Morgunblaðið - 09.01.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Kópavogi – Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum
Baltasar fæddist í Barcelona á Spáni og ólst þar upp. Hann út-skrifaðist sem myndlistarkennari frá Háskólanum í Barce-lona 1961, stundaði myndlistarnám við Baux Art í París,
nám í grafík í Bandaríkjunum og lærði og rannsakaði freskutækni í
Mexíkó.
Hann kom til Íslands 1961 og var þá m.a. á síld fyrir norðan, féll
fyrir landi og þjóð, kom aftur hingað skömmu síðar og féll fyrir
Kristjönu, konu sinni, og hefur búið í Kópavogi frá 1963.
Baltasar er í hópi virtustu myndlistarmanna okkar og þekktur
fyrir sínar stóru veggmyndir, s.s. skreytingu Flateyjarkirkju og
fresku í Vífilsstaðakirkju, stærstu kirkjuskreytingu hér á landi.
Kristjana Samper er myndhöggvari en börn þeirra eru Mireya
myndhöggvari; Baltasar Kormákur, leikari og leikstjóri, og Re-
bekka Rán myndlistarkona.
Baltasar hefur aldrei verið mikið fyrir afmælistilstand: „Ég hefði
líklega aldrei haft rænu á að halda upp á afmælin mín ef eig-
inkonan og fjölskyldan gengju ekki í málið og gerðu okkur daga-
mun. Nú erum við á faraldsfæti og höldum upp á daginn á Te-
nerife.“
Ertu enn að mála á fullu?
„Auðvitað. Ég fer rólega af stað, undirbý daginn, er byrjaður að
vinna fljótlega upp úr hádegi og vinn oft fram á kvöld.“
Eigum við von á sýningu á næstunni?
„Ekkert planað en aldrei að vita. Þannig er lífið“ – segir Baltas-
ar og hlær.
Morgunblaðið/Eggert
Glæsileg hjón Baltasar og Kristjana, kona hans, myndhöggvari.
Málar enn á fullu
Baltasar Samper er áttræður
E
inar Guðberg Gunn-
arsson fæddist að
Tjarnargötu 6 í Kefla-
vík 9.1. 1948 og hefur
alið allan sinn aldur í
Bítlabænum: „Ég var í sveit að Hrís-
arkoti í Helgafellssveit þegar ég var
14 ára, fór 15 ára á snurvoð á Mána
KE 94 en um páskana þegar ég var
16 ára, á heimleið úr skólanum með
falleinkunn, 4,5, sturtaði ég úr skóla-
töskunni í ruslatunnu við skólann,
kveikti í, fleygði töskunni á eldinn og
stóð upp af skólabekk sem tossi.
Átta árum síðar vaknaði hjá mér
áhugi á frekara námi. Ég lauk gagn-
fræðaprófi, skellti mér í Iðnskólann,
lauk sveinsprófi í húsasmíði og auk
þess einkaflugmannsprófi. Í kjölfar-
ið lauk ég meistaraprófi í húsasmíði
við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Ég
Einar Guðberg Gunnarsson húsasmíðameistari – 70 ára
Golfvinir í Leirunni Talið frá vinstri: Júlíus J. Jónsson, forstjóri HS veitna, Þorsteinn Erlingsson skipstjóri og út-
gerðamaður, Steinar S. Sigtryggsson, umboðsmaður Olís á Suðurnesjum, og loks afmælisbarnið.
Dramatískt uppgjör
við barnaskólann
Eggson listamaður Einar með hluta af tveimur verkum sínum í bakgrunni.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Eufemía Waage
Í pistlinum Merkir Íslendingar
sem birtist í blaðinu laugardag-
inn 6.1. sl. er því ranglega haldið
fram að Eufemía hafi búið hjá
nöfnu sinni og frænku Gísladótt-
ur síðustu 20 árin. Hins vegar
bjó Eufemía Gísladóttur hjá
nöfnu sinni Waage. Hákon
Waage hefur aldrei verið mynd-
listarmaður en áhugamaður um
myndlist.
Aðstandendur eru beðnir vel-
virðingar á þessari ónákvæmni.
LEIÐRÉTT
Íslensku
þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frámerkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
stórafmælum, hjónavígslum, barns-
fæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinni mbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón