Morgunblaðið - 09.01.2018, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 9. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Biðu í sólarhring með að leita
2. Með bólur á rauða dreglinum
3. Andlát: Sigríður Hrólfsdóttir
4. Safna fyrir Karl sem berst …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sigurvegarar í keppni ungra ein-
leikara, sem Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands stendur fyrir í samvinnu við
Listaháskóla Íslands og haldin er ár-
lega, koma fram á tónleikum með
hljómsveitinni á fimmtudaginn, 11.
janúar, kl. 19.30. Keppnin fór fram
28. og 29. október í fyrra og tóku 23
ungir einleikarar þátt í henni og fjórir
urðu hlutskarpastir, Ásta Kristín
Pjetursdóttir víóluleikari, Bryndís
Guðjónsdóttir sópransöngkona, Guð-
mundur Andri Ólafsson hornleikari
og Romain Þór Denuit píanóleikari.
Stjórnandi á tónleikunum á
f́immtudag verður Daniel Raiskin.
Ljósmynd/Bjarni Grímsson
Ungir einleikarar
koma fram með SÍ
Norski rithöfundurinn Vigdis
Hjorth verður gestur á Höfundakvöldi
Norræna hússins í kvöld sem hefst kl.
19.30 og mun Sunna Dís Másdóttir,
verkefnastjóri bókmennta á Borgar-
bókasafni Reykjavíkur, stýra um-
ræðum. Hjorth er menntuð í hug-
myndasögu, stjórnmálafræði og
bókmenntafræði og í nýjustu skáld-
sögu sinni, Arv og miljø, sem kom út
fyrir tveimur árum, tekst hún á við
samfélagsmeinið mis-
notkun og hvernig
hún getur haft af-
gerandi áhrif
og afleiðingar
fyrir mann-
eskjuna það sem
eftir lifir, eins og
segir í tilkynningu.
Höfundakvöld með
Vigdis Hjorth
Á miðvikudag Suðlæg átt, 5-13 m/s, skýjað með köflum og dálitl-
ar skúrir eða él, en þurrt að mestu norðanlands. Hiti um og undir
frostmarki.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Talsverð eða mikil rigning suðaustanlands
en lengst af úrkomulítið norðanlands. Suðaustan 13-18 m/s suð-
austan til síðdegis, en mun hægari vestan til. Hiti víða 2 til 7 stig.
VEÐUR
„Það er draumur að mæta
þessum stórstjörnum. Við
höfum strítt Manchester
United, Stoke, Crystal Pa-
lace og Watford svo að von-
andi finnum við líka ein-
hverjar glufur gegn City,“
segir Hörður Björgvin
Magnússon, sem mætir
Manchester City í undan-
úrslitum enska deildabik-
arsins í knattspyrnu í kvöld.
Bristol hefur slegið út fjög-
ur úrvalsdeildarlið. »1
Getum vonandi
líka strítt City
„Fyrir tímabilið var ekki búist við of
miklu. Ég held að menn hafi verið
ánægðir með gengi liðsins í upphafi
tímabilsins því ef til vill var það
betra en búist var við. Þegar búið er
að byggja upp væntingar þá er alltaf
erfitt að lenda í lægð eins
og við lentum í,“ segir
Birkir Árnason, fyrirliði
Bjarnarins, en liðið
er til umfjöllunar
í liðskynningu
íþróttablaðs-
ins í dag.
»2-3
Væntingar byggðust
upp eftir góða byrjun
Þór frá Akureyri er klárlega lið 13.
umferðar Dominos-deildar karla í
körfubolta, skrifar Benedikt Guð-
mundsson sem gerir upp umferðina í
íþróttablaðinu í dag. „Eins flottur
sigur og þetta var fyrir Þór þá eru
þetta að sama skapi gríðarleg von-
brigði fyrir Keflavík. Deyfð og kæru-
leysi var allsráðandi,“ skrifar þjálf-
arinn meðal annars. »4
Akureyringar eiga lið
umferðarinnar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Flateyjarbók er í sérflokki sem
stærsta og jafnframt eitt af merk-
ustu handritum Íslendinga,“ segir
Svanhildur Óskarsdóttir, rannsókn-
ardósent hjá Stofnun Árna Magn-
ússonar í íslenskum fræðum. Hafin
er viðgerð á Flateyjarbók og á dög-
unum ákvað ríkisstjórnin að styrkja
verkefnið með sérstöku fimm millj-
óna króna framlagi.
Í núverandi ástandi liggur Flat-
eyjarbók undir skemmdum, en þeg-
ar bókin var ljósprentuð árið 1930
var hún tekin úr bandi sínu. Við það
trosnaði og losnaði eitt og annað.
Lím sem sett var á kjölinn þá er nú
farið að valda vandræðum, til dæmis
opnast handritið illa.
Hreinsa bókfellssíður
„Fyrir liggur nú að losa þarf allt
handritið – sem er í tveimur bindum
– úr bandinu, hreinsa burt lím og
aukaefni og láta skinnblöðin svo
jafna sig í rakastýrðu lofti. Þannig
leggjast þau rétt út og þá fyrst má
raða þeim aftur inn í band bókar-
innar sem er frá 18. öld,“ segir Svan-
hildur um Flateyjarbók sem ásamt
Konungsbók Eddukvæða var fyrsti
skammtur íslensku handritanna sem
Danir afhentu Íslendingum árið
1971. Var það gert með mikilli við-
höfn og frægt var þegar Helge Lar-
sen afhenti Gylfa Þ. Gíslasyni
menntamálaráðherra fornritið góða
með hinum fleygu orðum: „Vær så
god, Flatøbogen.“
Í Flateyjarbók eru fjölmargar
konungasögur og aðrar fornsögur á
225 bókfellssíðum, sem þýðir að 112
kálfa og hálfum betur hefur þurft í
þetta mikla rit. Bókin var að mestu
leyti skrifuð á árunum 1387 til 1394
fyrir Jón Hákonarson í Víðidals-
tungu. Á sautjándu öld var hún kom-
in í eigu fólks í Flatey – þaðan sem
hún barst Brynjólfi Sveinssyni Skál-
holtsbiskupi árið 1647. Biskup gaf
Friðriki 3. Danakonungi bókina
1656, sem varð einn af kjörgripum
Konungsbókhlöðunnar í Kaup-
mannahöfn.
„Yfirleitt eru íslensku skinn-
handritin í nokkuð góðu ásigkomu-
lagi. Þeim var vel sinnt í Kaup-
mannahöfn og áður en afhending
þeirra hófst fóru forverðir ytra vel
yfir bækurnar og gerðu við þær. En
Flateyjarbók þarf frekari aðhlynn-
ingar við og nú getum við greitt úr
því. Það eru tveir forverðir sem
munu vinna saman að því að ljúka
viðgerðinni, Vasare Rastonis, for-
vörðurinn okkar, og Jiri Vnouèek
sem er forvörður á Konunglega
bókasafninu í Höfn. Vonandi lýkur
henni eftir ár eða svo. Þá verður
bókin komin í sýningarhæft ástand,“
segir Svanhildur.
Enn berast handrit
Í vörslu Stofnunar Árna Magn-
ússonar eru nú alls 1.666 handrit og
handritshlutar úr Árnasafni, um
7.360 fornbréf auk 141 handrits úr
Konungsbókhlöðunni í Kaupmanna-
höfn. Þau handrit sem hingað komu
þurftu að vera skrifuð á Íslandi og
flest að fjalla um íslenskt efni – og
eru þau varðveitt í traustri geymslu í
Árnagarði, húsi á lóð Háskóla Ís-
lands. Í Kaupmannahöfn urðu eftir
um 1.350 handrit, sem fremur hafa
skírskotun út fyrir Ísland.
Mörg af íslensku skinnhandrit-
unum bárust til Kaupmannahafnar
fyrir tilstuðlan Árna Magnússonar
handritasafnara. Eitt og annað varð
þó eftir hér heima og hefur alveg
fram á síðustu daga verið að tínast
til Árnastofnunar, þá einkum hand-
rit sem eru frá 18. og 19. öld. Eink-
um eru þetta handrit á pappír hvar
er að finna sagnir og rímur. Má þar
nefna gjöf sem barst skömmu fyrir
jól, rit sem lengi voru varðveitt á
bænum Leikskálum í Haukadal í
Dalasýslu og eru uppskriftir meðal
annars af Ljósvetningasögu og
Svarfdælu.
Forverðir fá Flateyjarbók
Saga og skinn
af 112 og hálfum
kálfi í viðgerð
Morgunblaðið/Hanna
Sagnaarfur Vasare Rastonis forvörður, t.v., og Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknardósent blaða í Flateyjarbók.
Flateyjarbók Fallegt letur og allt er
greinilega af miklu listfengi gert.