Morgunblaðið - 09.01.2018, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018
Ævintýrakvikmyndin Jumanji: Wel-
come to the Jungle naut mestrar að-
sóknar um nýliðna helgi af þeim
myndum sem voru sýndar í kvik-
myndahúsum landsins. Alls sáu hana
rúmlega 3.500 manns en um 2.500
nýjustu Stjörnustríðsmyndina, The
Last Jedi, sem setið hafði á toppnum
allt frá frumsýningu fyrir jól í fyrra.
Um 56.700 manns hafa séð Stjörnu-
stríðsmyndina eða um einn sjötti
þjóðarinnar sem hlýtur að teljast
harla góð aðsókn. Þriðja vinsælasta
mynd helgarinnar var teiknimyndin
um nautið Ferdinand sem talsett er
bæði á íslensku og pólsku.
Bíóaðsókn helgarinnar
Jumanji skákar
Stjörnustríði
Jumanji (2017) 2 2
Star Wars: The Last Jedi 1 4
Ferdinand 3 2
The Greatest Showman 5 2
Pitch Perfect 3 4 2
Father Figures Ný Ný
All the Money in the World Ný Ný
The Disaster Artist 7 3
Coco 6 7
Svanurinn Ný Ný
Bíólistinn 5.–7. janúar 2017
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Ævintýri Úr ævintýramyndinni
Jumanji: Welcome to the Jungle.
Hinn þrítugi rússnesk-þýski píanó-
leikari Igor Levit hlaut á dögunum
hin einstöku Gilmore Artist-verð-
laun, einhver óvenjulegustu verð-
laun sem veitt eru innan klassíska
tónlistarheimsins. Verðlaunaféð
nemur 300 þúsund Bandaríkjadöl-
um, um 31 milljón íslenskra króna.
Verðlaunin eru afhent einum píanó-
leikara fjórða hvert ár en ekki eftir
samkeppni af neinu tagi heldur
ferðast óþekkt dómnefnd verð-
launanna milli tónleikastaða víða
um lönd, í leit að einstökum píanó-
leikara sem hafi hæfileika til að
setja mark sitt á tónlistarsköpun
með einstökum hætti.
Verðlaunin eru kennd við banda-
rískan viðskiptajöfur frá Michigan
sem dáði píanótónlist og hafa þau,
að sögn The New York Times, eink-
um verið veitt ungum en jafnframt
vel þroskuðum píanóleikurum sem
hafa fundið sér sína leið í túlkun-
inni. Meðal fyrri verðlaunahafa má
nefna Rafal Blechacz, Kirill Ger-
stein, Ingrid Fliter, Piotr Anders-
zewski og Leif Ove Andsnes.
Levit hefur ekki bara vakið at-
hygli fyrir einstakan leik og túlkun
– hann er með samning við Sony
sem hefur gefið út nokkra diska
með leik hans – heldur líka
ákveðnar pólitískar skoðanir sem
hann hikar ekki við að tjá. Hefur
hann til að mynda gagnrýnt Trump
Bandaríkjaforseta harkalega.
Levit vakti fyrst athygli á al-
þjóðavettvangi þegar hann fékk
silfurverðlaun í Arthur Rubinstein-
píanókeppninni árið 2005 og þá
vakti samstarf hans og gjörninga-
listakonunnar Marinu Abramovic,
við flutning Goldberg-tilbrigða J.S.
Bachs árið 2014, mikla athygli.
Levit hlaut Gilmore Artist-verðlaunin
Ljósmynd/Robbie Lawrence
Píanistinn Igor Levit fékk 31 milljón
króna í verðlaun fyrir leik sinn.
Enska hljómsveitin Radiohead hef-
ur höfðað höfundarréttarmál á
hendur lagasmiðnum og söngkon-
unni Lönu Del Rey vegna lags
hennar „Get Free“ sem Radiohead-
mönnum þykir heldur of líkt smelli
þeirra „Creep“. Radiohead krefst
þess að fá allar greiðslur fyrir
flutning á laginu, skv. frétt dag-
blaðsins Guardian.
Svo vill til að Radiohead var lög-
sótt af lagahöfundunum Albert
Hammond og Mike Hazlewood fyr-
ir lagastuld en þeim þótti „Creep“
einum of líkt „The Air That I
Breathe“ sem þeir sömdu fyrir The
Hollies. Radiohead-menn við-
urkenndu að margt væri líkt með
lögunum og greiddu skaðabætur.
Del Rey segist hafa boðið Radio-
head, eða lögmönnum hljómsveit-
arinnar, 40% af flutningsgreiðslum
á laginu en því boði hafi verið hafn-
að og 100% krafist. Del Rey segir
málið því ekki verða leyst nema fyr-
ir dómstólum.
Thom Yorke og félagar í Radio-
head hafa ekki tjáð sig um málið
enn sem komið er.
Radiohead í mál við Lönu del Rey
Í klípu Lana Del Rey á umslagi plötu sinn-
ar Lust for Life sem hefur að geyma hið
umdeilda „Get Free“.
Undir trénu 12
Atli flytur inn á foreldra sína
sem eiga í deilu við fólkið í
næsta húsi. Stórt og fagurt
tré sem stendur í garði for-
eldranna skyggir á garð ná-
grannanna, sem eru þreyttir
á að fá ekki sól á pallinn.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 22.00
The Party
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 73/100
IMDb 6,8/10
Bíó Paradís 20.00
The Killing of a
Sacred Deer
Skurðlæknirinn Steven flæk-
ist inn í erfiðar aðstæður og
þarf að færa óhugsandi fórn.
Metacritic 73/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 17.45, 20.00
Eldfim ást 16
Kappaksturskona og glæpa-
maður verða ástfangin þrátt
fyrir ólíkan uppruna. Það
reynir á trygglyndi beggja
þegar glæpalífernið súrnar.
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 17.30, 20.00,
22.30
Svanurinn 12
Svanurinn segir frá afvega-
leiddri níu ára stúlku sem er
send í sveit um sumar til að
vinna og þroskast, en bland-
ast í atburðarás sem hún
skilur varla sjálf.
IMDb 7,0/10
Smárabíó 20.10, 22.20
Háskólabíó 18.10, 20.50
Borgarbíó Akureyri 18.00
Father Figures 12
Tvíburabræður leita föður
síns eftir að þeir komast að
því að móðir þeirra hafði log-
ið til um það í mörg ár að
hann væri fallinn frá.
Metacritic 23/100
IMDb 5,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.30
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.30
All the Money in the
World 16
John Paul Getty III er rænt
árið 1973, aðeins 16 ára .
Þegar afi hans, J. Paul Getty,
ríkasti maður heims, neitar
að borga lausnargjaldið
reynir móðir hins unga
Johns að bjarga syni sínum.
Metacritic 73/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 19.50, 22.30
Sambíóin Keflavík 22.30
Háskólabíó 18.00, 21.00
Pitch Perfect 3 12
Metacritic 40/100
IMDb 6,3/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00,
22.00
Smárabíó 17.50, 20.10,
22.30
Borgarbíó Akureyri 18.00,
22.20
Daddy’s Home 2 12
Metacritic 30/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00
The Greatest
Showman 12
Metacritic 48/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 17.40, 19.30,
19.50, 22.10
Háskólabíó 18.10, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
Wonder
Saga um ungan dreng með
afmyndað andlit, sem tekst
að fá fólk til að skilja að feg-
urð er ekki á yfirborðinu.
Metacritic 66/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
21.00
Ferdinand Ferdinand er risastórt naut
með stórt hjarta. Hann er
tekinn í misgripum fyrir
hættulegt óargadýr, og er
fangaður og fluttur frá heim-
ili og fjölskyldu. Hann er
ákveðinn í að snúa aftur
heim til fjölskyldunnar, og
safnar saman mislitri hjörð
aðstoðarmanna.
Metacritic 58/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 17.30
Sambíóin Álfabakka 17.40
Sambíóin Keflavík 17.40
Smárabíó 15.00, 15.10,
17.30
Coco Röð atburða, sem tengjast
aldagamalli ráðgátu, fer af
stað. Það leiðir til óvenju-
legra fjölskylduendurfunda.
Metacritic 81/100
IMDb 8,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Sambíóin Akureyri 18.00
Justice League 12
Batman safnar liði af ofur-
hetjum; Wonder Woman,
Aquaman, Cyborg og The
Flash, til að sigrast á að-
steðjandi ógn.
Metacritic 45/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Myndin byrjar þar sem sú síðasta endaði. Rey
heldur áfram ferðalagi sínu með Finn, Poe og
Luke Skywalker.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 85/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.20, 17.50, 20.30
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 17.50, 21.00
Sambíóin Akureyri 17.50, 21.00s
Star Wars VIII - The Last Jedi 12
Jumanji: Welcome to the Jungle 12
Fjögur ungmenni finna gamlan tölvuleik en komast fljótt að
því að þetta er enginn venjulegur leikur.
Metacritic 58/100
IMDb 7,0/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 17.30
Smárabíó 15.00, 16.30, 17.10,
20.00, 22.00, 22.40
Háskólabíó 18.15, 20.50
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.10
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
The Disaster Artist 12
Mynd sem skyggnist bak við tjöldin þegar verið var að gera
myndina The Room, sem hefur
fengið stimpilinn versta kvik-
mynd allra tíma.
Metacritic 76/100
IMDb 8,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 22.20
Sambíóin Kringlunni 18.00,
20.20, 22.40
Bíó Paradís 18.00, 22.15
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna