Morgunblaðið - 09.01.2018, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt einstaklega auðvelt með öll
samskipti í dag, bæði við ókunnuga og þína
nánustu. Vertu opin/n fyrir öllum mögu-
leikum. Þú veist ekki í hvorn fótinn þú átt að
stíga í ástamálunum.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er hætt við að þú lendir í einhvers
konar valdabaráttu í dag. Hafðu forgangsröð-
ina í lagi. Dropinn holar harðan stein.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er hætt við að aðrir séu gagn-
rýnir á það sem þú ert að gera í dag. Hver
hefur sinn djöful að draga. Reyndu að dæma
þig ekki of hart.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Komandi vikur eru upplagðar fyrir or-
lof og ferðalög. Láttu ekki verkefni safnast
fyrir á skrifborði þínu óleyst. Ekki grípa fram
fyrir hendurnar á makanum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú átt ekki í vandræðum með að segja
hlutina afdráttarlaust. Hvíldu þig og leggðu
verkefni til hliðar í smástund. Einhver gengur
á eftir þér með grasið í skónum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að fara þér hægar á vissum
sviðum lífsins, en þó ekki öllum í einu. Ein-
hver kemur inn í líf þitt eins og stormsveipur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Í hönd fer tímabil mannfagnaða og ljós
þitt mun skína skært. Hálfnað er verk þá haf-
ið er. Vinur þinn þarfnast aðstoðar, vertu til
staðar fyrir hann.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ástæðulaust að efast um
allar þínar ákvarðanir. Umhyggja annarra fyrir
þér gleður þig. Þú ert sáttasemjari af Guðs
náð.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Mundu að sjaldan veldur einn þá
tveir deila. Ekki láta neinn bilbug á þér finna
þótt þú mætir mótstöðu í vissu máli. Vilji er
oft allt sem þarf.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú vekur athygli annarra og finnst
notalegt að láta athyglina leika um þig.
Gættu þess að skrifa ekki undir neitt sem þú
ert ósátt/ur við.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert með frábæra hugmynd
sem þú vinnur að. Ekki tjóar að æðrast yfir
orðnum hlut. Ræktin hefur setið á hakanum
síðustu vikur, taktu þig saman í andlitinu og
drífðu þig af stað.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ættir að gefa þér tíma til sam-
skipta við vini þína og njóta lífsins. Að sleppa
fram af sér beislinu er ekki þinn tebolli en
það er í lagi að brosa og gleðjast yfir lífinu.
Davíð Hjálmar Haraldsson skrif-aði þetta skemmtilega ljóð í
Leirinn á sunnudag:
Á Skaganum sá ég skakkan turn,
skakkari en þann í Písa.
Á Skaga er turn sem enginn ann;
úrtökuforn og snjáður.
Spekingar fóru að spá í hann
og sprengdu – hann stóð sem áður.
„Við mölvum hann eins og eggjaskurn
með auðguðu dínamiti,
nú fellum við þennan fjandans turn
fumlaust með tækniviti.“
Og fræðingur kom með Kjarna í dunk
og kveikiþráð sem þeir tengdu
(Sorpa fékk einhvern afgangsslunk)
við úran í dós – og sprengdu.
Brjáluðust kindur, kýr og tröll
í kolbikasvörtum mekki
og skýstrókur reis og skulfu fjöll
en Skakkiturn – hann féll ekki.
Enn finnst á Skaga skakkur turn,
skakkari en sá í Písa.
Auðvitað kallast þetta kvæði á
við eina af þekktustu limrum Krist-
jáns Karlssonar:
„Skammist þér yðar, ó, skvísa,“
mælti skakki turninn í Písa.
„Ég er einungis bákn
og alls ekkert tákn
um eitthvað sem vildi ekki rísa.“
Jón Gissurarson skrifar á Boðn-
armjöð í gær, – og um veðrið auð-
vitað að góðum og gömlum íslensk-
um sið: „Nú er rigningin hætt, en
samt ennþá þíðviðri og snjófölið
sem huldi jörðina er á undanhaldi.
Himinn er skýjaður en fjalla-
hringur Skagafjarðar blasir þó við.
Enga hríð er að sjá í kortunum svo
langt sem veðurspáin nær. Ein-
hverjar umhleypingar eru þó á
næstu dögum.
Ekkert hríðar ennþá hér
okkur tíðin gleður
Núna þíða úti er
alveg blíðu veður.“
Vel skil ég Magnús Halldórsson
þegar hann kveður:
Hafa mig bæði höpp og glöpp,
hent á lífsins vegi.
Þó ekkert skilji öpp né snöpp,
og alveg hjá þeim sveigi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Skakki turninn í Písa
og veðrið
Í klípu
„HÚMOR GETUR VERIÐ GÓÐ LEIÐ
TIL AÐ YFIRVINNA STRESS. HAFÐU
ÞAÐ Í HUGA NÆST ÞEGAR ALLIR ERU
AÐ HLÆJA AÐ ÞÉR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EKKI SPYRJA SPURNINGA. GÁÐU BARA
FYRIR MIG HVORT REGNHLÍFIN MÍN SÉ
UNDIR SKÁPNUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að segja hversu mikið
við elskum þig.
ÞETTA ER
ÁHUGAVERT…
VAN GOGH SAGÐI AÐ APPELSÍNU-
GULUR VÆRI LITUR BRJÁLÆÐISINS
ÞAÐ ER
BILAÐ
ÞESSI HORN KREFJAST VIRÐINGAR! AÐ EKKI SÉ MINNST Á ALÚÐ!
Víkverji er að lesa endurminn-ingar Tonys Iommis, gítarleik-
ara breska málmbandsins Black
Sabbath; mannsins sem gjarnan er
nefndur „faðir þungarokksins“.
Kennir þar margra grasa enda lifa
rokkarar gjarnan býsna óhefðbundu
lífi.
Sumar sögurnnar eru með mikl-
um ólíkindum. Í eitt skiptið, þegar
Black Sabbath var nýbúin að slá í
gegn, lenti Iommi á miklu djammi á
tónleikaferðalagi og barst leikurinn
inn á hótelherbergi þar sem kona
nokkur geispaði hreinlega golunni,
að því er Iommi og ónefndum félaga
hans virtist. Við þær aðstæður voru
góð ráð dýr og fékk félaginn þá hug-
mynd að varpa konunni bara fram af
svölum hótelsins. Varla þarf að taka
fram að kapparnir voru undir áhrif-
um áfengis og mjög líklega ein-
hverra sterkari efna í þokkabót.
Eins ömurleg hugmynd og honum
finnst þetta í dag kveðst Iommi hafa
fallist á þetta á staðnum enda dóm-
greindin löngu fokin út í veður og
vind. Þar sem þeir voru að drösla
konunni út á svalir lifnaði hún
skyndilega við, spratt á fætur og
yfirgaf samkvæmið. Eins og ekkert
hefði ískorist. Iommi var að vonum
létt og kveðst gítarleikarinn hugsa
til þessa atviks með miklum hryll-
ingi. Hann var sumsé bara hárs-
breidd frá því að varpa spelllifandi
konu fram af svölum. Og hafði hún
þó alls ekki talað illa um Costco!
x x x
Það var ekki bara nafnið; nokkurdrungi var yfir Black Sabbath á
þessum upphafsárum og hefur
raunar verið æ síðan. Það varð til
þess að margir voru sannfærðir um
að fjórmenningarnir væru að reka
erindi kölska í þessum heimi. Það
var þó af og frá. Þetta voru bara
ósköp venjulegir guðhræddir dreng-
ir. Í eitt skipti beið hópur djöfla-
dýrkenda eftir Black Sabbath á hót-
eli í Bandaríkjunum í kuflum og með
logandi kerti. Einhver púki hljóp í
Iommi og félaga sem sammæltust
um að blása á kerti dýrkendanna og
syngja fyrir þá afmælissönginn.
Hleypti sá gjörningur illu blóði í
mannskapinn sem hvarf á braut –
bölvandi og ragnandi.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Náðugur og miskunnsamur er Drott-
inn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.
(Sálmarnir 103:8)
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////