Morgunblaðið - 09.01.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.01.2018, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018 ✝ Guðmundur Ás-björnsson verkamaður fædd- ist í Reykjavík 13. febrúar 1956. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Selfossi 25. desember 2017. Foreldrar hans voru Ásbjörn Guð- mundsson bifreiða- stjóri, f. 23.11. 1934, d. 13.1. 1997, og Guðrún Jóna Sigurjónsdóttir fangavörður, f. 2.3. 1938, d. 8.3. 1997. Ásbjörn var sonur Guðmundar Sigurðssonar og Málfríðar Jós- epsdóttur á Höfða í Eyjahreppi. Guðrún Jóna var dóttir Sigurjóns Gestssonar og Herdísar Jóns- dóttur á Hurðarbaki í Kjós. Al- bróðir Guðmundar var Jón Ás- björnsson, f. 11.3. 1958, d. 7.4. 2011. Börn hans eru Sigmar Örn, f. 28.11. 1979, Hanna, f. 5.11. 1986, Iðunn Móna, f. 7.1. 1991, og Haraldur Hrafn, f. 9.7. 1993. Bræður Guðmundar sam- mæðra eru: Sigurjón Guðmunds- upp hjá móðurömmu sinni að Hurðarbaki í Kjós, þar sem hann umgekkst dýrin og sinnti al- mennum sveitastörfum. Er hann bjó í Kópavogi starfaði hann meðal annars á loftpressu hjá Kópavogskaupstað, við vöru- birgðir hjá Síldarútvegsnefnd og við almenna verkamannavinnu í Straumsvík. Guðmundur bjó hjá móður sinni þar til hún lést en þá flutti hann til Svíþjóðar og bjó í Munkadal hjá Jóni, bróður sínum, og Pierinu, mágkonu sinni, og þar vann hann m.a. við skógar- högg. Hann flutti á Selfoss árið 2000 og bjó þar til dauðadags. Á Selfossi bar Guðmundur út Morg- unblaðið, starfaði svo hjá Vinnu- og hæfingarstöðinni Viss og síð- ast hjá Mjólkursamsölunni á Sel- fossi. Guðmundur æfði lyftingar af kappi, botsía og knattspyrnu hjá Íþróttafélaginu Suðra á Selfossi. Árið 2015 keppti hann fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikum fatlaðra í Los Angeles og var elsti kepp- andinn. Þar keppti hann í kraft- lyftingum, 74 kg flokki, náði fjórða sæti í bekkpressu og fimmta sæti í réttstöðulyftu, hné- beygju og að öllu samtöldu. Útför Guðmundar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 9. janúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. son, f. 16.2. 1965, d. 19.2. 1965, Sigurjón Guðmundsson, f. 16.2. 1965, kvæntur Halldóru Gísladótt- ur, og Daníel Guð- mundsson, f. 25.10. 1966, kvæntur Elínu Eddudóttur. Fóst- urfaðir Guðmundar var Daníel Guð- mundur Svein- björnsson, f. 4.8. 1933, d. 24.8. 1979. Systkini Guðmundar samfeðra eru: Jóhannes Harnald Ásbjarn- arson, f. 7.1. 1952, í sambúð með Láru Ósk Sigurðardóttur, Guð- rún Ásbjörnsdóttir, f. 18.4. 1959, gift Jóni Helga Guðmundssyni, Ólöf Ásbjörnsdóttir, f. 9.9. 1959, gift Sigurði Gunnarssyni, Linda Ásbjörnsdóttir, f. 8.8. 1961, gift Andrési Óskarssyni, Arnbergur Ásbjörnsson, f. 14.7. 1963, og Sig- urður Ásbjörnsson, f. 11.3. 1964, kvæntur Unni Gunnarsdóttur. Guðmundur ólst upp í Kópa- voginum og gekk í Safamýrar- skóla. Að hluta til var hann alinn Það var stillt veður á jóladags- kvöld þegar þú, kæri bróðir, kvaddir þennan heim á Sjúkra- húsinu á Selfossi, eftir heilablóð- fall sem þú fékkst í nóvember síð- astliðnum. Mín fyrsta minning um þig er þegar við bjuggum í Melgerði í Kópavogi og þú kynntir fyrir okkur bræðrunum Kanasjón- varpið. Þitt helsta áhugamál voru bíómyndir sem síðar færðist yfir í VHS-spólur, DVD-diska og Blue Raydiska. Þú varst alltaf dugleg- ur til vinnu. Ég man eftir því að þú varst ávallt tilbúinn hálftíma áður en þú varst sóttur á morgn- ana þegar þú vannst hjá Kópa- vogsbæ á sínum tíma. Stundvísi var þitt mottó. Þú varst einnig duglegur að tefla við okkur bræð- urna og það er þér að þakka að ég kann að tefla af einhverju viti. Þér leið alltaf vel í sveitinni þar sem þú ólst upp á tímabili með Herdísi, ömmu okkar, og Her- manni frænda að Hurðarbaki í Kjós. Þangað þótti þér gaman að fara í bíltúr og rifja upp gamlar og góðar minningar frá Kjósinni, sem var að þínu mati eitt besta sveitahérað landsins. Veðurfarið á Íslandi var þér afar hugleikið. Þú varst alltaf að spá fyrir um veður, hvort það yrði harður vetur eða mildur, sumar og sól eða hvort það yrði rigningasumar. Ég á eftir sakna samtala okkar um veðrið. Mundi bróðir var einstaklega ljúfur með létta lund, jákvæður og duglegur. Hann var góður fé- lagi, ættrækinn með eindæmum og minnugur á alla afmælisdaga í fjölskyldunni. Undanfarin ár var hann mjög virkur í Íþróttafélagi Suðra á Sel- fossi en þar stundaði hann af miklu kappi botsía, lyftingar, knattspyrnu og sund. Vann hann til ýmissa verðlauna á íþróttaferli sínum. Ég kveð þig, kæri bróðir, og vil þakka þér fyrir góða samfylgd í gegnum tíðina. Ég leita huggun- ar í yndislegum minningum sem tengjast þér. Elsku Mundi bróðir, hvíl í friði og hafðu þökk fyrir allt. Sigurjón. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku Mundi mágur, þú varst einstakur drengur. Minning þín lifir. Takk fyrir allt. Halldóra Gísladóttir. Í dag kveðjum við Guðmund Ásbjörnsson, samferðamann okkar til margra ára. Hann var einn af mörgum sem þáðu þjón- ustu frá okkur í frekari liðveislu. Guðmundur hafði gaman af að segja okkur sögur frá því hann var yngri, úr Kjósinni eða Kópa- voginum. Áhugamálin voru mörg og átti hann mikið safn af DVD-diskum og passaði upp á að við fylgdumst með helstu nýjungum í þeim efnum, hann hjólaði mikið og fór í sund á hverjum degi, æfði fót- bolta, lyftingar og botsía með íþróttafélagi Suðra, árið 2015 fór hann á Special Olympics í Los Angeles og keppti þar í kraftlyft- ingum. Svo vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín geta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Við þökkum Guðmundi fyrir samfylgdina og vottum aðstand- endum hans samúð. Fyrir hönd starfsfólks í frekari liðveislu, Brynhildur Jónsdóttir. Í dag kveðjum við okkar kæra vin Guðmund Ásbjörnsson. Þessi mikli snillingur er farinn. Hann byrjaði í Suðra (Íþróttafélag fatl- aðra á Suðurlandi) með miklu trompi. Æfði botsía, golf og fót- bolta og mætti á sundæfingar. Þegar við byrjuðum að bjóða upp á lyftingaæfingar mætti Gummi okkar að sjálfsögðu og massaði þær. Árið 2014 tilnefndum við hann sem íþróttamann Árborgar, þar sem hann var búinn að sýna miklar bætingar, góða ástundum og góðan liðsanda. Ári síðar fór kappinn á Special Olympics-leik- ana í Los Angeles og keppti þar elstur allra í lyftingum. Síðustu ár æfði hann lyftingar og botsía með okkur, fór á fjöl- mörg mót og skemmti sér og öðr- um konunglega. Þegar ég talaði við félaga hans í Suðra um Guðmund var ekki fátt um svör. „Bróðir, fyndinn, traustur vinur, með góðan húm- or, góður liðsfélagi, Suðralingur, hafði alltaf svör við öllu.“ Elsku vinir og fjölskylda Gumma, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Hvíldu í friði kæri vinur. Í minningunni sé ég þig og um leið þá líður mér aðeins betur Þú nærð mér í neyð og um leið vaknar vorið inní mér, enginn vetur Í stormi og byl man ég þig og um leið þá líður mér aðeins betur í sorg og í sút mætir þú og ég veit þú gerir allt sem þú getur því þannig ert þú. (Páll Óskar Hjálmtýsson) Fyrir hönd allra í Suðra Þórdís Bjarnadóttir Guðmundur Ásbjörnsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi. STEFÁN PÁLSSON, f.v. bankastjóri, Efstaleiti 12, sem lést þriðjudaginn 2. janúar, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 12. janúar klukkan 14. Arnþrúður Arnórsdóttir Páll Stefánsson Guðrún E. Stefánsdóttir Eilif Broder Lund Helga I. Stefánsdóttir Guðmundur Kristjánsson Auður Stefánsdóttir Hermann Arason barnabörn og barnabarnabarn Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR JÓHANN CLAUSEN bifreiðarstjóri, Drekavogi 4a, lést á Landspítalanum 12. desember. Jarðarför hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Heiða Guðjónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR M. KRISTINSSON, fv. skipstjóri og hafnarstjóri, Höfðavegi 39, Vestmannaeyjum, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 4. janúar. Útför hans fer fram frá Landakirkju Vestmannaeyjum laugardaginn 13. janúar klukkan 11. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbavörn Vestmannaeyja. Inga Þórarinsdóttir Helga Ólafsdóttir Lilja Ólafsdóttir Gunnar Sigurðsson Guðlaugur Ólafsson Kristín Sigurðardóttir Margrét A. Jónsdóttir Hildur Ólafsdóttir Greg Dixon og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK SÓFUSSON, Safamýri 46, Reykjavík, lést fimmtudaginn 4. janúar. Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 16. janúar klukkan 13. Ingunn Hlín Björgvinsdóttir Björgvin S. Friðriksson Adda Björk Jónsdóttir Friðrik M. Friðriksson Gunnrún Gunnarsdóttir Guðný Hlín Friðriksdóttir Karel Ómar Guðbjörnsson Friðgerður M. Friðriksdóttir Ófeigur Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG JÓNA TRAUSTADÓTTIR, Syðri-Hofdölum, Skagafirði, lést miðvikudaginn 3. janúar. Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju, laugardaginn 13. janúar klukkan 11. Jarðsett verður í Hofsstaðakirkjugarði. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hofsstaðakirkju, Skagafirði, kt. 6301690389 reikn. 0310-26-16373 Valgerður Kristjánsdóttir Jónas Sigurjónsson Trausti Kristjánsson Ingibjörg Aadnegard Kristján Bjarki Jónasson Gerður Kristný Guðjónsdóttir Rannveig Jóna Jónasdóttir Robert Kluvers Atli Már Traustason Ingibjörg Klara Helgadóttir Trausti Valur Traustason Gunnhildur Gísladóttir Helgi Hrannar Traustason Vala Kristín Ófeigsdóttir Ísak Óli Traustason Bríet Guðmundsdóttir og langömmubörnin Þakkarkveðjur og hlýhug sendi ég vegna andláts og útfarar systur minnar, DR. ÓLAFÍU EINARSDÓTTUR, sem lést í Lungby, Danmörku, í desember síðastliðinn. Björg Einarsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GYÐA GUNNARSDÓTTIR, Snælandi 2, Reykjavík, lést miðvikudaginn 20. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum góða aðhlynningu á Landspítala við Hringbraut. Snæbjörn Kristjánsson Matthildur Kristjánsdóttir Gunnar Kristjánsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR KJARTANSSON, Hólavallagötu 11, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 1. janúar. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 11. janúar klukkan 11. Villa María Einarsdóttir Kjartan Ólafsson Anna Guðmundsdóttir Einar Ólafsson Þ. Ester Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.