjá því að leggja mat á raun- verulega hæfni þeirra. Taldir eru út verð- leikar í hverjum kassa og samanlagðir verð- leikarnir látnir ráða niðurstöðunni. Allir mega vita að hæfni manna á tilteknu fræðilegu sviði getur ekki ráðist af því að viðkomandi hafi komið víða við á ferlinum. Þvert á móti kann slíkur ferill að benda til þess að viðkomandi sé ekki vel hæfur og hafi þess vegna ekki getað haldist lengi í hverju því starfi sem hann kann að hafa lagt fyrir sig. Sá hæfasti í hópnum kann að hafa ráðist til ákveðinna starfa í upphafi síns ferils (sem dómari, lög- maður, kennari eða stjórnsýsluhafi) og sýnt svo mikla hæfni í lög- fræðilegum efnum að sóst hefur ver- ið eftir því að hann léti ekki af starfi sínu. Slíkur maður á ekki möguleika í excel-aðferð matsnefndar því hann fær ekki stig í öðrum kössum en þeim sem hann hefur alla tíð dvalist í með svo farsælum hætti. Á hinn bóginn má vel vera að ann- ar umsækjandi, sem komið hefur víða við á starfsferlinum, hafi sýnt það og sannað í verkum sínum að hann ætti aldrei að verða skipaður dómari. Hann kann þannig að hafa sannað vanhæfni sína, jafnvel á hverju starfssviðinu á fætur öðru. Slíkur maður skorar miklu fleiri stig í excel-skjali dómnefndar en sá hæf- asti eftir sjónarmiðunum að framan. Það er svo kostulegt að heyra al- þingismenn nota þetta sem tilefni til að koma höggi á dómsmálaráðherr- ann. Þeim ætlar seint að skiljast að lágkúran í málflutningi þeirra sjálfra er helsta ástæðan fyrir vantrú al- mennings á hæfni þeirra. Þeir eru reyndar svo heppnir að mælingin á henni hefur aldrei ratað í excel. Og ríkisrekni fjölmiðillinn tónar undir og segir af þessu fréttir dögum sam- an, án þess að víkja nokkru sinni að því sem mestu skiptir um mat á hæfni umsækjendanna. Við skulum syngja saman línuna sem sá mæti söngvari Freddie Mercury söng: „The show must go on“. Og taki nú allir undir. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Þegar þessar aðferð- ir eru skoðaðar sést að þær fela ekki í sér mat á hæfni umsækj- enda. Miklu fremur má segja að þetta séu að- ferðir sem beitt er til að þurfa ekki að leggja mat á raunverulega hæfni þeirra. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Stórisannleikur M en nt un o g fra m ha ld s- m en nt un Re yn sl a a f dó m st ör fu m Lö gm an ns - re yn sl a St jó rn sý sl a Ke nn sl a Fr æ ði st ör f St jó rn un Fr um vö rp o. fl. Al m en n st ar fs hæ fn i Ré tta rfa r Sa m ni ng o g rit un d óm a St jó rn þi ng ha ld a Sa m ta ls St að a Davíð Þór Björgvinsson 10 8 1,5 7,5 10 10 5,5 6,5 10 7 10 10 7,350 1 Sigurður Tómas Magnússon 1 6,5 3 7,5 10 6 4,5 10 10 10 10 10 6,775 2 Ragnheiður Harðardóttir 6,5 6 7 6,5 4 2 2,5 9 10 9 10 10 6,650 3 Vilhjálmur H. Vilhjálmsson 2 4,5 10 6,5 3 3 7,5 2,5 10 7 10 10 6,600 4 Aðalsteinn E. Jónasson 5,5 0 8 7,5 6 8,5 7,5 5 10 7 10 10 6,500 5 Ingveldur Einarsdóttir 6,5 10 0 7,5 2 2 5,5 9 10 9 10 10 6,300 6 Eiríkur Jónsson 9 3,5 3 6,5 8 9 3,5 7,5 10 6 10 10 6,200 7 Kristbjörg Stephensen 6,5 0 7 10 1 0 10 9 10 6,5 10 10 6,050 8 Jóhannes Sigurðsson 6,5 0,5 9 3 7 7 7,5 7,5 10 7,5 10 10 6,000 9 Þorgeir Ingi Njálsson 2 9,5 0 7,5 3,5 3,5 6,5 0 10 9 10 10 5,800 10 Jón Höskuldsson 2 5,5 6 8 1 0 3,5 2,5 10 8 10 10 5,750 11 Jóhannes Rúnar Jóhannsson 1 0,5 9 5 6 4 7,5 4 10 9 10 10 5,675 12 Oddný Mjöll Arnardóttir 8 1,5 4 5 10 9 2,5 4 10 6,5 10 10 5,550 13 Ástráður Haraldsson 1 1 9 5 6 2 7,5 5 10 7 10 10 5,525 14 Hervör Þorvaldsdóttir 2 9,5 1,5 4 2 1 5,5 9 10 9 10 10 5,480 15 Helgi Sigurðsson 6,5 0,5 9 3 4 3 7,5 7,5 10 7,5 10 10 5,450 16 Ásmundur Helgason 4 6 0 8,5 3 5 1 4 10 8 10 10 5,400 17 Arnfríður Einarsdóttir 3 8,5 0 6,5 0 0 5,5 8 10 9 10 10 5,275 18 Bryndís Helgadóttir 2 0 5 10 0 0 9 4 10 8 10 10 5,150 19 Jónas Jóhannsson 3 7 5 1 2 3,5 2,5 6,5 10 9 10 10 5,100 20 Þórdís Ingadóttir 6,5 0 1,5 6 9 9 4,5 7,5 10 6,5 10 10 5,100 21 Sandra Baldvinsdóttir 6,5 6,5 1,5 6,5 1 2 1 2,5 10 8 10 10 5,050 22 Ragnheiður Bragadóttir 2 7 3 4 2 0 2,5 1 10 9 10 10 4,625 23 Björn Þorvaldsson 6,5 0,5 6 4 3 1 4,5 7,5 10 6 10 10 4,575 24 Nanna Magnadóttir 6,5 2,5 0 7,5 0 2 5,5 9 10 5,5 10 10 4,252 25 Baldvin Hafsteinsson 1 0 9 5 3 0 3,5 1 10 5,5 10 10 4,500 26 Ólafur Ólafsson 2 9,5 0 3 1 0 5,5 1 10 9 10 10 4,425 27 Guðrún Sesselja Arnardóttir 1 0 9 3 5 1 1 2,5 10 8,5 10 10 4,400 28 Bogi Hjálmtýsson 3 4 0 8,5 0 0 4,5 2,5 10 7 10 10 4,350 29 Jón Finnbjörnsson 3 9,5 0 0 3,5 3,5 1 5 10 9 10 10 4,325 30 Hildur Briem 6,5 5,5 1,5 3 3 1 2,5 2,5 10 7,5 10 10 4,200 31 Karl Óttar Pétursson 4 2 7 0 2 0 6,5 0 10 6 10 10 3,725 32 Soffía Jónsdóttir 3 0 7 3 0 0 1 0 10 6,5 10 10 3,525 33 Vægi 5% 20% 20% 20% 5% 10% 5% 5% 5% 5% 2,5% 2,5% 105% Matsblað umsagnar nefndar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.