Morgunblaðið - 09.01.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 09.01.2018, Síða 27
hafði eitthvað misreiknað eigin námsgetu því ég lauk meistaranám- inu með einkunnina 9,23.“ Einar hóf fasta vinnu sem tækja- maður í fiskverkunarhúsinu Atl- antor. Hann réði sig sem sópara í Gluggasmiðjunni Ramma 17 ára, varð þar framleiðslustjóri 19 ára, eignaðist fyrirtækið með tveimur fé- lögum, Sigurþóri Stefánssyni, Gísla Grétari Björnssyni og Húsagerðinni ehf. en þeir seldu Ramma eftir 10 ára rekstur. Einar réði sig sem fram- kvæmdastjóri í Golfklúbbi Suð- urnesja og starfaði þar í tæp 6 ár og skilaði þar góðu búi. Þá gerðust þeir Einar og Sigþór aftur samstarfs- félagar, ásamt Jóni Ármanni Ar- noddssyni, og stofnuðu bygging- arfélagið Meistarahús ehf. í miðri byggingarbólu 1998 og stóðu þar saman í gæfusömum rekstri þar til næsta bóla sprakk og bankarnir hrundu 2008. Rekstrinum var þannig háttað að þeir þrír voru á launaskrá hjá félag- inu og með allar framkvæmdir í und- irverktöku og gátu því slökkt ljósin og selt lausafjármuni á skömmum tíma. Að því loknu hætti Einar störf- um og snéri sér að listmálun, ljós- myndun og golfinu. Einar gekk ungur í Sjálfstæð- isflokkinn, var formaður ungra sjálf- stæðismanna í Keflavík um árabil, var einn af stofnendum Þroskahjálp- ar á Suðurnesjum, 1977, og fyrsti formaður þess fyrstu sex árin og hefur verið virkur þátttakandi í mörgum öðrum félögum í gegnum tíðina. Auk þess að vera atvinnugolfari er Einar afbragðsteiknari og málar mikið: „Mér var oft hrósað fyrir ná- kvæmar teikningar þegar ég var barn og unglingur. Ég fór hins vegar ekki á myndlistarnámskeið fyrr en börnin voru farin að heiman. Síðan þá hef ég fengist við myndlist, tek svona tarnir á milli þess sem ég er á golfvellinum. Það er því myndlistin og golfið sem gefa lífinu gildi – og síðan náttúrlega fjölskyldan.“ Fjölskylda Eiginkona Einars er Guðný Sig- urðardóttir, f. 19.12. 1948. Fyrri kona Einars var Viktoría Hafdís Valdimarsdóttir, f. 1.6. 1951, d. 21.12. 1996. Börn Einars eru Valur Guðberg Einarsson, f. 16.1. 1971, búsettur í Reykjanesbæ; Haukur Guðberg Einarsson, f. 2.11. 1972, skipstjóri í Grindavík, en kona hans er Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir og eru barna- börnin Alexandra Marý Hauks- dóttir, f. 1994 og Viktor Guðberg Hauksson, f. 2000; Elín Ása Ein- arsdóttir, f. 13.10. 1977, hár- greiðslumeistari í Reykjanesbæ en maður hennar er Júlíus Gunn- laugsson flugvélamálari og eru börn þeirra Hafís Líf Víðisdóttir, f. 1999, Júlía Mist Víðisdóttir, f. 2004, og Aníta Mjöll Ólafsdóttir, f. 2011 en stjúpsonur Elínar Ásu er Guð- mundur Agnar Júlíusson, f. 2000; Fósturbörn Einars eru Sigurður Jóhann Geirfinnsson, f. 13.8. 1964, húsasmiður í Reykjanesbæ, en kona hans er Hrefna Höskuldsdóttir, þroskaþjálfi og skjalavörður, og eru barnabörnin Díana Huld Sigurð- ardóttir, f. 1987, en sonur hennar er Daníel Ingvi, f. 2015, Hafþór Guð- berg Sigurðsson, f. 1992, Guðlaugur Guðberg Sigurðsson, f. 1997, og Guðný Hanna Sigurðardóttir, 1997, og Anna Birgitta Geirfinnsdóttir, f. 1.1. 1970, endurskoðandi í Reykja- nesbæ en maður hennar er Ívar Val- bergsson, vélfræðingur og kennari, og eru barnabörnin Finnur Guðberg Ívarsson, f. 2004, og Guðbjörg Sofie Ívarsdóttir, f. 2008. Systkini Einars eru Bergþóra Hulda Gunnarsdóttir, f. 30.8. 1945, húsfreyja; Júlíus Halldór Gunn- arsson, f. 18.2. 1949, vélstjóri; María Gunnarsdóttir, f. 23.8. 1950, d. 7.9. 2011, sjúkraliði; Salvör Gunn- arsdóttir, f. 26.11. 1953, bókasafns- vörður; Lúðvík Guðberg Gunn- arsson, f. 27.7. 1955, pípulagningameistari. Foreldrar Einars voru Gunnar Einarsson, f. 29.5. 1919, d. 10.12. 2004, bílstjóri, og Bergey Jóhanna Júlíusdóttir, f. á Horni í Skorradal 3.1. 1922, d. 24.11. 1979, húsfreyja. Einar Guðberg Gunnarsson Guðný Eyjólfsdóttir húsfr. í Miðkoti Páll Bergsson útvegsb. í Miðkoti í Hvalsnessókn Salvör Halldóra Pálsdóttir húsfr. í Miðkoti Júlíus Jón Eiríksson b. í Miðkoti í Hvalsnessókn Bergey Jóhanna Júlíusdóttir húsfr. í Keflavík Halla Guðbjörg Þórðardóttir húsfr. í Miðnesi Eiríkur Jónsson b. í Miðnesi Helga Gísladóttir vinnuk. í Sandgerði Guðmundur Jónsson sjóm. í Sandgerði María Guðmundsdóttir húsfr. og líknarkona í Keflavík Einar Guðbergur Sigurðsson skipstj. og útgerðam. í Keflavík Guðný Ólafsdóttir húsfr. í Keflavík Sigurður Jón Klemensson sjóm. í Keflavík Úr frændgarði Einars Guðbergs Gunnarssonar Gunnar Einarsson bílstjóri í Keflavík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Sigurður Júlíus Jóhannessonfæddist á Læk í Ölfusi 9.1.1868. Foreldrar hans voru Jó- hannes Jónsson bóndi og Guðlaug Hannesdóttir húsfreyja. Árið 1905 kvæntist Sigurður Hall- dóru Þorbergsdóttur Fjeldsted og eignuðust þau tvær dætur, Svanhvíti Guðbjörgu (Gordon Josie) lögfræð- ing og Málfríði Sigríði kennara. Sigurður ólst upp í sárri fátækt, elstur átta systkina. Þegar hann var ellefu ára var æskuheimili hans leyst upp og fjölskyldan flutt hreppaflutn- ingum í Borgarfjörðinn og ólst hann eftir það upp á Svarfhóli í Stafholts- tungum. Sigurður lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum í Reykjavík 1897. Hann lagði stund á læknisfræði, fyrst hér á landi, en flutti nánast félaus vestur um haf, stundaði síðan læknanám í Chicago í Bandaríkj- unum, lauk þar læknisprófi 1907 og stundaði læknastörf um skeið. Þá lauk hann fyrrihlutaprófi í guðfræði við lúterskan prestaskóla í Chicago. Sigurður var lengst af ritstjóri og rithöfundur og lengi búsettur í Winnipeg í Kanada. Hann var mikill barnavinur, einn af stofnendum Æskunnar 1897 og ritstjóri hennar. Auk þess ritstýrði hann barnablöð- unum Sólskini, Sólöld og Veröld sem komu út í Kanada. Þá var hann rit- stjóri Lögréttu í Winnipeg um skeið. Sigurður var hugsjónamaður sem lét ekki aðra segja sér fyrir verkum. Hann var mikill bindindissinni og forvígismaður í bindindismálum Vestur-Íslendinga, einn af stofn- endum Jafnaðarmannafélagsins í Winnipeg, heitur þjóðernissinni sem hrökklaðist til Kanada undan ís- lenskum yfirvöldum vegna stóryrða í frelsisbaráttunni og svo einlægur friðarsinni að hann lenti í útistöðum við yfirvöld í Kanada er hann neitaði að gegna herþjónustu. Sögur og kvæði eftir Sigurð komu út í Winnipeg í tveimur bindum 1900-1903 og fjórar ljóðabækur eftir hann komu út í Reykjavík. Siguður lést 12.5. 1956. Merkir Íslendingar Sigurður J. Jóhannesson 90 ára Haukur Pálsson 85 ára Agnes Engilbertsdóttir Anna Guðjónsdóttir Benedikt Axelsson Geir Hólm Lily Erla Adamsdóttir Sigurður Eggertsson 80 ára Baltasar Samper Ólafur Sæmundsson Ólafur Þór Kristjánsson Sjöfn Ísaksdóttir 75 ára Jón Sigfússon Ólafur G.E. Sæmundsen Steinar Þorsteinsson Þórður Rafn Sigurðsson 70 ára Aðalsteinn Guðbergsson Árni Sveinbjörnsson Einar Guðberg Gunnarsson Jóhanna Halldóra Sigurðardóttir Jónína Gissurardóttir Konráð Erlendsson 60 ára Boja Tisma Hulda Gísladóttir Ingólfur Arnar Ármannsson Jónas Vilhelm Magnússon Kristín Magnúsdóttir Lilja Finnsdóttir Ólafur Ingiberg Waage Ragnar Guðlaugsson Viðar Sigurðsson 50 ára Andris Neimanis Anna Kristmundsdóttir Borghildur Ísfeld Magnúsdóttir Frank Dieter Luckas Gunnar Gestsson Kristín Pálsdóttir Marek Wilicki Margrét Ludwig Sigrún Ingibjörg Guðmundsdóttir Sigurður Ingvar Ólafsson Sveinn Logi Björnsson Þórey Haraldsdóttir 40 ára Ásdís Lilja Ingimarsdóttir Giedrius Zigunas Hrólfur Þór Valdimarsson Hugborg Inga Harðardóttir Jens Fannar Baldursson Jóhanna Ósk Jensdóttir Júlíus S. Fjeldsted Lára Ósk Jónsdóttir Linda Jónsdóttir Lýdía Kristín Sigurðardóttir Monika Barbara Swierczynska Piotr Krzysztof Stezala Sigurður Valgarðsson Valgeir Gunnlaugur Ísleifsson 30 ára Anna Margrét Björnsdóttir Arna Rún Guðlaugsdóttir Barbara Joanna Nowak Elísa Mjöll Guðsteinsdóttir Emilia Wyszynska Kulak Guðrún Helga Sigurðardóttir Hanna Kristín Larsdóttir Hussain Almamou Pascal Johannes de Boer Rakel Hannibalsdóttir Stefán Þorgeir Halldórsson Til hamingju með daginn 50 ára Sveinn býr á Sel- tjarnarnesi, er rafvikja- meistari og kennari og starfar við Seðlabankann. Maki: María Jónatans- dóttir, f. 1971, launafulltrúi hjá N-1. Fyrri kona: Helga Barðadóttir, f. 1967, d. 2003. Börn; Atli Freyr, f. 1991; Axel Fannar og Lovísa Birta, f. 1996. Foreldrar: Anna Sveins- dóttir, f. 1946, og Björn Olsen, f. 1946. Sveinn Logi Björnsson 30 ára Stefán ólst upp í Grímsey, hefur búið á Þórshöfn frá 1997, er sjó- maður og starfar hjá Ís- félaginu á Þórshöfn. Maki: Paulina Dudko, f. 1989, starfsmaður Langa- nesbyggðar. Foreldrar: Halldór Jó- hannsson, f. 1953, sjó- maður, og Hulda Ingibjörg Einarsdóttir, f. 1955, starfsmaður hjá Ísfélag- inu á Þórshöfn en þau eru búsett á Þórshöfn. Stefán Þorgeir Halldórsson 30 ára Hanna Kristín ólst upp í Kópavogi, er nú bú- sett í Reykjavík og er lag- erstjóri hjá Iceland í Vest- urbergi. Maki: Garðar Svansson, f. 1986, starfsmaður hjá Hringdu, netfyrirtæki. Dóttir: Lilja Brynjars- dóttir, f. 2009. Foreldrar: Ágústa Krist- ófersdóttir, f. 1964, hús- freyja, og Gísli Hauksson, f. 1957, starfsmaður hjá Eimskip. Hanna Kristín Larsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.